Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 20
20,
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991
ækur &
'akkelsi
Gœtiröu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérb eftir aö
hafa gefid út?
— Skáldsagan Næturgestir
sem var ungæðisleg og mest-
anpart misheppnuð frum-
raun í þeirri grein.
Verk eftir þig eda kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel viö?
— Möskvar morgundags-
ins, sem fjallar um ógeðfelld-
an strákling í uppreisn gegn
umhverfi sínu og viðteknum
reglum samfélagsins. Fyrir
vikið varð sagan ekki nándar
nærri eins vinsæl og Undir
kalstjörnu, en hún ristir að
mínum dómi dýpra.
Ertu med eitthvad í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
ad birta?
— í skúffunni er ég með
stórt safn þýddra Ijóða eftir
mörg helstu skáld síðustu 150
ára sem reynst hefur erfitt að
fá útgefið, sömuleiðis stórt rit-
gerðasafn sem ég hef ekki
enn reynt að koma á fram-
færi, og loks tvö ófullburða
leikrit sem sennilega eru ekki
sýningarhæf.
Er einhver greiri skáldskap-
arins sem þú vilt ekki eda tel-
ur þig ekki geta stundad?
— Eg hef reynt þær allar og
veit satt að segja ekki hver
þeirra hentar mér best.
Gœtiröu nefnt viöurkennt
skáldverk, bók, sem þér
finnst í rauninni lirein tímasó-
un ad lesa?
— Öll skáldverk færa
manni eitthvað nýtt, ferska
innsýn eða óvænt sjónar-
horn, en ætli Norðan við stríð
eftir Indriða G. Þorsteinsson
sé ekki það viðurkennda
skáldverk sem minnstu miðl-
aði.
Bók sem þér finnst einna
ánœgjulegast ad hafa lesid?
— Heimsljós og Brekku-
kotsannáll.
Bók sem einu sinni vakti
— Urðargaldur (Þorsteinn
frá Hamri) og Hliðin á slétt-
unni (Stefán Hörður Gríms-
son).
Sögupersóna sem fer hvaö
mest í taugarnar á þér?
— Páll Jónsson blaðamað-
ur í þriggja binda skáldverki
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvaö mesta aödáun?
— Ódysseifur, Zorbas, Leo-
pold Bloom og Ólafur Ijósvik-
ingur.
Vanmetinn rithöfundur?
— Ragnheiður Jónsdóttir,
Steinar Sigurjónsson.
Ofmetinn rithöfundur?
— Gervimennska er aðals-
mark íslendinga og ekki
vinnandi vegur að tína til of-
metna höfunda, en flestir eru
þeir virkir í fjölmiðlaheimin-
um.
STEINUNN
SIGURÐARDÓTTIR
Rétt nýkomin er út Ijóða-
bók Steinunnar Sigurðardótt-
ir, Kúaskítur og norðurljós.
Gœtirdu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérd eftir ad
hafa gefid út?
— Nei. Hins vegar þótti
mér á vissu tímabili að fyrstu
tvær ljóðabækurnar mínar
(1969 og 1971) væru bernsku-
brek. Mér finnst það ekki
lengur (gengin í barndóm).
Verk eftir þig eda kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel við?
— Ég er grunsamlega
ánægð með nýju Ijóðabókina
mína. Ég veit hver af fyrri
bókunum mínum er best, en
þú skalt ekki halda að ég fari
eitthvað að gefa það upp.
Ertu með eitthvað í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
að birta?
— Já. Sviðsleikrit. Kann
ekki að skrifa svoleiðis.
Hvað vildirðu fást við ef þú
vœrir ekki rithöfundur?
— Það blundar í mér land-
eyða sem hefur ekki fengið
að njóta sín sem skyldi.
Geturðu nefnt viðurkennt
skáldverk, bók, sem þér
finnst í rauninni hrein tímasó-
un að lesa?
— Ýmsar frægar bækur hef
ég ekki getað lesið, en ég
gleymi jafnóðum hverjar þær
eru. Aðeins eitt dæmi kemur
upp í hugann eftir mikla leit,
það er Nafn rósarinnar, sem
ég reyndi við á þremur tungu-
máium.
Bók sem þér finnst einnu
ánœgjulegast að hafa lesið?
— Islandsklukkan, Kar-
hjá þér hrifningu, en gerir
það ekki lengur?
— Morgunn lífsins eftir
Kristmann Guðmundsson.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu slœmur?
— Silkikjólar og vaðmáls-
buxur (skáldsaga eftir Sigur-
jón Jónsson).
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu góður?
amazov-bræður.
Bókartitdl sern þér þykir af-
spyrnu góður?
— Light in August (Faulkn-
er). Un Barrage contre le
Pacifique (Duras).
Sögupersóna sem fer Iwað
mest í taugarnar á þér?
