Pressan - 12.11.1992, Síða 2

Pressan - 12.11.1992, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. NÓVEMBER 1992 ÞETTA BLAÐ ER ALGJÖR DRAUMUR ... e/'ns og starfið sem tollstjórinn í Reykjavík lét tengdasoninn fá og lesa má um á blaðsiðu 9. Hann fékk múltímonní- peningaglás fyrirlítil við- vik. Samhentfjölskylda hjá tollstjóranum... ...einsogJóhannaSig- urðardóttir. Fólki finnst hún að minnsta kosti draumastjórnmálamað- urísamanburði við alla hina, efmarka má ein- kunnirsemfólkgaf stjórnmálamönnum í skoðanakönnuninni á blaðsiðu26. ... eins og tálbeitan virtist vera þegar hún kom inn í lífSteinsÁrmanns, sak- bornings i kókaínmálinu. Einsoglesamá umá blaðsiðu 13 kom beitan færandi hendi og virtist geta útvegað Steini hvað sem var. ... eins og Guðmundur Jónsson óperusöngvari. Nú tekurhann nýja kyn- slóð á löpp með gömlu sígildu plötunni sinni (Jónki tröll, Eyjólfurog alltþað). GunnarHjálm- arsson gagnrýnandi heldur að minnsta kosti ekki vatni á blaðsíðu 36. ... eins og tækið sem ver- ið er að smíðaogá að ná yfir til annars heims — jafnvel tilguðs. Eftil viller þetta draumatæki aðeins draumórar. Sjá blað- siðu7. En hvað með Davíð, Magnús? „Hann komst aldrei í hálfkvisti við orðbragð Ólínu.“ Magnús L. Sveinsson er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og hefur verið um nokkurt skeið, meðal annars á því tíma- bili er Davíð Oddsson var borgarstjóri. Hann sagði á borgarstjórnarfundi ný- verið að sér væri til efs að nokkur borg- arfulltrúi I sögu Reykjavíkur hefði leyft sér annað eins orðbragð og Ólína Þor-1 varðardóttir, borgarfulltrúi Nýs vett- vangs, um pólitíska andstæðinga. F Y R S T F R E M INGVI HRAFN. Stöðvaði hann umfjöllun um Mikson? STYRMIR GUNN- ARSSON. Mogginn hafði ekki áhuga á upplýsingum um Mikson. DANIRSKAMMA ÍSLENDINGA Um síðustu helgi birtist í danska blaðinu Politiken umfjöll- un um mál Evalds Miksons og er frekar harður dómur um meðferð ríkisstjórnarinnar á því. En fjöl- miðlar fá líka sinn skammt. Greinarhöfundur, sagnfræðingur- inn Bent Bludnikow, segir ís- lenska fjölmiðla hafa slegið þagn- armúr um Mikson, en undanskil- ur þó Stöð 2 og PRESSUNA. Fram kemur líka og er haft eftir Þór Jónssyni, fréttaritara Stöðv- ar 2 í Svfþjóð, að yfirmenn frétta- stofu stöðvarinnar hafi verið afar tregir í taumi til að skoða mál Miksons og fyrirskipað að það skyldi niður falla eftir að ríkis- stjórnin skipaði lögfræðinganefnd sína. Hitt kemur ekki fram að snemma í vor var athygli Morg- unblaðsins vakin á tilvist fmnskrar lögregluskýrslu um störf Miksons sem PRESSAN hefur birt. Mogginn, sem hefur varið Mikson síðan málið kom fyrst upp fyrir þrjátíu árum, sagði pent: nei, takk — við höfum ekki áhuga. KONA RITSTÝRIR KOMMABLAÐI Þá er orðið Ijóst hver tekur við Vikublaðinu, sem Alþýðubanda- lagið ætlar að gefa út að Þjóðvilj- anum og Helgarblaðinu látnum. Hún heitir Hildur Jónsdóttir og starfar hjá Jafnréttisráði sem framkvæmdastjóri norræna jafn- launaverkefnisins. Hildur er rauð- sokka frá fornu fari, menntuð sem fjölmiðlafræðingur og hefur með- al annars starfað hjá Kynningu og markaði og fréttastofu Ritzau. Ráðning hennar hefur farið hljótt og sjálf hefur hún neitað að stað- festa neitt þessu líkt, en flestir aðr- ir sem til þekkja vita af ráðning- unni. Aldrei slíku vant var mikill friður í Alþýðubandalaginu þegar kom að ráðningu Hildar og er það þakkað diplómatíu Einars Karls Haraldssonar framkvæmda- stjóra. Vikublaðið kemur út á fimmtudag í næstu