Pressan - 27.08.1992, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27.ÁGÚST 1992
Olaftir
Björnsson byggingarmeistari í
Ósi er sérkennileg tegund af
huldumanni. Honum var sem
kunnugt er bannað að byggja
hús í Reykjavík, en þó gerði
hann nýlega heyrinkunnugt að
hann hygðist byggja hús á
rústum gamla Klúbbsins. Og
Reykjavíkurborg, sem bannaði
honum að byggja fleiri hús,
segir að þetta sé alveg rétt og
ekkert við því að gera, ef hann
bara passi sig að koma hvergi
nálægt því á pappírunum. Ól-
afur er þannig orðinn opinber
huldumaður - með uppáskrift
yfirvalda - til að gera það sem
þau hafa bannað honum og
segjast í leiðinni ekkert vilja af
vita. Það vildu ábyggilega fleiri
komast á svona samning. En
annar huldumaður í kerfinu er
Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoð-
andi, sem getur sagt sömu sög-
una í fjölmiðlum ár eftir ár án
þess að koma nokkurn tíma
fram sjálfúr. Hann gaf út
skýrslu í síðustu viku sem ætl-
ar að reynast fjölmiðlum nægt
fóður í nokkurra daga umfjöll-
un og voru þó stærstu bitarnir
gamlar lummur um Siglósfld,
Þormóð ramma, flugstöðina
og aðra álíka þekkta minnis-
varða um vel Iukkuð störf
stjórnmálamanna. Þeir þurfa
svo að endurtaka skýringarnar
sínar, sem verða því ósenni-
legri sem þær eru oftar bornar
fram, en Sigurði tekst að fá
betri pressu en nokkrum öðr-
um andlitslausum embættis-
manni hefúr tekist. Kannski
hann komi úr felum þegar
hann er hættur, eins og
Hannes
Jónsson sendiherra. Þeir voru
teljandi á fíngrum annarrar
handar utan Framsóknar-
flokksins sem vissu hver
Hannes var áður en Jón Bald-
vin rak hann úr sendiherra-
djobbinu. Nú þekkja hann allir
sem fyrrverandi sendiherrann
sem hefur tekið að sér að
bjarga okkur undan EES-fár-
inu. Hann hefúr lfklega ekki
skilið að í utanríkisráðuneyt-
inu eiga menn að bera respekt
fýrir útlendingum og enga
óþarfa umhyggju fyrir landan-
um. Samkvæmt því ættum við
að vona að Hannes verði at-
vinnulaus sem lengst - það eru
ekki mörg svona eintök eftir. í
Alþýðubandalaginu er líka
huldumaður. Það er
Jóhann
Ársælsson, sem hefúr verið
þingmaður í heilt ár án þess að
neinn þekki hann nema af
Lincoln-skegginu. En það er
ekki vegna skeggsins sem Ólaf-
ur Ragnar vill gera hann að
þingflokksformanni, heldur til
þess að Svavar Gestsson eða
Ragnar Arnalds fái ekki djobb-
ið. Frá þeim liggur nefnÚega
lóðrétt lína til Sovétára Al-
þýðubandalagsins, þegar
kommar héldu, öfúgt við
Hannes Jónsson, að maður
ætti einmitt að taka ofan fyrir
útlendingum. Nú er þeim sagt
annað, tuttugu árum of seint,
og fyrir það missa þeir líka af
draumadjobbinu. Kannski Óli
Björns geti ráðið þá í bygging-
arvinnu.
Óli Þ. Guðb
Ingimund E
úrstöðu d
son
skeiðji vegna gruns
fjárdrátt sem átti e
við neínrökað styðj;
Forstöðumaður I
reiðaprófanámske
BROTTJ
REKSTU
Rr
MINNS1
1,5 Mll
Óli Þ. Guðbjartsson, þáverandi
dómsmálaráðherra, vék Ingi-
mundi Eymundssyni úr starfi
deildarstjóra bifreiðaprófanám-
skeiða árið 1990 meðan rannsókn
stóð yfir á fjárreiðum námskeið-
anna.
Rannsóknin beindist að upp-
gjörsmáta þeim er Ingimundur
beitti, en gjöld vegna prófanna
voru lögð inn á reikning í Lands-
bankanum. Þegar gjöldunum var
skilað var vaxtatekjum ekki skilað
heldur voru þær notaðar í þágu
embættisins á ýmsan hátt. Ingi-
mundur var framkvæmdastjóri
prófanna frá 1984 og gerði upp á
nákvæmlega sama hátt og forveri
hans hafði gert. Aldrei komu ffam
neinar athugasemdir, frá yfir-
mönnum Ingimundar í dóms-
málaráðuneytinu eða ríkisendur-
skoðun, um hvernig að uppgjöri
var staðið. Þessi háttur hafði enda
verið hafður á um árabil og gerði
Ingimundur ekkert annað en
fylgja dæmi forvera síns.
