Pressan - 03.09.1992, Síða 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. SEPTEMBER 1992
17
Leiðir lieirra Sleins Ármanns lánu saman í Heaninoar-
húsinu á Skálavflrgustía skðmmu eflir áramátin. Þá
sat ..Ólatur" Innl venna nauðnunar. en Steinn Ármann
ainlánaði dóm venna máls sem unn kom á Suðurevri í
ársbvriun 1991.
lokum janúar til aprílloka á þessu
ári. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins fékk hann iðtdega heim-
sóknir þangað í tengslum við
rekstur fyrirtækis síns, sem hann
sinnti úr fangaklefanum. Reglur
kveða á um eina heimsókn í viku
fyrir hvem fanga og skal þá heim-
sókn bera upp á laugardag eða
sunnudag. Frá þessu eru þó gerð-
ar undantekningar, þegar sérstak-
lega stendur á, og samkvæmt
upplýsingum blaðsins voru þær
mjög margar í tilfelli Ólafs.
HITTISTEIN ÁRMANN Á
NÍUNNI
f öðrum klefa í Hegningarhús-
inu sat þá Steinn Ármann Stefáns-
son og afplánaði helminginn af
átta mánaða fangelsisvist. f árs-
byrjun 1991 kom til átaka í ver-
búð á Suðureyri sem endaði með
því að lögregla var kölluð til. Þeg-
ar hana bar að garði stóð Steinn
fyrir utan herbergi sitt og hótaði
að skjóta á lögreglumennina með
neyðarblysi. Síðar lokaði hann sig
inni á herberginu og hótaði að
skjóta í gegnum hurðina með
haglabyssu. Hún reyndist engin
vera, en Steinn hlaut átta mánaða
óskilorðsbundinn fangelsisdóm
fyrir tiltækið.
Dómurinn var þungur vegna
þess að þetta var í annað sinn sem
Steinn braut skilorð. Hann hafði
fengið tvo skilorðsbundna fang-
elsisdóma, fimm mánuði fyrir lík-
amsárás með hnífi í árslok 1989
og sex mánuði fyrir innbrot og
þjófnað í Breiðholti í september
1990. Frá þessum átta mánaða
dómi dróst 25 daga gæsluvarð-
hald sem tengdist líkamsárásar-
málinu.
Steinn byrjaði afplánun sína í
janúar eða febrúar, skömmu eftir
að hann kom úr ferðalagi ffá Kól-
umbíu. Hann kynntist ðlafi, sem
kom vel fyrir sem vel klæddur og
snyrtilegur kaupsýslumaður.
Hann sagði Ólafi frá kókaíni sem
hann hefði haft með sér frá Kól-
umbíu, en ekkert var rætt í fang-
elsinu um að þeir Ólafur ættu við-
skipti með þetta efni.
SEGIR DANMERKURFERÐ-
INA HAFA MISHEPPNAST
Hjá Rannsóknarlögreglunni
fengust þær upplýsingar að rann-
sókn miðaði vel, þótt ekki hafi
margir verið yfirheyrðir. Heimild-
ir PRESSUNNAR, sem reynst hafa
áreiðanlegar, herma að við yfir-
heyrslur hjá Rannsóknarlögregl-
unni fullyrði Steinn Ármann að
hann hafi verið í sendiferð á veg-
um eiturlyfjamafíu í Kólumbíu.
Hann segir kókaínið upprunalega
hafa átt að fara til Danmerkur, en
þangað hafi hann farið frá Kól-
umbíu með viðkomu á Spáni.
Þegar til Danmerkur kom tókst
honum ekki að komast í samband
við þá, sem ætlunin var að hitta,
og því tók hann til bragðs að taka
efnið með sér heim til íslands.
Steinn fullyrðir að hann hafi ekki
ætlað að selja efnið hérlendis, en
skömmu eftir heimkomuna byrj-
aði hann að afþlána dóm sinn í
Hegningarhúsinu.
Þeir Steinn og Ólafur losnuðu
úr prísundinni snemma vors, en
það var ekki fyrr en í júlí að Ólafur
hafði samband við Stein og lýsti
áhuga á að kaupa efnið. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins
hafði hann þá sagt fikniefnadeild-
inni frá því og hún ákveðið að
reynt yrði að leggja gildru fyrir
Stein. Þá hafði Ólafur fengið sýnis-
hom af efríinu hjá Steini.
