Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 30

Pressan - 12.12.1991, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. DESEMBER 1991 ækur & ’akkelsi Stefán Sandholt er bakara- meistari í Sandholtsbakaríi. Stefán Sandholt Snati og Óli „Fyrst það er þessi tími árs dettur mér helst í hug kvæðið um Snata og Óla eftir t>or- stein Erlingsson. Þarna er það sem helst skiptir máli núna, jólin og jólakakan. Svo á ég líka hund.“ Heyrðu snöggvast, Snati minn, snjalli vinur kæri, heldurðu ekki hringinn þinn ég hermannlega bæri? Lof mér nú að leika að látúnshálsgjörð þinni; ég skal seinna jafna það með jólaköku minni. Jæja þá, í þetta sinn þér er heimil ólin. En hvenær koma, kæri minn, kakan þín og jólin? Einar Már Guðmundsson og Tolli gefa í sameiningu út myndskreytta Ijoðabók nú fyr- ir jólin. Hún heitir Klettur í hafi. Þekktar og lífsreyndar konur tryggja bóksölu — íslenskar metsölubækur seljast yfirleitt í um 8 þúsund eintökum, meiri sala þykir í hæsta máta óvenjuleg Ef marka má metsölubóka- lista síðustu ára eiga þekktar, lífsreyndar og óljúgfróðar konur sem komnar eru yfir miðjan aldur mjög upp á pall- borðið hjá íslendingum. Helst þær konur sem þekktar eru að góðu einu. Það mætti ef til vill segja að þetta væri gulluppskrift íslenska bóka- markaðarins; ef ungur og metnaðarfullur bókaútgef- andi vill auðgast fljótt á starfi sínu ætti hann að leggja allt í sölurnar til að finna slíka konu. Þær eru hins vegar ekki á hverju strái. Hann ætti þó að átta sig á því að íslensk skáldverk búa sjaldan til gull. Það er svo sannarlega ekki hlaupið að því að búa til met- sölulista allra tíma á íslandi. Útgefendur virðast telja það þjóna hagsmunum sínum best að gefa sem minnstar og ógleggstar upplýsingar um bóksölu — og bóksalarnir, þeir hafa tamið sér sama háttalag. Þannig höfum við ekki við annað að styðjast í meðfylgj- andi metsölulista en saman- tekt DV yfir mest seldu bæk- urnar hver jól og slitur sem fengust úr samtölum við nokkra útgefendur og bók- sala. En reynum samt að gera okkur grein fyrir því hvaða bækur hafa notið mestrar hylli síðustu ár. Bókamönnum sem PRESS- AN ræddi við bar saman um að sala á góðri metsölubók næmi yfirleitt um 8.000 ein- tökum, markaðurinn tæki einfaidlega sjaldnast við meiru. Allt þar fyrir ofan væri óvenjulegt á einni jólavertíð; í þeim flokki eru bækur á borð við Á Gljúfrasteini, Ein á forsetavakt og Uppgjör konu. Semsagt hinar miklu met- sölubækur. Einn útgefandi benti á að bækur sem gefnar eru út undir nafni Alistairs MacLean væru í rauninni ágætis við- miðun, væru eins konar bar- ómeter bókamarkaðarins. Þær hefðu lengi selst í um það bil 7.000 eintökum. Bæk- ur sem væru fyrir ofan þær á listanum hefðu því selst meira en það, en bækur fyrir neðan minna. Þótt sumir settu spurning- armerki við sölulista DV var þó enginn sem treysti sér til að rengja þá beinlínis. í meg- inatriðum væru þeir mark- tækir. Listar sem aðrir hafa reynt að taka saman hafa heldur ekki verið svo frá- brugðnir lista DV. Þó hafa menn nefnt að röð bóka á þeim sé ekki einhlít og einnig hefur það verið talinn galli á listanum að hann er byggður á sölu í smærri bókabúðum, sumum úti á landi eða í út- hverfum, en ekki reiknað með sölu í stóru bókabúðun- um í miðborg Reykjavíkur. Það hefur DV talið óráðlegt vegna þess að þær eru í eigu bókaforlaga. Þetta gæti kannski valdið því að hlutur ,,menningarlegra“ bóka er rýrari en ella. I meðfylgjandi listum er semsagt að mestu leyti stuðst við metsölulista DV. Þó er á stöku stað hnikað til, eftir ráðleggingum og áliti óvil- hallra manna úr stétt útgef- enda og bókaútgefenda. Síð- an notum við þessar upplýs- ingar til að reyna að finna metsölubækur síðustu ára. Sá fyrirvari er á