Pressan - 16.06.1994, Side 17
hominu sínu, einmana nema þeir
hafi hætt með nýlenduvörurnar og
farið að höndla með sælgæti og
myndbönd.
Kákasusgerillinn - ab-mjólkin
Upp úr 1970 rak fágætan geril á
§örur landsmanna alla leið austan
úr Kákasus. Hann var þeim galdri
gæddur að búa til jógúrt úr mjólk.
Þetta var á þeim tíma sem enn
eimdi eftir af arfleifð húsmæðra-
skólanna. Ekkert heimili gat án
þessa undragerils verið, enda átti
jógúrtin að vera meinholl og bæta
meltinguna. Þegar Mjólkursamsal-
an tók við sér og fór að framleiða
jógúrt dó gerillinn. Alls kyns þróuð
afbrigði mjólkur hafa síðan komið
á markaðinn, engjaþykkni, þykk-
mjólk og nú síðast ab-mjólk sem á
að líkjast kákasusjógúrtinni að
galdri.
Keflavíkursjónvarpið - Stöð 2
Nokkrum árum áður en Ríkisút-
varpið hóf sjónvarpsútsendingar
1966 höfðu allmargir íslendingar
komið sér upp sjónvarpstæki til að
ná Keflavíkursjónvarpinu eða
kananum. Þá lærði þjóðin ensku
og henti dönskunni. Miklar deilur
voru alla tíð um þessar sjónvarps-
útsendingar bandaríska hersins yfir
íslenskan lýð og svo fór að lokað
var fýrir sendingarnar. Þá var ís-
lenskt sjónvarp komið á legg. Síðan
kom liturinn, myndbandstækið,
gervihnattasjónvarpið og loks Stöð
2 og þótti þá ýmsum hringnum
lokað.
Kjöt í karrí - Lamba Tikka Masala
Fyrstu Austurlandabúunum sem
fluttust hingað til lands brá heldur
betur í brún þegar þeir ætluðu að
kaupa inn í matinn. íslendingar
notuðu ekki krydd, þó með þeirri
undantekningu að grænt karrí var
talið til nauðsynja. Kjöt í karrí var
vinsæll réttur en sést nú varla ann-
ars staðar en í einstaka mötuneyti.
Nú hafa innflytjendurnir frá Asíu
kennt okkur að það er til fleira
krydd en salt, pipar og grænt karrí.
Lamba Tikka Masala er því í óða
önn að ryðja kjöti í karríi út af
matardiskum
landsmanna.
Kodac Instamat-
ic - Myndbands-
tökuvélin
Myndaalbúmið
er gersemi hverr-
ar fjölskyldu og
það fyrsta sem bjargað er úr brenn-
andi húsum. Augnablikin voru fest
á filmu á hljóðlátan hátt með Kod-
ak Instamatic og gripið til X-
kubbsins innandyra. Nú eiga hins
vegar allir myndbandstökuvélar og
dragnast með þær við öll tækifæri.
Ólíkt því sem áður var er ekki hægt
að fanga augnablikið því vélin og
myndatökumaðurinn stela sen-
unni og allt snýst í kringum það að
varðveita augnablikið — sem er
ekki til staðar.
Lampaútvarpið - vasadiskóið
í stríðinu safnaðist fjölskyldan
saman við lampatækin og hlustaði
í andakt á fregnir úr stríðinu. Þetta
var sameiginleg upplifun sem fólk
deildi með sér. En nú lifir hver í
sínum heimi og hlustar á sitt vasa-
útvarp með heyrnartól á höfðinu.
Þetta fyrirbrigði er meira að segja
algengt á vellinum þar sem áhorf-
endur hlusta á lýsingu á leiknum í
stað þess að velta fýrir sér gangi
máli með samræðum við sessu-
nauta sína.
Laugavegurinn - Kringlan
Laugavegurinn og miðbærinn var
kjarni verslunar í Reykjavík. Síðan
skutu upp kollinum litlar verslun-
armiðjur um allan
bæ, þó án þess að
veldi Laugavegar-
ins minnkaði. Það
var svo Kringlan
sem drap Lauga-
veginn í björtu.
Nú öðlast hann aðeins líf í skugga
nætur í kringum krárnar.
Lífstykkin - Hýjalínið
Lífstykkjabúðin er með eldri versl-
unum í Reykjavík. Konur gengu í
magabeltum og strekktu á auka-
kílóunum. Hippastelpur neituðu
að taka þátt í slíkri sjálfspyntingu
og völsuðu um brjóstahaldaralaus-
ar. Nú er hins vegar blómleg versl-
un með alls kyns hýjalín sem er
fýrst og ffemst ætlað að vekja upp
lostafullar langanir.
