Pressan - 18.03.1993, Page 6
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 18.mars 1993
PBESSAN
MENN
ýrfO'f-Z,
Björgvin Vilmundarsoru bankastjóri og
formaður bankastjórnar Landsbankans
Fortíðarvandi Landsbankans
Þegar Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra fór út af krísufundi
ríkisstjórnarinnar vegna
ástandsins í Landsbankanum
var hann auðsjáanlega sleginn.
Hann náði aðeins að muldra
„fortíðarvandi, fortíðarvandi“
um leið og hann gekk framhjá
blaðamönnum. Einhver kann
að halda að Davíð hafi sagt þetta
bara vegna þess að hann segir
þetta alltaf þegar hann kemur út
af krísufundum. Ég held hins
vegar að hann hafi átt alveg sér-
staklega við hinn raunverulega
fortíðarvanda Landsbankans;
Björgvin Vilmundarson banka-
stjóra.
Björgvin er búinn að vera í
bankanum í 28 ár, þar af 24 sem
bankastjóri. Hann getur því
ekki bent aftur íyrir sig og sagt
að ástandið sé fyrirrennurum
sínum að kenna. Ef þeir hafa
arfleitt hann að vondum lánum
ættu þau vandamál annaðhvort
að hafa borgast upp eða einfald-
lega glatast á þessum aldarijórð-
ungi. öll vandamál dagsins í
dag hljóta því að vera vandamál
sem Björgvin hefur búið til.
Ekki nema bankinn eigi enn eft-
ir að afskrifa eitthvað af skuld-
um Kveldúlfs og Alliance.
Nei. Ef Björgvin er í vondum
málum getur hann sjálfum sér
um kennt. Hann bjó vandamál-
in til, fann upp aðferðir til að
láta þau grassera eða lét þau af-
skiptalaus þar til þau uxu hon-
um yfir höftið.
Ágætt dæmi er svokölluð
gjörgæsla bankanna. Þegar því
er opinberlega lýst yfir að fyrir-
tæki sé komið á gjörgæslu gæti
fólk haldið að bankamennirnir
væru að leita lausna á vandan-
um. Sú er ekki raunin. Gjör-
gæslan fer vanalega þannig
,Gjörgœslanfervanalega þannigfram að
bankastjórinn stingur öllum skuldabréf-
um viðkomandi fyrirtœkis í skúffuna. “
fram að bankastjórinn stingur
öllum skuldabréfum viðkom-
andi fyrirtækis í skúffuna.
Þessi stjórnunaraðferð í
bankakerfinu hefur leitt til þess
að vextir eru ákaflega háir á ís-
landi. Fyrirtækin borga ekki
þessa vexti. Þau borga ekki einu
sinni afborganirnar — hvað þá
vextina. Við, þetta venjulega
fólk, borgum vextina fyrir þau.
Alveg á sama hátt og við borg-
um skattana fyrir fyrirtækin —
eða að minnsta kosti til þeirra.
Þetta er vandinn sem Björg-
vin og félagar bjuggu til og eitt-
hvað segir manni að þeir séu
ekki réttu mennirnir til að leysa
hann.
Ts
Ólafur H. Torfason, fyrrum forstöðumaður Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins, kærðurtil RLR
DRÚ SÉR 400 ÞÚS-
OND DR NÁMSSJÚDI
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er nú til rann-
sóknar meintur fjárdráttur Ól-
afsH. Torfasonar fráþeim tíma
er Ólafur gegndi stöðu for-
stöðumanns Upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins. Er Ólafur
talinn hafa dregið sér sem svar-
ar 400 þúsund krónum úr svo-
kölluðum Námssjóði Lis og
Ingvard Thorsen og liggur
reyndar fyrir játning með því að
Ólafur samþykkti að greiða til
baka ofangreinda upphæð.
Ólafur var forstöðumaður
upplýsingaþjónustunnar frá
1986 til hausts 1989, er hann
gerðist ritstjóri Þjóðviljans. Þeg-
ar staða umrædds sjóðs var
skoðuð eftir að Ólafur hætti
kom í ljós að sitthvað var at-
hugavert við umsýslu hans á
sjóðnum og að upp á vantaði að
minnsta kosti sem svarar 400
þúsund krónum. Þetta upp-
götvaðist nokkrum mánuðum
eftir að Ólafur fór ffá og haustið
1990 var gert samkomulag við
hann um að hann endurgreiddi
sjóðnum féð.
Skuldin var sett á tvo víxla, að
upphæð 200 þúsund hvor, með
gjalddögum í febrúar og apríl
1991. Ólafur stóð ekki skil á víx-
ilskuldinni þrátt fyrir ítrekaðar
innheimtutilraunir og haustið
1991 var höfðað mál gegnum
honum að undangenginni
áskorunarstefnu.
Allar tilraunir til að rukka Ól-
af hafa verið árangurslausar og
var að endingu ákveðið að vísa
málinu til RLR.
