Pressan - 03.09.1992, Blaðsíða 11

Pressan - 03.09.1992, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992 11 Lamaður maður sakar fyrrum samstarfsmann um svik SKÁLDABI Víxillinn umdeildi. Hann var undirritað- ur, en án útgáfudag- setningar og upp- hæðar. Þessu var bætt inn með ritvél. 12 MILLJONA SKIILD OG FÉKK GO MILLJONA HÚSÁUPPB Jóhannes Vil- hjálmsson, lamað- ur steypuhellu- framleiðandi, hefur beðið um opinbera rannsókn vegna meintra umboðs- svika Eyjólfs Matt- híassonar og sakar hann um að hafa misnotað víxil- eyðublað til að búa til tilhæfulausa 12 milljóna króna skuld. Eyjólfur sak- ar Jóhannes á móti um að hafa svikið sig í samstarfi þeirra eftir að hafa lagt fram gífurlega vinnu og kostnað. Jóhannes Vilhjálmsson í Hellu- og steinsteypunni hefur óskað eft- ir því að ríkissaksóknari hlutist til um opinbera rannsókn á meint- um umboðssvikum Eyjólfs Matt- híassonar múrara og eiginkonu hans Steinunnar Káradóttur. Jó- hannes heldur því fram að þau hafi búið til 12 milljóna króna skuld með því að íylla út í heim- ildarleysi og án sýnilegs kröfurétt- ar undirritað en að öðru leyti óút- fyllt víxileyðublað, sem sam- komulag hafði verið um að nota til framlengingar á öðrum víxli upp á nokkur hundruð þúsund króna. BUÐU 36 MILLJÓNIR í 60 MILLJÓNA KRÓNA EIGN OG FENGU Þrátt fyrir mótmæli öðlaðist víxillinn gildi með dómi og í sam- ræmi við fullnustuaðgerðir í kjöl- farið munu hjónin að óbreyttu komast yfir fasteignina Vagn- höfða 17 í eigu Jóhannesar og fyr- irtækis. Brunabótamat fasteignar- innar er tæplega 60 milljónir króna. Hjónin knúðu fram upp- boð á fasteigninni og reyndust hæstbjóðendur upp á 36 milljónir og sömuleiðis knúðu þau fram uppboð á íbúðareign Jóhannesar og fyrrum sambýliskonu hans í Fannafold 186. Samkvæmt áðurnefndri beiðni um opinbera rannsókn er talin ástæða til að kanna hvort þau Eyj- ólfur og Steinunn hafi misnotað óútfylltan en undirritaðan víxil sem Jóhannes segir hafa verið ffamlengingarvíxil vegna óskyldra mála ffá því í febrúar 1991, en nú sé búið að vélrita inn á hann út- gáfudag í febrúar 1990 og gjald- daga 1. janúar 1991 með ofan- greindri upphæð. Eyjólfur heldur því hins vegar fram að víxillinn sé ff á því í febrú- ar 1990 og hafi verið til tryggingar á vinnu hans og kostnaði vegna samstarfsverkefnis þeirra. Jó- hannes hafi fallið frá þessu sam- starfi og að baki víxilupphæðinni sé mikil vinna og útlagður kostn- aður, sem tekinn hafi verið saman af endurskoðanda í samræmi við gögn. VINNUFRAMLAGIÐ ÁTTI AÐ VERA STOFNFRAMLAG í HLUTAFÉLAGI Aðdragandi þessa máls er sá að Eyjólfur leitaði síðari hluta árs 1988 til Jóhannesar um samstarf um framleiðslu á byggingarein- ingum úr frauðplasti. Samskipti þeirra leiddu til stofnunar hlutafé- lagsins Argisol-byggingarkerfa hf. um ári síðar, en þar sem Eyjólfur var gjaldþrota var Steinunn kona hans skráð fyrir hlutafé og öðru. Hlutafé Eyjólfs skyldi greitt með vinnuframlagi hans og sannan- lega útlögðum kostnaði. Upp úr þessu samstarfi slitnaði í árslok 1990. Þá hafði Jóhannes lagt ffam fjármagn vegna vélakaupa og undirbúningsvinnu, lagt til hús- næði og