Pressan - 27.08.1992, Page 36

Pressan - 27.08.1992, Page 36
36 FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. ÁGÚST 1992 L í F I Ð EFTIR VINNU Klassíkin FOSTUDAGUR • Blokkflauta og orgel. iGuðrún Skarphéðinsdóttir |er íslensk, vinkona hennar Nina Haugen norsk, en saman hafa þær stundað nám við tónlistarskóla í Sviss. Guðrún spilar á blokkflautu, Nina á orgel, og á efnisskránni er ensk barokktónlist frá 17. og 18. öld. Það eru meðal annars verk eftir Purcell, Andrew Pachan, Hándel og Corelli. Nokkuð hátignar- legt. Kristskirkja á Landakoti kl. 20.30. I :■ • Galgopar og Diddú. Einu sinni fór Diddú um landið með Sumargleðinni, núna glímir hún við þjóðveginn með sönghópnum Galgopum. Hann skipa eintómir strákar: Óskar Pétursson Skagfirðingur og tenór, Stefán Birgis- son tenór, Atli Guðlaugsson barítón, Vilberg Jónsson bassi og Þorsteinn Jósefsson bassi. Á efnisskránni eru ís- lensk sönglög og erlend — í léttari kantinum, eins og vænta mátti. Mið- garður, Skagafirði kt.21. Sýningar • Það var svo geggjað. Árbæjarsafn er löngu hætt að snúast bara um moldar- kofa og gömul hús, heldur líka um fólk, sumt í ekki alltof fjarlægri fortíð. Til dæmis hippasýningin sem ber með sér andblæ áranna 1968-1972, þegar herbergi unglinga önguðu af reykelsi, allir gengu í útvíð- um buxum og karlmenn voru hæst- ánægðir með að skvetta á sig Old Spice-rakspíra. Opið frá 10-18. • Húsavernd á fslandi. Aðalstræti er sorglegt dæmi um þegar menn vilja hvort tveggja halda og sleppa, vernda og rífa. Vissir hlutar Akureyrar eru á hinn bóginn fagurt dæmi um skynsamlega húsavernd. í Bogasal Þjóðminjasafns stendur yfir sýning þar sem er rakin saga húsaverndar á fs- landi .Opiðkl. 11-16. • Höfnin f Reykjavík er mikið mannvirki og það voru stórhuga menn sem réðust í að byggja hana i kringum 1915. Nefnum Jón Þorláks- son. Sýning í Hafnarhúsinu rekur sögu hafnarinnar, í tilefni af 75 ára afmæli hennar .Opiðkl. 11-17. • Höndlað í höfuðstað er sýning á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Borgarskjalasafns. Þar eru raktir þættir úr sögu verslunar í Reykjavík. Hún var einna blómlegust um alda- mótin, eða þá voru að minnsta kosti mjög flottar búðir. Ókeypis • í Mosfellssveitinni getur manni liðið eins og maður sé kominn til útlanda, svona augna- blik, svo hverfur til- finningin aftur. Þetta svífur á mann fyrir utan Álafosshúsið, niðri í dalverpinu austan við Vesturlandsveginn. Þarna sem áin rennur í gegn er nefnilega umhorfs eins og í bresku verk- smiðjuþorpi, ekki svo ýkja löngu eftir iðnbyltingu. Maður gengur upp hólinn og þar verð- ur fyrir einbýlishús verksmiðju- stjórans og aftur er eins og maður sé kominn til útlanda; Don Corleone hefði stoltur get- að sest þarna að. í verksmiðju- húsinu sýna listamenn, en það kemur þessu máli ekki við. Trjá- lundur ögn ofar í byggðinni minnir hins vegar á Noreg. • Besti bíltúrinn þessa dagana er þvert yfir Mosfellsheiðina, eftir veginum austur á Nesjavelli, nýr vegur, fáfarin leið, fögur og hrjóstrug náttúra til allra átta. Bíllinn stritar upp norðurenda Hvirfils, og síðan þarf maður að hafa sig allan við að renna