— Sögupersónur fara aldrei
í taugarnar á mér, nema þær
séu illa gerðar frá höfundar-
ins hálfu. Það getur líka verið
pirrandi ef þær eiga sér of
augljósa fyrirmynd í raun-
veruleikanum, ég tala nú
ekki um horrorinn þegar höf-
undar fara út í það að skopast
að öðrum núlifandi höfund-
um.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvað mesta aðdáun?
— Kannski Snæfríður sjálf.
Hins vegar er það Litla stúlk-
an með eldspýturnar sem
hefur haft mest áhrif á mig,
því ég get ekki hlustað ógrát-
andi á þá sögu. Ég kann þeim
Iitlar þakkir sem gaf dóttur
minni hana á snældu hér um
árið, með þeim afleiðingum
að ég var í felum bak við hurð
bróðurpartinn úr jólahátíð-
inni.
Vanmetinn rithöfundur?
— Ég hef áhyggjur af að við
munum ekki nógu vel eftir
Málfríði Einarsdóttur. Bæk-
urnar hennar mega ekki
dofna í vitundinni, því þær
eru fjársjóður og alveg ein-
stakar í bókmenntasögunni
okkar.
Ofmetinn rithöfundur?
— Þú hankar mig ekki á
þessu.
GUÐMUNDUR ANDRI
THORSSON
Guðmundur Andri Thors-
son sendir frá sér aðra skáld-
sögu sína fyrir þessi jól, Is-
lenska drauminn.
Gœtirðu nefnt verk eftir þig
sem þú beinltnis sérð eftir að
hafa gefið út?
— Nei. Þetta eru bara tvær
bækur og þær eru báðar fín-
ar. Og þótt þær væru lélegar
væri það líka fínt.
Verk eftir þig eöa kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel við?
— 5. kaflinn í Minka Tan-
gest — hann er fínn. Og líka
Form sem ég orti með Gunn-
ari Helga.
Ertu með eitthvað í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
uð birta?
— Já, nokkur ljóð; þau eru
ekki bara óskiljanleg heldur
líka einhvern veginn lélega
óskiljanleg.
Geturðu nefnt viðurkennt
skáldverk, bók, sem þér
finnst í rauninni hrein tímasó-
un að lesa?
— Nei, það er aldrei tíma-
sóun að lesa. Auk þess skil ég
ekki hugtakið — liggur okkur
eitthvað á?
Bók sem þér finnst einna
ánœgjulegast að hafa lesið?
— Grettla. Óli Alexander
Fílíbomm bomm bomm.
Kvæði Jónasar.
Bók sem vakti einu sinni
hjá þér hrifningu. en gerir
það ekki lengur?
— Dalalíf eftir Guðrúnu frá
Lundi.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu slœmur?
—- Ber allt árið eftir Helgu
Sig. Svo gaf hún út aðra sem
hét Lærið af Helgu.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu góður?
— Ég man ekki eitthvað
um skýin.
Sögupersóna sem fer hvað
mest í taugarnar á þér?
— Hjatti litli.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvað mesta aðdáun?
— Grettir sterki.
Vanmetinn rithöfundur?
— Allir.
Ofmetinn rithöfundur?
— Enginn. Þetta er ekki
þannig. Við vanmetum öll
skáldskapinn, lesum of lítið;
horfum, sofum, étum of mik-
ið.
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
Vigdís Grímsdóttir er nýbú-
in að gefa út Ijóðabók. Lend-
ar elskhugans heitir hún.
Gœtirðu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérð eftir að
hafa gefið út?
— Sex sinnum hef ég feng-
ið bækur í hendurnar sem ég
efast um og efast og efast.
Verk eða kafla úr verki eftir
þig sem þér líkar sérstaklega
vel við?
— Nú fyllist ég hæversku,
nísku, tortryggni, fælni og
gleymsku.
Ertu með eitthvað í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
að birta?
— Já, ráðgjafi minn segir
að laun heimsins séu van-
þakklæti.
Er einhver grein skáldskap-
arins sem þú vilt ekki eða tel-
ur þig ekki geta stundað?
— Ég mun ævinlega forð-
ast óperutexta eins og heitan
eldinn.
Geturðu nefnt viöurkennt
skáldverk, bók, sem þér
finnst í rauninni hrein tímasó-
un að lesa?
— Ég elska pískinn, þess
vegna finnst mér aldrei tíma-
sóun að lesa bækur.
Bók sem þér finnst einna
ómœgjulegast að hafa lesið?
— Vörður blómanna eftir
Tagore.
Bók sem vakti einu sinni
hjá þér hrifningu en gerir það
ekki lengur?
— Lagtertusveiflan.
Sögupersóna sem fer hvað
mest í taugarnar á þér?
— Mörður Valgarðsson og
Ólafur Kárason.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvað mesta aðdáun?
