Pressan - 18.03.1993, Blaðsíða 26
2£_ PRESSAN
FERÐALAG U M GLA0HEIM A
Fimmtudagurinn 18.mars 1993
BÍÓIN
HASKOLABIO
Á bannsvæði Trespass ★ ★
Svartur hasar. Allt til staðar;
flétta og spenn. Og mikið
djöfull eru töffararnir töff.
Elskhuginn The Lover ★★★
Hugljúf saga um ást og losta.
Laumuspil Sneakers ★★
Haeg i gang og heldur
ómerkileg.
Tveir ruglaðir Nutty Nut ®Ef
þessi mynd hefði orðið örlitlu
verri væri hún frábær.
Baðdagurinn mikli ★★
Danskur húmor fyrir þá sem
hafa smekk fyrir honum.
Howards End ★★★★ Bók-
menntaklassík verður að
góðri bíómynd.
Karlakórinn Hekla ★ Vond
mynd og metnaðarlítil.
LAUGARASB I O
Svala veröld Coo/ World ★★
Það var Ijóst að Ralph Bakshi
(Fritz the Cat) mundi gera
hráa útgáfu af Hver skellti
skuldinni á Kalla kanínu? Hrá-
leikinn er hins vegar hvorki í
sögunni né persónunum.
Hann er í fráganginum.
Hrakfallabálkurinn Out on a
Limb ★ Unglingamynd gerð
af fólki sem telur unglinga
fífl.
Geðklofinn Raising Cain ®
Brian de Palma er sjálfsagt of-
metnasti leikstjóri Holly-
wood. Hér er hann hrár,
óblandaður og óþolandi.
Nemo litli ★★★ Falleg
teiknimynd.
Beethoven ★★
REGNBOGI NN
Chaplin ★★ Myndin sem
fékk menn til að spyrja sig
hvort Chaplin hefði í raun
verið nokkuð fyndinn. Robert
Downey jr. tekst þó að halda
lífi og eldist vel með rullunni.
Svikahrappurinn Man Trou-
ble ★ Frekar ófyndin og
ómerkileg mynd. Sumt af því
sem Nicholson snertir verður
að steini.
Síðasti móhíkaninn The Last
of the Mohicans ★★★ Ævin-
týramynd fyrir fullorðna.
Svikráð Reservoir Dogs ★★★
I raun er þessi mynd bölvað
ógeð, en frábær díalógur og
ágætur leikur gera hana að
sérstæðri upplifun.
Rithöfundur á ystu nöf Nak-
ed Lunch ★★★ Geðveikislegt
rugl. Ánægja manna með
myndina fer síðan eftir því
hvaða merkingu þeir leggja (
lýsingarorðið.
Miðjarðarhafið Mediterr-
aneo ★★★
Tommi og Jenni ★★★ Næst
kemur Línan í bíó.
Sódóma Reykjavík ★★★
Góð mynd um álappalega
smákrimma.
Prinsessan og durtarnir
★★★ Ævintýri.
SAMBIOIN
Pottþétt
Ágætt
irk Lala
★ Leiðinlegt
©Ömurlegt
meira gaman að horfa
Dafoe og Madonnu njótast í
einhverjum spjallþættinum.
Umsátrið Under Siege ★★★
Töffaramynd. Betra framhald
af Die Hard en Die Harder.
Háskaleg kynni Consenting
Adults ★★ Þrátt fyrir undir-
förult samsæri vantar allan
neista í myndina.
1492 ★ Önnur mislukkuð
Kólumbusarmynd en þó ei-
litlu skárri en Salkind-mynd-
in.
Á lausu Singles ★★★ Afs-
löppuð mynd; stundum snið-
ug og stundum fyndin. Svo
lítið ágeng að hún er nota-
leg.
Lífvörðurinn The Bodyguard
★ Mislukkuð mynd með
myndarlegum leikurum.
Casablanca ★★★★ Meist-
araverk sem batnar með aldr-
inum.
Systragervi Sister Act ★★
Whoopy er ósköp fín en
nunnurnar stela senunni.
Aleinn heima 2 - Týndur í
New York Home Alone 2 -
Lost in New York ★★★★
Mynd ársins fyrir aðdáendur
dett-á- rassinn-húmors.
Bambi ★★★★ Þó ekki væri
nema vegna sagnfræðilegra
ástæðna (hvaðan viðkvæma
taugin í heimsstyrjaldarkyn-
slóðinni kemur) er skylda að
sjá Bamba reglulega.
