Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 49

Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991 49 La Bohcmc í Borgar- lcikhúsinu „Það er auðvitað mjög glæfralegt af okkur að ráðast í þessa uppfærslu, því hún er fokdýr í uppsetningu og ís- lenski áheyrendahópurinn er, til þess að gera, ekki stór, en við erum nú að safna á fullu þessa dagana," segir Margrét Pálmadóttir, söng- kona og einn af aðstandend- um Óperusmiðjunnar, sem er um þessar mundir að ráðast í stærsta verkefni sitt til þessa, óperuna La Boheme eftir Puccini. Uppfærslan er samstarfs- verkefni Óperusmiðjunnar og Leikfélags Reykjavíkur og Margrét Pálmadóttir verður óperan frumsýnd 28. mars á næsta ári á stóra svið- inu í Borgarleikhúsinu. Um 80 manns taka þátt í sýningunni sem Bríet Héðins- dóttir leikstýrir og er ætlunin að hafa tvöfalt sett söngvara í stærstu hlutverkunum nema í hlutverki tenórsins Rodolfo, það verður í höndum Þor- geirs Andréssonar, sem nú syngur Tamínó í Töfraflaut- unni. „Við stefnum mjög stíft á að geta boðið til landsins ís- lenskum tenórum sem starfa erlendis til að syngja tenór- hlutverkið á nokkrum sýn- ingum. Kristján Jóhannsson kemur væntanlega, Olafur Bjarnason og Guðbjörn Guð- björnsson, sem báðir starfa í Þýskalandi, og Kolbeinn Ket- ilsson vonandi líka." fe&kin RICHARD NIXON IN THE ARENA Tricky Dick er einn skrautlegasti stjórn- málamaður sögunnar. Hann féll með bauki og bramli og síðan hefur hann helgað ævi sína eigin endurreisn. Þó ekki væri fyrir ann- að en Watergate þá er ástæða til að glugga í bókina, sem hefur ver- ið til sem pappírskilja síðan í apríl. Sjálfsævi- sögur stjórnmála- manna eru varasamar í eðli sínu og segja stundum meira með því sem þær geta ekki. Það kemur til dæmis ekki fram í þessari bók að Nixon hætti til að svindla í keilul Bókin er 450 bls. og kostar 838 krónur og fæst í Eymunds- son. í pólitíska flokkn- um fær hún 7 af 10. KLASSÍKIN Jóla- og fjölskyldutónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í kvöld. Sænski söngvarinn og gítarleikarinn Jan-Olaf And- ersson í Norræna húsinu á laugardag. Eigin vísur og lög, sænskar vísur eftir Bellmann og Taube og enskir söngvar frá barokktímabilinu, en í Kirkju- hvoli EPTA-tónleikar Nínu Margrétar Grímsdóttur. Kvöld- iokkur Blásarakvintetts Reykjavíkur og felaga í Krists- kirkju á laugardag. Á sunnudag jólatónleikar kammersveitarinnar í Ás- kirkju. Verk erftir Vivaldi og Missa Brevis á aðventutón- leikum Söngsveitarinnar Fíl- harmóníu í Kristskirkju. Ein- söngvarar Sigrún Hjálmtýs- dóttir og fleiri. MYNDLIST Listakonan Rúrí opnar sýn- ingu á teikningum og borð- skúlptúrum og Hannu Siren frá Finnlandi á gólfskúlptúrum í Nýlistasafninu á laugardag- inn. í Nýhöfn hanga Reykjavíkur- myndir, teikningar, vatnslita- myndir og olíumálverk Jóns Helgasonar biskups frá alda- mótunum síðustu. Kristinn G. Jóhannsson og Brynhildur Kristinsdóttir sýna í FÍM og Guðlaugur Bjarnason sýnir innísetningu i Einn einn. LEIKHUSIN Það er himneskt að lifa í Þjóð- leikhúsinu í kvöld. Á föstu- dagskvöld Mister Butterfly og Jelena. Búkolla, Himneskt er að lifa og Jelena á laugardag og Búkolla, M. Butterfly og Jelena á sunnudag. í Borgarleikhúsinu veröur Ljón í síðbuxum og Þétting á föstu- dag og laugardag og Þétting á sunnudag. SJÓNVARP I gíslingu, kanadisk sjónvarps- mynd byggð á sönnum at- burðum í Sjónvarpinu á föstu- dagskvöld. Á Stöð 2 sjálfsævi- saga gamanleikarans Richards Pryor. Síðan ævintýramyndin Banaráð. BÍÓIN BÍÓBORGIN: Harley Davidson og Marlboro-maðurinn* Aldr- ei án dóttur minnar, Hvað með Bob?*** Lífshlaupið** Bl'Ó- HÖLUN: Doc Holjywood* Blik- ur á lofti** Úlfhundurinn* Fífldjarfur flótti0 Frumskógar- hiti*** HÁSKÓLABÍÓ: Tvöfalt líf Veróniku*** Skíðaskólinn0 Hvíti víkingurinn** Otto III* The Commitments*** Ókunn dufl** LAUGARÁSBÍÓ: Freddy er dauður** Hringur- inn*** Brot*** REGNBOGINN: Vegur vonar** Homo Fa- ber*** Kraftaverk óskast* Ungir harðjaxlar* Of falleg fyrir þig* Án vægðar0 Fugla- stríðið** Henry: Nærmynd af fjöldamorðingja* SÖGUBÍÓ: Thelma og Louise*** Góða löggan** STJÖRNUBÍÓ: Svik og prettir* Banvænir þank- ar** Tortímandinn 2*** Börn náttúrunnar**. (Fyrst heyrist þýð rödd símastúlkunnar.) „Þetta símanúmer er lokað. Þetta símanúmer er lokað." (Siðan heyrist önnur rödd.) ,,Nei, nei, nei, bíddu