mannafla vegna vélaupp- setningar og tilraunaframleiðslu. Vinnuframlag Eyjólfs á móti var að mati Jóhannesar hverfandi, einna helst snúningar vegna þess að Jóhannes var bundinn hjóla- stól, og einhver útlagður kostnað- ur vegna ferða til Sviss. Bent er í þessu sambandi á að slíkt ffamlag hafi átt að vera stofnframlag vegna hlutafélagsins, þar sem báðir tóku gagnkvæma áhættu og ábyrgð. ÞÁÐIGREIÐANN OG FÉKK í STAÐINN HEIMSÓKN FÓG- ETA Jóhannes seldi nokkra víxla til öflunar á rekstrarfé fyrir félagið árið 1990 og á einum slíkum víxli frá því í ágúst 1990, upp á eina milljón króna, var Steinunn Kára- dóttir ábekingur. Víxill þessi lenti þrátt fyrir innborganir í vanskil- um, en að sögn Jóhannesar samd- ist um framlengingu í febrúar 1991. Samstarfi þeirra félaga var þá lokið, en Jóhannes vildi gera sitt til að losa Steinunni undan ábyrgðum. Þar sem Jóhannes var bundinn hjólastól þáði hann boð Eyjólfs um að sjá um framleng- inguna. Eyjólfur fékk að sögn Jó- hannesar tvo víxla í hendur til að nota vegna framlengingarinnar. Báðir voru þeir „blanco“ eða óút- fylltir hvað dagsetningu og upp- hæð snertir. Annar víxillinn var notaður til framlengingar eins og umsamið var, en þann síðari átti að nota til fr ekari framlengingar ef illa færi. 1 apríl birtist Eyjólfur að sögn Jóhannesar skyndilega með Stein- grítni Þormóðssyni, lögfræðingi sínum, og svo fulltrúa fógeta. TU- gangur heimsóknarinnar var lög- haldsaðgerð og tilefnið seinni víx- illinn, sem nú hafði verið útfylltur með upphæðinni 12 milljónum króna. „YFIR MIG GÁTTAÐUR Á RÉTT ARKERFINU" Þrátt fyrir mótmæli Jóhannesar náði löghaldsaðgerðin fram að ganga. Eftir yfirheyrslur taldi RLR sig ekki hafa fundið sannanir um refsiverðan verknað og í kjölfarið fýlgdi bæjarþingsdómur sem staðfesti gildi víxilsins, sem og nauðungaruppboðssölur á Vagn- höfða 17 og Fannafold 186. Á þessum tíma önnuðust hags- munagæslu fyrir Jóhannes þeir Jóhannes Vilhjálmsson fyrir framan Hellu- og steinsteypuna á Vagnhöfða 17. Málið snýst um samstarf þeirra Eyjólfs Matthíassonar um framleiðslu á steypumótum úr Argisol- frauðplasti. bræður Skúli lögff æðingur og Sig- finnur endurskoðandi Sigurðs- synir. í samtali við PRESSUNA sagði Jóhannes að það væri með ólík- indum hversu Eyjólfur hefði kom- ist langt með þetta mál með ekki betri málstað. „Það eru stóru mis- tökin í þessu máli. Mín Wið mál- anna var ekki tekin til greina í að- gerðunum og í dómnum sem á eftir fylgdi og er ég yfir mig gáttað- ur á réttarkerfinu. Ég hef aldrei farið í grafgötur með að Eyjólfur ætti eitthvað inni, en þessi upp- hæð er alveg út í hött. Helst var að hann sinnti einhverjum snúning- um, tvo til þrjá tíma kannski ann- an hvern dag í nokkra mánuði. Hann múraði fjögurra fermetra herbergi, málaði loft í sal og vann við standsetningu framleiðsluvél- arinnar. Þá kostaði hann tvær utanlandsferðir fyrir sig og frúna. Þetta er ígildi aðeins brots afþess- ari upphæð. Ég hef á hinn bóginn lagt fram gífurlegar upphæðir vegna þessara mála, vegna hús- næðis og stækkunar þess, vegna vélakaupa og undirbúningsvinnu, vegna launaútgjalda, vegna til- raunaframleiðslu