Pressan - 27.08.1992, Blaðsíða 34
34
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. ÁGÚST 1992
Barir
Eitt er það einkenni á ís-
lenskum börum, sem fær
drykkjumann PRESSUNN-
AR til að brynna músum
reglulega, en það er verðlagningin á
ódáinsveigunum. Að vissu leyti er við
hið opinbera að sakast í þessum efn-
um, því það hefur kosið þessa dul-
búnu skattheimtu til að mismuna
þegnum ríkisins eftir áhugamálum
þeirra. Vestur í Bandaríkjunum fær
maður vodkaflöskuna á 500 krónur
eða þar um bil, en hér heima fær
maður ekki vodka fyrir minna en
2.000 krónur — fjórum sinnum
hærra verð! Þetta er náttúrulega
skandall út af fyrir sig. En það er ekki
við ríkið eitt að sakast, því þegar
maður fer á barinn til þess að súpa á
er verðið hækkað um helming eins
og ekkert sé. Og það þýðir að maður
borgar sama verð á barnum og þeg-
ar keypt er á svörtum! Við þetta bæt-
ist svo að staðirnir hafa flestir verið
ódeigir við að rukka inn fyrir blandið,
eins og oft og iðulega hefur komið
fram í neytendakönnunum. Annað
trix, sem þessir kallar nota, er að selja
freyðivín á kampavínsverði, ekki síst
ef böbblíið er borið fram í glasavís.
Sumir staðir eru meira að segja svo
ósvífnir að selja manni sítrónusneið-
arnar út í G&T. Ef þeir fengju að ráða
mundu þeir vafalaust selja ísmolana í
stykkjatali. Undirstaða allrar þessarar
vitleysu er vitaskuld einokunarfyrir-
komulagið sem er á áfengisverslun
öllum til armæðu. Nýlega ákvað
Höskuldur í ríkinu til dæmis að
Beck's-bjór væri búinn að vera vin-
sælasti bjór landsmanna nógu lengi
og ákvað að gera Holsten að vinsæl-
asta bjórnum næstu mánuði. Hvað
næst?! Kommisararnir hjá ÁTVR segja
réttilega að þeir geti ekki keypt inn
allar tegundir. En slíkt er ekki vís-
bending um að ríkið eigi að velja og
hafna fyrir hönd okkar fávfsra, sem
þurfum bara að punga út fyrir og
drekka áfengið. Það bendir einfald-
lega til þess að ÁTVR valdi ekki hlut-
verki sínu frekar en nokkurt eitt fyrir-
tæki annað. Þetta hlutverk getur
hinn frjálsi markaður einn annast.
Niður með ríkið!
Poppið
HIIHIf.ITlTn
a# VIN-K heldur tónleika á
veitingahúsinu 22 stundvís-
lega klukkan 23.00. Sveitina
skipa Michael D. Pollock, Gunnþór
Sigurðsson, Gunnar Erlingsson og
Ágúst GAK. Hér er á ferðinni alheim-
snútíma-rockn'roll og sjónhverfingar
gegn engu gjaldi.
• Magnús og Jóhann eru með út-
gáfutónleika á Púlsinum í kvöld í til-
efni af 20 ára starfsafmæli sínu og út-
komu nýs geisladisks sem inniheldur
margar af gömlum perlum þeirra fé-
laga. Tónleikunum er útvarpað beint
á Bylgjunni milli klukkan 22.00 og
24.00.
• Sniglabandið leikur undir hjá
Magnúsi og Jóhanni á Púlsinum og
aðstoðar þá við að skapa rólega og
afslappandi stemmningu, sem hefur
verið vörumerki Magnúsar og Jó-
hanns í gegnum árin. Auk þess spilar
Sniglabandið eitt og sér sín eigin lög.
Hvort það verður rólegt og afslapp-
að skal ekki fullyrt um hér.
• Óskar Einarsson trúbador spilar
fyrir alla þá sem leggja leið sína á Ca-
fé Amsterdam í kvöld.
• Haraldur Reynisson trúbador
spilar á Fógetanum í kvöld. Þessi
reykvíski trúbador hefur getið sér
gott orð fyrir skemmtilegt lagaval og
alveg hreint stórgóðan flutning.
• Tveir Logar frá Vestmannaeyjum
eru þeir Hermann Ingi, söngvari og
gítaristi, og Guðlaugur á hljómborð,
en þeir voru í gömlu, góðu Logun-
um. Þeir halda uppi fjörinu á Rauða
Ijóninu í kvöld og syngja meðal ann-
ars gömul Eyjalög.