að allar tölur eru ágiskanir, þó ekki út í loft- ið. Einhver niðurstaða, túlk- un? Alltént sú að íslensk skáld- verk virðast seint ætla að verða verulegar metsölu- bækur. Ævisögur 1984: AUÐUR LAXNESS 1. Á Gljufrasteiní......Edda Andrésdóttir/Auður Laxness 2. Fimmtán ára á föstu..................Eðvarð Ingólfsson 3. Dyr dauðans...........................Alistair MacLean 4. Guðmundur Kjærnested..............Sveinn Sæmundsson 5. Jón G. Sólnes......................Halldór Halldórsson A Gljúfrasteini var langsöluhæsta bókin og hefur líklega selst í rúmum 10 þúsund eintökum. Eðvarð Ingólfsson í tæpum 8 þúsund. Aðrar minna. 1985: SEXTÁN ÁRA í SAMBÚÐ I.Sextán ára í sambúð..................Eðvarð Ingólfsson 2. Lífssaga baráttukonu..........Inga Huld Hákonardóttir 3. Guðmundur Kjærnested.............Sveinn Sæmundsson 4. Njósnir á hafinu.....................Alistair MacLean 5. Löglegt en siðlaust............Jón Ormur Halldórsson Engin afgerandi metsölubók. Sextán ára í sambúð, liklega um 8 þúsund. Þrjár næstu á bilinu 7—8 þúsund. 1986: ÞURÍÐUR PÁLS 1. Líf mitt og gleði .... Jónína Michaelsdóttir/ Þuríður Pálsdóttir 2. Grámosinn glóir . . . . Thor Vilhjálmsson 3. Svarti riddarinn .... Alistair MacLean 4. Tímaþjófurinn Steinunn Sigurðardóttir 5. Saman í hring Guðrún Helgadóttir Þuríður Pálsdóttir, 8 þúsund eintök. Grámosinn varla minna. 1987: HALLA LINKER 1. Uppgjör konu..... 2. Perestrojka....... 3. Helsprengjan...... 4. Sænginni yfir minni 5. Ásta grasaiæknir . . . ......Halla Linker Mikhael Gorbatsjof . . Alistair MacLean Guðrún Helgadóttir .. . Atli Magnússon Uppgjör konu, ein af stóru metsölubókunum, hefur líklega farið í næst- um 10 þúsund eintökum. Aðrar seldust miklu minna. 1988: VIGDÍS OG STEINUNN 1. Ein á forsetavakt.............Steinunn Sigurðardóttir Vigdís Finnbogadóttir 2. Býr íslendingur hér? . . . Garðar Sverrisson/Leifur Muller 3. Forsetavélinni rænt......John Denis/Alistair MacLean 4. íslenskir nasistar.........Illugi og Hrafn Jökulssynir 5. Markaðstorg guðanna...........Olafur Jóhann Ólafsson Stóra metsölubókin, Ein á forsetavakt; líklega ein 12 þúsund eintök, en fólk fékk svo mörg eintök að henni var mikið skilað. Leifur Muller seldist líka vel, rúm 8 þúsund eintök. 1989: BJÖRN SV. BJÖRNSSON I.Sagan sem ekki mátti segja .. Nanna Rögnvaldardóttir/ Björn Sv. Björnsson 2. Dauðalestin........Alastair MacNeill/Alistair MacLean 3. Ég og lífið..................Inga Huld Hákonardóttir/ Guðrún Ásmundsdóttir 4. Með fiðring í tánum..............Þorgrímur Þráinsson 5. Sendiherrafrúin segir frá............Heba Jónsdóttir Með allra daufustu bókajólum. Efsta bókin, kannski hefur hún náð tæpra 8 þúsund eintaka sölu. Aðrar minna. Einar Már Guðmundsson Nafnlaus smákaka „Eg er að vísu fremur kokkur en bakari og áhugi á kökum tilheyrir meira æsku- árunum. Með aldrinum er ég orðinn meira náttúraður fyrir brauðmeti. Eigi að síður kann ég eina uppskrift að fyrirtaks smákökum sem eru ágætar um jólin. Og uppskriftir eru reyndar svolítið póetískar." 2 bollar af haframjöli 2‘/2 bolli af hveiti 2 bollar af sykri 1 bolli af smjörlíki 1 tsk. natrón 'h tsk. salt 1 bolli af brytjuðu súkkulaði 2 egg Haframjöli, hveiti, sykri og natróni er blandað saman. Súkkulaðið lát- ið út í. Smjörlíki blandað við. Eggj- um hrært út í og hnoðað. Búnar eru til lengjur, skornar í bita, þeim rúllað í kúlur og þær pressaðar milli handanna, settar á plötu og bakaðar þar til þær eru orðnar Ijósbrúnar. Ævisögu- og æviminninga- flóðið er slíkt fyrir þessi jól að margir vildu sennilega kalla það fargan. Þar ber langmest á tiltölulega hraðunnum bók- um sem unnar eru í samstarfi blaðamanns við einhverja þjóðkunna persónu, væntan- lega bæði óljúgfróða og merka. Allmiklu