Pressan - 18.03.1993, Síða 29
Fimmtudagurinn 18. mars 1993
ALÞINGISMENN I VIGAHUG
PRESSAN
29
Margt bendirtil að hnefaleikarverði aftur Ieyfðireftir37 ára bann
EKKIHÆTTULEGRIEN JÚDÓ
Hnefaleikar voru bannaðir
með lögum frá Alþingi árið
1956 og hafa margir syrgt þá
ákvörðun. Einn þeirra, Guð-
mundur Arason, fyrrum ís-
landsmeistari og þjálfari í
hnefaleikum, segist seint fá skil-
ið ástæðuna íyrir því að greinin
var bönnuð.
Hér á landi var aðeins keppt í
áhugamannahnefaleikum og
var hver leikur aldrei lengri en
þrjár lotur, en hver lota var
þrjár mínútur með einnar mín-
útu hvíld á milli. Þar sem hver
viðureign tók ekki nema um
stundarfjórðung voru því allt
upp í 10-12 bardagar á kvöldi.
Hnefaleikar voru afar vinsælir
og oft uppselt á kappleikina. Þá
var einnig gífurlegur áhugi á að
æfa greinina og sum árin varð
Glímufélagið Ármann, sem bar
ægishjálm yfir önnur íþróttafé-
lög hvað hnefaleika varðaði, að
vísa fleiri hundruðum áhuga-
samra pilta frá vegna aðstöðu-
leysis.
Einn blaðamaður
valdur að banninu?
Tvennum sögum fer af
ástæðum þess að hnefaleikar
voru bannaðir hér á landi. Ein
þeirra er þó ugglaust skrif
Thorolfs Smith blaðamanns
sem umhverfðist í skoðunum
sínum á íþróttinni árið 1955.
Áður hafði hann skrifað vel og
mikið um hnefaleika, en síðar
fann hann greininni flest til for-
mgmern, þeir Kristinn H. Gunnarsson og Ingi Björn Albertsson,
afa lagtfram þingsályktunartillögu um að bann við ólympísku
nefaleikum verði afnumið. Knattspyrnufélagið Þrótturhefur
hnefaleikadeild. Iþróttasamband Islands ætlar að mæla með
aðbannið verði endurskoðað, verði það borið
undirsambandið.
áttu. Gamlir hnefaleikamenn
vilja kenna þessum skrifum
Thorolfs að hluta til um hvernig
fór. í kjölfar tilfmningaríkra
skrifa Thorolfs lögðu tveir
læknar og alþingismenn, þeir
GuðmundurArason
Einn kunnasti hnefaleikakappi landsins fyrr og síðar.
Kjartan Jóhannesson og
Helgi Jónsson, til að íþróttin
yrði bönnuð með öllu hér á
landi árið 1956. Var þar enginn
greinarmunur gerður á áhuga-
manna- og atvinnumanna-
hnefaleikum. Allt var sett undir
sama hatt.
„Mér finnst það óafsakanlegt
hjá þinginu að hafa ekki spurt
íþróttasamband Islands álits á
hvort banna ætti greinina. Af-
staða íþróttasambandsins var
nefhilega góð, enda var hér um
mjög skemmtilega og vinsæla
íþrótt að ræða,“ segir Guð-
mundur. Vinsældir íþróttarinn-
ar voru miklar og mættu mest
um 1.700 manns á einn kapp-
leik í Hálogalandi. „Miðarnir
seldust þá upp á tveimur
klukkutímum og við sem stóð-
um að keppninni urðum að
flýja úr bænum vegna ágangs
kunningja og vina sem héldu að
við gætum útvegað miða. Og
þótt 1.700 manns væru inni í
húsinu voru mörg hundruð
manns fyrir utan,“ sagði Guð-
mundur og bætti við að há-
marksfjöldi áhorfenda hefði
síðan verið færður niður í 1.300
þar sem hitinn og svækjan sem
áður mynduðust í fullu húsinu
hefðu gert keppendum mjög
erfitt fyrir.
Engin slys
á mönnum
„Það urðu engin slys á
mönnum allan þann tíma sem
ég var viðloðandi greinina eða í
tuttugu ár,“ segir Guðmundur
Arason og bætir því við að að-
eins einn maður hafi fengið
borgað úr sjúkrasjóði íþrótta-
manna vegna meiðsla í hnefa-
leikum, Björn R. Einarsson
hljómlistarmaður. Hann varð
fyrir því óhappi að slá vitlaust
og meiða sig í putta og þar sem
hann var rakari gat hann ekki
unnið í nokkra daga. „Ég held
að nú verði hnefaleikar aftur
leyfðir, menn eru ekki eins
kreddufullir og áður og sjá að
hnefaleikar eru ekki það versta
sem til er.“
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður
Ekki ástæða til að
banna þessa íþrótt
frekar en aðrar
Hvað kemur til að þú beitir
þérjýrir að hrtefaleikar verði
teknir upp hér á landi?