nú aðeins hæg. Sko það er nú einum of mikið að segja kannski að það sé lokað þó maður sé ekki heima. En það er hægt að setja inn skilaboð eftir að hljóðmerkið heyrist." Moulin Rouge hvad annad? BIOIN Ó, CARMELA REGNBOGINN Mynd handa mörgum íslenskum aðdáendum hins ofmetna Carlos Saura. Hún er þokkaleg og síst verri en fyrri myndir hans. ** LÍFSHLAUPIÐ Judgement City BÍÓBORGINNI Barasta fyndin gamanmynd. Væmin, en vel leikin og með Ijúfum húmor. Fær góða einkunn í sínum flokki. *** Þungavikt á Hrcssó „Ég skírði fyrirbærið Kíló vegna þess að ég er búinn að ganga með nafnið í magan- um í langan tíma, ég vissi bara ekki á hvað ég ætti að setja það. Ég var að hugsa um að stofna hljómsveit útan um það en svo kom leikhópurinn inn í myndina og þá smellti ég nafninu á hann,“ segir leik- arinn Steinn Armann Magn- ússon, sem ásamt öðrum leikara, Stefáni Jónssyni, skemmtir áhorfendum á menningarkvöldum Hress- ingarskálans á fimmtudags- kvöldum. Á menningarkvöldunum, sem standa fram að jólum, koma fram rithöfundar og lesa úr nýútkomnum bókum sínum og eftir lesturinn kem- ur fram leikhópurinn Kíló. Leikhópurinn Ttefur komið fram tvisvar á Hressó og var fullt út úr dyrum í bæði skipt- in: „Við erum nýbyrjaðir á þessu og erum því ekki búnir að fullmóta dagskrána enn- þá, en til þessa höfum við til dæmis tekið fyrir bakaraat- riðið í Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner og túlk- að það á okkar hátt með mjög skemmtilegum hætti, ef marka má viðbrögð áhorf- enda. Við erum með í sigtinu ýmis atriði úr verkum ann- arra leikskálda, svo sem Shakespeares og Holbergs, og við búum sennilega til at- riði úr Góða dátanum Svejk. Milli atriðanna segjum við brandara." Einar og jólavínið „Mér finnst Chateau Bata- illey frá Medoc, árgangur 1985, best með rjúpunni vegna þess að það er kraft- mikið og passar vel með villi- bráð,“ sagði læknirinn, mót- orhjólakappinn og vín- smakkarinn Einar Thor- oddsen þegar PRESSAN bað hann að gefa góð ráð varð- andi val á víni með jólasteik- inni. Það er ekki víst að allir viti hvaða vín er heppilegast til að renna henni niður með. Hvaða vín er best með gœs- inni? „Þá mæli ég eindregið með Chateau La Fleur Bonnet frá 1986. Bonnet kemur frá St. Émilion-héraðinu og er mjög gott með gæs. En með svína- hamborgarhryggnum, sem ég hygg að flestir íslendingar borði á jólunum, mæii ég með Chateau des Jacques frá þorpinu Moulin a Vent. Það er rosalega gott og ávaxta- bragðið í víninu vegur upp á móti reykingunni í kjötinu. En það má líka velja eitthvert Rínarvínanna." En með gamla góða lambahryggnum, sem mörg- um finnst alltaf bestur? „Þá er gott að drekka Ris- erva Ducale frá Ruffino eða Torres gran Coronas. Þau eru einkar Ijúffeng og henta vel með því kryddi sem notað er í lambakjöt. Þau eru heldur ekki of ágeng þessi vín. Á undanförnum árum hef- Einar ur kalkúnn orðið æ vinsælli jólamatur á aðfangadags- kvöld. Þá mælir Einar með Pouilly Fuissé, hvítu kraft- miklu víni með epla- og rista- brauðsbragði. Þá ættu allir að vita um hvað á að biðja þegar kemur að jólainnkaupunum. ... færArthúr Björgvin Bollason fyrir skeggið, fötin frá Sævari og hörkuna að halda líti Litrófi þrátt fyrir endalaust pex og níð. ViAAJsi þú ... að ferðaskrifstofa í Rúss- landi býður upp á Yeltsin-túr um fæðingarborg hans, Sverdlovsk. Túrinn kostar 5 rúblur eða um 9 krónur ís- lenskar á eðlilegu gengi. Inni- falin er ferð í tækniskólann þar sem Boris lærði og þjálfaði kvennalið skólans í blaki. Einn- ig er farið í höfuðstöðvar kommúnistaflokksins sem Boris lét byggja. . .. að á ári hverju eru seldar „sjálfstyrkingar-kassettur” í Ameríku fyrir 60 milliónir dollara (3,6 milljarða íslenskra króna). Á þessum spólum er kennd hugleiðsla, slökun og svo framvegis. Að mati sérfræð- inga koma þær að notum í 2 prósentum tilfella. Símsvarinn Guðmundur Rafn Bjarnason viðskiptafræðingur og innflytjandi Hunts tómatsósunnar. Léttur þægilegur matseðill Pizzur eins og þær eiga að vera RESTAURANT*BAR Laugavegi 126, sími 16566 - tekurþér opnum örmum Vinscsltistci myndböndin 1. Christmas Vacation 2. LA Story 3. True Colors 4. Nothing But Trouble 5. Dansar við úlfa 6. Mr. Destiny 7. Desperate Hours 8. Problem Child 9. Kindergarten Cop 10. Highlander II

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.