Pressan - 16.06.1994, Blaðsíða 10
Er furða þótt íslenskt þjóðfélag sé skrýtið?
Á íslandi ráða
st j ómmálamenn
ogskáld
PRESSAN leitaði til 44 einstaklinga og bað þá að tilnefna það
fólk sem mest áhrif hefur haft á íslandi eftir 1944
tjórnmálamenn og
skáld hafa verið mestir
áhrifavaldar á íslenskt
mannfélag síðan lýð-
veldi var sett á laggirnar
fyrir hálfri öld. Sú er að
minnsta kosti skýr og af-
dráttarlaus niðurstaða
könnunar sem PRESS-
AN efndi til meðal 44
einstaklinga í tilefni
hálfrar aldar afrnælis
lýðveldisins.
Halldór Kiljan Lax-
ness er sá íslendingur
sem langmest áhrif
hefur haft á hið
fimmtuga lýðveldi.
Hann bar höfuð og herðar yfir
aðra sem tilnefndir voru. Nokkur
ummæli: „Laxness er hinn mikli
uppalandi íslensku þjóðarinnar.
Ahrif hans ná langt út fýrir þröngt
svið bókmennta.“ „Hann hefur
mótað þær hugmyndir sem við
höfúm af okkur sjálfúm, sögu okk-
ar og sjálfstæði.“ „Gerði tvær kyn-
slóðir íslenskra menntamanna að
kommúnistum.“ „Gerpla, Nóbels-
verðlaunin, Skáldatími og Kristni-
haldið; allt hefúr þetta skipt miklu
máli síðustu fimmtíu ár.“ „Bóbó
Guðjóns úr Mosfellssveit er auðvit-
að maður aldarinnar."
Ólafur Thors og Bjarni
Ben. fylgjast að
f humátt á eftir Nóbelsskáldinu
kemur eitt frægasta pólitíska tvíeyki
aldarinnar: Ólafur Ihors og Bjami
Benediktsson. Báðir gegndu þeir for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum (sam-
tals í 35 ár) og embætti forsætisráð-
herra. Um Ólaf var meðal annars sagt:
„Hann var forsætisráðherra samtals í
níu ár á þessu tímabili og leiddi íslend-
inga út úr haffabúskapnum." „Ólafúr
Thors vann það kraftaverk að gera
Sjálfstæðisflokkinn að eina stóra
hægriflokknum á Norðurlöndum. Það
gerði hann með þvi, meðal annars, að
leggja áherslu á hin mýkri gildi einsog
það er kallað nú til dags.“ „Hann lagði
grunn að stéttaskiptingu lýðveldisins
með því að móta löggjöf sem veitti fjöl-
skyldu hans og flokksvinum einkaleyfi
til að auðgast á hemum.“ „Ólafur
Thors var stjómmálamaður með
ómælda persónutöfra og hafði mikil
áhrif, bæði á samheija og andstæð-
inga.“
Bjami Benediktsson þykir öðmm
fremur hafa mótað utanríkisstefnu
lýðveldisins, en hann var líka einn helsti
hugmyndafræðingur viðreisnarstjóm-
arinnar og forsætisráðherra
1964-1970. „Hann átti einstaklega
glæsilegan feril, og ég hygg að hans
verði ævinlega minnst sem eins helsta
stjómmálaskörungs þessa tímabils."
10 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 16. JÚNÍ 1994
„Hann hélt sínu striki, hvað sem taut-
aði og raulaði. Hver vogar sér nú að
andmæla stefhu hans í utanríkismál-
um íslands?“ „Atti mikinn þátt í að af-
létta haftabúskapnum og leiða Island í
átt til nútímalegra viðskiptahátta."