• Anna Vilhjálms og Hilmar
Sverris sjá um sveifluna á Dansbarn-
um.
• Sirkus Babalú á Hressó. Ung og
fjöruq sveit, með svolitlum mennta-
skólabragi.
• Sálin hans Jóns míns er komin í
höfuðstaðinn eftir landshornaflakk í
sumar. Þeir sem hafa gaman af Sál-
inni ættu að skvera sér á Tvo vini í
kvöld því þar verður hún og ekki
seinna vænna því sveitin fer fljótlega
í frí, ef frí skyldi kalla, til að taka upp
nýja hljómplötu. Jólin fara nefnilega
að nálgast og tími til kominn að taka
uppjólaplötuna.
• Lizt spilar á Apríl í kvöld og er það
í annað sinn sem hljómsveitin rokkar
og sólar opinberlega. Liðsmenn
sveitarinnar eru ættaðir úr Tónskrött-
um og Berum að ofan, þeir Guð-
mundur Pálsson á raddbönd, Rík-
harður Arnar á hljómborð, Róbert
Þórhallsson á bassa, Gunnar Þór
Jónsson á gítar og Tómas Jóhannes-
son á trommur. Strákarnir sækja sér
orku frá ekki verri sveitum en Cult,
Queen og Living Colour.
• Sýn eru þeir Guðmundur og
Kiddi, sem spila á hljómborð og gítar
á Dansbarnum í kvöld. Hér er gott
tækifæri til að minna á að sú ný-
breytni hefur verið tekin upp á Dans-
barnum að hafa opið öll kvöld vik-
unnar með í karaoke fyrripart viku.
• Galileo leikur á Gauknum í kvöld.
Hljómsveitina skipa þeir Sævar
söngvari, Jósep á hljómborð, Einar
Bragi á saxófón og flautu, örn á gítar,
Rafn á trommur og Birgir á bassa.
• Hermann Ingi heldur að öllum
líkindum uppi rífandi stemmningu á
Feita dvergnum í kvöld.
• EXIZT spilar á Púlsinum í kvöld, en
þar tróðu þeir upp síðast á útgáfu-
tónleikum snemma í ágúst. Þeir hafa
víst æft af kappi síðan þá og bætt við
sig fjölda laga sem þeir sækja til Led
Zeppelin, Iron Maiden, Nazaret,
ACDC og fleiri að ógleymdum nokkr-
um góðum blúsurum. Guðlaugur
Falk spilar á gítar, Eiður örn syngur,
Jón Guðjóns plokkar bassann og Sig-
urður Reynis ber trommurnar. Eiríkur
Sigurðsson gítarleikari er nýjasti
hlekkurinn í sveitinni, en hann kemur
úr Vírus sem, fyrir þá sem ekki vita
það nú þegar, er þungarokkssveit.
• Jötunuxar hafa gaman af Grjót-
inu og Grjótið af þeim. Mikið var það
gott því uxarnir rokka þar í kvöld.
• Rokkvalsinn er þriggja manna
sveit sem sérhæfir sig í svokölluðum
pöbba-lögum og ætlar einmitt að
spila slík lög á Café Amsterdam í
kvöld. í sveitinni er hann Jakob Ingi
sem spilar á rafmagnsharmonikku og
mun hún vera sú eina sinnar teg-
undará landinu.
• Haraldur Reynisson trúbador
heldur áfram að spila á Fógetanum.
• Tveir Logar halda uppi krár- og
Eyjastemmningu í Rauða Ijóninu eins
og í gærkvöldi.
• Klang og kompaní eru tveir
hressir kraftajötnar á nærbuxum sem
spila bókstaflega allt milli himins og
jarðar á Nilla-Bar í Hafnarfirði í kvöld.
Eruð þið búin að sjá plakatið?
LAUGARDAGUR
• Megas á Hressó. Tónlistarvið-
burður, langt siðan heyrst hefur í
Megasi.
• Lizt er aftur í kvöld á Apríl og
heldur áfram að spila í anda Cult, Li-
ving Colour og Queen. í kvöld koma
þeir fram í þriðja sinn opinberlega.
• Jötunuxar enn í Grjótinu. Og það
í allt kvöld.
• Loðin rotta rokkar á Tveimur vin-
um. Þarna fer að margra mati ein af
betri rokksveitum landsins og ekki
við öðru að búast en Rotturnar
standi undir þeirri nafnbót í kvöld.
• Hermann Ingi spilar aftur á Feita
dvergnum.
