Pressan - 12.11.1992, Blaðsíða 37

Pressan - 12.11.1992, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. NÓVEMBER 1992 LfFIÐ EFTIR VINNU 37 „Ingi er svo sem ekkifyrir neinum með útsaumspopp- inu sínu - ekki verður maður mik- ið var við hann á vinsældalistum eða í útvarpinu - en mikið svakalega er þetta óathyglisvert popp,“ segir Gunnar Hjálmarsson í gagnrýni sinni á nýja plötu Inga Gunnars Jóhannssonar. að á hljómborð ýmiskonar. Platan er þokkalega vel unnin, hljóðfæra- Ieikur ágætur hjá landsliðinu nema hvað það mætti fara að setja bakraddakórinn „Evu, Ernu og Eyfa“ á varamannabekkinn og skipta honum bara inn á fyrir Júróvisjón. Ingi Gunnar á fleira sameigin- legt með Eyjólfi „Eyfa“ Kristjáns- syni en að hafa gaulað með hon- um skátalög í óteljandi skíða- ferðalögum. Báðir virðast þeir ríg- fastir í karakterslausu verksmiðju- poppi sem á álíka mikið sameigin- legt með „alvöru“ tónlist og út- saumsmynd keypt í hannyrða- verslun með Kjarvalsmynd. Ingi Gunnar á jafnmikla möguleika á að skrá spor sín í (tón)listasöguna og útsaumsfJúrnar og líkt og þeim finnst Inga örugglega svaka gam- an að því sem hann aðhefst í frí- stundum. Ingi er svo sem ekki fyrir nein- um með útsaumspoppinu sínu — ekki verðúr maður mikið var við hann á vinsældalistum eða í út- varpinu — en mikið svakalega er þetta óathyglisvert popp. Þessi tónlist á heima í Júró- og Lands- lagskeppnum og einhvern daginn ber Ingi kannski sigur úr býtum, annað eins hefur nú gerst. Það eru fjórtán lög á plötunni, hæfileg gomma fyrir þá sem fíla léttvægt poppgutl, en aðrir ættu að halda sig í hæfilegri Qarlægð. Gunnar Hjálmarsson Hann fjallar um nútímafólk, ang- ist þess og skelfmgu yfir að vera til. Hvað það er hræðilega erfitt að vera með öðru fólki og hvað það er útilokað að vera án þess. Hann grefur inn í kvikuna og gefur hvorki persónum sínum né áhorf- endum nein grið. Og umfram allt skrifar hann frábæran leiktexta. Hingað til hafa leikrit Lars Noréns verið of fáséð hér á landi. Það er því til fagnaðar að þessi hópur Al- þýðuleikhússins skuli hafa tekið Hræðilega hamingju til sýningar. Hópurinn, undir stjórn leikstjór- ans og þýðandans Hlínar Agnars- dóttur, hefur komið sér fyrir í Hafnarhúsinu, í rými sem þjónar sýningunni vel, að minnsta kosti fyrir þá áhorfendur sem koma snemma og ná í góð sæti. Þetta er sterk og skemmtileg sýning. Lífs- háski Noréns blómstrar ef svo má segja. Þýðingin er þénug heyrðist mér, þótt hnökrar séu á stöku stað. Leikararnir hafa heldur betur munnfylli af góðum texta með til- finningum sem krauma stöðugt bæði yfir og undir yfirborðinu. Sérstaklega var gaman að fylgjast með Árna Pétri Guðjónssyni, sem er orðinn merkilegur skapgerðar- leikari. Hinir leikararnir þrír eiga líka stórgóða spretti. Ég mæli með þessari sýningu vegna leikritsins, skemmtilegs leikrýmis og list leik- arans, sem þarna er iðkuð af lífi Lárus Ýmir Óskarsson Náttúran í lit- um Hrólfs HRÓLFUR SIGURÐSSON OG EIRÍKUR SMITH Á KJARVALSSTÖÐUM Hrólfur Sigurðsson hef- ur aldrei verið fyrirferð- armikill í sýningarsölum landsins. Samt koma margar myndanna kunnuglega fyrir sjón- ir. Þetta stafar ekki einungis af