Mysan-Trópíið
Mysa var sá svaladrykkur sem
slökkti þorsta landsmanna í gegn-
um aldirnar. Hún hélt velli í sam-
keppninni við ropvatnið en þegar
ávaxtasafi fór að berast til landsins
lét mysan undan síga. Tropicana í
glerflöskum var fýrsti hreini ap-
pelsínusafinn sem náði útbreiðslu,
enda pressaður úr fýrsta flokks ap-
pelsínum. íslensku eftirlíkingarnar
í dag standa þeim drykk langt að
baki.
Náttúran - Sumarbústaðimir
íslendingar voru sveitamenn, hvort
sem þeir bjuggu í strjálbýli eða
þéttbýli. Þeir leituðu því reglulega á
vit náttúrunnar á sumrin til að
finna kunnuglega anganina, heyra
fuglasönginn og sjá dýrðina. Þétt-
stóðið sem er búið að gijótberja
litlu lömbin í vegkantinum síðustu
áratugi. Það virðist ekki vera algal-
in útgerð og fjármagnið sem á allt-
af að hafa streymt suður skilar sér
aftur.
Saxbautinn - McDonalds
fslenskir hamborgarar voru lengi
seldir niðursoðnir í dósum og kall-
aðir saxbautar. En það eru ekki
nema áhugamenn um íslenska
matarmenningu sem gera stikk-
prufur á saxbautanum í dag. Hinir
fara á McDonalds eins og miUjónir
annarra gera um allan heim á
hverjum degi.
Skömmtunarseðlamir- Greiðslu-
kortin
í stríðinu, og eins þegar stríðsgróð-
inn var búinn nokkrum ámm eftir
að því lauk, bjuggu íslendingar við
skömmtun. Fólk beið í biðröðum
eftir því að fá mánaðarskammtinn
sinn af brennivíni, ávöxtum og
sykri. Lengi vel var greitt út í hönd
eða tekið út í reikning, síðan tóku
ávísanirnar við og tilheyrandi mis-
ferli. Greiðslukortið kom til sög-
unnar á fýrrihluta síðasta áratugar
og þjóðin eyddi laununum sínum
nokkra mánuði fram í tímann. En
nú er öld raffænu viðskiptanna
runnin upp með innra eftirliti
þannig að enginn kemst upp með
annað en að eiga fýrir því sem
hann hyggst kaupa. Það er því ekki
hægt lengur að kaupa sér stundar-
ffið fyrir krepputalinu og tóma-
hljóðinu í buddunni.
Smaladrengurinn - Lyklabamið
Einhverjir af þeim sem tóku þátt í
samkeppninni um nýjan þjóðbún-
ing fýrir karla reyndu að vekja
smaladrenginn til lífsins. En hvaða
sauða á sá drengur að gæta? Smala-
drengurinn hefur raunar varla ver-
ið til á lýðveldistímanum nema
sem sumarævintýri borgarbarns-
ins. Lyklabarnið gekk svo endan-
lega af honum dauðum þegar kon-
ur þustu út á vinnumarkaðinn á
áttunda og níunda áratugnum. Nú
er það hins vegar að hverfa inn í
öryggi skóladagheimilinna og
heilsdagsskólans.
Sveitasíminn - Farsíminn
Fyrst lögðust fslendingar gegn tals-
ímanum. Síðan lágu þeir á hleri í
áratugi í sveitasímanum. Og nú
liggja þeir í farsímanum allan dag-
inn.
Tepruskapurinn - Hjálpartæki
ástarlífsins
Með „ástandinu" komst kynlífs-
býlisbúar hafa sennilega aldrei ver-
ið ákafari í að komast út í sveit en í
dag til að hvíla sig á amstri hvers-
dagsins. En þeir eru ekki lengur
sveitamenn. Þeir húka inni í sum-
arbústað og heyra því ekki fugla-
sönginn, þeir finna
ekki anganina fýrir
grillfftyknum og þeir
sjá ekki sveitina fýrir
öllum öspunum sem
þeir eru búnir að
gróðursetja.
Neftóbakið - Nik-
ótínplástramir
Að taka í nefið og gefa
öðrum með sér nokk-
ur korn var í senn fé-
lagsleg athöfn og lík-
amleg nautn. Nú er
þessi siður nánast
horfinn og neftóbakið illa séð og
talið baneitrað. Það er svolítið
skrítið í ljósi þess að neftóbakskarl-
arnir urðu karla elstir. Nú vill eng-
inn sjá nikótín nema þá helst í
plástrum sem eiga að venja menn
af fikninni.