ekki á harðaspani alla leið niður í Þing- vallavatn. Á heimleiðinni er nauð- synlegt að skoða kirkjuna á Úl- fljótsvatni, hún stendur þarna langleiðina úti í vatninu, og á Ljósafossi er einhver exklúsívasta sjoppa í landinu. Þangað kemur sjaldan nokkur. Málþing B LAUGARDAGUR Henrik Ibsen er ein- hver svívirðilegasti snill- ingur sem Norðurlönd hafa alið, eða réttar sagt Noregur. f tilefni af nýrri heildarútgáfu a verkum Ibsens á veg- um Den norske Bokklubben eru komnir hingað þrír Norðmenn, fram- kvæmdastjóri klúbbsins sem kynnir útgáfuna, Ludvig Eikas, listamaður sem hefur sérhæft sig í að túlka per- sónur Ibsens, og ritstjóri sem kann deili á þessum listamanni. Myndlist Samsýning á Kjarvals- stöðum. Þarna leggja í púkk ungir listamenn (sem reyndar eru smátt og smétt að færast á miðjan aldur); Kristján Steingrímur, (ris Friðriksdóttir, Ragnar Stefánsson og Ólafur Gíslason. Til sýnis I húsinu eru líka teikningar eftir Alfreð Flóka og afstrakt högg- myndir eftir Ásmund Sveinsson. Opið kl. 10-18. • Japönsk ieirkeragerð á sér langa hefð, Á þessari farandsýningu i Nor- ræna húsinu má sjá verk eftir 56 leir- kerasmiði, flest eru þau í hefðbundn- umstll .Opiðfrdkl. 14-19. • Halldóra Emilsdóttir heldur mál- verkasýningu í Gallerí Úmbru sem er í Bernhöftstorfunni .Opiðki. 12-18. • Myndhöggvarafélagið heldur upp á tuttugu ára afmæli sitt með minningarsýningu í Nýlistasafninu um einn dyggasta félagsmann sinn, Ragn- ar Kjartansson myndhöggvara, sem lést fyrir nokkrum árum. Merkileg og að mörgu leyti hjartnæm sýning. Opið kl. 14-18. • Elías Halldórsson sýnir í Hafnar- borg, hinni ágætu menningarmiðstöð Hafnfirðinga. Þar hefur Elías hengt upp málverk og grafíkmyndir. ( kaffi- stofunni sýna hjónin Einar Már Guð- varðarson og Susanne Christiansen höggmyndir úr ítölskum marmara, grásteini og móbergi. Opið kl. 12-18. • Gísli Sigurðsson, sem annars er ritstjóri Lesbókar Moggans, hefur mál- að röð olíumynda þar sem er lagt út af hinum fornu Sólarljóðum. Myndirn- ar sýnir Gísli á Hólum í Hjaltadal I Skagafirði. • Gunnlaugur Scheving málaði fyrirferðarmikil verk sem fjalla um lífs- baráttu sjómanna. Svoleiðis hlemmar hljóta að fara vel á hráum veggjunum í nýja gallerfinu niðri í Hafnarhúsi. Op- iökl. 14-18. • Donald Judd, einn frægasti lista- maður sem nú er á dögum, sýnir nokkur verk eftir sig í sýningarsalnum Annarri hæð, sem er á Laugavegi 37. Opið miðvikudaga kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. • Katrín Elvarsdóttir er ungur Ijós- myndari sem undanfarið hefur stund- að nám ( Ameríku. Hún heldur einka- sýningu í Gallerí 15 á Skólavörðustíg. Opið á verslunartíma. • Islensk málverk hanga uppi i Listasafni (slands, úr eigu safnsins. Á kannski betur við þennan túristamán- uð en jórdönsku kjólarnir. (sölunum á neðri hæð gamla íshússins eru verk eftir frumherja íslenskrar málaralistar, á efri hæðinni nýrri verk, auk nokkurra verka frá útlöndum. Opiðkl. 