því að líklega hefur maður rekist á eina og eina á samsýningum eða opinberum stöðum, heldur er eitthvað við myndirnar sjálfar sem kallar á samlíkingar úr fortíð- inni. Málaralist hans virðist ekki eiga mikla samleið með samtíma- list og unir sér betur innan um Jón Stefánsson og Snorra Arin- bjarnar, jafrivel þýska málara eins og Macke og Nolde. En þrátt fýrir myndlistarlega fortíðarþrá sést, þegar málverkum Hrólfs er safn- að saman, að þau eru kjarnmikil og standa vel fýrir sínu innan um alla þá náttúruvæmni sem víða blasirviðídag. Þau landslagsmótíf sem Hrólf- ur vinnur með ættu ekki slá áhorfendur út af laginu, en það er ekki landslagið sem slíkt sem er aðdráttaraflið, heldur litirnir og sá ljómi sem stafar af þeim. Allmarg- ar myndanna eru dimmbúnar og búa yfir mikilli litadýpt. Ýmist er rökkrið að hvolfast yfir eða dags- glæta brýtur af sér Ijötra myrkurs. Sólarglætan þröngvar sér inn á milli skýja og sjóndeildarhrings, og víða má sjá hvar gul eða rauð skíma opnast í jörðinni, eins og glitti í hulinn eld. Þetta eru „sann- ir“ litir, ekki í þeim skilningi að þeir lýsi litum náttúrunnar eins og þeir birtast okkur, heldur fylgj- umst við með hvernig þeir koma út úr rökkrinu og hverfa inn í það aftur, hvernig birtan kveikir upp í litunum og rökkrið hylur þá á ný. Hinum megin við ganginn er Eiríkur Smith með málverk og vatnslitamyndir. Samanburður- inn er sláandi (og óhjákvæmileg- ur). Þótt Eiríkur noti sterka liti og dreifi þeim um víðáttumikla striga með líflegum tilburðum virka lit- irnir samt daufir í samanburði við knappar myndir Hrólfs. Pensil- skriftin er losaraleg og ójöfn, í staðinn fyrir að vera frjálsleg virð- ist hún of ofi kærúleysisleg, verð- ur máttlaus út við kantana og skil- ur eftir sig dauða bletti, sérstak- lega í homunum. Einkennandi fyrir myndir Ei- ríks er hvernig draugalegum fíg- úrum eða andlitum er stillt upp í landslaginu, einnig einhvers kon- ar gátt sem opnast inn í náttúr- una, stundum eins og dyragætt, en annars staðar eins og taumur eða súla. Eiríkur notar þessa að- skotahluti í landslaginu til að gefa myndbyggingunni áhersluþunga, en það dylst engum að þeim er einnig ætlað að auka á dulúð nátt- úrunnar og minna á anda, vættir og innri heima. Reyndar er skír- skotunin svo augljós og klisju- kennd að hún verður uppáþrengj- andi. Auk þess vottar ekki fyrir því í myndunum að Eiríkur sjálfur hafi nokkra trú á vofunum, svo ólíkindalegar eru þær, heldur er hann að reyna að auka á áhrifa- mátt myndanna með því að nota upptuggna arfleifð sem samtím- inn hefur engin tengsl við nema í gegnum ritaðar heimildir. í raun hefur Eiríkur gefist upp á að reyna að fá áhorfandann til að upplifa dulúðina í myndum sínum og þess í stað sviðsett hana með landslagsmynd í bakgrunni eins og sviðstjald. Það er fróðlegt að sjá hvernig þessir tveir listamenn beita lita- túbum sínum, vandvirkni og hóf- semi Hrólfs verða ótvíræðar dyggðir gagnvart ýkjum og oflát- ungshætti Eiríks. Gunnar J. Ámason Útsaumspopp INGI GUNNAR JÓHANNSON UNDIR FJÖGUR AUGU FIMMUND/STEINAR ★ Qlngi Gunnar hefur um árabil verið fastur með- limur í Vísnavinum og túristagrúppunni Islandica. „Það er ánægjulegt að geta nú loksins sent frá sér eigin plötu,“ segir Ingi á umslagi fyrstu sólóplötunnar, „mér fannst tími til kominn að tjá mig frá eigin brjósti.