• Cuba Libre spilar á Púlsinum í
kvöld en Sigurður Sigurðsson, blús-
söngvari og munnhörpuleikari
Tregasveitarinnar, verður heiðurs-
gestur kvöldsins. Cuba Libre er skip-
uð þeim Tryggva Hubner gítarleik-
ara,.Jóni Ingólfs á bassa og bróður
hans Trausta á trommur. Þeir bræður
voru áður í Stuðkompaníinu.
• Sýn aftur á Dansbarnum í kvöld.
• Klang og kompaní aftur á Nilla-
Bar í kvöld með synthesizerinn og
bassann. Þeir eru vel líklegir til að
lauma inn nokkrum reggae-lögum.
• Rokkvalsinn er enn á Café Amst-
erdam með sinn Jakob Inga og sína
rafmagnsharmonikku.
• Haraldur Reynisson trúbador
treður upp þriðja kvöldið í röð á Fóg-
etanum.
• Tveir Logar eru enn á Rauða
Ijóninu.
SUNNUDAGUR
• Megas á Hressó. Tónlistarvið-
burður.
• Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
trúbador tekur við af Haraldi á Fóget-
anum.
• Loðin rotta flytur sig yfir á Gauk-
inn í kvöld og heldur áfram að rokka
og trylla og þar frameftir götunum.
• Sýn er enn á Dansbarnum, en
hljómsveitin er skipuð þeim Guð-
mundi og Kidda sem spila á hljóm-
borð og gítar.
• Karaoke á Tveimur vinum eins
og alltaf á sunnudagskvöldum. Nú er
hægt að velja úr hvorki meira né
minna en 430 lögum þannig að þeir
sem eiga í basli með að læra dægur-
lagatexta hljóta að finna lag sem þeir
kunna, þó ekki væri nema aðeins eitt.
• Tveir Logar eru úthaldsgóðir
mjög og troða upp fjórða kvöldið í
röð þessa helgi á Rauða Ijóninu.
Sveitaböll
Ýdölum Aðaldal, Gal-
ileo.
Miðgarður Skagafirði,
'Geirmundur á
Framsóknarballi.
Dansk
Hreðavatnsskáli, Gammel
HEF SKOÐANIR
Hjalti Rögnvaldsson, leikarinn
góðkunni sem sagði skilið við fs-
land í fussi, er nú kominn hingað
til að leika stórt hlutverk í nýju
leikriti eítir Björn Th. Björnsson,
Dunganon, sem frumsýnt verður
18. september. Árið 1988 lék hann
einnig hér á landi og þá í Heim-
komunni í Gamla bíói.
Flestum er enn í fersku minni
er Hjalti jós úr skálum reiði sinnar
fýrir fáeinum árum í tímaritsvið-
tali og flúði land, nánar tiltekið til
Noregs, þar sem hann var fastráð-
inn leikari í Stafangri um tíma.
Ástæðan fyrir brottför hans voru
kjör leikara hér á landi, sem hann
telur bágborin, og hversu erfitt er
að eignast hér húsnæði. En er
Hjalti ennþá reiður út í íslenskt
þjóðfélag?
„Ég er hinn hugprúðasti og
geðþekkasti maður, en ég hef
skoðanir. Ég er bara enn með lífs-
marki! Ef fólk vill kalla það reiði
þá má það gera það, en ef fólk vill
kalla það einhverjum öðrum
nöfnum, eins og til dæmis ban-
ana, þá er það líka í lagi,“ segir
Hjalti í gamansömum tón.
Ertu kominn til landsins til að
vera? '
„Nei, ég hef ekki hug á að vera
hér lengi en þó er ekkert ákveðið
með ffamhaldið enn. Það stendur
jafnvel til að ég leiki í stóru leik-
húsi í Osló á næstunni."
Langar þig til að flytjast aftur til
íslands?
„Jú, ég mundi gjarnan vilja
flytjast til Islands aftur en það hef-
ur bara ekkert breyst. Hér klæðast
yfirvöld enn sama Al Capone-
búningnum. Stjórnvöldum virðist
takast enn betur nú en áður að
sjarmera fólkið upp úr skónum,
því ekkert heyrist í leikurum þrátt
fyrir bág kjör. Og það er erfitt að
undirbúa byltingu meðal leikara,
því byltingar eru oftast gerðar að
kvöldi til og leikarar eru alltaf að
vinna á kvöldin.“
Hjalti Rögnvaldsson, sem leikur
stórt hlutverk í leikriti Björns Th.