Penninn - Tölvan
Ein var sú íþrótt sem þótti öðrum
æðri og það var að skiptast á bréf-
um við vini og ættingja. Lögðu
menn jafnan nokkuð upp úr rit-
höndinni og þeir nutu virðingar
sem voru vel ritfærir. Síðan kom
ritvélin og þá var eins og fólk fengi
ekki lengur andann yfir sig og átti
erfiðara með að skrifa sendibréf.
Með tölvunni og faxtækinu hefur
þessi siður nánast lagst af. Það er
helst að menn sendi hver öðrum
tölvupóst í skeytastíl.
Rónamir-SÁÁ
Eitt af því sem gert hefftr miðbæ-
inn sviplausan er hvarf rónanna.
Einu sinni voru þeir í Hafnarstræti,
síðan undir Ingólfi á Amarhóli.
Þeir síðustu halda helst til við
Tjörnina í námunda við ráðhúsið.
Nú er hálf þjóðin búin að fara í
meðferð og efniviðurinn í staðfasta
róna, sem héldu því ffam og trúðu
því sjálfir að lífsmáti þeirra væri
hámark frelsisins, varla fýrir hendi
lengur.
Sauðkindin - Ferðamaðurinn
Sauðkindin nýtur ekki lengur virð-
ingar á Islandi. Fólk er meira að
segja frekar farið að éta svín og fið-
urfé. Þegar ríkið setti kvóta á
bændur og fór að skammta þeim
sultarlaun, eftir vonlaus loðdýra-
og fiskeldisævintýri, var þrauta-
lendingin sú að gera hreinlega út á
Reykjavíkurpakkið, ferðamanna-
umræða fýrst upp á yfirborðið á Is-
landi. En hún einkenndist af for-
dæmingu, hræsni og tepruskap.
Eftir stríð var eins og allir skömm-
uðust sín vegna ástarstandsins í
stríðinu og kynlíf varð tabú á ný.
Hipparnir breyttu þessu með til-
raunastarfsemi sinni og endalaus-
um árásum á helg vé. Frjálslyndið
hélst en svo kom alnæmi til sög-
unnar og fjöllyndi varð ófínt. Til að
halda uppi dampinum í kynlífinu
og halda því veí krydduðu innan
sambandsins var þá farið að flytja
inn allra handa hjálpartæki, frá
titrurum til uppblásinna dúkka.
Spur, Sinalco, Mirinda og Póló -
Diethittogþetta
Þrátt fýrir að ffamboð og fjöl-
breytni neysluvarnings hafi aukist
gífurlega á lýðveldistímanum á það
ekki við um gosdrykkina. Og það
sem verra er — þeir eru orðnir ka-
rakterlausir og heita allir diet-þetta
og diet-hitt.
Hver saknar ekki Sítróns, Spurs,
Sinalcos, Mirinda og Pólós sem
þeir sviptu okkur síðast?
Sunnudagsmaturinn -
Skyndifæðið
Eftir að íslendingar
komust í sæmilegar
álnir gerðu þeir vel
við sig í mat í há-
deginu á sunnudög-
um. Nú er lamba-
lærið, með brúnu
sósunni, grænu
baununum og sykurbrúnuðu kart-
öflunum, horfið og eldhúsið stend-
ur autt á þessum tíma. Pítsurnar,
hamborgararnir og austurlenski
maturinn er kominn í staðinn - -
en á kvöldin.
Sveitadvölin - Sumarnámskeiðin
Fram á áttunda áratuginn voru
flest borgarbörn send í sveit. Það
þótti manna þau og kenna þeim
um hvað lífið snýst. Nú þola borg-
arbörnin ekki fjósafýluna og fara
ffekar á sumamámskeið hjá
íþrótta- og tómstundaráði. Um
leið hefur gjáin milli dreifbýlis og
þéttbýlis breikkað og þjóðirnar
tvær í landinu eru nánast hættar að
skilja hvor aðra.
Þarfasti þjónninn - Fjórhjólið
Hesturinn er ekki lengur nauðsyn-
legur íslendingum, hvorki til að
komast í kaupstað né til að smala.
Bændur hafa stigið á bak fjórhjól-
inu til að snudda í kringum þær
fáu skjátur sem eftir eru. Eins og
megnið af búaliðinu er hesturinn
fluttur í bæinn.