sjaldgæfara virðist núorðið að merkisfólk taki sjálft fram ritfæri og færi endurminningar sínar í letur. Náttúrlega er þetta í fullu samræmi við það sem hefur gerst meðal stærri og vold- ugri nágrannaþjóða. Við þessu er lítið að segja, útgef- endum og höfundum fénast ágætlega, lesendur fá tiltölu- lega auðmelt lesefni sem svalar forvitni þeirra, en óneitanlega vill brenna við að stíllinn á slíkum bókum verði ógnar keimlíkur og lítið um skemmtileg eða persónu- leg tilþrif. Það vekur eftirtekt hversu lítið gamlir stjórn- málamenn eru talandi eða skrifandi fyrir þessi jól, en hins vegar hafa tveir stórfor- stjórar látið skrá minningar sínar: Kjartan Stefánsson skrifar upp eftir Erlendi Ein- arssyni, fyrrum Sambands- forstjóra, og Steinar 1 Lúd- víksson eftir Sigurdi Helga- syni, fyrrum Flugleiðafor- stjóra. Umtalað fólk er líka með, kannski sumpart til að það gleymist ekki svo hæg- lega, kannski sumpart til að leiðrétta ýmiss konar sögu- burð og umtal, en auðvitað líka vegna þess að það hefur frá einhverju bitastæðu að segja: Svanhildur Konráds- dóttir skrifar um lífsháska Jónasar Jónassonar útvarps- manns, Þráinn Bertelsson um grínfuglinn Ladda og Nanna Rögnvaldardóttir setur sam- an tvær bækur; um Heidar Jónsson snyrti og Maríu Þor- steinsdóttur, sem löngum þótti einhver vinstrisinnuð- ust kona á Islandi og ákaflega höll undir Sovétríkin. Ragn- heidur Davídsdóttir skráir sögu Siguröar Ólafssonar, hestamanns og söngvara, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fer í smiðju til Sigurveigar Guömundsdóttur, kennara í Hafnarfirði. Og varla hefur það farið framhjá neinum að Ingólfur Margeirsson hefur sökkt sér djúpt ofan í líf Árna Tryggvasonar leikara. Af þeim sem hafa sjálfir haft nennu til að rita æviminning- ar sínar er varla hægt að nefna nema tvo: Vilhjálm Hjálmarsson, fyrrum menntamálaráðherra, og Ómar Ragnarsson sjónvarps- mann — það er ábyggilega ekki nema fyrsta bindi. Loks er svo að nefna fáeinar bæk- ur sem eru ævisögur í eigin- legri merkingu, byggja á ítar- legum rannsóknum og slímusetum á skjalasöfnum: Ævisögu Kristjáns Eldjárns eftir Gylfa Gröndal, lífssögu Errós eftir Adalstein Ingólfs- son og ævisögu Jónasar Jónssonar frá Hriflu eftir Gudjón Fridriksson, en hún er líklega sú eina af ofantöld- um bókum sem verðskuldar þá nafnbót að vera sagn- fræðirit... 1990: ÞORGRÍMUR Á TAKKASKÓNUM 1-Tár, bros og takkaskór........Þorgrímur Þráinsson 2. Bubbi......Silja Aöalsteinsdóttir og Bubbi Morthens 3. Ég hef lifað mér til gamans.......Gylfi Gröndal/ Björn á Löngumýri 4. Næturverðirnir.................Alistair MacLean 5. Margrét Þórhildur Danadrottning...Anne Woden- __________________________________________Ræthinge Barnabók í efsta sæti, poppstjarna í því næsta. Þorgrímur: Hátt i 10 þús- und eintök. Bubbi: Ein 9 þúsund. METSÖLUBÆKUR 1984—1990 1. Ein á forsetavakt.............Steinunn Sigurðardóttir Vigdís Finnbogadóttir 2. Á Gljúfrasteini.....Edda Andrésdóttir/Auður Laxness 3. Uppgjör konu..............................Halla Linker 4. Tár, bros og takkaskór...........Þorgrímur Þráinsson 5. Bubbi.........Silja Aðalsteinsdóttir/Bubbi Morthens 6. Sextán ára í sambúð.................Eðvarð Ingólfsson 7. Býr íslendingur hér?...............Garðar Sverrisson/ Leifur Muller 8. Lif mitt og gleöi..............Jónína Michaelsdóttir/ Þuríður Pálsdóttir 9. Grámosinn glóir....................Thor Vilhjalmsson 10. Fimmtán ára á föstu................Eðvarð Ingólfsson. Lauslega áætlað: Ein á forsetavakt; 12 þúsund. Á Gljúfrasteini; rúmlega 10 þúsund. Uppgjör konu; tæp 10 þúsund. Tár, bros og takkaskór; hátt í 10 þúsund. Bubbi; um 9 þúsund. Aðrar á bilinu 8—9 þúsund.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.