Vigdís áhrifamest
kvenna
Vigdís Finnbogadóttir kemur í
fjórða sæti og er efst kvenna. Aðeins
tvær konur em í hópi þeirra þijátíu
sem fengu flestar tilnefningar. Hún
fékk líka langflest atkvæði þeirra fjög-
urra sem setið hafa á forsetastóli lýð-
veldisins, Sveinn Bjömsson hlaut tvö
atkvæði og Ásgeir Ásgeirsson aðeins
eitt. Kristján Eldjám fékk hinsvegar
sexatkvæði.
„Vigdís er holdgervingur sóknar
kvenna á lýðveldistímanum," sagði
einn viðmælandi PRESSUNNAR og
margir tóku í sama streng. „Kjör Vig-
dísar varð til þess að íslensku þjóðinni
fannst um sjálfa sig að hún væri ffjáls-
lynd. Ég veit ekki hvort það er rétt.“
„Hún hefúr verið áberandi, en kannski
fyrst og ffernst eins og skátaforingi í
tijáræktarleiðangri.“ „Vigdís breytti
hugmyndum íslenskra kvenna um
möguleika sína og sóknarfæri.“
Enn einn ráðherra
I fimmta sæti varð Gylfi Þ. Gíslason,
sá maður sem einna lengst hefúr setið á
ráðherrastóli hérlendis og einn helsti
hugmyndaffæðingur Alþýðuflokksins
um árabil. „Sem ráðherra lagði hann
grunn að nýju menntakerfi og átti mik-
inn þátt í að binda endahnútinn á
haftatímabilið." „Gylfi á stóran þátt í
þeirri virðulegu mynd sem margir er-
lendir ráðamenn hafa af þjóðinni.“
„Hann er virðulegasti bóhem sem
nokkru sinni mun láta að sér kveða í
pólitík.“
Embættismaðurinn
í sjötta sæti kemur eini embættis-
maðurinn á listanum, Jóhannes Nor-
dal, fýrrverandi seðlabankastjóri. „Eini
íslendingurinn sem hafði alþjóðlegan
status í fjármálaheim i num, og því hafði
hann mikil áhrif.“ „Hann var í lykilað-
stöðu sem aðalbankastjóri Seðlabank-
ans, stjómarformaður Landsvirkjunar,
ritstjóri Fjármálatíðinda og formaður
stjómar Vísindaráðs helming þessa
tímabils.“
Kjarval: Eini fuiltrúi
myndlistarmanna
Meistari Jóhannes S. Kjarval sting-
ur upp kollinum í sjöunda sæti, og
kemur líldega fáum á óvart. Hann var
orðinn dáðasti listamaður landsins
þegar fýrir hálffi öld og myndir eftír
hann vom stöðutákn í marga áratugi.
„Kjarval skapaði ímynd listamannsins
sem sérvitrings sem kemst upp með
allt. Kannski hefúr þessi ímynd ekki
komið seinni tíma listamönnum vel.“
„Hann varð til þess að nýrík borgara-
stétt eftirstríðsáranna fékk—eða þótt-
ist fá—áhuga á listum og menningu.“
Steinn, Ingibjörg Sól-
rún og Vilmundur
I áttunda til tíunda sæti em þau Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, Steinn
Steinarr og Vilmundur Gylfason.
„Áhrif Ingibjargar Sólrúnar eiga
áreiðanlega efúr að verða ennþá meiri
nœstu fimmtíu árin, en hún er orðin
tákn fýrir hvort tveggja í senn: Mögu-
leika kvenna í pólitík og nauðsynlega
uppstokkun flokkakerfisins."
