Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 1
Glaðir á
góðri stund
Blaðamenn gera sér dagamun á
Pressuballi | Fólk
Sívinsæll
barón
Sígaunabaróninn frumsýndur
í Íslensku óperunni | Listir
Fólkið í dag
Erum við nakin án bókarinnar?
Hugmyndabarátta á tölvuskjám
Taflborð á tánum
STOFNAÐ 1913 110. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
SÉRSVEITIR grísku lögreglunnar eru hér að
æfa sig undir Ólympíuleikana í Aþenu í sumar en
öryggisviðbúnaður vegna þeirra verður sá mesti
í sögunni. Tekur meira en helmingur grísks ör-
yggis- og löggæsluliðs, meðal annars sérsveit-
anna, lögreglunnar og strandgæslunnar, þátt í
honum. Eru útgjöld Grikkja vegna öryggisgæsl-
unnar einnar áætluð um 57 milljarðar íslenskra
króna.
Reuters
Sérsveitir æfa fyrir Ólympíuleikana
ANNE Krueger, starfandi yfirmaður
IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
hvatti í gær ríkisstjórnir til að sýna
aukið aðhald þar sem búast mætti við,
að vextir færu hækkandi.
Már Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabanka Íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
kæmi til vaxtahækkana erlendis
myndi það óhjákvæmilega hafa nei-
kvæð áhrif á viðskiptajöfnuð þjóðar-
innar við útlönd. Krueger sagði, að
því er fram kemur í AFP-frétt, að al-
mennt horfði vel í heimsbúskapnum
en IMF spáir því, að hagvöxtur í
heiminum verði 4,6% á þessu ári, sá
mesti frá 2000, og 4,4% á næsta ári.
Sagði hún, að þessar góðu horfur
ættu ríkisstjórnir að nýta sér og grípa
strax til aðhaldsaðgerða í því skyni að
búa sig undir væntanlegar vaxta-
hækkanir. Alan Greenspan, seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna, hefur
einnig verið að búa stjórnvöld þar í
landi undir vaxtahækkanir í því skyni
að koma í veg fyrir vaxandi verð-
bólgu. Már sagði ljóst, að vextir er-
lendis hefðu verið í sögulegu lág-
marki að undanförnu og af því
hefðum við notið góðs, enda greiðslur
af erlendum lánum verið lægri en ella.
Sagði hann, að kæmi til vaxtahækk-
ana eins og búist væri við, myndi það
hafa neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð
okkar við útlönd.
Íslendingar skulda mikið fé í út-
löndum og komið hefur fram, að ís-
lenskar lánastofnanir hafi á síðasta
ári tekið allt að 300 milljarða kr. að
láni á erlendum markaði. Sagði Már,
að það fé hefði verið endurlánað og
því myndi væntanleg vaxtahækkun
bitna á þeim, sem við því hefðu tekið,
íslensku atvinnulífi og einstaklingum.
IMF býst við hærri vöxtum
Hefði neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð Íslendinga segir Már Guðmundsson
ÓTTAST er, að allt að 3.000 manns
hafi látist eða slasast er tvær lestir
hlaðnar eldsneyti rákust á og
sprungu í loft upp í Norður-Kóreu í
gær. Suður-kóreska fréttastofan
Yonhap hafði eftir heimildum í Kína,
að lýst hefði verið neyðarástandi á
svæðinu en yfirvöld í N-Kóreu vilja
ekkert segja og hafa rofið öll fjar-
skipti við svæðið.
Sprengingin var svo öflug, að lest-
arstöðin í borginni Ryongchon, sem
er nokkuð fyrir sunnan kínversku
landamærin, gjöreyðilagðist en níu
klukkustundum áður hafði Kim
Jong-Il, leiðtogi N-Kóreu, farið um
hana á leið heim frá Kína.
Yonhap sagði, að lestarstöðin og
nærliggjandi svæði væru rústir ein-
ar eins og eftir gífurlega sprengju-
hríð. Hefði sprengingin verið svo
óskapleg, að alls konar rusl hefði
borist hátt í loft upp og fallið síðan til
jarðar í Sinuju, sem er norður-kór-
eskur bær rétt sunnan við kínversku
landamærin.
