Pressan - 27.08.1992, Page 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27.ÁGÚST 1992
15
STAKK AF UNDAN
SKATTINUM
Algengt er að þeir sem standa
fyrir innflutningi og dreifingu séu
í öðrum viðskiptum sem notuð
eru sem „frontur“. Það átti til
dæmis við um einstakling sem
flutti til íslands frá Bandaríkjun-
um í fyrra eftir langa dvöl þar og
greint var frá í tímaritsviðtali
skömmu seinna. Hann hóf við-
skipti með smávarning eftir heim-
komuna, en fór aftur af landi brott
um síðustu jól, að sögn þegar
skattyfirvöld tóku hann til rann-
sóknar. Hann býr nú í San Franc-
isco.
Rokktónleikar eru önnur teg-
und viðskipta sem virðast notuð
til að hylja innflutning og dreif-
ingu á kókaíni. f fyrra kom kókaín
falið í tækjabúnaði erlendrar
hljómsveitar sem hélt hér tón-
leika, að sögn um fimmtán til tutt-
ugu kíló. Samkvæmt upplýsing-
um blaðsins fór um helmingur
þess efnis í dreifingu víðs vegar á
höfuðborgarsvæðinu, fjórðungur
fór til hóps á Suðurnesjum og
fjórðungur norður í land. Fullyrt
er að þetta hafi gerst í tengslum
við fleiri tónleika, en blaðinu tókst
ekki að fá fleiri nafngreind dæmi.
f umræðu um fíkniefnamál er
oft talað um þekkta kaupsýslu-
menn sem fjármagni innflutning.
Viðmælendur blaðsins báru þau
nöfn til baka, öll nema eitt, nafn
manns sem er stórtækur í ýmiss
konar viðskiptum. Hann þarf þó
varla að Ieggja fram mikið fé á
næstunni. Töluvert virðist vera
eftir af stóru sendingunni og við-
skipti hafa legið niðri síðan mál
Steins Ármanns kom upp. Miðað
við titringinn sem PRESSAN varð
vör við má búast við að svo verði
enn um sinn.
fjörutíu manns á höfuðborgar-
svæðinu væru ánetjaðir og notuðu
lyfið að staðaldri. Dæmin eru úr
„betri“ stéttum á borð við lög-
fræðinga, lækna, endurskoðend-
ur, bílasala, jafnvel tollverði. Aðrir
hafa eitt milljónaarfi í kókaín-
neyslu á stuttum tíma. Minni
neytendur eru þokkalega efnað
ungt fólk sem notar kókaín um
helgar og svo dópsölumenn, sem
hafa nógu mikla peninga á milli
handanna til að geta notað efnið
stöku sinnum.
Enginn treysti sér þó til að giska
á hversu stór markaðurinn er í
magni. Miðað við 5-10 prósent
regluna, sem oft er notuð, þ.e. að
lögreglan nái þeim hluta af heild-
armagni í umferð, gæti hann verið
allt frá tíu og upp í þrjátíu kíló á
ári. Það er þó ekkert annað en
ágiskun.
Vitað er að kókaín er selt ásamt
öðrum efnum að staðaldri á að
minnsta kosti fimmtán stöðum á
höfuðborgarsvæðinu, en „klíkur“
sem standa í skipulegum innflutn-
ingi eru líklega fimm eða sex. Á
vegum hverrar um sig er 10-20
manna hópur sem heldur utan
um söluna, en af þeim eru fáeinir
sem gegna stærra hlutverki í dreif-
ingu meðal sölumanna,
menn á borð við Stein Ár-
mann.
Töluvert er um að ein-
staklingar flytji inn efni til
eigin neyslu og á það sér-
staklega við urn hassið,
þar sem neytendur eru
margir. Ýmislegt bendir
þó til þess að fíkniefna-
markaðurinn hér á landi
sé í höndum tiltölulega
fárra aðila. Það hefur
ítrekað gerst síðustu miss-
eri að skrúfað hefur verið
fyrir hassffamboð á mark-
aðnum, en á sama tíma er
til nóg af amfetamíni.
Þetta, ásamt nákvæmum
skilaboðum um hvenær
hassið verði aftur fáanlegt,
telja viðmælendur blaðs-
ins benda til þess að til-
tölulega fáir hafi fíkni-
efnainnflutninginn á sín-
um höndum og vilji þeir
frekar selja „hraðann",
sem meiri ágóðavon er í.
„Steini kækur“ var aðeins sendill á vegum klíku
sem kennd er við Hafnarfjörð, að sögn viðmælenda
blaðsins í fíkniefnaheiminum.
DV-mynd S.
KarlTh. Birgisson