Styrmir Guðlaugsson
(Lýðveldis- j
saga fyrir
byrjendur
1956
Hermann Jónasson myndar vinstri-
stjóm með krötum og kommum.
Vilhjálmur Einarsson kemst á verð-
launapall á Ólympiuleikum fyrstur ís-
lendinga þegar hann stekkur 16,25
metra I þrístökki I Melboume. Þar að
auki átti Vilhjálmur ólympíumet I
klukkutíma.
Alþingi ályktar að bandariski herinn
fari úr landi. Hann fór hvergi.
1957
Ferró, ungur íslenskur listmálari, sýnir
150 myndir I Listamannaskálanum.
Stöðumælar teknir í notkun í Reykja-
vik.
Árbæjarsafn opnað.
íþróttaleikvangurinn í Laugardal
tekinn I notkun með landsleik islands
og Noregs I fótbolta. Við töpuðum,
3-0.
1958
Fiskveiðilögsagan færð út í 12 mílur.
Bretar senda herskip á miðin til að
vernda sína menn en öll önnur ríki við-
urkenna ákvörðun íslendinga. Þorska-
strið sameinar þjóðina. Mótmæli við
breska sendiráðið enda með rúðu-
brotum.
Steinn Steinarr skáld deyr, fimmtug-
ur að aldri.
Friðrik Ólafsson, 24 ára, útnefndur
fyrsti stórmeistari íslands í skák.
Vinstri stjóm Hermanns Jónassonar
fer frá völdum. Alþýðuflokkur myndar
minnihlutastjórn sem sjálfstæðismenn
verja vantrausti. Grunnur lagður að
Viðreisninni.
1959
Uppstokkun á kosningakerfinu.
Landinu skipt í átta kjördæmi.
Ólafur Thors myndar fimmtu ríkis-
stjóm sína þegar Alþýðuflokkur og
Sjálfstæðisflokkur fara í eina sæng.
Þar með hefst lengsta samfellda ríkis-
stjómarsamstarf lýðveldistímans. Við-
reisnin entist í tólf ár.
Sigurbjöm Einarsson kjörinn biskup
yfir íslandi.
Togarinn Júlí ferst með þrjátíu manns
við Nýfundnaland.
1960
Lögregluþjónn í Reykjavík settur í
varðhald eftir að hafa hótað lögreglu-
stjóranum lífláti í nafnlausu bréfi.
Selma Jónsdóttir listfræðingur verð-
ur fyrsta konan til að verja doktorsrit-
gerð við Háskóla íslands.
Skipverjar á vélbátnum Hagbarði
setja í almennilegan stórlax suður af
Grímsey. Hann mælist 88 pund og litl-
ir 173 sentimetrar.
1961
Þorskastriðinu lýkur með sigri íslend-
inga.
Þórunn Jóhannsdóttir píanósnilling-
ur giftist öðmrn píanósnillingi, Rússan-
um Vladimir Askenazi.
Leitin langa hefst. Á Skeiðarársandi
byrja bjartsýnir menn að leita að hol-
lensku Indíafari sem fórst árið 1667:
þar mun gull og ýmsa dýrgripi að
finna.
Borgardómari dæmir ríkissjóð til að
greiða skáldinu góðkunna, Vilhjálmi
frá Skáholti, 60.000 krónur vegna vist-
unar á Kleppi í tíu mánuði.
Yuri Gagarín, geimfari, hetja og fyrir-
mynd æskunnar, hefur viðdvöl á Is-
landi.
Ragnar Jónsson í Smára gefur Al-
þýðusambandi (slands 120 listaverk,
flest eftir öndvegis listamenn, og þar
með er grunnur lagður að Listasafni
ASÍ.
1962
Skipverjar á Goðafossi handteknir i
New York fyrir að reyna að smygla
írskum happdrættismiðum til Banda-
ríkjanna. Ándvirði miðanna er sex og
hálf milljón dollara.
Hótel Saga tekin í notkun.
Morgunblaðið birtir leyniskýrslur SfA,
Sósíalistafélags (slendinga, austan-
tjalds.
Tékka nokkrum vísað úr landi fyrir
njósnatilburðj. Hann reyndi meðal
annars að fá íslending í lið með sér til
að afla upplýsinga um herinn í Kefla-
vik.
79 af stöðinni frumsýnd. Gerð eftir
sögu Indriða G. Þorsteinssonar.
Bandariskur þingmaður kvartar yfir
þeirri mynd sem dregin er upp af
varnariiðsmönnum í kvikmyndinni.
FIMMTUDAGURINN 16. JÚNÍ1994 PRESSAN 17