Námssjóður Lis og Ingvard
Thorsen mun hafa verið notað-
ur til að styrkja garðyrkjuskóla-
nema til námsferða og hefiir til-
heyrt stjórnarsviði stjórnar
gömlu Grænmetisverslunarinn-
ar við Síðumúla. Þegar sú stofn-
un var aflögð virðist sjóðurinn
ÓlafurH.Torfason
Eftir að Ólafur hætti sem
forstöðumaður kom í Ijós
að vantaði í umræddan
námssjóð. Ólafursam-
þykkti að gera skil með
greiðslu tveggja víxla, sem
hann síðan hunsaði.
hafa lent á borði Ólafs og að
öðru leyti gleymst, öðrum en
Ólafi. Tekjur runnu hins vegar
stöðugt í sjóðinn af skuldabréfi
hjá Framkvæmdasjóði.
Ekki hafðist uppi á Ólafi
vegna þessarar fréttar.
ER EKKI ASTÆÐA TIL AO STJORNENDUR BANKANS SEGI AF SÉR, KJARTAN?
„Hef ekki frumkvæði að afsögn minni
ií
NAFN: KJARTAN
GUNNARSSON
STAÐA: FORMAÐUR
BANKARÁÐS LANDS-
BANKANS
ALDUR: 41 ÁRS
Kjartan Gunnarsson erformað-
ur bankaráðs Landsbankans
þarsem gerterráð fyrirsvo
miklu tapi vegna útlána að rík-
isstjórnin þurfti að grípa til
sérstakra ráðstafana.
„Nei, ég tel að málið sé ekki
þannig vaxið að tilefni sé til
þess. Að mínu mati er ekki hægt
að rekja vanda Landsbankans
til einstakra verka eða rangra
ákvarðana bankastjóra hans.
Vandi bankans endurspeglar
miklu frekar almennt efhahags-
ástand í landinu og áföll sem
orðið hafa í ýmsum atvinnu-
greinum, eins og til dæmis í
fiskeldi, en á því mun Lands-
bankinn tapa um tvö þúsund
milljónum.“
En útlánastefna bankans síð-
ustu árhefur verið nefnd sem
ein aforsökum vandatis.
„Utlánastefna bankans er
stöðugt til endurskoðunar, en
bankinn hefur ýmist verið
UNDIR
ÖXINNI
KJARTAN
GUNNARSS0N
SVARAR FYRIR
ÚTLÁNATAPIÐ
gagnrýndur fyrir að hafa of
sveigjanlega útlánastefhu eða of
ósveigjanlega útlánastefnu. Það
verður að treysta þeim sem fara
með stjórn bankans á hverjum
tíma til að' móta þá stefnu í sam-
ræmi við hagsmuni bankans.“
Hvað þarfbankinn að tapa
miklu til að einhverjir aðrir
en skattgreiðendur séu látnir
bera ábyrgð á því?
„Það liggur ekkert fyrir um
mikið tap hjá Landsbankan-
um.“
En verulegt útlánatap.
„Hugsanlegt útlánatap, já,
þótt það sé alltaf umdeilanlegt
hvað er verulegt. Erfið afkoma
fýrirtækis þarf ekki endilega að
segja alla söguna um það hvort
því er vel eða illa stjórnað. Vel
rekið fýrirtæki getur lent í erfið-
leikum ef það er í þess háttar at-
vinnugrein, þar sem aðstæður
verða til þess að vandi skapast í
rekstrinum. Það á við íþessu til-
felli. Það er ekkert sem bendir til
þess að vandinn eigi rætur í því
að bankanum hafi verið illa
stjórnað.“
Fulltrúar í bankaráði eru
skipaðir afAlþingi oghafayf-
ir bankastjóm að segja og
pólitísk stjómvöld í landinu
ráða miklu um þæraðstæður
sem bankinn starfar við. Eiga
pólitískirfulltrúarþá ekki að
bera ábyrgðina á einhvem
hátt?
„Bankaráð ber ábyrgð á því
að bankinn starfi í samræmi við
lög og sinni því hlutverki sem
honum er ætlað. Ég tel það
óheppilegt að banki, sem gegnir
svo mikilvægu hlutverki í efiia-
hags- og atvinnulífi landsins, sé
í opinberri eigu og lúti pólitískri
stjórn. Ég held að hann væri
betur kominn í einkaeign."
Hefur hvarflað að þér per-
sónulega að segja afþér?
„Það getur sjálfsagt hafa
hvarflað að mér að segja af mér
og það mundi ég að sjálfsögðu
gera ef þeir, sem kusu mig og
treystu mér til starfsins, teldu að
ég hefði ekki sinnt skyldum
mínum. Ef svo er ekki tel ég
hins vegar ekki ástæðu til að ég
hafi frumkvæði að því. Málið er
ekki þannig vaxið. Þvert á móti
hafði ég frumkvæði að því að
vekja athygli stjórnvalda á því
sem þurfti að gera til að styrkja
stöðu bankans.“