„Það var nokkuð fjölmennur
hópur áhugamanna sem hafði
samband mig og fleiri þing-
menn og kynnti okkur málið.
Það var nú hvatinn að þessu.“
Hefurðu sjálfur stundað
hnefaleika?
„Nei, nei, nei. En miðað við
lýsingarnar sem ég hef fengið
virðist þetta vera eins og hver
önnur íþróttagrein og ekki
ástæða til að banna þessa frekar
en einhverja aðra. Það er einnig
jákvætt ef að einhverjir vilja
stunda þetta eru þeir ekki í
neinu rugli á meðan."
Hefurðu fengið einhver
viðbrögð vegna málsins?
„Það hafa verið mikil við-
brögð. Mönnum finnst þetta
athyglisvert og hér í þinginu
hafa menn gaman af að
ræða þetta, enda kærkomin
tilbreyting frá allri umræð-
unni um efnahagsmálin.
Viðbrögðin hafa að mestu
verið jákvæð, en þó hefur
maður heyrt einhverjar efa-
semdaraddir.“
Ætlarðu að byrja að œfa
hnefaleika efbanninu verður
aflétt?
Nei, ég er orðinn of gamall
fyrir þessa íþrótt. Þetta er bara
fyrir unga og hrausta menn.
Það væri þó gaman að prófa
þetta einu sinni. Ég hef heyrt að
þessi grein sé erfið, erfiðari en til
dæmis handbolti.“
KRISTINN H. GUNNARSS0N
Þrátt fyrir enga reynslu í
hnefaleik virðist hann
kunna sitthvað fyrir sér í
greininni.
BirgirGuðjónsson
læknir
Styð hiklaust
endurskoðun
„Það hefur engin úttekt
verið gerð hér á landi á því
hversu hættulegir hnefaleik-
ar eru miðað við aðrar
íþróttagreinar og því fínnst
manni þetta bann hérna svo-
lítið á skjön við þróun ann-
ars staðar. Það eru víða tals-
verðar hættur samfara
iþróttum og hafa ekki orðið
tilefni til banns og ég held að
þar sem þetta er ólympísk
grein sýni það það mat
manna að hún sé eldd hættu-
legri en aðrar greinar.“
Ertu sem sagt hlynntur
því að ólympískir hnefaleik-
ar verði leyjðir hér á landi?
„Maður getur talað um
svona mál af mismildlli festu
eða þekkingu og ég hef enga
persónulega reynslu af þeim
hér. Þar sem þetta er ekki tal-
ið nein firnamikil áhætta á
Ólympíuleikunum mundi ég
hiklaust styðja yfirvegaða
endurskoðun þessara mála
og sjálfsagt er að kanna
slysatíðni í íþróttum yfirleitt.
Það hafa orðið slys í mörg-
um greinum, til dæmis
dauðaslys í akstursíþróttum,
skíðaíþróttum og fallhlífar-
stökki, og ekki hafa menn
rokið upp til handa og fóta
ogbannað þær.“
Hvað með bardagaíþrótt-
irnar, karate ogjúdó. Eiga
þœr meiri rétt á sér en
hnefaleikar?
„Ég sé ekki að þær þurfi að
vera hættuminni en ólymp-
ískir hnefaleikar.“
BIRGIR GUÐJÓNSS0N
Álíturað hnefaleikar
séu ekki hættumeiri en
aðrar bardagaíþróttir,
svo sem karate.
Munurinnáatvinnu-
og áhugamannahnefaleikum
Tvennt ólíkt
Sagt er að munurinn á atvinnu- og
áhugamannahnefaleikum sé eins
og munur á formúlu-kappaksturs-
bíl og venjulegri fólksbifreið. í at-
vinnumannahnefaleikum er bar-
isti tólflotur, þrjár mínútur hver,
áhugamenn eru hins vegaraðeins
með þrjárjafnlangar lotur. Hjá at-
vinnumönnum eru miklirpening-
arí boði, alltupp í fleiri hundruð
milljóna króna, og menn því til-
búnir að ganga eins langt og unnt
er. Dæmi eru umað atvinnuhnefa-
leikarar hafi látist í hringnum.
Áhugamenn notast við höfuðhlíf-
ar og þar er keppt með öðru hug-
arfari. Keppandinn hugsar um að
næla sér í sem flest stig, það er að
sigrastá vörn andstæðingsins -
koma höggi inn fyrir vörnina. Það
skiptirhins vegar ekki öllu máli
hve þungt höggið er. Þá fá kepp-
endur einnig stig fyrir að víkja sér
undan höggum og fyrir fótaburð.