— Ólafur Kárason — Mörð-
ur Valgarðsson.
Vanmetinn rithöfundur?
— Drífa Viðar.
Ofmetinn rithöfundur?
— Æ æ.
SVEINBJÖRN I.
BALDVINSSON
Sveinbjörn I. Baldvinsson
er höfundur nýrrar ljóðabók-
ar. Hún heitir Felustaður tím-
ans.
Gœtirðu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérð eftir að
hafa gefið út?
— Nei. En kannski væri rétt
að spyrja útgefandann.
Verk eftir þig eða kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel við?
— Já. Það er ljóðabók sem
heitir Felustaður tímans. Svo
er kápumyndin hans Ásgeirs
Smára svo falleg.
Ertu með eitthvað í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
að birta?
— Ekkert sem er tilbúið, en
einu sinni var smásögu eftir
mig hafnað af virðulegu
tímariti af því hún hneykslaði
„konurnar á skrifstofunni",
eins og ritstjórinn sagði.
Tímaritið er ekki lengur til.
Er einhver grein skáldskap-
arins sem þú vilt ekki eða tel-
ur þig ekki geta stundað?
— Eitt af fáu sem ég væri
líklega ekki til í að prófa að
skrifa er handrit að hryllings-
mynd.
Bók sem þér finnst einna
ánœgjulegast að hafa lesið?
— Svona síðustu árin er
það til dæmis Steinsteypu-
garðurinn eftir lan McEwan.
Hins vegar hefur engin hinna
bókanna hans heillað mig
neitt viðlíka.
Bók sem vakti einu sinni
hjá þér hrifningu, en gerir
það ekki lengur?
— Ég hef ekki lesið Fimm á
smyglarahæð nýlega.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu slœmur?
— Einkunn Jórunnar, 400
stafsetningaræfingar, enda
veit ég ekki til að hann hafi
verið notaður.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu góður?
— Ég hef lengi verið hrifinn
af tveimur ónotuðum titlum
sem Sigurður vinur minn Val-
geirsson hefur á skrá hjá sér
yfir hugsanlegar minninga-
bækur: Faðir minn hesturinn
og Beðið eftir beygjuljósi,
minningar leigubílstjóra.
Sögupersóna sem fer hvað
mest i taugarnar á þér?
— Þær gleymast jafnharð-
an, svo mildast maður líka
með árunum. Mig rámar í að
liafa verið mjög í nöp við
Richelieu kardínála í Skytt-
unum.
Sögupersóna sem vekur
hjá þér hvaö mesta aðdáun?
— Fyrir tuttugu árum var
ég ekki í vafa. Það var Kári
Sölmundarson, af þvi hann
var nógu klár og flinkur til að
drepast ekki, heldur lifa til að
hefna sín á þessum andskot-
um.
Vanmetinn rithöfundur?
— Hér heima dettur mér
helst í hug Jóhann Hjálmars-
son skáld og róttækar og vel-
heppnaðar tilraunir hans
með opna ljóðið, til dæmis í
bókinni Frá Umsvölum. Um
útlönd er erfitt að segja. Við
þekkjum nefnilega ekki þá
vanmetnu.
Ofmetinn rithöfundur?
— Shane Black. Hann fékk
nýlega milljón dollara fyrir
handrit í Hollywood. Það er
svona hálf íslensk milljón á
síðuna.
EINAR KÁRASON
Einar Kárason lætur það
ógert að gefa út bók þessi jól-
in. Hann færðist undan því að
svara nokkrum spurning-
anna.
Gœtirðu nefnt verk eftir þig
sem þú beinlínis sérð eftir að
hafa í’efið út?
— I gegnum móðu
gleymskunnar grillir í verk
sem birtust í menntaskóla-
blöðum, en hefðu vel afborið
eilífan frið öskuhauganna.
Verk eftir þig eða kafla úr
verki eftir þig sem þér líkar
sérstaklega vel við?
— Fyrsta setningin í fyrstu
skáldsögunni.
Ertu með eitthvað í skúff-
unni sem þú hefur ekki lagt í
að birta?
— Nei.
Er einhver grein skáldskap-
arins sem þú vilt ekki eða tel-
ur þig ekki geta stundað?
— Já, til dæmis sálmakveð-
skapur.
Hvað vildirðu fást við ef þú
vœrir ekki rithöfundur?
— Keyra kókbíl.
Geturðu nefnt viðurkennt
skáldverk, bók, sem þér
finnst í rauninni algjör tíma-
sóun að lesa?
— Óbærilegur léttleiki til-
verunnar.
Bók sem þér finnst einna
ánœgjulegast að hafa lesið?
— Niflungakviða.
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu slœmur?
— Draumur um veruleika
Bókartitill sem þér þykir af-
spyrnu góður?
— Haldið þér kjafji frú Sig-
ríður.