Pressan - 18.03.1993, Síða 21

Pressan - 18.03.1993, Síða 21
NJOSNIR KOLDU STRIÐI Fimmtudagurinn 18. mars 1993 PRESSAN | Robert De Niro leikur „Mad Dog" MadDogand 5 Glory nefnist ný bandarísk mynd í I leikstjórn Johns McNaughton, i þesssamaog i leikstýrði mynd- inni Henry: Portr- ait of a Serial Kill- er, sem hvar- i vetna vakti feiknaathygli. Framleiðandi Mad Dog and Glory er Martin Scorsese. Robert De Niro leikur lögreglumanninn Dobie, sem hlotið hefur viðurnefnið Mad Dog í háði, vegna hlé- drægni sinnar og stakrar góðmennsku. De Niro er þvert um geð að beita ofbeldi og hefur andúð á skot- vopni sínu. Hlutverk hans innan lögreglunnar er að hafa vakandi auga með því sem gerist á götum borg- arinnar og taka myndir afvettvangi, þar sem glæpir ; hafa verið framdir. Dag einn verður hann vitni að ráni \ i matvöruverslun, dregst inn í atburðarásina og endar \ með að bjarga lífi glæpamannsins, sem leikinn er af || Bill Murray. Glæponinn launar lögreglumanninum líf- gjöfina og sendir honum óvænta„helgarskemmtun", hina gullfallegu Glory, sem leikin er afUma Thurman. John F. Kennedy við heimkomu flugmann- anna sem Sovétmenn veiddu upp úr Barentshafi. Bandariskstjórnvöld sögðu að þeir hefðu verið við rafsegulmælingar. átt til Armeníu. Þetta var bandarísk C-130-vél, sérhönn- uð til að finna sovéskar ratsjár- stöðvar og prófa hvað þær gátu. Um leið og vélin kom inn íyr- i ir sovésku landamærin í Ar- meníu tóku á móti henni þrjár MiG-orrustuþotur og sovéskuj flugmennirnir virðast hafa haft 1 lítið fyrir að granda henni, ef I marka má afrit af samtölum I þeirra: „Ég hitti,“ sagði einnl þeirra. „Skotmarkið brennur H og er að hrapa... Ég skal gera H út af við hann, strákar. Skot- ■ markið er stjórnlaust og er á ! leið til jarðar.“ Armenskir bændur fyrir utan Talin sáu flugvélina hrapa, en komu ekki auga á neinar fall- hlífar. Flakið brann í marga klukkutíma og enginn sást sleppa lifandi úr því. Þremur vikum síðar fengu bandarísk stjórnvöld brunnar líkamsleifar sex flugmanna, en ekki tókst að bera kennsl á nema fjóra. Um afdrif eflefii til viðbótar er ekk- ert vitað. Bandaríkjamenn sögðu að flugvélin hefði verið kanna dreifingu útvarpssendinga frá bandarískum útvarpsstöðvum, en í reynd var C-130-vélin sér- hönnuð til njósna og vísvitandi höfð eins útlits og venjulegar flutningavélar. í bandaríska stjórnkerfinu var rætt um að fara með málið fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, en utan- ríkisráðuneytið lagðist eindreg- ið gegn því. Röksemdin var að þá myndu Sovétmenn örugg- lega svara með því að benda á ítrekuð brot Bandaríkjamanna gegn sovéskri lofthelgi og hugs- anlega færa sönnur á brot sem þeir höfðu þá ekki gert opinber. Bandarísk stjórnvöld gerðu lítið sem ekkert til að grennslast fyrir um örlög hermannanna og einstakir embættismenn lögð- ust beinlínis gegn því. Þó barst reglulega vestur yfir orðrómur um að einhverjir hefðu lifað flugferðina af, enda nægur tími til að stökkva út í fallhlíf. „Við getum ekki látið sem vind um eyru þjóta stöðugan orðróm um þrjá menn sem sagðir eru hafa komist af,“ segir í skýrslu utan- ríkisráðuneytisins frá septem- ber 1960, en lítið var gert til að fylgja því eftir. Leituðu á kolvit- lausu svæði I júlíbyrjun 1960 fór RB-47- flugvél ffá breskum flugvelli og flaug sem leið lá norður með strönd Noregs, yfir heimskauts- baug og sveigði svo til austurs í átt að Barentshafi. Þaðan lá leið- in aftur í suður í átt að Kóla- skaga. Siglingafræðingurinn John McKone sá .um að leið- rétta flugleið vélarinnar um leið og einhverrar skekkju gætti, enda var ætlunin, að hans sögn, að vera fyrir utan sovéskt loft- svæði. í þá mund sem vélin átti að snúa aftur í norður og halda heimleiðis birtist MiG-flugvél og hóf umsvifalaust skothríð. Aðstoðarflugstjórinn Bruce Olmstead svaraði í sömu mynt, en það var um seinan. Hreyflamir á vinstri væng vom ónýtir og vélin stefhdi hraðbyri í hafið. Áhöfhin tók þann kost að kasta sér í fallhlíf út í ískalt vatn- ið. Nokkrum klukkutímum síð- ar björguðu sovéskir togarar þeim McKone og Olmstead úr björgunarbátum sínum; einn félagi þeirra hafði ekki komist í bát, en um þrjá til viðbótar var ekki vitað. Olmstead og McKone sátu í sovésku fangelsi þar til í janúar 1961, að Nikita aftur í Kína Hver man ekki eftir honum, hnefaleikakappanum Mu- hammedAli, margföldum heimsmeistra íþungavigt, sem varði titilinn níu sinnum frá 1964 og endurheimti hann aftur 1974 afGeorge Foreman, eins og frægt er orðið. Það