Pressan - 27.08.1992, Side 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27.ÁGÚST 1992
17
sr ing Félags ungra framsóknarmanna
verður haldið á Egilsstöðum um helgina.
Þar verður meðal annars tekin afstaða til
umdeildrar ályktunar
um jöfnun atkvæðis-
réttar í landinu — mál
sem sjaldan hefur átt
upp á pallborðið meðal
framsóknarmanna.
Auk þess verður kosið
um formanna SUF, en
Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að
hætta. Sem fyrr eru fr amsóknarmenn lítið
fyrir óvæntar uppákomur. Því er gert ráð
fyrir að Sigurður Sigurðarson verði
kosinn í embættið. Hann er ættaður úr
Dölunum en starfar sem tæknifræðingur
á Egilsstöðum. Það eina sem gæti raskað
ró ftmdarmanna í stjómarkosningum er
Hallur Magnússon, kennari á Bakka-
firði, en sumir telja að hann gæti komið
með óvænt framboð...
ndanfarið hafa verið miklar vanga-
veltur um hvað gerist á matvörumarkað-
inum á næstunni í kjölfar óvænts sam-
runa Hagkaups og Bónuss. Af kunnugum
mönnum hefttr þvf verið haldið ffam að
mikil samþjöppun sé framundan hjá
heildsölum í kjölfarið þangað til tveir eða
þrfr stórir verði eftir á markaðinum...
M álafjöldinn hjá kærunefhd jafn-
réttismála hefur aukist jafnt og þétt að
undanfömu. Má til marks um það nefna
að í einni og sömu vikunni í maí síðast-
liðnum bámst fjórar kæmr inn til nefnd-
arinnar. Það er nánast kæra á dag...
0 vænt endurkoma Guðna Þórðar-
sonar í Flugferðum- Sólarflugi fram á
sjónarsviðið í blaðagrein í Velvakanda í
Morgunblaðinu í síð-
ustu viku minnir á að
enn er óvíst hvað kem-
ur út úr rannsóknum á
högum hans. Sem
kunnugt er er Rann-
sóknarlögregla ríkisins
enn að skoða mál hans
eftir að samgönguráðuneytið fór fram á
rannsókn á lokun skrifstofunnar...
u leið og Guðni Þórðarson geys-
ist ffam á sjónarsviðið vekur athygli að
enginn hefur orðið til þess að fara ffam á
gjaldþrotaskipti á fyrirtæki hans. Það
stefnir því í að Guðni komist. frá þessu
ævintýri eins og ævintýrinn um Sunnu,
sem aldrei varð formlega gjaldþrota, og
varð Guðna tilefni til að hreykja sér síðar
meir....
u^Íýlega afgreiddi bæjarráð Kópavogs
umsóknir um vínveitingaleyfi. Lágu fyrir
þrjár umsóknir og var ein þeirra frá
Smára Hreiðarssýni vegna Smiðjukaff-
is. Þar er sem kunnugt er matsala allar
nætur og ef vínveitingaleyfið hefðí verið
samþykkt væri þarna kominn vísir að
næturldúbbi þar sem hægt væri að fá mat
og drykk framundir morgun. Að fenginni
umsögn áfengisvarnanefndar var um-
sókninni hafnað, að þvf er sagt var vegna
skorts á upplýsingum...
HÚSEIGENDUR
Nú er rétti tíminn til þess að gera kiárt fyrir veturinn. Notið góða
veðrið til þess að skipta um rennur og klæða steypta kanta og
endurnýja lofttúður. NÝJA BLIKKSMIÐJAN HF. gerir þér tilboð sem
þú getur ekki hafnað. Vanti þig eitthvað af eftirfarandi. t.d.:
□ Rennur og niðurföll.
□ Blikkkanta á steypta veggi.
□ Hettu á skorsteininn.
□ Þakventla.
□ Flashningar.
□ Kjöljárn otj skotrennur.
□ Þakglugga og þaklúgur.
□ Útloftunartúður.
□ Sparkplötu á hurðir eða stál á þrÖskuld.
□ Útipóstkassa.
□ Ruslarör.
Taklu þá upp símtólið og hringdu í síma 681172.
Við veitum fljóta og góða þjjónustu.
Opið 7.30-17.15.
Fax: 681207
Nýja Blikksmiöjan hf., Ármúla 30.
mm ' \
Fjjjj ' VISA
■■■■■
IUMFERÐAR
RÁÐ
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir
fljótt
stíflum
Tuskur
Feiti
Lífræn efni
Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-