Fréttastofan sagði, að margt slas-
að fólk hefði verið flutt til kínversku
borgarinnar Dandong, sem er við
landamærin. Um hana fara margir
Kínverjar, aðallega kaupmenn, sem
stunda viðskipti í Ryongchon, og því
er óttast, að einhverjir þeirra kunni
að vera meðal hinna látnu.
Slysið átti sér stað um miðjan dag
í gær að staðartíma en lestirnar voru
að flytja bensín og gas. Sagt er, að
gasið hafi verið gjöf frá Kínverjum
en í N-Kóreu er mikill orkuskortur
og efnahagslífið í kaldakoli. Eru bil-
anir í lestum og lestakerfinu mjög al-
gengar og sjaldgæft, að lestirnar séu
á réttum tíma.
Í Suður-Kóreu hafa sumir getið
sér til, að sprengingin hafi verið
banatilræði við Kim Jong-Il en
stjórnvöld þar vísa því á bug og segj-
ast viss um, að hún hafi verið slys.
Mikið mannfall í spreng-
ingu í Norður-Kóreu
Eldsneytislestir sprungu í loft upp
við árekstur og gjöreyddu lestarstöð
Seoul. AP, AFP.
ÁÆTLUÐ velta fyrirtækjanna inn-
an Air Atlanta-hópsins er yfir einn
milljarður dala á þessu ári eða tæp-
lega 73,8 milljarðar íslenskra króna.
Þetta kom fram í ræðu sem stjórn-
arformaður og aðaleigandi Atlanta-
flugfélagsins, Magnús Þorsteinsson,
flutti í gær í Shannon á Írlandi þegar
Air Atlanta Aero Engineering, við-
haldsfyrirtæki Air Atlanta-hópsins,
tók formlega til starfa. Til saman-
burðar má nefna að rekstrartekjur
Flugleiða í fyrra námu 37,5 milljörð-
um króna.
Atlanta ásamt tengdum fyrirtækj-
um hefur vaxið mikið á síðustu miss-
erum og í máli Magnúsar kom fram
að áætlað væri að innri vöxtur hóps-
ins yrði 10–15% á ári. Að auki myndi
fyrirtækið eflast með kaupum á öðr-
um fyrirtækjum eins og það hefur
gert síðastliðna sextán mánuði.
Í samtali við Morgunblaðið stað-
festi Magnús að rekstur félaganna
innan Atlanta-hópsins hefði farið
batnandi. Hann sagði að hópurinn í
heild hefði skilað hagnaði í fyrra en
reksturinn gengið misvel eftir fé-
lögum.
Veltan áætl-
uð 74 millj-
arðar í ár
Shannon á Írlandi. Morgunblaðið.
Atlanta/12
Air Atlanta-hópurinn
FRÁ og með 12. júní á næsta ári og
til júlíloka 2006 verða ökumenn að
greiða sérstakan skatt til að komast
inn í Stokkhólm. Sex vikum síðar
verður efnt til almennrar atkvæða-
greiðslu meðal borgarbúa um hvort
halda skuli skattheimtunni áfram.
Skatturinn á að taka til allra, sem
til borgarinnar koma, hvort sem
þeir búa þar eða ekki, og verður á
bilinu 95 til 190 ísl. kr. eftir því hve-
nær dagsins er. Tilgangurinn er að
draga úr umferðarþunganum og
þar með menguninni en leigu-
bifreiðar og strætis- og fólksflutn-
ingabifreiðar yfir ákveðnum þunga
verða undanþegnar skattinum.
Komið verður upp rafrænum eft-
irlitsbúnaði við alla vegi inn í
Stokkhólm og í hvert sinn sem hann
skráir bílnúmer, verður eiganda
bifreiðarinnar sendur reikningur.
Árangurinn af líku kerfi í Lond-
on er sá, að umferðarþunginn hefur
minnkað um 18% og umferð-
arhnútum fækkað um 30%
Umferð til
Stokkhólms
skattlögð
Stokkhólmi. AP.
♦♦♦