Fríða og dýrið The Beauty
and the Beast ★★★★ Snilld-
arverk.
3 ninjar ★ Fyrir tilvonandi
vandræðaunglinga.
STJORNUBIO
Drakúla Bram Stoker's Drac-
ula ★ Góð mynd fyrir áhuga-
menn um förðun, búninga
og umbúðamikla framsetn-
ingu. Aðrir finna fátt við sitt
hæfi, því sjálf sagan er nánast
óbærilega leiðinleg.
Hjónabandssæla Husbands
and Wives ★★★★ Woody Al-
len upp á sitt besta — að
minnsta kosti næstbesta.
New York- útgáfa af Berg-
man; laus við leiðindin og
snilldarbroddinn.
Heiðursmenn A Few Good
Men ★★★ Gott réttardrama
með stólpagóðum leik.
Konuilmur Scent of Woman
★★★ Frábær leikur Als Pac-
ino er næg ástæða til að sjá
myndina. Þótt hlutverkið sé
óendanlega þakklátt lætur
hann ekki þar við sitja, eins
og Dustin Hoffman hefur
gert í svipuðum tilfellum (Ra-
in Man, Tootsie).
Olía Lorenzos Lorenzo's Oil
★★★ Vel sögð saga foreldra
sem leita þar til þau finna
lækningu við banvænum
sjúkdómi sonar s(ns.
Ljótur leikur The Crying
Game ★★★★ Kemur jafnvel
útlifuðum bíófríkum á óvart
og fær þá til að gleyma sér.
Hinir vægðarlausu Unforgi-
ven ★★★★ Eastwood á
heimavígstöðvunum í vestr-
inu og þar kann hann bæði
öll trixin og ákaflega vel við
sig.
Losti Body of Evidence ★★
Sagan er klén og í raun væri
‘Vertshúsin
í Beim
Vilji maður dansa og daðra á
veitingastöðum bæjarins eru
sumir staðir betur til þess
fallnir en aðrir. Vilji maður
kynda undir rómantíkinni
og fá að vera í friði til fjög-
urra- augna-athafna minnk-
ar úrvalið. Ætli maður sér
hins vegar að taka almenni-
lega í er úr mörgu að velja.
Upptalningin sem fer hér á
eftir snýr að innihaldi verts-
húsanna, þótt engan veginn
sé hún tæmandi. Hverju á
fólk að klæðast? Á hvaða
aldri er best að vera? Hvert
þarf andlegt atgervi manns
að vera? Hvað þarf maður til
dæmis að trimma oft í viku
til að teljast hæfúr tíl að stíga
dans á Tunglinu?
‘Tungtið
ÚTHALD: Gífurlegt, minnst
fimm þolfimitímar í viku með
trimmi þrisvar í viku.
KLÆÐNAÐUR: Nýju fötin
keisarans eða annar álíka
berstrípaður klæðnaður. ALD-
UR: 18 ár en auk þess sést inn
fýrir grímuna á fertugum ein-
staklingum sem telja sig enn 18
ára. TONLIST: Sýrupopp í
versta gæðaflokki. Gott andlegt
jafnvægi því skilyrði. VEIÐI:
Fengsælustu miðin íbænum.
Konur og karlar, karlar og karl-
ar, konur og konur.
LA Café
ALDUR: Hærri en 25 ár. Menn
eiga ekki á hættu að hitta börn-
in sín. KLÆÐNAÐUR: Frem-
ur fi'nn, jafhvel sést glitta í dýr
merki. UTHALD: I meðallagi
vegna sunnudagsgöngutúr-
anna. Stundum dansaður vals,
stundum travolta. TÓNLIST:
Diskó og ellismellir. VEIÐI:
Fráskilinna í meðallagi góð.
fTíúsinn
ALDUR: Afar teygjanlegur, tíð-
astur 30 ár. DRYKKJA: Vímu-
efhaleg. TÓNLIST: Trega-
blandin. ÚTHALD: Setudans
stundaður. KLÆÐNAÐUR:
Óhefðbundinn. INNIHALD:
98% kvennanna sem stunda
staðinn eru hrifnar af tónlistar-
mönnum. Kunn andlit í felum
(vegna lélegrar lýsingar). Mið-
aldra djassóféti. VEIÐI: Ýmist
dræm eða í meðallagi góð með
lagni. RÓMANTÍK: Hugsan-
leg vegna myrkursins.
