Pressan - 12.12.1991, Page 8
8
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 12. DESEMBER 1991
ÞARF10 M LLJON
SIIUX TIL AB KOIIII
FOLHNII
Mikill vandi blasir við Svavari Egilssyni stjórnar-
*
formanni Veraldar. I dag þarf hann að greiða fyrir
leiguvélar vegna Kanaríeyjaferða sem Veröld hef-
ur selt. Fyrstu farþegarnir eiga að fara 19. desem-
ber. Svavar segir enga hættu á að sér takist ekki
að standa við samninga við viðskiptavini sína.
m KMUBEYiU
Veröld hefur selt margar ferdir til Kanaríeyja í vetur. Övissa er um hvort fyrirtaekinu tekst aö halda áætlun sökum
greiösluerfiöleika.
Suavari Egilssyni, eiganda Ferða-
miðstöðvarinnar Veraldar, hefur
ekki tekist að fá inn nýtt hlutafé í
fyrirtækið, sem er forsenda þess að
rekstur stöðvist ekki. Á allra næstu
dögum þarf Veröld að greiða nokkr-
ar milljónir króna vegna Kanarí-
eyjaferða. Fjöldi fólks hefur greitt
inn á ferðir til eyjanna, en fyrstu
ferðirnar eiga að hefjast eftir fáeina
daga.
Nú er liðið á aðra viku frá því
framkvæmdastjóri Veraldar, Andri
Már Ingólfsson, gekk út af skrifstof-
unni eftir að Svavar hafnaði tilboði
frá honum og fciður hans, Ingólfi
Guðbrandssyni, og fleirum, um
kaup á fyrirtækinu.
Svavar segir sjálfur að engin
hætta sé á að ekki verði staðið við
ferðirnar sem selt hefur verið i.
Hann vísar á bug öllum fullyrðing-
um um að fyrirtækið sé að komast í
þrot. Innan fárra daga verði hann
búinn að fá nýja meðeigendur.
VERÐUR AÐ FÁ AUKIÐ FÉ
Eftir að Svavar Egilsson hafnaði
tilboði feðganna Andra Más lngólfs-
sonar og Ingólfs Gudbrandssonar í
fyrirtækið leitar hann að auknu
hlutafé. PRESSAN hefur heimildir
fyrir að Svavar hafi leitað til margra
aðila en ekkert gengið, að minnsta
kosti ekki enn sem komið er. Svavar
segist hins vegar vera bjartsýnn á að
sér takist að Ijúka þessu innan fárra
daga.
Skuldastaða Veraldar er slæm og
Ijóst að ef ekki tekst að ráða bót þar
á á allra næstu dögum stefnir í veru-
leg vandræði og jafnvel lokun fyrir-
tækisins.
Með naumindum tókst að koma í
veg fyrir að Veröld yrði svipt heim- ■
ild til að selja farseðla fyrir flugfélög,
en á þessum árstíma er farseðlasala
aðaltekjulind ferðaskrifstofa.
Prátt fyrir að Svavari tækist á síð-
ustu stundu að koma í veg fyrir að
hann missti af þessari tekjulind í lok
síðasta mánaðar verður ekki séð að
honum takist að halda heimildinni
lengi enn.
MILLJÓNIR FALLA
UM HELGINA
Vandi Veraldar er verulegur.
Vegna Kanaríeyjaferðanna þarf
Svavar að greiða leiguflugið í dag,
fimmtudag, og þar er um nokkrar
milljónir króna að ræða. Þá þarf
hann að greiða gististaðnum á Kan-
aríeyjum á næstu dögum. Þar koma
fleiri milljónir til greiðslu.
En þetta er ekki allt. Um síðustu
mánaðamót tókst Svavari að greiða
það sem kallað er BSP á síðasti degi.
Næsti gjalddagi BSP-gjaldanna er
15. þessa mánaðar, þ.e.a.s. á sunnu-
dag.
BSP er stofnun sem sér um að inn-
heimta fargjöld sem ferðaskrifstofur
afla með sölu á farseðlum fyrir flug-
félög. Ef vanhöld verða á skilum
þessara gjalda gerist það eitt að
ferðaskrifstofurnar eru sviptar
heimild til sölu farseðla.
Samtals má áætla að þessar
greiðslur geti numið allt að tíu millj-
ónum króna.
Svavar segir að allt tal um að ekki
verði staðið við samninga eigi ekki
við rök að styðjast.
HEFUR ÞEGAR
MISST HEIMILDIR
„Það þarf mikið að gerast á
skömmum tíma til að bjarga þessu
fyrirtæki. Þetta hefur víðtæk áhrif.
Það er eðlilegt að fólk óttist um sinn
hag. Það eru margir búnir að greiða
inn á ferðir sem erallsendis óvíst að
verði farnar," sagði einn viðmæl-
enda blaðsins.
Þess má geta aðöll flugfélög, önn-
ur en SAS og Flugleiðir, hafa tekið
farmiðasölu frá Veröld. Þar á meðal
er spánska flugfélagið IBERIA.
„Það er alvarlegt mál. Þetta frétt-
ist fljótt og verðureflaust til þess að
þeir sem selja gistingu verða harð-
ari en áður. Það verður til þess að
farþegar Veraldar komast ekki inn á
hótelin fyrr en búið er að greiða allt
í topp. Ferðabransinn er ekki stærri
en svo að það fréttist strax ef ein-
hver er kominn í greiðsluvandræði,"
sagði viðmælandi PRESSUNNAR.
METSALA HJÁ VERÖLD
Eins og áður sagði þarf Veröld að
greiða 10 til 15 milljónir króna
vegna Kanaríeyjaferða um jólin og
vegna farseðlasölu fyrir Flugleiðir.
Eftir því sem næst verður komist
hefur Veröld selt um 350 sæti í Kan-
aríeyjaferðirnar.
19. desember eiga fyrstu farþeg-
arnir að fara. Það er stór hópur sem
fer með þremur flugvélum, tveimur
frá Flugleiðum og einni frá Atlants-
flugi. Samkvæmt skilyrðum um
leiguflug á að greiða fyrir véiarnar
viku fyrir brottför, sem er i dag,
fimmtudag.
Það mun vera sjaldgæft, ef ekki
einsdæmi, að ferðaskrifstofa selji
svo margar ferðir til sólarlanda á
þessum árstíma. Veltan af þessum
350 farþegum gæti orðið um 25
milljónir króna. Það er því ljóst að
miklir hagsmunir eru í húfi.
í viðtali við PRESSUNA í síðustu
viku sagði Svavar Egilsson að
möguleiki væri á að selja þennan
pakka, þ.e.a.s. Kanaríeyjaferðirnar,
annarri ferðaskrifstofu.
Forstjórar _ Samvinnu-
ferða/Landsýnar og Úrvals/Útsýn-
ar segja að ekki hafi verið leitað til
fyrirtækja sinna um yfirtöku á þess-
um samningum.
SKULDAR YFIR 100 MILLJÓNIR
Skuldir Veraldar eru talsverðar,
eða nokkuð á annað hundrað millj-
ónir króna. Eignirnar eru aftur á
móti litlar, aðallega skrifstofubún-
aður.
Tölvukerfið er keypt með kaup-