Um Stein Steinar var meðal annars
sagt að hann hefði verið „síðasta skáld-
ið sem nokkm sinni mun ná til allrar
þjóðarinnar“. „Þótt hann hefði í reynd
alls ekki verið formbyltingarmaður
sjálfúr hafði hann gríðarleg áhrif á
næstu kynslóðir skálda.“ „Óumdeildur
snillingur.“
VilmundurvarsonurGylfaÞ. Gísla-
sonar, sem er í fimmta sæti listans, og
tengdasonur Bjama, sem varð í því
þriðja! Hann var aðeins alþingismaður
í fimm ár, 1978-83, en er greinilega
langáhrifamesti stjómmálamaður
seinni tíma. „Hann kom með nýja
hugsun inn í íslenska pólitík—og nýja
pólitíska samvisku.“ „Ef menn skoða
baráttumál Vilmundar sést glöggt að
þau hafa smám saman verið að komast
á dagskrá á allra síðustu árum—nema
kannski bætt siðferði."
Enn hefur Hriflu-Jónas
áhrif
I sætum ellefú til tuttugu em fimm
gamlir stjómmálamenn: Einar Ol-
geirsson, Eysteinn Jónsson, Lúðvík
Jósefsson, Hermann Jónasson og
JónasfráHriflu.
Einar Olgeirsson var um áratuga-
skeið einn helsti leiðtogi íslenskra
kommúnista og sósíalista. Með
mælsku sinni og persónutöfrum átti
hann mestan þátt í því að gera flokk
sinn að alvöm stjómmálahreyfingu. Þá
var hann, ásamt Ólafi Thors, maður-
inn á bak við hina sögulegu nýsköpun-
arstjóm: þegar sósíalistar og sjálfstæðis-
menn tóku höndum saman.
Athygli vekur að sjá nafn Hriflu-Jón-
asar á lista yfir áhrifamestu menn lýð-
veldisins. Valdasól hans var að hníga til
viðar um það bil sem Island varð fijálst.
En um Jónas lýðveldistímans var með-
al annars sagt að hann hefði verið ötull
baráttumaður frjálsrar verslunar og
auk þess haft áhrif með kennslubókum
sínum um sögu íslands og tekist að
kynda undir Danahatri hjá nýjum kyn-
slóðum.
Eysteinn og Hermann vom mestir
valdamenn Framsóknar áratugum
saman, og Eysteinn átti meðal annars
mikinn þátt í því að færa áherslur
flokksins úr sveit í borg.
Nær allir sem tiínefhdu Lúðvík
nefndu ffamgöngu hans í landhelgis-
málum og þátt hans í útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar. Auk þess var hann í
marga áratugi einn helsti foringi ís-
lenskra sósíalista. Þess má geta að Lúð-
vík var alþingismaður á Þingvöllum
1944 (og skilaði þá auðu við forseta-
kjör).
Sigurbjöm Einarsson var lengst
allra biskup yfir íslandi á lýðveldis-
tímanum, og „mesti trúarleiðtogi“
aldarinnar, eins og einn viðmæl-
andi komst að orði.
Pálmi Jónsson höndlaði hinsvegar
í öðm musteri og hann er eini
framkvæmdamaðurinn sem er í
hópi tuttugu áhrifamestu mann-
anna. Hann innleiddi nýja verslun-
arhætti á íslandi, og fleyg eru þau
orð að Pálmi í Hagkaup hafi gert
meira fýrir íslenskan verkalýð en
allir verkalýðsforingjar landsins
samanlagt.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV,
hlaut flest atkvæði íslenskra fjöl-
miðlamanna. Um hann var meðal
annars sagt að hann hefði „ger-
breytt íslenskum fjölmiðlaheimi“.
Jón Baldvin Hannibalsson getur
líka unað vel við sinn hlut: Hann er
eini stjórnmálaleiðtogi nútímans
sem kemst í hóp tuttugu efstu. Jón
Baldvin hefur verið leiðandi í ríkis-
stjórnum í sjö ár, og virðist nú ætla
að verða fyrstur til þess að bjóða ís-
lendingum að leiða þá inn í ESB. (I
ffamhaldi af nýlegum formannss-
lag í Alþýðuflokknum má geta þess
að Jóhanna Sigurðardóttir hlaut
aðeins eitt atkvæði í þessari könn-
un.)