12-18. • Æskuteikningar Sigurjóns minna okkur á að enginn er fæddur listamaður, þótt sumir hafi jú meiri hæfileika en aðrir. Elstu myndirnar á sýningunni í Safni Sigurjóns Ólafsson- ar eru frá æskuárum hans á Eyrar- bakka, en flestar frá árunum 1924-1927 þegar hann stundaði nám í Iðnskólanum. Skemmtileg sýning og svo er alltaf gaman að koma í safnið á fallega staðnum í Laugarnesinu, út við Sundin blá. Opið frá kl. 14-17 • Hótel Búðir er paradís á jörð í aug- um margra. Þar heldur Örn Karlsson, einn heimamanna, sýningu í sumar, í gamla þvottahúsinu sem hefur verið breytt I gallerí. Hann sýnir klippimynd- ir og vatnslitamyndir. • Jón K.B. og Kristmundur eru Sig- fússon og Gíslason og sýna myndverk austur á Laugarvatni, í Húsmæðraskól- anum og Menntaskólanum, þar sem eru rekin Edduhótel á sumrin. Krist- mundur sýnir akrílmyndir, en Jón náttúrumyndir sem hann hefur gert með pastellitum, bleki og tússi. Gústi skrækur, Óli losti, Pró- fessorinn, Bjössi túpa, Hesturinn, Púkaló, Skölli. Þetta eru ekki nöfh á teiknimyndasöguhetjum sem sprella, berjast, þeysast, frekjast og bugast. Nei, þetta eru nöfn á Sniglum sem þeysa á mótorhjól- um eftir götum borgarinnar, — riddarar götunnar. Það er hin besta skemmtun að komast í bif-blíu Bifhjólasamtaka lýðveldisins, eða símabók Snigl- anna, því að baki þessum furðu- nöfnum eru oftar en ekki skemmtilegar sögur, sumar örlítið kvikindislegar, enda menn oft ungir og lausbeislaðir þegar þeir ganga til liðs við samtökin. Nokkrum árum síðar vilja sumir hverjir síður gefa upp af hverju þeir ganga undir þess- um nöfnum. Einn hinna ungu Snigla ber nafnið Ut- sölusnigillinn. Ástæð- an er að hann er Snig- ill númer 499, — semsagt á útsöluprís. Gústi skrækur heitir í raun og veru Ágústa. Viðurnefni hennar kom til af því hvað hún var stráksleg þeg- ar hún byrjaði í sam- Hermann heilalausi eða Hemmi Steel. Nú tökunum og miðað hefur sannast á kappann að hann hefur heila, við strákslegt útlit því hann fékk heilahristing þegar hann lenti í hafði hún fremur árekstri á dögunum. skræka rödd. Nú hef- ur hún tekið út vöxtinn og er hin blómlegasta en losnar ekki við viðumefhið. Óli losti á mörg börn með jafnmörgum konum og er að auki alltaf að fikta í rafmagni. Bjarni er Prófessorinn vegna þess hve hann er mikill grúskari. Hest- urinn, hann Einar Rúnarsson, keyrði einhvern tíma niður hest og fortíðin eltir hann. Bjössi túpa er alltaf í röndóttum leðurfötum, ekki ólíkt Signal-tannkreminu. Tveir Hirtir innan samtakanna bera nafnið Hjörtur líklegur og H j ö r t u r ólíklegur, sá fyrrnefndi fékk viðurnefh- ið vegna þess hve hann taldi marga hluti líklega og sá síðarnefndi, sem gekk á eftir honum í bifhjólasamtökin, hlaut því að vera ólíklegur. Guð- mundur Magnússon ber viður- nefnið Skölli því þegar hann bros- ir segja menn hann líkjast skötu- sel, hann sé ekki með 32 tennur eins og flestir heldur 60. Sköllína er hans ffú. Jeppinn hennar Bryn- dísar er Hlöðver H. Gunnarsson. Skýringin er einföld; kona hans heitir Bryndís. Stykkið, eða María Garðarsdóttir, fékk viðurnefnið þegar hún afklæddist leðurgallan- um einhvern tíma á einhverri úti- hátíð fyrir norðan. Kom þá í ljós að það var heljarinnar stykki fyrir innan klæðin. Karl Gunnlaugsson fékk viðurnefnið Tá-G Racing eftir að hann tók þátt í mótorhjólakeppni á Bretlandi