“ Ingi syngur þrettán frumsamin lög á plötunni og eitt er effir Eyð- un Nólsöef?!). Ingi semur líka flesta textana en einnig leggja nokkrir valinkunnir menn honum lið. Ingi er með ágætis hljóðfæra- leikara með sér — nokkurn veg- inn „popplandsliðið" — og Jón Ólafsson er titlaður upptökustjóri auk þess sem hann leikur auðvit- 17.30 Evrópuboltinn. E 18.00 Stundin okkar. E 18.30 Babar. 18.5S Táknmálsfréttir. 19.00 Úr ríki náttúrunnar. Snákar og ernir, um skákerni, einu arnartegundina f Evrópu sem leggur sér snáka til munns. 19.30 ★ Auðlegð og ástríður. 20.00 Fréttir. 20.35 fþróttasyrpan. Evrópufótbolti, myndasyrpa með Valsaranum Frank Booker og viðtal við Pétur Péturs- son fótbóltakappa, sem nú býr á Sauðárkróki. 21.15 Nýjasta tækni og vísindi. Breytingar á lofthjúpi jarðar, kappakstur sólknúinna bifreiða sem líklega verður aldrei að veruleika hér á landi, háir hælar og fótakvillar og ungir hugvitsmenn sem leita að lífinu úti í geimnum því þeir eru orðnir leiðir á öllum skemmtistöðunum á jörðinni. 21.30 ★ ★ Eldhuginn. 22.25 Króatía 1992. Ferð Sæmundar Norðfjörð, Júlíusar Kemp og tveggja Króata til Króatíu í vor. Reynt var að hafa uppi á ættingjum Króatanna. 23.10 Fréttir. 23.20 Þingsjá. FÖSTUDAGU R 17.30 Þingsjá. E 18.00 HvarerValli? 18.30 Barnadeildin. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Magni mús. 19.25 Skemmtiþáttur Eds Sullivan. Kannski finna þeir bráðum upp litasjónvarpið! 20.00 Fréttir. 20.35 Kastljós. 21.25 Evrópumót bikarhafa í handknattleik. Bein út- sending frá lokakafla leiks Vals og Maistas Klaipeda frá Litháen í annarri umferð. 21.55 ★★ Sveinn skytta. Gunguhöfðinginn ítoppformi. 22.00 ★★ Derrick. Hann er kominn aftur, eldri konum til mikillar gleði. 23.00 Fárleg sjóferð. Voyage of Terror - The Achille Lauro Affair. Fjölþjóðleg, 1990. Fyrri hluti. Samtakamáttur Þjóðverja, Frakka og ítala er yfirleitt ekki mikill, að minnsta kosti ekki í kvikmyndum. Greint frá sann- sögulegum atburðum þegar hryðjuverkamenn tóku farþega og áhöfn skemmtiferðaskipsins Achille Lauro í gíslingu í október 1985. Burt Lancaster og Eve-Maria Saint leika stór hlutverk. 14.30 Kastljós.E 15.00 íslandsmótið í körfuknattleik. Bein útsending úr Hafnarfirði frá leik Hauka og Tindastóls. 16.45 íþróttaþátturinn. Úrslit dagsins og stórmót sunn- lenskra hestamanna á Gaddstaðaflötum. 18.00 Ævintýri úr konungsgarði. 18.25 Bangsi bestaskinn. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 ★ Strandverðir. 20.00 Fréttir. 20.35 Lottó. 20.40 ★ Fyrirmyndarfaðir. Áttunda og síðasta syrpan um Cliff Huxtable og fjölskyldu. 21.10 Haukur í lit. Endursýndur þáttur í minningu hins nýlátna söngvara Hauks Morthens. Þátturinn var tek- in upp 1977 og því með þeim fyrstu sem teknir voru upp í lit hjá Sjónvarpinu. 21.45 Fárleg sjóferð. Voyage of Terror - The Achille Lauro Affair. Fjölþjóðleg 1990. Seinni hluti. 