viku og eru þegar um 700 áskrifendur fengnir, en allaballar vonast eftir að fjölga þeim enn. Blaðið verður líka sent út í fyrstu eftir áskrifendalista hins gamla Utgáfufélags Þjóðviljans, þótt ekki hafi verið gengið frá hvernig greiðslum fyrir þau afnot verður háttað. Útgáfufélaginu veitir ekki af tekjunum til að borga eitthvað af þeim hundrað milljón- um sem liggja eftir síðan í síðasta útgáfuævintýri Alþýðubandalags- ins. ÞRÁINN í SKOTGRÖFUNUM Rithöfundar og aðrir bókaunn- endur eru ekki alveg búnir að gleyma „lestrarskatti“ ríkisstjórn- arinnar, þótt fregnir hermi reynd- ar að stjórnarflokkarnir séu að velta fyrir sér að gleyma honum. Formaður Rithöfundasambands- ins, Þráinn Bertelsson, skamm- aði ríkisstjórnina hraustlega í haust vegna málsins, en nú hler- um við að hann sé að undirbúa beinskeyttari aðgerðir, svona í til- efni jólabókavertíðar. Stjórn fé- iagsins gætir þess eins og hernað- arleyndarmáls nákvæmlega í hverju aðgerðirnar verða fólgnar, en lofað er að þær muni vekja at- hygli. Rithöfundar reikna með að koma upp úr skotgröfunum undir mánaðamótin. HEMMI GUNN AUGLÝSIR FYRIR ÓLAF Það er orðin harkalegri og hug- myndaríkari samkeppni meðal forleggjara um að koma jólabók- unum á ffamfæri á ódýran máta. Morgunblaðið tilkynnti í haust að það ætlaði að láta af sjálfkrafa þjónustuumfjöllun um bækur og rithöfunda og taka upp sjálfstæð- ari menningarmálastefnu. For- leggjarar hafa því þurft að hækka hugmyndaflugið. Fyrsta tilraunin gekk ágætlega í síðustu viku þegar staðið var fyrir samkvæmi í ömmu Lú í tilefni bókar Ingólfs Margeirssonar um Báru Sigur- jónsdóttur. Þangað mætti tölu- verður fjöldi fólks, þáði snittu og hvítvínsglas, horfði á skugga- myndasýningu og var svo boðin bók til kaups. Þetta gerðist nánast í beinni útsendingu og þeir voru ekki margir sem stóðust þrýsting- inn. Nú heyrum við nöldur frá keppinautum Ólafs Ragnars- Hótað getuleysi þegar hann neitaði að pissa Lögreglan sýnir hugmynda- ríki í bellibrögðunum þessa dag- ana. Um síðustu helgi bankaði hún upp á heima hjá manni sem grunaður var um að hafa lent ölvaður í árekstri. Fyrst sagðist hann ekki hafa verið drukkinn á bílmyn heldur fengið sér í glas eftir að heim kom. Ekki rak hann heldur minni til neins árekstrar og það þótt frambretti af bflnum hefði fundist á götunni eftir óhappið. Þetta dugði ekki til að sannfæra lögregluna sem fór með hann á Slysavarðstofuna til að láta taka úr honum blóð- og þvagsýni. Blóðinu náði starfsfólk slysadeildar átakalítið úr mann- inum en tregari var hann til að pissa samkvæmt skipun. Hann lét ekki segjast þrátt fýrir hvatn- ingu lögreglunnar, þar til elsti lögreglumaðurinn trúði honum fyrir leyndarmáli. Hann sagði að nú yrði þvaginu náð úr með slöngu og eftir fjörutíu ára reynslu vissi hann að það væru ófagrar aðfarir. Auk þess hefði hann fyrir satt að flestir yrðu getulausir sem þyrfti að beita þessari hryllingsaðferð. Lögregl- an greinir ffá því sigri hrósandi í skýrslum sínum að ekki hafi þurft meira til að manninum yrði skyndilega mál. Lái honum hver sem vill. sonar í Vöku-Helgafelli, en þeim þykir með ólíkindum hversu mikla umfjöllun bækur hans fá í sjónvarpsþáttum Hermanns Gunnarssonar. í gærkvöldi var gestur í þætti Hemma Sigurður Þorsteinsson, skipstjóri og Am- eríkufari, en bók urn hann er ein- mitt að koma út hjá Vöku-Helga- felli. Af þessu tilefni rifjaðist upp að Hemmi gerði sér ferð í fyrra til New York til að spjalla við Ólaf Jóhann Ólafsson