sem bar nafnið K-G Racing. Skömmu síðar varð hann fyrir því að missa tvær tær. Því sómdi nafnið sér Tá-G betur og menn bráðöfunda hann af því að af honum er 20% minni tálýla en öðrum. Sonja Schwantz heitir síðara nafninu í höfuðið á heims- þekktum mótorhjólakappa, því þótt hún sé aðeins á 20 kílómetra hraða á hjólinu er alltaf eins og hún sé á yfir 100 kílómetra hraða þar sem hún liggur flöt fram á hjólið. Og síðast en ekki síst verð- ur að nefna Hermann heilalausa, eða Hemma Steel eins og hann er einnig oft nefndur. Miklar deilur hafa staðið um hvort hann hafi heila eður ei, en það þykir nú af- sannað að hann sé án heila, því hann lenti í árekstri fyrir skömmu og fékk þá heilahristing! HIN Í5LENS BIF-B Sniglar númer 499; Útsölusnigillinn, öðru nafni t Vésteinn, og 561; Psycho, Guðmundur, sem segist einhverra hluta vegna hafa hlotið þett viðurnefni frá vini sínum Vésteini. HELST VILÉO SLÖNCU, FROSK EÐA SKJALD- BÖKU Ferfætt, skríðandi, tvífætt eða fljúgandi gæludýr er að finna víða á heimilum landsmanna. Algeng- ast er að fólk hafi hjá sér ketti, hunda, fiska eða smáfugla en það er ekki endilega það sem flestir vilja. „Slöngur, ffoskar og skjald- bökur eru það sem fólk vill helst,“ segir Rúnar Halldórsson í Gullfiskabúðinni. Slík kvik- indi má I flytja inn og sætta sig því al- mennt flestir við hefðbundnari teg- undir. Rúnar segir að meðhöndlun gæludýra sé í raun vinna alla daga og ekkert þýði að demba sér út í þetta nema hafa bæði tíma og áhuga. Hundaeign færist stöðugt í aukana og er tegundaflóran orðin fjölbreyttari eftir að al- mennileg sóttkví kom til sögunnar. Að sama skapi hefur hættan á skyld- Kóngulær eru ekki algeng heimilisdýr en vissulega „öðru- vísi". leikaræktun minnkað til muna og því er mikill uppgangur í hunda- rækt á íslandi. Áhugi á sýningar- hundum hefur aukist verulega og hefðbundið hlutverk íslenska hundsins sem smaladýrs virðist á undanhaldi. Það er fjarstæða og of langt mál að telja upp allar þær tegundir sem til eru hérlendis og bent er á sérfróða til frekari upp- lýsingar. Þó má geta þess að hér fyrirfmnast nokkrir dúlluhundar sem þykja hæfa hefðardömum Parísarborgar, einn Great Dane spígsporar hér um, eins og al- kunna er, o g húsbóndahollir Pug-hundar þykja skemmtilegir félagar þótt sumir skilji nú hvorki upp né niður í þeirri speki. Það má hins vegar ekki hætta umræðunni um gæludýr án þess að minnast á fiska. Það er víst allt- af sama brjálaða eftirspurnin eftir þeim, en það ku stafa af því að þeir hafa róandi áhrif á eigendur sína og aðra sem á þá horfa. Það er örugglega þess vegna sem mað- ur kemur ekki inn á tannlækna- stofu núorðið án þess að rekast á fiskabúr og mælt er með einu slíku fyrir stressbolta og aðra tauga- trekkta. Hvað skyldi eðla leggja sér til munns? Talandi páfagaukar eru skemmtilegir fyrir þá sem eru í náðinni hjá þeim. Hinir mega forða sér. Marga hryllir við slöngum en það er samt mikið spurt um þær. Innflutningur er hins vegar bannaður. Loksins eru fslendingar farnir að líta á hunda sem eitthvað ann- að en smaladýr og útiganga.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.