23.15 ★★★ Forfallni kúrekinn. Drugstore Cowboy. Am- erísk 1989 Matt Dillon og Kelly Lynch sýna mjög góð- an leik í þessari sjálfsævisögulegu skáldsögu James Fogle um hóp fíkla sem ræna verslanir til að verða sér úti um eiturlyf. Auk þeirra kemur rithöfundurinn William S. Burroughs fram í myndinni. SUNNUDAGUR 13.30 Meistaragolf. 14.30 Kiri og André á Broadway. Kiri Te Kanawa og André Previn saman með lög úr þekktum^Broadway- söngleikjum. Kiri syngur frábærlega og André stjórn- ar vel. 15.20 Valdimir Askenasí. Viðtal við Askenasí um viðhorf hans til tónlistar. 16.15 Gjaldþrot heimilanna, hvað er til ráða? Eða jafn- vel hver á að ráða? Valgerður Matthíasdóttir ræðir við sára einstaklinga. E 16.55 öldin okkar. Franskur myndaflokkur um helstu við- burði aldarinnar. Engir gera sögulega fróðleiksþætti betur en Frakkar. 17.45 Sunnudagshugvekja. Séra Ólöf Ólafsdóttir, prest- ur í Skjóli. 18.00 Stundinokkar. 18.30 Brúðurnar í speglinum. Sænskur myndaflokkur. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Bölvun haugbúans. Kanadísk ungmenni finna vík- ingahaug. 19.30 ★ Auðlegð og ástríður. 20.00 Fréttir. 20.35 ★ Vínarblóð. Það hlýtur eitthvað að fara að gerast. Eitthvað mikið. 22.00 EES. Hvers vegna Evrópskt efnahagssvæði? 22.10 í þoku Ijósri vindar vefa. Þáttur um Hannes Sig- fússon skáld. 23.00 Til heiðurs Sevilla. Homage á Séville. Placido Dom- ingo leiðir áhorfendur um Sevilla. 17.00 Hverfandi heimur. Þjóðflokkar sem stafar ógn af kröfum nútímans. í þessum þætti verður fjallað mannfræðilega um Tuareg-þjóðflokkinn í Alsír. 18.00 Borgarastyrjöldin á Spáni. Þáttaröð um ógnvæn- lega atburði sem voru eins konar æfing fýrir heims- styrjöldina síðari og leiddu til einræðisformyrkvunar á Spáni. TTIHWIIH-—— 17.00 Áttavitar. Þáttaröð um fólk sem fer í ferðalög. 18.00 Dýralif. Fjallað um vaðfugla sem flykkjast til vestur- hluta Ástralíu á hverju ári. MMTUPAGUR 16.45 Nágrannar. 17.30 Með afa.E 19.19 19.19. 20.15 Eiríkur. 20.30 Landslagið á Akureyri 1992. 20.40 ★★ Eliott-systur. 21.35 Aðeins ein jörð. 21.45 Laganna verðir. 22.35 ★ Á æskuslóðum Far north. Amerísk, 1988. Sam Shepard og Jessicu Lange hefur oft tekist betur upp en í þessari mynd. Fjallað um sveitalíf í Ameríku. Kate nokkur fer til heimahaganna er faðir hennar slasast í viðureign við ótemju. Góðu efni sóað. 00.05 ★ Rósin helga. Legend ofthe Holy Rose. Amerísk. Þokkalegur einaspæjari í lakri mynd. FÖSTUDAGUR 16.45 Nágrannar. 17.30 Áskotskónum. 17.50 Litla hryllingsbúðin. 18.10 Eruð þið myrkfælin? 18.30 NBA-deildin. E 19.19 19.19 20.15 Eiríkur. 20.30 Sá stóri. Breskur myndaflokkur. 21.00 ★ Stökkstræti21. 21.50 ★★★★ Glæpir og afbrot. Crimes and Misdemea- nors. Amerísk 1989. Þarna eru Woody Allen og Mia Farrow í góðum málum, reyndar einnig Alan Alda og Anjelica Huston og fleiri í þessari feikigóðu Allen- mynd, einni af hans metnaðarfyllri til þessa. Kannski er hún ekki eins fyndin og hinar, en dramað er dýpra og oft kómískt. Þarna má meðal annars finna morð og örlitla sektarkennd. 23.40 ★ Til kaldra kola. Burndown. Amerísk frá 1989 Kjarn- orkubær verður að draugabæ en morðingi er á meðal þeirra sem eftir eru. Morðinginn er sennilega geislavirkur. 01.05 Psycho IV E Perkins snýr aftur sem Norman Bates. Hann er brjálaðri en nokkru sinni fyrr og myndin er einnig verri en nokkru sinni. LAUGARDAG U R 09.00 Meðafa. 