Pressan - 18.03.1993, Síða 12

Pressan - 18.03.1993, Síða 12
SKOÐANIR | 2 PRCSSAN Fimmtudagurinn 18. mars 1993 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri Cunnar Smári Egilsson Ritstjórnarfulltrúi Sigurður Már Jónsson Ritstjórn, skrrfstofur og auglýsingan Nýbýlavegi 14- 16,sími64 30 80 Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO en 750 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu Fagmennska og reynsla eru eitur Það eru margar slæmar hliðar á Landsbankamálinu. Við skul- n líta á eina þeirra. Á Þorláksmessu veitti Seðlabankinn Landsbankanum víkj- ídi lán til að hægt væri að loka reikningum bankans án mikillar :ammar. Eftir sem áður varð ríkisstjórnin að veita skriflegt lof- ð fyrir því að bankinn fengi meira fé með vorinu og verður sú irlýsing sett í ársreikning bankans við hlið yfirlýsingar endur- toðenda hans. Skömmu eftir áramót sáu Landsbankamenn að ítta dugði ekki og juku mánaðarlegt tillegg á afskriftarreikning ' 100 milljónum í 150 milljónir. Þegar bankaeftirlitið skoðaði ðan útlán bankans varð niðurstaðan sú að þetta dygði ekki fldur. Það þurfti 2.000 milljónir til viðbótar til að bankinn æðist eðlilegar lágmarkskröfúr. Engum fyrirtækjum er meiri nauðsyn en bönkum á að skapa r traust viðskiptavina sinna og alls almennings. Ofangreindur 'guþráður sýnir að Landsbankanum er það ekki fært. Skilaboð- um slæma stöðu hans koma tvívegis utanffá; fyrst frá endur- oðendum, síðan bankaeftirliti. Inni í bankanum virðast menn ifa talið að allt væri í allra besta lagi eða, í það minnsta, ekki svo æmt að hann kæmist ekki upp með það. Ef menn vilja velta fýrir sér hvemig stendur á að bankinn er ±i faglegri en þetta ber með sér ættu þeir að minnast þess að ið er nánast undantekningarlaus regla að bankamenn eða enn með faglega reynslu em ekki ráðnir í æðstu stjómunar- öður í bankanum. Þannig er það með bankaráðið og þannig er íð rnéð bankastjórana. Eigandi bankans, ríkið, virðist h'ta á ynslu og fagmennsku í bankamálum sem eitur. Á meðan svo er mun fara á sama hátt fyrir ríkisbönkunum — m em í raun bankar stjórnmálaflokkanna þar sem þeir ráða tu um skipan manna í æðstu stöður hans — og fór fyrir blöð- /n stjórnmálaflokkanna. Þeir höfðu sömu skoðun á fag- ennsku æðstu stjórnenda á blöðunum og í bönkunum — þeir Idu ekki sjá hana. Nú em öll þessi blöð annaðhvort dauð eða á inarbeðnum. En það vita allir að það á ekki að stjórna ríkisbönkunum eins ; gert hefúr verið. Það eru almælt tíðindi að þeir hafa verið mis- itaðir í pólitískum tilgangi og þar með raunverulegir ábyrgðar- enn hans; almenningur. Það sorglega er að stjómmálaflokk- nir komast upp með að halda þessu áffam þó svo allir þekki 'leiðingarnar. Og öllum er jafnljóst að enginn mun fá bágt fyrir þótt fjómm fimm milljörðum hafi verið hent úr Landsbankanum í glóm- ust rugl — ekki nema almenningur sem borgar brúsann. inkastjórarnir munu halda góðum launum sínum og ævin- ralegum eft irlaunum. Fulltrúar flokkanna í bankaráðinu munu fjast til enn meiri metorða; bæði innan flokkanna og eins hjá nu opinbera fyrir tilverknað þeirra. Stjórnmálamennimir sem ýstu á bankann um að lána í mestu ruglverkefnin munu eftir m áður verða taldir slyngir pólitíkusar. Því miður er fátt sem bendir til að nokkurra grundvallarbreyt- ga sé að vænta í umgengni stjórnmálaflokkanna og sendi- anna þeirra við sjóði almennings. Þeir munu áfram sækja ngað það fé sem þeim hentar. Og eins og í lífinu sjálfú mun •a eins fyrir þessum ráðstöfúnum og öðrum sem gerðar eru á ka traustum siðferðislegum grunni: IUur fengur, illa forgeng- BLAÐAMENN Bergljót Friðriksdóttir, Friðrik Þór Guðmúndsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Jón Öskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijósmyndari, Karl Th. Birgisson, Kristán Þór Árnason myndvinnslumaður, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Einar Karl Haraldsson, Guðmundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Öli Björn Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Össur Skarphéðinsson. Listir: Gunnar Árnason, myndlist, Gunnat Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal leiklist. Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDi STJÓRNMÁL íslensktfiskeldi í œðra veldi „Skipulagning að ofan ágrundvelli opin- berra áœtlana oggæluverkefna stjórn- valda hafa ekki skilað árangri á íslandi eða í Evrópu og munu heldur ekki skila árangri í Bandaríkjunum“ Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefúr nýlega kynnt áætlun sína um að bæta samkeppnisstöðu Bandaríkjanna, m.a. á sviði há- tækni, með stórauknum opin- berum framlögum. f nýlegri grein í Wall Street Joumal eftir Brink Lindsey er bent á að þeg- ar Clinton kynnti áform sín hafi einmitt verið liðin 25 ár frá því bókin „La Defi Americain" eftir Jean-Jacques Servan-Schreiber kom út. Bókin var metsölubók á sínum tíma beggja vegna Atl- antshafsins. f bókinni mælti höfundurinn fyrir nauðsyn þess að opinberum fjármunum yrði varið í stórum stíl til að verjast hinni „amerísku árás“. Að öðr- um kosti væri evrópskur iðnað- ur dæmdur tii aukahlutverks um ókomna tíð en bandarísk stórfyrirtæki myndu ná yfir- höndinni. Evrópa væri þá neydd til að verða hjáleiga Am- eríku hinnar ríku. Ábendingar áðurnefnds greinarhöfundar í Wall Street Journal eiga að mínu mati er- indi til okkar fslendinga þegar raddir heyrast, og gerast raunar sífellt háværari, sem segja, að setja þuríi þjóðinni sameiginleg efnahagsleg markmið, um hana þurfi að nást „þjóðarsátt“ og á grundvelli slíkrar þjóðarsáttar eigi síðan að verja opinberum fjármunum, og erlendum lán- um, sem ríkissjóður á að taka, til að vinna að „arðbærum verk- efnum". Slíkar hugmyndir heyrast nú á tímum þegar ís- lendingar eru að sligast undan greiðslubyrði erlendra lána og hlutfall erlendra lána af lands- framleiðslu er komið yfir 60 af hundraði. Samanburður hugmynda Se- van-Schreiber og reynslunnar frá því þær voru settar ffam, svo og hugmyndir Clintons og gagnrýni á þær hugmyndir, eru innlegg í ofangreinda umræðu þar sem „þjóðarsáttin" um aukna skuldsetningu þjóðar- innar er ekkert annað en mið- stýring og sósíalismi í dular- gervi. Athyglisvert er að rökin fyrir auknum opinberum afskiptum í Evrópu fyrir aldarfjórðungi og í Bandaríkjunum nú eru í raun hin sömu. Munurinn er aðeins sá, að aldarfjórðungur er liðinn til að bera saman reynsluna og kenningu franska rithöfundar- ins, en hugmyndir Clintons eru enn á teikniborðinu að stórum hluta. Augljósar ranghugmynd- ir og tálsýnir ffanska rithöfund- arins gætu verið vísbending um hvað bíður Bandaríkjanna ef áform Clintons komast í fram- kvæmd. Samkvæmt kenningu Servan-Schreiber var kjarni skýringarinnar á efnahagsleg- um yfirburðum Bandaríkjanna fólginn í „skipulögðum og virk- um stuðningi bandarískra stjónvalda við mikilvægar greinar iðnaðarins". Hann taldi náin samskipti viðskiptalífsins, háskólanna og alríkisstjórnar- innar leyndardóm velgengninn- ar. Til að brúa bilið milli Banda- ríkjanna og Evrópu vildi Ser- van-Schreiber stórauka opin- beran stuðning og ríkisstyrki á þeim sviðum sem mestu máli skiptu að hans mati. Taldi hann að geta manna til að sjá fýrir tæknilega þróun og breytingar væri sífellt að aukast og því væri unnt að afmarka stuðninginn við þær greinar sem ættu sér ffamtíð. Og hveijar voru þessar greinar? Jú, hann taldi „vígvöll- inn“ afmarkast af rafeinda- tækni, hljóðfráum farþegaþot- um, kjarnorku og ferðalögum út í geiminn. Óþarft er að eyða mörgum orðum að þremur síð- asttöldu atriðunum, en segja má að Servan-Schreiber hafi haft rétt fyrir sér með fýrsta lið- inn. Aldarfjórðungi síðar liefur lilutverkum verið skipt, en slag- orðin eru hin sömu. Nú hamrar Clinton á því að Banda íkja- menn séu að dragast aft ir úr Japönum og Evrópubúum. Eftir að hafa unnið stríðið séu þeir að tapa friðnum, eins og sagt er. Nauðsyn sameiginlegrar efna- hagsstefnu, „national economic stcategy", var eitt helsta stefið í kosmngabaráttu Clintons. Líkt og Servan-Schreiber álítur Clin- ton bersýnilega að hægt sé að auka hagvöxt með því að taka ffam fyrir hendumar á fjárfest- um í röðum almennings, þ.e. að stjórnvöld geti betur séð fyrir hvert skuli beina fjárfestingum. Þetta heitir öðru nafni að hafa vit fyrir fólki og nú eru töfraorð- in þar vestra (afsakið sletturnar) „smart highways“, „magnetic leviation trains“ og ríkulegur opinber stuðningur við „critical technologies". Á Islandi hefur opinber stýring fjármagnsins í gegnum ríkisrekið íjárfestinga- lána- og bankakerfi, svo ekki sé minnst á fjáraustur úr ríkis- sjóði, byggðasjóði og húsnæðis- sjóðum, leitt til gríðarlegrar lánsfjárþarfar opinberra aðila, sem hefur spennt svo upp raun- vaxtastigið, að almennur at- vinnurekstur og einstaklingar eru að kikna undan þeirri byrði. Nokkur atriði sameina kenn- ingu franska rithöfundarins og Clintons. Báðir benda á sjálfan möguleikann á því að aðrar þjóðir fari framúr og nái betri árangri sem sjálfstæðan og að- kallandi efnahagsvanda. Báðir tilgreina sömu orsök fýrir þeim vanda, þ.e. ónóga miðstýringu og þá sérstaklega of litla „sam- hæfingu“ ríkisvalds, viðskipta- lífs, skóla og verkalýðsfélaga. Báðir benda á sömu lausnir, þ.e. stóraukna ríkisstyrki og sam- eiginlega markmiðssetningu áðurnefndra aðila. En hver er reynslan og hver er lærdómur- inn, sem af henni má draga? Bandaríkin voru ekki að sigra heiminn efnahagslega á sjöunda áratugnum. Öðru nær. Þjóðir eins og Japanir og Þjóðverjar bjuggu við meiri hagvöxt og framleiðni en Bandaríkjamenn. Bilið milli þessara þjóða, sem Servan-Schreiber vildi brúa með ríkisafskiptum, stafaði af því að hörmungar tveggja styrj- alda höfu iagt efnahag þeirra í rúst. En bilið var sífellt að minnka, ekki síst vegna þess að Bandaríkjammenn gegndu hernaðarlegu hlutverki á tímum kalda strfðsins, sem létti að stór- um hluta efnahagslegri byrði af keppinautum þeirra á sviði við- skipta, þ.e. þjóðum Vestur-Evr- ópu og Japönum. Ríkisstyrkir við evrópsk fyrirtæki, sem áttu að sigra bandarísku risana, skil- uðu engum árangri. Á sviði raf- eindatækni og tölvutækni hafa evrópsk fýrirtæki ekki staðist samkeppni við bandarísk og japönsk fyrirtæki þrátt fyrir gríðarlega ríkisstyrki. Það voru ekki evrópskir ríkisstyrkir, sem ógnuðu IBM og öðrum banda- rískum stórfýrirtækjum, heldur fyrirtæki sem byggðu á hugviti og framtaki einstaklinga; fyrir- tæki á borð við Apple, Sun og Dell. Skipulagning að ofan á grundvelli opinberra áætlana og gæluverkefna stjórnvalda hafa ekki skilað árangri á fslandi eða í Evrópu og munu heldur ekki skila árangri í Bandaríkjunum ef tilraun verður gerð til að fara inn á þær brautir. Aðgerðir í því efni eru dæmdar til að mistak- ast. Opinber íjárstuðningur við „critical technologies“ er dæmdur til að verða eins og ís- lenskt fiskeldi í æðra veldi. Stað- reyndin er nefnilega sú, að framfarir í viðskiptum, tækni og lífskjörum verða þegar hug- rakkir einstaklingar hætta fjár- munum sínum í framkvæmdir eða verkefni, sem þeir telja að muni skila þeim fjárhagslegum