sem þá var líka að skrifa bók á vegum Vöku- Helgafells. Þá er bent á að flestar ef ekki allar bækur sem Hemmi veit- ir sem verðlaun séu frá þessu sama forlagi. Samanlagt hefur þetta komið af stað sannfærandi samsæriskenningu meðal bókaút- gefenda um sérkjörin sem Ólafur nýtur hjá Hemma og Sjónvarpinu. HÆGRISVEIFLA HjÁ UNGKRÖTUM Ungkratar héldu sambands- þing sitt um síðustu helgi án þess að margir veittu því athygli. Sig- urður Pétursson var endurkjör- inn formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, en eins og ung- liðahreyfmgum er tamt lásu ung- kratar stórpólitísk tíðindi út úr kjöri í ýmsar trúnaðarstöður á vegum hreyfmgarinnar. Talna- glöggir menn þóttust sjá að af rúmlega tuttugu manns í trúnað- arstöðum væru ekki nema svo sem fimm „félagshyggjukratar“. Hitt væru allt saman hægrimenn, svo sem mætti lesa úr því að í fyrsta sinn í sögunni væru ung- kratar nú yfirlýstir stuðnings- menn aðildar Islands að Atlants- hafsbandalaginu. önnur brenn- andi málefni sem ungkratar vildu hafa skoðun á voru fríverslunar- samningur Ameríkuríkja, að kröf- ur um byssuleyfi verði hertar og tafarlaust verði hætt flutningi á plútóníum á miili Japans og Frakklands. Ekki fylgdi sögunni hvort Franýois Mitterrand var látinn vita af þessari kröfugerð. HILDUR JÓNSDÓTTIR. Tekur að sér að ritstýra nýjustu tilraun Alþýðubandalagsins í útgáfumálum. ÞRÁINN BERTELSSON. Kallar rithöfunda til orrustu við ríkisstjórnina undir mánaðamótin. ÓLAFUR RAGN- ARSSON hjá Vöku-Helgafelli. Er hann á einhverjum sérsamningi hjá Hemma Gunn? SIGURÐUR PÉTURS- SON, formaður Sambands ungra jafnaðarmanna. Hægrimenn gerðu byltingu hjá ungliðahreyfingu krata. UMMÆLI VIKUNNAR |Jað xx xms gott aö éltna xx gtft „Hins vegar ætti tannlæknirinn að vita manna best að það er samanbitið á gervitönnunum sem er aðalatriðið við gervitannsmíði og munnholsmáltakan aukaatriði. * ** * „Mer er til efs að nol r borgarfulltrúi í sögu Reykjavíkur hafi leyft sér annað eins orðbragð um pólitíska andstæðinga." Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar. Bryndís Kristinsdóttir tannsmíðameistari. (\ Hraðakstur er, innan gæsalappa, eðlilegur.“ Björn Halldórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar. QýýJóuyááÁ^m^nú e/Jcí ad ue/ya . . . „Það er pabbi sem ákveður hvað á að greiða fyrir verkið, tekur það út og borgar.“ Sigurjón Pétursson borgarleynilögreglumaður. Er búið að úthluta Nób- elnum í hagfrœði? „Við höfiim notS bókhaldið sem hagstjórnartæki.“ Gunnar Birgisson, efnahagssérfræðingur Kópavogs. Eiga bömin þá malbikið? „Þótt náttúran sé góðra gjalda verð og músarungar séu ágætir þá verða þeir að koma á eftir börnunum okkar.“ Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnarness. ur * ÆÍ W LIKA ÞVI DflUÐfl? „Ég þakka öllu dásamlega fólkinu í Júgóslavíu." Bobby Fischer skákmaður. Ekki veit éq hvaðan fólk fær þá hugmynd að Sam- bandið ekuldi mikið eða etandi illa. Eftir því eem éa kemst næet þá ekuldar Sambandið 4,8> milljarðatr Starfemenn þeee eru 15 oq hefur þeim reyndar öllum' veríð saqt upp. En hvað um það. 4,ö milljarðar gera 320 miHjónir krónur á etarfsmann. Efallir landsmenn hefðu safnað áiíka ekuldum oq þessir Sambands- menn mundi þjóðin skulda um 83.200 milljarða. Það er um 200-föld landsframleiðsla íslands. Éq sé ekki betur en það mætti brúa þetta þó það gæti tekið tíma. Eq skil þv! ekki hvers vegna fólk lætur svona út í þá Sambandsmenn.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.