Gauhur á Stöna
ÚTHALD: Ekki mikið. Liðugra
líkama krafist vegna hreyfinga
sem byggjast á mjaðmahnyldcj-
um. Dansað uppi á borðum.
Pils því æskileg. TÓNLIST: Lif-
andi. ALDUR: 25 til 30 ár.
KLÆÐNAÐUR: Vinnufatnað-
ur. Viðkomustaður betur
klædds fólks um helgar. Leður-
jakkalið algengt. INNIHALD:
Tónlistarfólk afgerandi í miðri
viku. Sést til ferða myndlistar-
manna og einstaka forstjóra
gosdrykkjafyrirtækja. VEIÐI:
Mjög góð.
‘BíúsSarinn
INNIHALD: Rómantísk pör á
blús. Einstaka rómantísk
tveggja manna borð. ALDUR:
Frá 20 til 70 ára. ÚTHALD:
Gott drykkjuúthald nauðsyn-
legt. Ekki likamlegt úthald.
Nema ef til vill um helgar til að
dansa á milli borða og jafnvel
uppi á þeim. VEIÐI: Dræm.
ttfóteS Saga
ALDUR: Svipaður og í Kola-
portinu. KLÆÐNAÐUR: Fínn
en smekklaus. ÚTHALD:
Óþrjótandi drykkjuúthald
nauðsyn (sér ílagi á Mímisbar).
Danskunnátta nauðsynleg úr
skólum Hermanns Ragnars eða
Heiðars Ástvalds. Harðsperrur
tíðar daginn eftir. SIÐPRÝÐI:
Sterk að öðru leyti en því að
veiðin er í formi framhjáhalds.
úíóteí ísíand
INNIHALD: Pör algeng. Hóp-
ar algengari. Korteríþijúgæjar
algengastir. DRYKKJA: Megn
og nauðsynleg því það er svo
leiðinlegt að vera edrú innan
um fulla fólkið. ÚTHALD:
Þarft. KLÆÐNAÐUR: Lond-
on dömudeild. Af útsölu í
Cosmo. Herraríkið. TÓNLIST:
Ýmist fjörug, eldfjörug eða
dauð. ALDUR: Lægri en hann
h'tur út fyrir að vera. VEIÐI:
Mikið reynd. Ber ekki alltaf til-
skilinn árangur.
%auða íjónið
INNIHALD: Ómengaður sjáv-
arþefur. Fastur kjarni Seltim-
inga og annarra Vesturbæinga.
ALDUR: 20 til 40 ár. TÓN-
LIST: Lifandi dauð. ÚT-
HALD: Óþarft. Líkamsburðir
þó ágætir því trimmararnir af
Nesinu og úr Vesturbænum
sækja staðinn. RÓMANTÍK:
Ónauðsynleg. VEIÐI: Lítil.
‘Tveir vinir...
KLÆÐNAÐUR: Lopapeysulið
úti. Leðurjakkalið inni. INNI-
HALD: Stórhljómsveitirnar
sem elska staðinn og spila eftir
því. Vel í glasi. Grúppís sem
hanga í loftræstikeríunum. í
miðri viku karaoke-lið sem
drekkur lítið. ÚTHALD: Gífur-
legt. Sveitaballastemmning í
bænum. Takturinn ffjálslegur.
ALDUR: 25 ár. VEIÐI: Pömn
augljós en óopinber.
fógetinn
ÚTHALD: Ónauðsynlegt.
INNIHALD: Framsóknar
POPP
Gítarhetjur núsins
DINOSAURJR.
WHEREYOU BEEN?
★★★★
LIVING COLOR
STAIN
★★
GUNNAR
HJÁLMARSSON
Kröftugt rokk sem þó afneit-
ar klisjum þungarokksins er
farið að seljast mun betur en
áður, þökk sé Nirvana-undr-
inu. Sveitir sem hafa lengi
rembst við í djúpunum fá nú
loksins uppreisn æru og feit
launaumslög. J Mascis, leiðtogi
og andlit Dinosaur Jr., getur
brosað framan í heiminn því
nýja platan hans, sú fimmta, er
sú besta sem hann gerir í lang-
an tíma og hefur gengið betur
en fyrri verk.
