Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
19
UMSJÓN MEÐ BÓKABLAÐI EGILL HELGASON
ækur &
'akkelsi
Þetta er árstíð þegar
mæðir mikið á þeim sem
yrkja í orð og þeim sem
yrkja í deig, skáldum og
Vanmetnir rithöfundar
og ofmetnar bækur
átta rithöfundar ansa spurningum
bökurum. Af því tilefni,
eða kannski af engu til-
efni, fengum við skáld til
að reiða fram kökuupp-
skrift sem þau hafa dálæti
á, uppáhaldskökuupp-
skriftina; en líka bakara til
að reiða fram ljóð sem þeir
hafa dáiæti á, uppáhalds-
ljóðið. Niðurstaðan: Skáld
kunna að baka kökur, að
minnsta kosti sum, og bak-
arar eru náttúraðir fyrir
mikilfenglegri skáldskap
en Piparkökusönginn og
Kanntu brauð að baka ...
Nokkrir rithöfundar, valdir
næstum af handahófi, svara
nokkrum spurningum. í aug-
um þeirra eru sumar góðar,
sumar skítsæmilegar, sumar
ekki svaraverðar, sumar
kannski blöskranlegar. Allar
snerta þær skáldskap, þeirra
eigin eða annarra. Athugum
svörin.
ÞÓRARINN ELDJÁRN
Þórarinn Eldjárn gefur út
þrjár bækur þetta misserið:
barnabókina Óðfluga og
ljóðabækurnar Ort og Hin
háfleyga moldvarpa.
Gœtiröu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérd eftir aö
hafa gefið út?
— Nei.
Verk eftir þig eda kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel vid?
— Sturtukaflinn í Skugga-
boxi, af því hann er svo þurr,
en þó svo blautur.
Hvad vildirdu fást vid efþú
vœrir ekki rithöfundur?
— Eg vildi vera lögga á
mótorhjóli.
Geturöu nefnt viðurkennt
skáldverk, bók, sem þér
finnst írauninni hrein tímasó-
un aö lesa?
— Finnegan’s Wake (það
nægir að skoða hana).
Bók sem þér finnst einna
ánœgjulegast aö hafa lesiö?
— Glæpur og refsing.
Bók sem vakti einu sinni
hjá þér hrifningu, en gerir
þaö ekki lengur?
— Allar bækur J.P. Donle-
avys.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu slœmur?
— Aldnir hafa orðið.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu góöur?
— Ský í buxum.
Sögupersóna sem fer hvaö
mest í taugarnar á þér?
— Ignatius J. Reilly.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvaö mesta aðdáun?
— Ignatius J. Reilly.
Vanmetinn rithöfundur, of-
metinn rithöfundur?
— Ég treysti mér ekki til að
svara þessu, en vísa þess í
stað beint á Matthías Viðar
Sæmundsson, sem er stjórn-
arformaður hjá Jöfnunarsjóði
ofmetinna og vanmetinna.
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR
Kristín Ómarsdóttir er í þá
mund að gefa út safn af stutt-
um ævintýrum og sögum,
Einu sinni sögur.
Gœtiröu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérð eftir að
hafa gefiö út?
—- Nei. Ég sé ekki eftir
neinu.
Verk eftir þig eöa kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel viö?
— Leikgerðin af Lísu í
Undralandi sem ég skrifaði
fyrir þriðja ár Leiklistarskóla
íslands, ég sakna hennar allt-
af.
Ertu meö eitthvaö í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
aö birta?
— Já. Of brjálað fyrir minn
smekk.
Er einhver grein skáldskap-
arins sem þú vilt ekki eöa tel-
ur þig ekki geta stundaö?
— Sonnettur.
Geturöu nefnt skáldverk,
bók, sem þér finnst í rauninni
hrein tímasóun að lesa?
— Andi fuglanna eftir Sim-
onne Céret.
Bók sem þér finnst einna
ánœgjulegast aö hafa lesiö?
—- A hverfanda hveli.
Bók sem vakti einu sinni
hjá þér hrifningu, en gerir
þaö ekki lengur?
— Andi fuglanna eftir Sim-
onne Céret.
Bókartitill sem þérþykir af-
spyrnu slœmur?
— Hamingjutrogið.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu góöur?
— Lendar elskhugans. Þel.
1000 & 1 nótt. Svefnhjólið.
Sögur frá Noregi. O.s.frv. Ég
hef mjög breiðan smekk.
Sögupersóna sem fer hvaö
mest í taugarnar á þér?
— Maria Angelica í Anda
fuglanna.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvaö mesta aödáun?
— Ég er búin að elska
marga í bókum. T.d. elskaði
ég einu sinni manninn í Fávit-
anum og stelpuna í Ég græt
að morgni. Núna elska ég
tígrisdýrið í Janoschar-bók-
unum.
Vanmetinn rithöfundur?
— Kristján Jóhann Jóns-
son.
SIGURÐUR A. MAGNÚS-
SON
Sigurður A. Magnússon
sendir ekki frá sér bók á þess-
ari vertíð. Hann er þó viðrið-
inn útgáfu bókar um Grikk-
land fyrr og nú. Sigurður
starfar nú við að þýða Ulysses
eftir James Joyce.
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ
EARMRA ,
(Sartland
Ást að láni
Barbara
Cartland
ÁSTAÐ LÁNI
Gilda neyðist til að leika
hlutverk hinnar vinsœlu
systur sinnar, Heloise, í
samkvœmislífi Lundúna.
En fljótlega dregst hún
inn í njósnamál og fleiri
atburðir gerast, sem hún
hafði ekki fyrirséð.
Eva Steen
ÍLEITAÐ ÖRYGGI
Flestar ungar stúlkur líta
björtum augum fram á
veginn, en það gerir
húnekki. Húnhorfirtil
baka — til hinnar glötuðu
bernsku sinnar, þegar
hún áttifélaga.sem hún
hafði samskipti við, og
þegar foreldrar hennar
höfðu tíma fyrir hana.
Erik Nerlöe
SIRKUSBLÓÐ
Hún elskaði lif sitt sem
listamaður og var dáð
sem sirkusprinsessa. En
dag einn dróst hún inn
annars konar heim og
varð að velja á milli
þess að vera sirkus-
stjarna áfram eða
gerast barónessa á
stóru herrasetri.
Theresa Charles
ÖNNUR
BRÚÐKA UPSFERÐ
Maura hafði þráð þennan
dag, þegar ungi maður-
inn, sem hún hafði gifst með
svo litlum fyrirvara, kœmi
heim eftir sex ára fangavist í
erlendu fangelsi. En sá
Aubrey, sem nú vildi endi-
iega fara með hana í „aðra
brúðkaupsferð" til fiskiþorps,
þar sem þau höfðu fyrst
hitst, virtist gersamlega
breyttur maður.
Else-Marie Nohr
AÐEINS SÁ SEM
ELSKAR ER RÍKUR
Þegar Anita var fimmtá.n
ára gömul samdi Lennart
Ijóð handa henni, sem
hann nefndi „Aðeins sá
semelskar errikur".
Mörgum árum seinna
fékk Lennart tcekifœri
tii að minna Anitu á
þessi orð.
SKUGGSJÁ
Bókabúð Olivers Steins sf
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJA - NYJAR BÆKUR - SKUGGSJA