Við yfirheyrslur sagðist Steinn
hafa haft samband við „sína
menn“ í Kólumbíu og þeir hefðu
samþykkt, úr þvf sem komið var,
að hann skyidi reyna að losná við
efríið hér, að því tilskildu að þeir
fengju ákveðna dollaraupphæð til
sfn. Afganginn mætti hann eiga, ef
honum tækist að fá meira fyrir
sendinguna. Samkvæmt óstað-
festum upplýsingum blaðsins
hafði Ólafur boðið Steini allt að
þrefalt hærri upphæð fyrir efnið
en Steinn segir Kólumbíumenn-
ina hafa farið fram á.
EKKITTLBÚINN MEÐ PEN-
INGANA
Daginn sem kaupin áttu að fara
fram kemur Steinn með kókaínið
á skrifstofu Ólafs í Reykjavík eins
og gert hafði verið ráð fyrir. Sam-
kvæmt framburði Steins kvaðst
Ólafur ekki vera með greiðsluna
tilbúna, heldur þyrfti hann að
sækja hana út í bæ. Steinn kvaðst
hafa talið að geyma ætti efnið í
fýrirtækinu á meðan, en að Ólafi
hefði tekist að koma því fyrir í bfl
sínum án þess að Steinn yrði þess
var. Þar var um að ræða Subaru
Legacy-bflinn sem fíkniefnadeild-
in hafði tekið á leigu fyrir Ólaf hjá
Bflaleigu Akureyrar, en Ólafur
mun hafa sótt hann inn í bíla-
geymslu við fyrirtækið áður en
þeir félagar lögðu af stað eftir pen-
ingunum.
Samkvæmt framburði Steins
óku þeir félagar dágóða stund um
bæinn og kveðst Steinn hafa verið
orðinn órór vegna óljósra svara
Ólafs um hvert ferðinni væri heit-
ið. Lóks komu þeir inn í Laugar-
nes og þar beygði Ólafur inn á
bflastæðið við sundlaugina í Laug-
ardal. Hann bað Stein að setjast
undir stýri og bíða sín á meðan
hann sækti peninga í hús á Teig-
unum hinum megin við Reykjá-
veg. Skömmu síðar kom fíkni-
efnalögreglan að á Suzuki Swift-
bílaleigubfl og upphófst eltinga-
leikur með afleiðingum sem
óþarff er að rekja.
ENN MIKIÐ EFNI í UMFERÐ
Þessi framburður Steins Ár-
manns hjá rannsóknarlögreglunni
skilur eftir nokkrar spumingar
Steinn Ármann og „beitan" hitt-
ust þegar báðir sátu inni í Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg.
Þeim siðarnefnda tókst vand-
ræðalítið að reka fyrirtæki sitt
úrfangaklefanum.
sem er ósvarað. Sú stærsta er ein-
faldlega sannleiksgildi frásagnar-
innar, þ.e. að hann hafi komið
með efríið til fslands út úr neyð og
ekki ætlað sér að dreifa því eða
selja það þangað til Ólafur narraði
hann til þess með góðu tilboði.
Þennan framburð verður sak-
sóknari að geta dregið í efa —
annars er hætt við að notkun
„beitunnar" snúist í höndum
fíkniefnalögreglunnar. Sam-
kvæmt upplýsingum lögfræðinga
er sú aðferð lögleg að því tilskildu
að hún breyti ekki í meginatriðum
fyrirætlan eða ásetningi „fórnar-
lambsins". Ef framburður Steins
stenst var það beinlínis og ein-
göngu fyrir tilstuðlan fíkniefna-
deildarinnar að hann ákvað að
selja efnið hér á landi. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins hefur „Ól-
afur“ enn ekki verið kallaður til
yfirheyrslu hjá RLR, en ffamburð-
ur hans og starfsmanna fíkniefría-
deildar gengur væntanlega tölu-
vert á snið við framburð Steins
Ármanns. Eins og áður sagði vildi
hann að svo stöddu ekki ræða það
né annað þegar PRESSAN talaði
við hann.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
hefur PRESSUNNI ekki tekist að
ná tali af þriðja manninum, 32 ára
gömlum Njarðvíkingi, sem haldið
var f viku varðhaldi án þess að
tækist að bendla hann við málið.