Mascis er af núllkynslóð am-
erískra rokkara sem ólust upp
með pönkinu í valdatíð Reag-
ans og Bush. Hjá honum sullast
pönkið saman við eldri rokk-
áhrif; í tónlist Dinosaur Jr. má
t.d. greina takta frá Led Zeppel-
in, The Byrds og sterkan keim
af Neil Young. Utkoman er frá-
bær; tónlistin hefur mjög per-
sónulegan svip sem markast
ekld síst af fr umlegri gítartækni
— sem þó byggist á gömlum
brögðum — og auðþekkjan-
legum söngstíl Mascis. Hann er
einn af skemmtilegri söngvur-
um nýrokksins í dag.
Það eru tíu lög á Whereyou
been, nett rokkheild sem ann-
að slagið nær hæstu hæðum í
lögum sem nálgast fullkomn-
un: Start Choppirí, fyrsta smá-
skífan, er nautnalegt gítarrokk í
háklassa, Not the same er besta
útfærsla sem heyrst hefur á
rokkarfi Neils Young, og Goirí
home er meistaralega samin
poppballaða.
J. Mascis er í góðum málum.
Það er bara mars en hér er
komin ein af tíu bestu plötum
ársins.
Þegar Living Color komu
ffarn á rokksviðið fengu menn
sönnur á því að Jimi Hendrix
var ekkert einsdæmi: blökku-
menn geta rokkað stíft ef þeir
vilja. Síðan hefur Living Color
rokkað án afláts og átt ágætu
gengi að fagna.
Aðal nýju plötunnar, þeirrar
þriðju, er sem fyrr hörkuleikur
gítarleikarans Vernons Reid.
Fáir standast honum snúning í
tækni og neistaflugi. Það er
samt ekki nóg; Stain líður fyrir
að meðlimir hljómsveitarinnar
virðast ekki vita almennilega
hvað þeir vilja gera. Þeir flakka
á milli ýmiskonar rokks — ber
niður í pönkuðu fönld a la Red
Hot Chili Peppers, í iðnaðar-
poppi í anda Terence Trent
D’Árby, og stundum hljóma
þeir alveg eins og Prince, t.d. í
hinu ágæta lagi Bi. Það má vel
segja að þeir eigi „ágæta
spretti11, en sem heild virkar
Stain ekld sannfærandi. Platan
er losaralegri en fyrri plötur og
verður því að skoðast sem
þeirra slappasta verk.
„J. Mascis, leiðtogi
og andlit Dino-
saur Jr., getur
brosaðframan í
heiminn því nýja
platan hans, sú
fimmta, ersú
besta sem hann
gerir í langan
tíma. “
menn; Hriflusamtökin eiga þar
borð. Útlendingar hafa við-
komu vegna söguffægðarinnar,
líkt og þeir kaupa enn keramik
ff á Gliti sem fslendingar eru
löngu hættir að kaupa. Felu-
staður fyrir marga sem vilja
ekki finnast. KLÆÐNAÐUR:
Framsóknarlegur. TÓNLIST:
Einsleit. Stundum fjörug. Leyfi-
legt að dansa uppi á borðum
um helgar. ALDUR: Breiður.
VEIÐI: Jákvæð.
INNIHALD: Óvirkir alkar, há-
skólafólk og aðrar óhreyfanleg-
ar mublur. Leikhúsfólk kemur
við áður en það fer á Bíóbarinn.
ÚTHALD: í meðallagi slakt.
Gnægð af ómúsíkölsku fólki.
ALDUR: Ógreinilegur.
GREINDARVÍSITALA: Fer
lækkandi. TÓNLIST: Nóg að
kunna textann við Rabarbara-
Rúnu. VEIÐI: Ýmist stórgóð til
einnar nætur eða engin helgi
eftir helgi, mánuð eftir mánuð
ogjafnveláreftirár.
‘Duushús
INNIHALD: Bffljarð-, pizzu-
og dansaðdáendur. Gærur,
grænlenskir sjómenn og vallar-
starfsmenn (ekki þó svartir).
ALDUR: Flókinn. TÓNLIST:
Diskótek. VEIÐI: Ómeðvituð.
KLÆÐNAÐUR: Fáir tala um
hann.
IHALD: Námsmenn að
eyða námslánunum. Uppar og
Heimdellingar. KLÆÐNAÐ-
UR: Glasgow-föt og Levi’s-
gallabuxur. VEIÐI: Dræm, en
mikið hugsað um vaxtarlag,
hár, sexappíl, fatnað og ff ont.