hefur verið hljótt um Ali síðustu ár eftir að hann hætti að boxa, enda hefur öll hans orka farið i að hugsa um heilsuna, þjáður sem hann er afParkin- sons-veiki. Ali lét heilsubrestinn þó ekki aftra sér frá því að fljúga til Kína á dögunum og aðstoða Beijing- búa við að auglýsa fyrstu atvinnumannakeppnina i hnefaleikum sem haldin er í Kína. Hnefaleikar voru bannaðir i Kína árið 1953, eftir að áhugamaður lést í hringnum afvöldum rothöggs. Sextán árum síðar fóru vinsældir íþróttarinnar að vakna á ný meðal Kínverja, en áhuginn kviknaði einmitt í kjölfar heimsóknar Mu- hammeds Ali til Kína, þar sem hann hitti engan annan en sjálfan Deng Xiaoping að máli. Síðan þá hefur verið kært á milli Alis og Kínverjanna og því urðu miklir fagnaðarfundir þegar kappinn mætti þangað í heim- sókn á dögunum. Samuel Service var íáhöfn vélar sem bandarísk stjórnvöld segja hafa horfið sporlaust á Japanshafi þótt flakið sé löngu fundið. Sam Klaus Þumbarahátturinn í Sam Klaus varð til þess að til eru skjöl sem nú eru að koma í dagsljósið um njósnaflug Bandaríkjanna. Khrústsjoff ákvað að sleppa þeim í tilefhi valda- töku Johns F. Kennedys. Sovétmenn sögðust hafa fylst með vélinni þar til hún kom inn í sovéska lofthelgi, en flugmennirnir sögðust aldrei hafa komið nær landi en fimmtíu mílur. Bandaríski sendiherrann hjá Sameinuðu þjóðunum, Henry Cabot Lodge, sagði að vélin hefði ver- ið við rafsegulmælingar og Sov- étmenn neytt hana suður á bóg- inn í átt að landi. Hvort tveggja var ósatt. Hitt er enn dularfyllra, hversu illa leitarvélum Bandaríkja- manna gekk að finna þá félaga. Leitin hófst hálfum sólarhring eftir að vélin var skotin niður og alls skráðu sautján flugvélar 474 leitartíma á hálfum sjötta sólar- hring. Vandinn var hins vegar að þær voru allan tímann að leit um 250 mílum norðan við stað- inn þar sem vélin var skotin niður. Á þessu eru tvær hugsanlegar skýringar. Önnur er að herinn hafi einfaldlega misreiknað flugleið vélarinnar og aldrei komist á rétta slóð. Hin er að flugleiðin hafi verið svo mikið málinu, því McAtee er löngu hætt að treysta yfirlýsingum stjórnvalda í málinu og gildir þá einu hvort í hlut eiga Bandarflt- in eða Sovétríkin. Byggt á U.S. News & World Re- port. leyndarmál að leitarvélarnar og stjórnendur þeirra hafi aldrei fengið réttar upplýsingar um hana. Það þýðir, ef rétt er, að leitarvélarnar voru vísvitandi látnar leita á vitlausu svæði á meðan hermennirnir lágu í ís- köldum sjónum. Sovétmenn við- urkenndu loks í nóvember síðast- liðnum að hafa eitt sinn haft undir höndum lík eins þeirra þriggja sem ekkert var vitað um úr áhöfninni, Eug- ene E. Posa. Eigin- kona annars, Mar- ia McAtee, afhenti sjálf Boris Jeltsín bréf í fyrra þar sem hún fór ffam á ein- hverjar upplýsingar um örlög manns síns. Dimitri Volkogonov hers- höfðingi skrifaði henni seinna að maður hennar Bruce Olmstead hefði farist og sat ísovésku fangelsi ísjö mánuði. Leit- hvfldi nú á botni arvélar Bandaríkjahers voru látnar leita Barentshafs. Það er hans i mörg hundruð kílómetra fjarlægð ekki lokaorðið í frá raunverulegri flugleið. /»\ Óvæntar uppákom- ur í „Simpson" fiJOT ",U- N°T «“*->» T.* ” MiLl. N«T fem* rm ^ N iLL f'kíT íícJ rm W|«JC NOT Matt Groening, höfundur teiknimyndaflokksins The Simpsons sem alls staðar hefurslegið í gegn, fer óhefðbundnar leiðir til að halda sjónvarpsáhorfend- um við efnið en greinilega með góðum árangri. Glöggir áhugamenn um af- drif Simpson-fjölskyldunn- arhafa veittþví athygli, að upphafsatriði þáttanna er mismunandi og er það einkum þrennt sem tekur breytingum á milli þátta. Stefið sem eldri systirin Lisa tekur á saxófóninn í tónlistartímanum er ekki eitt og hið sama, heldur isex mismunandi útgáfum. íhvert sinn sem fjölskyldan kemur æðandi inn ístofu til að henda sér niður fyrir framan sjónvarpið bíður eitthvað óvænt. íeinum þættinum vantaði til dæmis sófann og í öðrum var það fjölskylda Freds Flintstones sem var mætt fyrir framan kassann í stað þeirra Simpsona. Það sem vekur þó mesta athygli eru setningarnar sem aðalsöguhetjan Bart er í refsingarskyni skikkaður til að skrifa á skólatöfluna, en þær taka sífellt breyting- um. Meðal þeirra sígildustu eru:„Ég á ekki að segja „hún er dauð"þegar nafnakall fer fram íbekknum", „Ég á ekki að kalla kennarann minn gellu", „Ég sá ekki Elvis Presley", „Þau eru að hlæja að mér, ekki með mér" og „Hvítlaukstyggjó er ekki vitund sniðugt". Muhammed Ali

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.