Heimildarmenn í fíkniefnaheim-
inum, sem blaðið telur áreiðan-
lega, hafa haft afskipti af annarri
sendingu á stærð við þá sem
Steinn Ármann var tekinn með.
Einnig er hermt að mikið kókaín
sé í umferð á markaðnum þessa
dagana og heyrðust dæmi um
mjög lágt verð á „eðalkóki“, mjög
hreinu efni á borð við það sem
Steinn Ármann var tekinn með
þegar fikniefnadeildin lagði gildru
sína._____________________________
Karl Th. Birgiison
Wál tálbeitunnar hefur ekki verið lekið fvrir enn. brátt
fvrir ílrekun n'kissaksóknara um bað nú i vor. Maðut-
inn inr fram á ivilnun i bvi máll nenn agsinð við iíknú.
en hún Iniaði ennu.
„Bíddu hérna á meðan ég sæki þeningana." Eitthvað f þessa veru
sagði „beitan" við Stein Armann á bilastæðinu hjá Sundlaugunum.
Skömmu seinna kom ffknó aðvffandi.
Sleinn var orðinn órór vegna
óliúsra svara ..Ólaf< i“ um hvert eir
ferðinni væri heitið. Loks komu b
inn i Lauaarnes on bar bevaði ..Ó 1-
afur“ inn á bílastæðið við sund- sin
launina í Launardal. Hann bað Sti
að setiast undir stvri on bfða sín á
meðan hann sækti neninna f hús á
Teiaunum hinum meain við Revkia-
ven.
Afbrotaferill
Steins Ármanns Stefánssonar
Enginn stór-
glæpamaður
Fyrir utan brot gegn umferð-
arlögum og áfengislögum hefur
Steinn Ármann Stefánsson, sem
tekinn var með kókaín á Vestur-
landsvegi fyrir tveimur vikum,
gerst þrisvar sinnum brotlegur
við hegningarlög. í öllum tilvik-
um játaði hann brot sitt um-
svifalaust við yfirheyrslur, þótt
hann greindi á við önnur vitni
um tiltekin efnisatriði.
Fyrsta atvikið var aðfaranótt
9. nóvember 1987, þegar Steinn
var ásamt tveimur öðrum á leið
frá veitingahúsinu Lennon í leit
að „partfi" við Garðastrætið. Það
fundu þeir ekki og sneru aftur
niður Túngötuna. Þar sinnaðist
Steini við annan manninn með
þeim afleiðingum að Steinn féll í
götuna. Sýnt þótti fyrir dómi að
hinn maðurinn hefði átt upp-
tökin, en Steinn brá fyrir sig
vasahnífi og lagði til mannsins
með honum. Lagið lenti í andliti
hans og skildi eftir sig tíu senti-
metra langan og töluvert djúpan
skurð. Um það leyti bar lögreglu
að og Steinn tók til fótanna, en
náðist skömmu seinna í Kirkju-
stræti. Við geðrannsókn taldist
Steinn sakhæfur og hlaut fimm
mánaða fangelsisdóm í árslok
1989, skilorðsbundinn til þriggja
ára.
Þann 23. september 1990 var
Steinn handtekinn fyrir innbrot
í íbúð í Gerðubergi í Breiðholti.
Honum var gefið að Sök að hafa
stolið tíu armbandsúrum,
tveimur sverðum, litlu sjón-
varpstæki, kveikjara og sólgler-
augum. Steinn viðurkenndi
brotið við yfirheyrslur, nema
hvað hann kannaðist ekki við að
hafa stolið sjónvarpstækinu.
Vitni, sem kvaðst hafa haft að-
gang að íbúðinni á umræddum
tíma, staðfesti að Steinn ætti
sjónvarpstækið og það væri mis-
skilningur að hann hefði stolið
því.
Dómurinn tók undir þetta og
taldi málið upplýst að öðru leyti.
Skilorð frá fyrra dómi hafði ver-
ið rofið, svo sá dómur var tekinn
upp og Steinn dæmdur í sex
mánaða fangelsi í mars 1991,
skilorðsbundið íþrjú ár.