120 nefndir
Mikil dreifing atkvæða varð í þessari
óformlegu könnun og þannig vom alls
um 120 einstaklingar tilnefndir. Það er
athyglisvert hve mikil dreiftngin var og
hve fáir standa upp úr. Einn viðmæl-
andi PRESSUNNAR sagði þannig að
lýðveldistíminn væri ekki tímabil
„fárra, sterkra manna eins og einatt í
sögu Islands. Off hefúr það verið svo að
við höfúm haft tvo til þijá menn sem
hafa gnæft hátt yfir aðra, hvort heldur í
bókmenntum eða pólitík. Þannig hef-
ur það ekki verið á lýðveldistímanum;
þetta hefúr ekki verið tími sterka
mannsins, og það er líklega af hinu
góða“.
Þá er það ennffemur athyglisvert
hve stjómmálamenn em ráðandi á list-
anum. 1 því sambandi má minna á ný-
lega bandaríska könnun á mestu
áhrifamönnum aldarinnar þar í landi.
Á lista yfir þúsund áhrifamestu Banda-
ríkjamennina var naumast einn einasta
forsetaaðfinna. Þarvomhinsvegarvís-
indamenn, uppfinningamenn, skáld,
félagsmálaffömuðir af ýmsu tagi og
fjöldi athafnamanna.
Hjá okkur er það hinsvegar svo —
rétt eins og á þjóðveldistímanum—að
pólitíkusar og skáld em nánast einu
áhrifamennimir. Og við vitum nú
hvemigþað fór.
Skáld
Þessfr rithöfúndar og skáld vom
m.a. nefnd, auk þeirra sem lentu í efstu
sætum: Davíð Stefánsson ffá Fagra-
skógj, Tómas Guðmundsson, Hannes
Pétursson, Svava Jakobsdóttir, Jökull
Jakobsson, Fríða Á. Sigurðardóttir,
Gyrðir Elíasson, Gunnar Gunnarsson,
Snorri Hjartarson, Þórbergur Þórðar-
son.
Popparar
Þessir vom m.a. nefndir: Bubbi
Morthens, Megas, Þorsteinn Eggerts-
son, Björk, Björgvin Halldórsson.
Fjöimiðlamenn
Þessir vom m.a. nefúdir: Styrmir
Gunnarsson, Axel Thorsteinsson, Jón
Óttar Ragnarsson, Illugi Jökulsson,
Emil Bjömsson, Ámi Bergmann.
Úr ýmsum áttum
Alls vom um 120 manns úr öllum
áttum nefndir sem mestu áhrifavaldar
á lýðveldistímanum. Nokkur dæmi:
Haukur Morthens söngvari, Anna
Borg leikkona, Brynjólfúr Jóhannes-
son leikari, Ólafur Jónsson bók-
menntagagnrýnandi, Ólafúr Laufdal
skemmtanamógúll, Helgj Hóseason
skyrslettir, Tryggvi Ófeigsson útgerð-
armaður, Þorkeíl Sigurbjömsson tón-
skáld, Hilmar Helgason stofnandi
SÁÁ, Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri,
Helgi Tómasson ballettdansari, Guð-
rún Á. Símonar söngkona, Guðmund-
ur Amlaugsson rektor, Guðrún Agn-
arsdóttir læknir, Guðrún Erlendsdóttir
hæstaréttardómari, Gísli á Uppsölum,
séra Auður Eir, Ásgeir Sigurvinsson
fótboltakappi, Eðvarð Sigurðsson
verkalýðsforingi, Gerður Helgadóttir
myndlistarmaður, séra Friðrik Frið-
riksson, Högna Sigurðardóttir arkitekt,
Kristján Jóhannsson söngvari, Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir mannffæð-
ingur, Ingólfúr Jónsson á Hellu fv.
landbúnaðarráðherra og Sigurður
Þórarinsson jarðffæðingur.