10.30 Lísa í Undralandi. 10.50 Súper Maríó-bræður. 11.15 Sögur úr Andabæ. 11.35 Ráðagóðir krakkar. 12.00 Landkönnun National Geographic. 12.55 Visasport. E 13.25 ★★ Sæl systir.HelloAgain.Amerískfrá 1987. Hér er fjallað um tvíburasystur, önnur þeirra deyr en hin kemur í hennar stað. Shelley Long, sem fór hvað lengst með aðalhlutverkið í Staupasteini, reynir fýrir sér á hvíta tjaldinu. 15.00 Þrjúbíó. Ferðir Gúlívers. 16.30 Sjónaukinn. 17.00 Hótel Marlin Bay. 18.00 Poppogkók. 18.55 Laugardagssyrpan. Teiknimyndir. 19.19 19.19. 20.00 ★ Falin myndavél. 20.30 Imbakassinn. 20.50 ★★ Morðgáta. 21.50 ★★ Pottormur í pabbaleit. Look Who's Talking. Amerísk 1989. Þankagangur lítils barns gerður opin- ber með rödd Bruce Willis. Gamanmynd um ein- stæða móður sem kemst í kynni við ýmsa menn. Kirstey Alley og John Travolta leika aðalhlutverkin. í eina skiptið sem John Travolta hefur sýnt vott af hæfileikum fyrir utan danshæfileikana. Hugmyndin er góð en myndin ekki nógu fyndin. 23.25 ★★★ Guðfaðirinn III. The Godfather Part III. Amer- ísk 1990. Lakasti Guðfaðirinn undir leikstjórn Francis Ford Coppola. Langdregin en meistaralega vel gerð, þó með einum áberandi veikum hlekk sem er leikur Sofiu, dóttur Coppola, í hlutverki dóttur Michaels Corleone. Sennilega síðasti Guðfaðirinn, því Michael finnur endalokin nálgast og reynir að finna viðskipt- um sínum löglegan farveg. 00.55 ★★ Mannrán. Target. Amerísk frá 1985. E Gene Hackman og Matt Dillon eiga góða spretti en hand- ritið er illa skrifað og Gene Hackman getur gert miklu betur. SUNNUDAGUR 09.00 Regnboga-Birta. 09.20 össi og Ylfa. 09.45 Myrkfælnu draugarnir. 10.10 Prins Valíant. 10.35 Maríanna fyrsta. 11.00 Brakúla greifi. 11.30 Blaðasnáparnir. 12.00 Fjölleikahús. 13.00 Opera mánaðarins. Kata Kabanova. E Söguþráður- inn er byggður á „The Storm" eftir A.N. Ostrovsky en tónlistin er eftir Leo Janacek. Uppfærsla Glyndebo- urne-leikhússins sem hrósað var í hástert af breskum gagnrýnendum, sérstaklega frammistaða Nancy Gu- stafsson í hlutverki Kötu. 14.50 NBA-deildin. Sýnt frá leik. 15.15 Stöðvar 2-deildin. 15.45 NBA-körfuboltinn. 17.00 Listamannaskálinn. írskt rokktónlistarfólk.E 18.00 60 mínútur. Bandarískur fréttaþáttur. 18.50 Aðeins ein jörð. E 19.19 19.19. 20.00 ★ Klassapíur. 20.30 Landslagið á Akureyri. 20.40 ★★ Lagakrókar. 21.30 ★★★ Endurfundir. Kaleidoscope. Amerísk 1990. Þrjár litlar stúlkur eru skildar að eftir að foreldrar þeirra eru myrtir. Löngu síðar ræður vinur foreldra þeirra einkaspæjara til að hafa uppi á þeim. Endur- fundirnir hafa óvænta atburði í för með sér. Sjón- varpsstjarnan Jacklyn Smith fer með hlutverk einnar systurinnar. Ágæt spenna en ekki tilþrifamikil. 23.00 ★★★★ Tom Jones og félagar. Fyrsti þáttur af sex um hinn tilfinningaríka söngvara Tom Jones og fé- laga hans. 23.30 ★★ Karate-strákurinn II. The Karate Kid II. Amerísk 1986. Nú fara þeir Daniel og Miyagi til Japans og lenda í undarlegustu atburðum. Ekki eins góð og fyrri myndin en aðalleikararnir standa sig ágætlega. ★ ★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.