Tveimur mánuðum áður, í
janúar 1991, hafði Steinn verið
handtekinn á Suðureyri eftir
átök í verbúð þar. Þar höfðu þeir
sitt hvort herbergið á leigu,
Steinn og kunningi hans. Eftir
gleðskap í húsi kom til ágrein-
ings á milli þeirra og lokaði
maðurinn sig inni á herbergi
sínu ásamt vinkonu þeirra.
Steinn ruddist inn með kúbein
að vopni, lamdi veggi og braut
gat á hurðina. Til átaka kom um
kúbeinið þannig að maðurinn
hlaut þungt högg á höfuðið.
Stúlkan braut rúðu, stökk út um
glugga og kallaði eftir hjálp. Þeg-
ar lögreglu bar að tók Steinn á
móti þeim með neyðarblys í
hendi og hótaði að skjóta á þá
með því. Hann hörfaði síðan inn
í herbergið og kvaðst, að sögn
lögreglumannanna, vera með
fleiri blys og haglabyssu að auki
og hótaði að beita þessu á lög-
regluna í gegnum hurðina. Eftir
nokkrar fortölur féllst hann á að
gefast upp og í ljós kom að í her-
berginu var eitt blys, en engin
haglabyssa.
Fyrir að hóta opinberum
starfsmanni til viðbótar við hina
tvo eldri dóma hlaut Steinn Ár-
mann átta mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi. Dómurinn var
kveðinn upp á ísafirði 30. sept-
ember 1991 og Steinn hóf af-
plánun hans snemma á þessu
ári. f þeirri vist kynntist hann
„beitu“ fikniefríalögreglunnar.
25 ára Reykvfldngur gekk berserksgang ívérbúð á Suðureyri:
m m xm m m ■ ■
- sagðist ætla að skjóta úr blysi og haglabyssu á héraðslögregliunenn
/> hóú rifirnur tfgn
» á’rá Rcykvikintur bsftir Wrið ðíkilorðrbiuidlnn Mkðnriiin ftr
Vopnaður kúbelni
Keykviktngurinn fcjð 1 iicrbergl I
vcrtiúð í höal i Söðoreyrí. Hann
k«U I dcihan við »nn*n QxU vcr-
bdfunnnar sð ca-buiogi. Ba&r
votu ðivaðlr. Deihumm Isnk r.icð
þvi 06 nignuininn fór ireA «úiku
im l hcrbérsi *ltl og inkitði at «ér.
K-ru þóm mnnnioum miður ug
jStÍipÍl r-~. —------- - —
úfahóiaki Iðgrtglumðnnuaum þvl
íí'&Mm mymtl akjfiU I gegnura
>uið'«én turtn hsÁH l*-;t sð t«r
i (itíí'reymlu Inngfiogu. f dfimín
mÝu tsklð mið nftnl »ö aokbora-
pgurlp.n vár með sthæBr.u tð r>it»
kiðingiuu oð cignnnlnn hiaut
þungt hðgg 1 liðfuiið. Shflkui timð
svo tkvh'd að bún bratit niðu t
tí'.'tgs o* níkk út
Tvrir tiíroðsiCgrtgluirann kirasu
siðan á staðinn. fcogar þeir hftfðu
knmið hb-.uin siasafta út firu fcrii'
tnn I Vfríxlftbu aftur. Stóft þá árla-
srmaðurtDn vift licrlurgbóyr stnsr
með raytkuMys i hfindum og vbUsl
*tla að kvríkjs t fUnn hctsftt að
ikjfita þvt..............
Engki byssa tannst
Lfisjvjlsn á tuftrði snnaðist
rannaókn usllsiin. Hita tctddi 1 ||ðs
sð hvorkl bytsa nó Buetldur funð-
utt I vorhúðlnnl eo htyaið fsnnst
Hiun áksrðt tftk fram vfð yfir-
Iieyrslur *ð huiit hcíðl tkki SMltð
Hðtcndra blysið hetdur aðcíns þfist
k-tta sðgtnþað. Haui rx-Us-k stf-
Frásögn DV þegar síÖasti dómur var kveðinn upp yfir Steini Ár-
manni.