ávinningi. Þeir sem hafa sýnt hæfileika til að auðgast með eig- in vinnu og útsjónarsemi eiga því einnig að fá tækifæri til að ráðstafa auði sínum f ný verk- efni. Ef ríkið hirðir affaksturinn og ráðstafar honum í gegnum sjóði sína fýlgir stöðnun og síð- an hnignun í kjölfarið. Reynsla íslendinga í því efni hefur reynst þeim dýrkeypt. Höfundur er lögmallur. ÁLIT Á að taka umsýsluþóknunina af verkalýðsfélögunum? Reynir Hugason, formaður Landssamtaka atvinnu- lausra: „Þessi umsýsluþóknun er einfaldlega óþörf. Félögin gera í raun afskaplega lítið og ættu greiðslur bótanna alfarið að fara í gegnum tryggingakerf- ið. Það eru engar smáræðis upphæðir þarna á ferð. Það er auðvitað einhver kostnaður vegna þessa, sem erfitt er að sannreyna hver sé, en einfald- ast væri að taka upp þá aðferð að senda inn póstkort til vinnu- miðlunar í stað þess að stimpla sig. Ég hygg að það mundi spara mikið og ekki veitir af, líklega verða bæturnar alls 3,5 milljarðar í ár og eru þær þó tvöfalt til þrefalt lægri hér á landi miðað við nágrannaþjóð- irnar.“ Hrafnkell A. Jónsson, for- maður Árvakurs á Eskifirði: „Það var sjálfsagt að skoða þessa þóknun og hvort aðrir geta gert betur við að greiða þetta út. En hver sem annast þetta þarf að fá greitt fýrir. Það er mjög misjafnt eftir félögum hversu mikill kostnaður er þarna að baki og mér finnst niðurstaða sjóðsstjórnarinnar út í hött, því það er ekkert sam- hengi á milli upphæða bóta og umfangs vinnunnar. Það hefði átt að kalla eftir ítarlegri gögn- um um kostnaðinn frekar en að taka upp þessa þumalputta- reglu. Ég mundi með bros á vör fela öðrum þetta snúninga- sama og tímaffeka hlutverk, en um leið finnst mér umræðan um þetta bera keim af því að vinnuveitendur séu á ómerki- legan hátt að gera verkalýðsfé- lögin tortryggileg.11 Ragna Bergmann hjá Verkakvennafélaginu Fram- sókn: „Mér finnst umræðan um að svo og svo margar millj- ónir hafi runnið til verkalýðsfé- laganna neikvæð og villandi. Við vitum hversu mikil vinna fer í þetta, sérstaklega eftir að atvinnuleysið jókst, og við höf- um skoðað kostnaðinn. Stað- reyndin er sú að þetta er óhemjuvinna þegar fleiri hundruð manns eru á skrá. Það Iiggur fyrir samþykkt um breytingar en ég er hins vegar á því að þetta hlutverk, að af- henda bæturnar, verði áfram í höndum félaganna, því það koma upp ýmis mál hjá fólki þegar það leitar til okkar.“. Jón H. Magnússon, lögfræð- ingur VSI: „Þessi umræða heíúr leitt til brevtinga og það er til bóta. Okkur hefúr fundist þetta vera vel í lagt, að taka fimm prósent upp í kostnað, sem gefur verulegar tekjur í svona árferði. Við höfum ann- ars vegar úthlutunarnefndir, sem eru að mínu mati nauð- synlegur þáttur, þótt vafalaust megi fækka þeim. Hins vegar er það spurningin um hver eigi af afhenda bæturnar. Ég tel að það megi leysa þann þátt á ein- faldari hátt en nú er gert, til að mynda getur sjóðsstjórnin ákveðið að Tryggingastofnun geri þetta, enda stofnunin nieð umboðsmenn um land allt. Þetta snýst um að spara sjóðn- um útgjöld og hann verður sterkari fyrir vikið.“ Jóngeir H. Hlinason, hag- fraiðingur hjá VMSÍ: „Ég tel í fýrsta lagi að þessum málum sé ágætlega komið fyrir þar sem þau eru, þ.e. hjá verkalýðsfé- lögunum. Það er hin rétta vist. Þóknunin fyrir þessa vinnu er annað mál og ekki einfalt. Mjög misjafnt er hversu mikinn kostnað félögin bera og hvort þóknunin hefur dugað þar til. Sums staðar hefur farið fram mikil og flókin vinna, annars staðar er málið einfaldara. Skerðing á þessari þóknun hlýtur að taka mið af þessu, ekki af umfangi peninganna, heldur af umfangi afgreiðsl- unnar hjá hverjum fyrir sig.“

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.