og annarra hluta,“ sagði Jóhannes. SEGIR GÍFURLEGA VINNU OG KOSTNAÐ AÐ BAKI VÍXLINUM Eyjólfur Matthíasson er erlend- is um þessar mundir, en af gögn- um málsins má ráða að hann telji Jóhannes hafa svikið sig. Hann hafi í samstarfinu verið sá eini sem hafði yfirsýn yfir vélabúnað og framleiðslutækni vegna Argis- ol, yfir verklag við framkvæmdir með vöruna og þekkingu á viðeig- andi múrefhum. Hann hafi lagt á sig gífurlega vinnu í sambandi við framleiðsluna, unnið baki brotnu við að koma vélunum fyrir, tengja þær saman og afla ýmissa hluta í þær. Hann hafi í þessu sambandi unnið kauplaust í hálft annað ár. Þá kemur fram það sjónarmið Eyjólfs að hann hafi allt frá ára- mótum 1989/’90 þrýst á Jóhannes um að hlutafélagið Argisol hæfi sjálfstæðan reikningslegan rekstur og algerlega væri skilið á milli þess fyrirtækis og Hellu- og steinsteyp- unnar. Jóhannes hafi verið ófáan- legur til þess. Eyjólfur dró afþessu þá ályktun að Jóhannes hefði aldrei hugsað sér að Argisol hf. yrði framleiðsluaðilinn og hefði allan tímann einungis verið að plata sig. Hann hefði því hætt að vinna að framleiðslunni um ára- mótin 1990/’91. Eyjólfur heldur því nú ffarn að viðkomandi víxill hafi verið trygg- ing fýrir sínum kostnaði, sem hann hafi fengið í febrúar 1990, útgefinn og samþykktan, en óút- fylltan að öðru leyti. Þegar komið hafi endanlega í ljós að Jóhannes ætlaði aldrei að hafa sig með í starfseminni hafi víxillinn verið útfylltur í því gervi sem hann er nú og í samræmi við þá fjárkröfu sem hann taldi sig eiga á hendur Jóhannesi. Vísar hann í því sam- bandi til samantektar endurskoð- anda síns. GRÓF UMBOÐSSVIK EÐA EINFALT SKULDAMÁL? Jónatan Sveinsson, lögmaður Jóhannesar, sagði aðspurður að fr amvinda þessara mála væri ærið tortryggileg. „Mér sýnist á öllu að þarna hafi hugsanlega verið fram- ið dæmigert umboðssvikabrot og þá á sérlega grófan hátt. Þeir Jó- hannes og Eyjólfur áttu vissulega í samstarfi og stofnuðu hlutafélag. Ef allt hefði verið með felldu og Eyjólfur talið sig eiga fé inni hjá fé- laginu eða Jóhannesi, þá hefði eðlileg leið fyrir hann verið sú að gera skuldakröfu, styðja kröfurétt- inn með gögnum og beina greiðsluáskorun að hlutafélaginu, en ekki Jóhannesi. Það var ekki gert, heldur var hugsanlegri skuldakröfu breytt á þennan til- tekna hátt í víxilkröfu og um leið var Jóhannes sviptur öllum vörn- um í málinu. Þrátt fýrir mótmæli og rannsóknarbeiðni fékkst dóm- ur fyrir gildi víxilsins. Dómkröf- unni var síðan fýlgt fast eftir með löghalds- og fjárnámsaðgerðum, sem náðu ffarn að ganga og end- uðu með því að Eyjólfur var hæst- bjóðandi í fasteignina Vagnhöfða 17 og næsthæstbjóðandi í fast- eignina Fannafold 186,“ sagði Jónatan. Steingrímur Þormóðsson, lög- maður Eyjólfs, vildi ekki tjá sig um málið að skjólstæðingi sínum fjarstöddum, en sagði að hér væri frá sínum sjónarhóli um einfalt skuldamál að ræða. Rannsóknar- lögregla ríkisins hefði ekki fundið neitt saknæmt í rannsókn sinni og gildi víxilsins hefði verið staðfest með sérstökum bæjarþingsdómi. friðrik ÞóiGuomundsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.