Hjá áhugamönnum má dómari
dæma leik afeða gefa refsistig ef
hann telurað annarkeppandinn
sé ekki fær um að halda uppi vörn,
þ.e. ekki fær um að gæta eigin ör-
yggis. Dómariskilurkeppendurað
eftirþung högg svo viðkomandi
getijafnað sig. Þá er bardagi
stöðvaður ef annar keppandinn
færskurð. Hnefaleikarþeirsem
fram fóru hérá landi fyrir 1956
voru talsvert harðari en nútíma-
áhugamannahnefaleikar, það er
ólympískir hnefaleikar. Það stafar
einkum afþví að þá notuðust
menn ekki við höfuðhlífar og þá
voru hanskarnirmun léttari og
þynnri og höggin þvíþyngri.
UM HELGINA
FIMMTUDAGUR
1 8. MARS
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
í HANDBOLTA
Ísland - Danmörk kl. 17.00.
Bein útsending
HANDBOLTI 2. deild karla
- Úrslitakeppnin
Afturelding - KR kl. 20.00.
Bæði liðin berjast hart um
sæti í 1. deild.
FOSTUPAGUR
1 9. MARS
KEILA
Flugleiðamót unglinga í
Keiluhöllinni kl. 18.00.
LAUGARDAGU R
20. MARS
KÖRFUBOLTI
Úrslitakeppnin
Keflavík - Skallagrimur kl.
15.00. Keflvíkingar eru sig-
urstranglegri aðilinn í þess-
um leik, en það lið kemst í
úrslitaleikinn sem fyrr sigrar
í tveimur leikjum. Allt getur
þó gerst í úrslitakeppninni
og benda má á að Keflvík-
ingar hafa undanfarið átt í
erfiðleikum með Skallagrím
og hafa leikir þeirra verið
jafnir og liðin skipst á um að
sigra. Tímasetningin á leikn-
um gæti breyst eftir því um
hvaða sæti handboltalands-
liðið leikur.
BABMINTON
íslandsmót unglinga fer
fram í Kaplakrika og verður
fram haldið á sunnudag.
SUNNUDAGUR
21 . MARS
KÖRFUBOLTI
Úrslitakeppnin
Grindavik - Haukar kl.
20.00. Það getur munað
miklu að spila fyrsta leikinn
á heimavelli og Grindavík
nýtur þess hér. Ómögulegt
erað spá í leikinn, en ef að
líkum lætur verður hann
jafn og spennandi eins og
flestir leikirnir í úrslita-
keppninni í fyrra.
Bubbi Morthens
Boxið eins og skák
Kunnasti hnefa-
leikaáhugamaður
landsins af yngri
kynslóðinni er
væntanlega Bubbi
Morthens. Hann
setti boxhanskana
fyrst upp þegar
hann var átta ára
og boxaði sem
unglingur í Dan-
,nl^ku;tAð^f BUBBIM0RTHENS
liðið eitt 02 halft ar , *
síðan hann fékk Æ/,r b°X^ U‘T en er 0rðmn ^
hnefaleikabakter- °f9amal1 *»'að kePPa’að e‘9'" s°9a-
íuna aftur og æfir hann nú kemur í veg fyrir höfuðmeiðsl.
reglulega ásamt fjörutíu öðrum
„lögbrjótum“.
Er ekki bestfyrir alla að þessi
íþrótt verði áfram bönnuð,
Bubbi?
„Hvers vegna er fólki þá ekki
bannað að keyra bíl, hvað deyja
margir í umferðinni á hverju
ári? Hvað með Formúlu-kapp-
aksturinn og Parísar-Dakkar-
rallið, þar hefur fjöldi manns
látist? Menn eru að kinn-, nef-
og handleggsbrotna í karate,
hálsbrotna í júdó, eyðileggja á
sér fæturna í fótbolta og ör-
kumlast í handbolta með því að
höfuðið skellur í gólfið. Áhuga-
mannabox er ekkert hættulegra
en þessar íþróttir, ég staðhæfi
það. Það er raunar sjáldgæft að
menn slasist þar alvarlega."
Fórna tnenn ekki toppstykk-
inu með því að stunda þessa
íþrótt?
„í ólympískum hnefaleikum
leika menn með hjálm og hann
Ég held að fótboltamaður sem
skallar bolta á bullandi siglingu,
þ.e. 90-100 km hraða, fái högg
sem er helmingi þyngra en
áhugaboxari fær nokkurn tím-
ann. Hins vegar skiptir öllu máli
í áhugaboxi að hafa toppstykkið
í lagi, því þetta er að miklu leyt?*
eins og skák. Það er minnsta
mál í heimi að kýla. Kúnstin er
að sækja rétt og verjast rétt.
Boxið þarfnast gífurlegrar
tækni, meiri en í flestum öðrum
greinum. Þetta byggist að miklu
leyti upp á fótaburði og réttri
beitingu alls líkamans. Síðan er
þetta skák, þ.e. ef þú getur ekki
hugsað — hefur ekki greind til
að úthugsa andstæðinginn —
verðurðu aldrei góður boxari.
Góður boxari berst svipað og
góður skákmaður: Það eru
ákveðnir byrjunarleikir sem all-
ir boxarar kunna og síðan konw
reynslan og kænskan til spil-
anna.“