Pressan - 03.09.1992, Page 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992
Tálbeitan í kókaínmálinu
LOGGAN NOHBI
DOPSMYGLARA
OGDÆHDAN
NAODGARA
„Beitan“ í kókaínmálinu fór fram á vægari meðferð vegna stórsmygls á hassi gegn því
að leggja gildru fyrir Stein Ármann. Steinn segir kókaínið hafa átt að fara til Dan-
merkur, en útsendari fíknó hafi narrað sig til að selja það hér. Beitan er heildsali í
Reykjavík, kókaínneytandi og dæmdur nauðgari.
Við yfirheyrslur hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins segist Steinn
Ármann Stefánsson hafa verið í
sendiferð á vegum kólumbískra
fíkniefnasala og hafi sendingin,
sem hann var gripinn með, upp-
runalega átt að fara til Danmerk-
ur. Hann segist ekki hafa ætlað að
selja efnið hérlendis fyrr en
„beita“ ffkniefnadeildar lögregl-
unnar falaðist eftir því. „Beitan“
er hálffertugur heildsali í Reykja-
vík og á óafgreitt mál ffá því hann
var handtekinn fyrir rúmum
tveimur árum með mikið magn
flkniefna.
öryggis mannsins vegna er
ekki hægt að birta nafn hans, en
til hægðarauka má kalla hann Ól-
af. Leiðir þeirra Steins Ármanns
lágu saman í Hegningarhúsinu á
Skólavörðustíg skömmu eftir ára-
mótin. Þá sat Ólafur inni vegna
nauðgunar, en Steinn Ármann af-
plánaði dóm vegna máls sem upp
kom á Suðureyri í ársbyrjun 1991.
Kynni tókust með þeim og Steinn
sagði Ólafi frá kókaínsendingu
sem hann hefði flutt með sér frá
Kólumbíu. Þegar Ólafur var látinn
Þeir Sleinn losnuðu úr nn'sundinnl snemma vors. en
bað var ehki tvrr en í iúlí að ..Ólafur" hafði samband
við Stein oa Ivslí áhuna á að hauna efnið.
laus lét hann fíkniefnalögregluna
vita og tók síðan að sér að þykjast
ætla að kaupa efnið með það að
markmiði að grípa Stein Ármann
með það undir höndum.
HEILDSALIOG DÆMDUR
NAUÐGARI
Ólafúr er 35 ára og búsettur í
Garðabæ. Hann hefur undanfarin
ár rekið heildverslun í Reykjavík,
einkum með fatnað og snyrtivör-
ur. Sá rekstur hefur gengið afar
erfiðlega og fyrr á árinu varð nafn-
breyting á fyrirtækinu, þótt sami
maður sjái enn um rekstur þess.
Vitað er að Ólafur hefur verið
kókaínneytandi og hefur verið
tekinn með lítilræði af kókaíni
undir höndum, en samkvæmt
upplýsingum blaðsins var hann
einnig handtekinn með þrjú kíló
af hassi í febrúar 1990. Fíkniefna-
deildin sendi ríkissaksóknara
skýrslu um málið í desember
sama ár og ákæra var gefin út í ág-
úst í fýrra. Málið hefur ekki verið
tekið fýrir enn, þrátt fýrir ítrekun
ríkissaksóknara um það nú í vor.
Heimildir blaðsins herma að Ólaf-
ur hafi farið fram á ívilnun í því
máli gegn aðstoð við fíkniefna-
deild lögreglunnar, en hún mun
engu hafa lofað í því efni og ekki
talið það í sínu valdi.
Þegar PRESSAN hafði sam-
band við „Ólaf' vildi hann ekki
ræða mál sitt á þessu stigi, sagði
að það væri afar viðkvæmt og erf-
itt viðureignar að tjá sig í fjölmiðl-
um um hvernig það hefði gengið
fýrir sig.
Eftir því sem PRESSAN kemst
næst hefur Ólafur rúmlega tutt-
ugu sinnum komið við sögu hjá
lögreglunni vegna ýfniss konar af-
brota á átján árum. Hann var fýrst
handtekinn fyrir þjófnað árið
1974 og var þá ákæru frestað skil-
orðsbundið. Hann fékk tvo skil-
orðsbundna dóma fyrir þjófnað
þremur árum síðar. Hann hefur
setið fjórum sinnum í varðhaldi
fyrir umferðarlagabrot og tólf
sinnum verið dæmdur í sektir eða
náð dómsátt í sams konar málum.
Síðasta sáttin, sem vitað er um,
náðist fýrir rúmum tveimur árum,
hálfu ári eftir að hann var tekinn
með áðurnefnda þriggja kílóa
sendingu af hassi.
Haustið 1990 hlaut Ólafur sex
mánaða dóm fýrir nauðgun sem
átti sér stað í heimahúsi í Reykja-
vík að morgni nýársdags árið
1990. Samkvæmt venju um fulln-
ustu dóma afplánaði hann þrjá
mánuði af þeirri refsingu í Hegn-
ingarhúsinu á Skólavörðustíg frá