Þann 25. janúar árið 1990 tók
Guðjón Andrésson við sem for-
stöðumaður bifreiðaprófanna og
fljótlega vakti hann athygli rflds-
endurskoðunar á því að ekki væri
rétt staðið að uppgjöri vegna próf-
anna; vaxtatekjum væri ekki skil-
að inn. Rannsókn var þá hafin á
málinu og beindist hún að meint-
um fjárdrætti Ingimundar og
Guðna Karlssonar, er áður var
forstöðumaður. Þeir voru grunað-
ir um að hafa stungið vaxtatekj-
unum í eigin vasa. I rannsókninni
kom ekkert fram sem benti til
þess að ásakanirnar á hendur
þeim ættu við nein rök að styðjast
og taldi ríkissaksóknari enga
ástæðu til að hefja málsókn og vís-
aði málinu frá.
Gunnar Jóhann Birgisson, lög-
maður Ingimundar, sagði í sam-
tali við PRESSUNA að ljóst væri
að ekki hefði verið rétt staðið að
uppgjörinu en það hefði verið fyr-
ir mistök. Mistök sem hefðu verið
látin óátalin um árabil og því
hefðu Ingimundur og forveri hans
talið sig vera að gera rétt. Gunnar
Jóhann sagði að Ingimundur hefði
skrifað fjármálaráðuneytinu bréf
árið 1988 þar sem hann útskýrði
uppgjörsfærslu sína, afrit af því
bréfi hefði verið sent Biffeiðaeftir-
litinu en engar athugasemdir
hefðu þá komið ffarn. „Þarna áttu
sér stað áralöng mistök og þau
hefði auðvitað bara átt að leið-
rétta,“ sagði Gunnar Jóhann.
Á þessu tímabili var Borgara-
flokksmaðurinn Óli Þ. Guðbjarts-
son dómsmálaráðherra en Guð-
jón Andrésson var flokksbróðir
hans. Sama dag og uppsögn Ingi-
mundar tók gildi, 23. mars 1990,
réð Guðjón son sinn í stöðu Ingi-
mundar. Uppsögn Ingimundar
var dæmd ómerk og ríkisvaldið
hefur nú fallist á að greiða það
sem á vantaði að Ingimundur nyti
fúllra launa ffá þeim tíma er hann
var leystur ffá störfum og til þess
tíma er bifreiðaprófin voru lögð
niður í þáverandi mynd og auk
þess biðlaun í sex mánuði sökum
þess að starf hans var lagt niður,
samtals um eina og hálfa milljón
króna.
Ríkisvaldið á enn eftir að taka
afstöðu til þess hvort Ingimundi
verða greiddar einhverjar bætur
vegna útlagðs kostnaðar hans.
Forsvarsmenn Hitt 96
Kærðir til Rannsóknar-
lögreglu vegna ábyrgð-
artalsana
Eigendur útvarpsstöðvarinnar
Hitt 96, sem hætti útsendingum
fýrir skömmu eftir stuttan tíma í
loftinu, hafa verið kærðir til
Rannsóknarlögreglu ríkisins
(RLR) vegna gruns um að þeir
hafi falsað nöfn ábyrgðarmanna á
víxla og skuldabréf.
Eigendur stöðvarinnar eru
Heimir Ársælsson, Jóhann Jó-
hannsson og Ingimar Andrésson.
Ingimar var jafnframt útvarps-
stjóri stöðvarinnar. PRESSAN
fékk það staðfest hjá RLR að kæra
hefði borist vegna gruns um að
forsvarsmenn stöðvarinnar hefðu
falsað nöfn ábyrgðarmanna á við-
skiptapappíra. Kæra sú sem þegar
hefur borist lýtur samkvæmt
heimildum blaðsins að trygginga-
víxli er Ingimar lagði fram hjá
Kreditkortum hf. Atli örn Jóns-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
Kreditkorta, sagði í samtali við
PRESSUNA að einn þeirra sem
skráðir eru sem ábyrgðarmenn á
víxilinn hefði haft samband við
Kreditkort og sagt undirskrift sína
falsaða. Sá hefði jafnframt tilkynnt
fýrirtækinu að hann hygðist kæra
málið til RLR.
Eftir því sem heimildir blaðsins
herma eru fleiri kærur væntanleg-
ar, en talið er að samanlögð Ijár-
hæð pappíranna sé um þrjár
milljónir króna.
Ingimar Andrésson, fýrrum út-
varpsstjóri Hitt 96, sagðist í sam-
tali við blaðið ekki kannast við að
kæra hefði verið lögð fram hjá
RLR vegna falsana af neinu tagi.
Sér væri kunnugt um eina kæru á
hendur stjórnendum útvarps-
stöðvarinnar hjá RLR, en hún
væri minniháttar mál og fölsun-
um alls óviðkomandi.
Ingimar Andrésson, fyrrverandi
útvarpsstjóri Hitt 96. Grunur
leikur á að hann og aðrir eig-
endur stöðvarinnar hafi falsað
nöfn ábyrgðarmanna á við-
skiptapappíra sem notaðir voru
til að fjármagna rekstur stöðv-
arinnar.