Björnssonar í vetur, segir íslensk
yfirvöld enn klæðast sama Al
Capone-búningnum.
HAL5BONDIN
KOMIN AFTUR
háls. Vantar
bara næluna
fremst.
Trommarinn í
Kolrössu krók-
ríðandi mætti
sleppa lafinu.
Ekkert er nýtt undir sólunni. Nú
eru þau komin aftur hertu hálsbönd-
in sem mæður þessara ungu stúlkna
báru snemma á áttunda áratugnum,
— stundum nefnd mellubönd. Þau
eru af ýmsum toga eins og sjá má.
Solla með Sumarþoraþó ekki
svartband enn að sleppa laf-
strekkt upp í inuogeruað
hengslast með of
stórastrekktaklúta
um hálsinn. Þróun-
in tekur alltaf tíma.
Bestu hálsbanda-
lausnirnar eru ein-
faldastar. Einna
sniðugast er að ná
sér í gamlan svartan
nælonsokk (hann má svosem vera
nýr) og klippa í eina hálsbreidd,
skella sér svo í töluboxið hjá mömmu
og fmna gamla létthallærislega en
trendí tölu og festa hana fyrir miðju á
sokkinn. Þetta skal svo binda um
hálsinn og útkoman er stórkostleg;
einföld, ódýr en frábær.
Þá er hægt að
skella sér í næstu
vefnaðarvöruversl-
un þar sem komast
má yfir hin skraut-
legustu bönd í
metratali og fr anski
rennilásinn kemur
alltaf að góðum
notum.
Kata á Stöð 2
og trommar-
inn í Jet Black
Joe tóku
sveiflu í Sjall-
anum á dög-
unumog eru í
stíl með bönd-
in um hálsinn
(hanstelstvart
melluband).
Fatahönnuðin-
um Filippíu
vampírista hlýt-
urað vera kunn-
ungt um háls-
bandatískuna.Á
hennar bandi
eru litlar svartar
glanskúlur.
VAXINN UR GRA
Það hefur varla farið framhjá neinum sem ekur um Kringlumýrarbraut — inn í
Kópavoginn eða út úr honum — að drengjagosbrunnurinn fyrir framan Nesti
hefur heldur betur tekið vaxtarkipp. í stað litla snáðans sem þar hefur ætíð
staðið er nú kominn myndarlegasti piltur. Ef áfram verður haldið á sömu braut
má búast við því að innan fárra ára verði þar kominn fulltíða maður og að
öld liðinnlmá ímynda sér að þar standi veðraður öldungur. Við mælum
með sunnudagsbíltúr og skoðunarferð.
STEMMNINGARBJÓR
— EXÓTÍSKUR BJÓR
Það er óumdeilanleg full-
yrðing að bjór er ekki það
sama og bjór. Grolsch er til að
mynda ekki það sama og Kor-
ona þótt í báðum tilfellum sé
um bjór að ræða.
Það má hins vegar
tína til sameiginlega
eiginleika bjórs og
bjórs og er þá ekki að-
eins átt við efnafræði-
lega samsetningu
drykkjarins. Þannig
má benda á að hinn
hollenskættaði
Grolsch (reyndu við
framburðinn á frum-
málinu) á það sam-
merkt með hinum
mexíkóska Korona að
báðir mega þeir teljast
vinsælir og að sama
skapi töluvert dýrir.
Þeir eru líka í tísku og
skiptir fólk því ef til vill
engu máli hvað það
borgar fyrir þá. I Hard Rock
fer það að minnsta kosti
ekki framhjá neinum að
ásókn er í veigarnar.
Þeir segja það líka sem
drekka þessar tegundir að
þær séu betri en aðrar. Svo
má velta því fyrir sér hvort
fólk tekur Grolschinn fram-
yfir annan af því flaskan er
svo flott eða hvort það
vill Korona út af Lime-
sneiðinni sem er sett
ofan í stútinn... og
tequila-snafsinum
sem gjarnan er drukk-
inn með.
Það má svo fylgja að
jafnvel þótt Korona sé
dýr alls staðar á Vest-
urlöndum er hann
einn sá ódýrasti í
heimalandinu. Það var
hins vegarsnjall Am-
eríkani frá Kalíforníu
sem fékk einkaumboð
fyrir hann til dreifing-
ar í hinum vestræna
heimiog tókstað
markaðssetja hann
þannig að fólki líkaði hann.
Bingó. Bjórinn komst í tísku
og seldist upp frá því á
toppprís.