Pressan - 27.08.1992, Page 14

Pressan - 27.08.1992, Page 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. ÁGÚST 1992 Kókaínmálið Kókaínmarkaðurinn hefur ekki hrevfst frá því Steinn Ármann Stefánsson var handtekinn í síðustu viku. Efnið var hluti af mun stærri sendingu og stærstur hluti hennar er enn óseldur. Rannsókn málsins verður tekin úr höndum fíkniefnadeildar lögreglunnar. PRESSAN hefur staðfestar heimildir fyrir því að þau 1,2 kúó af kókaíni sem fundust í bflnum hjá Steini Ármanni Stefánssyni í síðustu viku voru aðeins hluti af mun stærri sendingu sem kom til landsins fyrir nokkrum vikum. Þá kom skyndilega mikið kókaín á markaðinn og smásölumönnum var boðið geysilegt magn til sölu, helst í hundrað gramma skömmt- um ef þeir gætu tekið við því. Samkvæmt heimildum blaðsins var ekki búið að koma nema hluta efnisins í lóg; hitt liggur óhreyft í einkahúsum, enda hefur ekki hreyfst kókaín á markaðnum síð- an Steinn Ármann var handtek- inn. Viðmælendum blaðsins ber ekki saman um hversu stór send- ingin var í heild, en nefndar voru tölur allt ífá þremur og upp í átta kfló. Efnið, sem Steinn var með, var mjög hreint og er talið að drýgja megi það ríflega. Ef það er blandað niður í 30 prósent hreint efni er söluverðmæti þess sem fannst hjá Steini að lágmarki 43 milljónir króna, miðað við tólf þúsund króna söluverð á gramm- inu. Heildarsending upp á fimm kfló væri samkvæmt sömu reikni- aðferð að söluverðmæti 180 millj- ónir. MÁLIÐ ÚR HÖNDUM FÍKNÓ Síðast þegar fréttist í gær voru yfirheyrslur ekki hafnar yfir Steini Ármanni. Tveir voru handteknir úti í bæ eftir atvikið í Mosfellsbæ og var annar dæmdur í vikulangt gæsluvarðhald. Viðmælendur í fíkniefnaheiminum segja hann ekkert tengjast þessu máli, enda var honum sleppt í gær. Þriðja manninum var sleppt fljótlega eft- ir handtökuna og samkvæmt upplýsingum blaðsins var það sá sem fíkniefnalögreglan notaði til að komast í beint samband við Stein Ármann. Hlutverk fíkniefnadeildarinnar í aðdraganda málsins hefur verið mjög til umræðu og hún talin ein- hvers staðar á mörkum þess sem löglegt er. Samkvæmt dómum er leyfilegt að nota „beitu“ til að góma fíkniefhasala, ef sýnt er að sú aðferð og hegðun „beitunnar" breyti í engu áformum og fyrirætl- an þess sem ætlunin er að taka, í þessu tilfelli að Steinn Ármann hafi ætlað að selja efhið hérlendis hvort eð var. Komið hefúr til tals að færa rannsókn málsins til Rannsóknar- lögreglu rfldns, á þeim forsendum að fíkniefnadeildin tengist málinu of náið til að geta verið sjálfstæður rannsóknaraðili. Þeir Böðvar Bragason lögreglustjóri og Hall- varður Einvarðsson áttu með sér fund í gær og í kjölfar þess ákvað Hallvarður að rannsóloi málsins yrði tekin úr höndum fíkniefna- lögreglunnar. Fíkniefnadeildin vísaði öllum fyrirspurnum til Björns Halldórs- sonar yfirmanns, sem neitaði að ræða við PRESSUNA, að sögn vegna fyrri skrifa blaðsins um deildina og hann persónulega. STEINNÚR HAFNARFJARÐARKLÍKU Samtöl við mikinn fjölda fólks, sem tengist fíkniefnaheiminum beint, benda til þess að nokkrir hópar hafi tekið sig saman um þessa stóru sendingu, en fyrir ut- an kókaínið barst einnig töluvert magn af kannabisefnum. Send- ingin kom í nokkrum skömmtum og eftir fleiri en einni leið, en sam- kvæmt upplýsingum blaðsins var Steinn Ármann einn „sendlanna". Einn viðmælenda fullyrti að hann hefði flutt efnið með sér til lands- ins í ferðatösku. Steinn Ármann var á vegum eins þessara hópa og var að dreifa efninu til sölumanna þegar hann var gripinn. Efnið hafði verið í geymslu hjá öðrum, ótengdum aðilum, en Steinn sótti það skömmu áður en fikniefnadeildin lét til skarar skríða. Hópurinn, sem Steinn vann innan, er kennd- ur við Hafnarfjörð (þótt fólkið sé alls ekki allt þaðan), en sam- kvæmt heimildum blaðsins reka forkólfar hans fyrirtæki í Hafnar- firði og Kópavogi. Þeir hafa sumir komið við sögu í PRESSUNNI vegna annars konar misferlis. Nokkur fjöldi fólks hefur verið kallaður inn til lögreglunnar vegna málsins og þau nöfn, sem blaðið heyrði í því sambandi, benda til að flestir hafi verið úr þessum hópi. Heimildarmenn blaðsins í fíkniefnaheiminum fullyrða að einn þeirra, sem „Hafnarfjarðar- hópnum“ tengjast, hafi í þessu til- felli verið í hlutverki „squealers,“ uppljóstrara sem gaf fíkniefna- deild lögreglunnar vísbendingu um Stein Ármann. Sá var tekinn fyrir fíkniefnamisferli fyrr á árinu, en veitti upplýsingar gegn vægari meðferð f)rir þau brot. Tveir aðrir eru sagðir í vitorði með honum, en hvorugur er sá sem ffkniefna- deildin notaði seinna til að ná til Steins Ármanns. Þessi sami „söngfugl" mun hafa lekið svip- uðum upplýsingum í stóra kóka- ínmálinu sem upp kom fyrir fá- einum árum. Blaðamanni barst til eyrna önnur skýring á málinu, sem ekki var hægt að staðfesta. Hún fólst í því að Steinn Ármann hafi átt að koma kókaíninu beint í hendur á mönnum í Kaupmannahöfn. Þeg- ar þangað kom hafi hann ekki fundið viðtakendurna og tekið þá efnið með sér til íslands þar sem hann hafi falið það í nokkra mán- uði án þess að opna pakkann. Þetta kann að vera sú skýring sem verjandi hans mun nota, enda verður saksóknari að sanna að Steinn Ármann hafi ætlað selja efnið hérlendis jafnvel þótt „beit- an“ hefði ekld verið notuð. ALLT AÐ ÞRJÁTÍU KÍLÓ Á ÁRI — í FÁUM HÖNDUM Viðmælendur PRESSUNNAR útilokuðu ekki að eitthvað af stóru sendingunni hefði átt að fara áfram til Evrópu, en þeir töldu kókaínmarkaðinn á fslandi líka stórlega vanmetinn í opinberri umræðu. Kókaín er ekki á hvers manns borðum vegna verðlags- ins, en almennt var talið að um „Þarf að auka þjálfun fíkniefnalögreglu“ segir Grímur Th. Vilhelmsson „Það er sorglegt að það skuli þurfa stórslys á lögreglumanni til að fólk vakni til vitundar um hversu alvarlegur fíkniefnavand- inn er hér á landi,“ sagði Grímur Th. Vilhelmsson cand. mag. í samtali við PRESSUNA. Hann hefur sérmenntað sig á ýmsum sviðum sem tengjast ávana- og fíkniefnamálum og hefur meðal annars háskólagráður frá Banda- ríkjunum í lyfjafræði og taugasál- fræði. Hann vinnur nú að dokt- orsritgerð í taugasálfræði með sérstaka áherslu á afbrotahegðun og starfar að ráðgjöf fyrir fólk sem á við fíkniefnavanda að etja. Hann hlaut þjálfun í bandarísk- um lögregluskóla og starfaði hjá lögreglunni í Michigan og Illinois samhliða námi. Þar tók hann að sér að vera „beita“ lögreglunnar í fíkniefnakaupum, þ.e. keypti efni í þeim tilgangi að lögreglan gæti í kjölfarið handtekið fíkniefnasal- ana. Hann sat líka í bandarísku fangelsi til að kynna sér aðstæður af eigin raun. Grímur segir að fíkniefnavand- inn hér sé í eðli sínu ekkert frá- brugðinn því sem gerist í Banda- ríkjunum. Hins vegar þurfi að auka verulega fræðslu lögreglu- manna og fjármagn*sem veitt er til fíkniefnamála, auk þess sem starfsaðferðir fíkniefnalögregl- unnar þurfi að breytast. „Það er ekki til hér sú sérþjálf- un sem nauðsynleg er til að lög- reglan geti unnið starf sitt eins og vera þarf. Með því er ég ekki að gagnrýna fíkniefnadeildina, en kostur hennar og allar aðstæður eru ekki fullnægjandi. Ég held að Björn Halldórsson sé mjög fær í starfi og forvarnardeild lögregl- unnar hefur unnið ágætt starf. Það þarf hins vegar að þjálfa lög- reglumenn mun betur í að fást við fíkniefnaheiminn, að þekkja hverjir það eru sem eru á lyfjum, hvernig þeir starfa og hvernig þessi viðskipti eiga sér stað. Það þarf líka að taka hér upp aðferðir sem notaðar eru annars staðar með góðum árangri, að láta lögreglumenn samlagast fíkniefnaheiminum betur, láta þá lifa og hrærast í honum og kom- ast þannig í samband við fólk. Nú er gangur mála yfirleitt sá að það er unnið út frá tilteknu máli, þeg- ar minniháttar menn eru teknir, en með því móti er ekki hægt að taka á þeim sem að baki standa." Sjálfur segist Grímur hafa unn- ið þannig í Bandaríkjunum og verið útsendari lögreglunnar meðal fíkniefnasala. Hann þurfti að fara frá Michigan „þegar hringurinn var farinn að þrengj- ast um mig“ og flutti sig þá um set til Springfield í lllinois. Grímur hefur boðið fíkniefna- deild lögreglunnar starfskrafta sína, en hún hefur ekki þekkst boðið og borið við fjárskorti. Frá því hann kom til íslands hefur Grímur veitt ráðgjöf fólki sem á við fíkniefnavanda að etja, að mestu leyti í sjálfboðavinnu. Vel á þriðja tug fólks hefur leitað til hans og um þriðjungur þeirra hefur verið í kókaínneyslu. „Fíkniefnaviðskiptin eru ekkert öðruvísi hér en í Bandaríkjun- um," segir Grímur Th. Vilhelms- son.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.