TÓNLIST: Vinsældalistapopp.
ÚTHALD: Óþarff, nema ef til
vffl drykkjuúthald. Vaxtarlag
gesta ítarlegt.
í fúllvæm-
in. KLÆÐNAÐUR: Glans-
andi. INNIHALD: Gamlar fyr-
irsætur og bissnessmenn með
þykkan skráp og hátt yfirborð.
UTHALD: Ónauðsynlegt en
kropparnir verða að vera klípi-
legir. ALDUR: Tíðastur um 35
ár. VEIÐI: Yfir meðallagi.
‘Barroífc
ALDUR: í effi glanskanti.
INNIHALD: Fólk sem lifir á
fornri ff ægð eða nýff ægt klass-
ískt tónlistarfólk. KLÆÐNAÐ-
UR: Eftirtektarverður. ÚT-
HALD: Óæskilegt. RÓMAN-
TÍK: Hægt með góðu móti að
kynda undir henni í miðri viku.
TÓNLIST: Mjúk. VEIÐI:
Undir skekkjumörkum.
‘Boraarvirlq.ð
ALDUR: Hár. TÓNLIST:
Kántrí og einstaka poppnótur.
KLÆÐNAÐUR: Ósmekklegur
utan einstaka góðir kúrekahatt-
ar og stígvél. INNIHALD:
Ljúfar en hrjúfar, raunamæddar
og einmana sálir. VEIÐI: Eng-
um sögum fer af henni.
Casaólanca
INNIHALD: íþróttamenn,
fegurðardrottningar og fjöl-
miðlafólk af míní-útvarpsstöðv-
unum. ALDUR: Karla hærri en
kvenna, líkt og í Svíþjóð.
KLÆÐNAÐUR: Stífúr. VIÐ-
HORF: í anda Hólmffíðar
Karlsdóttur. ÚTHALD: Geysi-
legt og lúnaburður stórkostleg-
ur. VEIÐI: Aflahrotur. RÓM-
ANTÍK: Vandfundin.
ðíressó
INNIHALD: Ungt og upp-
reisnargjamt þotulið. Tónlistar-
fólk og upprennandi leikarar.
Vasaútgáfa af Bíóbarnum. ÚT-
HALD: Þrautseigja og trylling-
ur. ALDUR: Um og undir tví-
tugu. KLÆÐNAÐUR: Leður-
jakkar, gallabuxur og annað
ísmeygilegt. VEIÐI: Allgóð en
röðin löng.
Inaóffscafé
INNIHALD: Gamlir kærastar
og kæmstur. Grátar og hlátrar
tíðir. Þeir sem eiga gömul við-
höld á Ingólfscafé snúi sér ann-
að. TÓNLIST: Framandi en
taktmM. ÚTHALD: Krefst
tíma í afródönsum í Kramhús-
inu. FATNAÐUR: Karlmenn
vel tilhafðir, stundum smart.
Konurnar í fötum ffá 17, Centr-
um, LA og París. ALDUR: 25
ár en nokkm hærri á góðum
lcvöldum, þegar borgarstjórar
eiga leið um. VEIÐI: f þokka-
legu meðallagi en viðreynsla og
daður fullmikið.
Slmma Lú
ALDUR: Kynslóðin sem fædd-
ist árið 1950 er örvæntingarfúll
á ömmu Lú. INNIHALD:
Menn og konur að endurnýja
kynnin við gömlu sénsana eða
yngja upp, að öðru leyti hópar,
forstjórar og ráðherrar. TÓN-
LIST: í anda Abba og Boney M.
ALDUR: Eldra fólkið h'tur bet-
ur út en það yngsta, enda dauð-
fegið að vera loks ff áskilið.
KLÆÐNAÐUR: London, Par-
ís, Róm og Reykjavík. VEIÐI:
Örvæntingarfull.
‘BíóSarinn
ALDUR: 30 ár, plús/mínus 10
ár. INNIHALD: Fjölmiðlafólk,
leilchúslið, menningarvitar,
menningarhálfvitar og allir þeir
sem eltast við þá. ÚTHALD:
Feikilítið eða óopinbert. Gestir
Bíóbarsms búa hvorki yfir lík-
amlegu né andlegu atgervi fyrr
en á tíunda glasi. TÓNLIST:
Haukur Morthens. KLÆÐN-
AÐUR: Persónulegur. VEIÐI:
Biðstofa._________________
Guðrún Kristjánsdóttir