Morgunblaðið - 23.04.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
w
w
w
.jp
v.is
T V Ö M E I S T A R A V E R K
Í K I L J U
kr. 1.790
kr. 1.790
STEFNT er að því að lyfta fjölveiði-
skipinu Guðrúnu Gísladóttur upp af
hafsbotni við Lófóten í Norður-Nor-
egi á næstu dögum. Forsvarsmenn
norsku strandgæslunnar og björg-
unarfélagsins Seløy funduðu á
þriðjudag með yfirvöldum í sveitar-
félögum sem næst eru strandstaðn-
um og gerðu grein fyrir framgangi
björgunar Guðrúnar. Fyrirtækið
Seløy, sem sér nú um björgun skips-
ins fyrir hönd norskra stjórnvalda,
vonar að skipið verði komið að
bryggju 15. maí nk. þar sem þúsund-
um lítra af olíu verður dælt úr því.
Á vef norska dagblaðsins Avisa
Nordland á miðvikudag var sagt frá
því að undirbúningur björgunarinn-
ar væri nú í fullum gangi og að 12
kafarar væru m.a. að störfum við
flakið. Gott veður var á strandstaðn-
um í gær og segir á vefnum að hald-
ist veðrið gott verði hægt að lyfta
skipinu fljótlega, en hingað til hefur
slæmt veður hamlað björgunarað-
gerðum. Í fréttinni er haft eftir Ottar
Longva hjá norsku strandgæslunni
að fengist hafi staðfest frá íslenska
fyrirtækinu Festi að það muni taka
ábyrgð á flakinu eftir að því hefur
verið komið upp af hafsbotni. Ekki
náðist í forsvarsmenn Festar í gær
til að staðfesta fréttina.
Verður híft upp í
þremur áföngum
Haft er eftir Hans Marius Mast-
ermo, framkvæmdastjóra björgun-
arfyrirtækisins Seløy, á fréttavef
dagblaðsins Lofotposten, að hann sé
viss um að félagið nái Guðrúnu upp.
Ætlunin sé að hífa það upp að yf-
irborðinu í þremur áföngum, 10–12
metra í hverjum. Milli hífingarlota
verði skipinu mjakað í kafi upp að
landi við Tarholmen en þangað eru
rúmar tvær sjómílur frá þeim stað
sem skipið liggur á hafsbotni nú.
Reiknað er með að Guðrún Gísla-
dóttir verði komin á flot við Tar-
holmen við Lófót og hafist verði
handa við að tæma það 15. maí. Í
skipinu séu 340.000 lítrar af dísilolíu,
2.000 lítrar af þungri hráolíu, fleiri
þúsund lítrar af smurolíu og 1.500
tonn af síld í lestum. Enginn leki
mun hafa verið frá skipinu til þessa,
að sögn Lofotposten.
Guðrún strandaði 18. júní árið
2002 og sökk daginn eftir fyrir utan
bæinn Ballstad í Lófót. Íslenskir
aðilar gerðu ítrekaðar tilraunir til að
ná skipinu upp og bjarga því en sl.
haust tóku norsk stjórnvöld björg-
unina yfir.
Björgun Guðrúnar Gísladóttur komin á skrið aftur
Skipið á að verða kom-
ið að bryggju 15. maí
Ljósmynd/Willy Hauge/Fiskaren
Guðrún Gísladóttir á strandstað fyrir utan Ballstad í Lófót.
BJÖRN Bjarnason dómsmála-
ráðherra segist ekki hafa hug-
leitt þá lausn sérstaklega, sem
Sigfús Jónsson, framkvæmda-
stjóri Nýsis, setti fram í Morg-
unblaðsviðtali í gær, að Land-
helgisgæslan ætti að bjóða út
varðskip í einkaframkvæmd, en
ráðherra finnst hún ekki fjarlæg-
ari en margt annað.
Matsatriði í hverju
einstöku tilviki
„Ég hef verið hlynntur sam-
starfi hins opinbera og einkaaðila
á öllum sviðum og tel ekki nauð-
synlegt, að ríkið eigi öll tæki sem
það notar frekar en allt húsnæði
undir opinbera starfsemi. Þetta
er matsatriði í hverju einstöku
tilviki miðað við þá kosti, sem í
boði eru. Ég hef ekki hugsað
þessa lausn sérstaklega varðandi
varðskip en finnst hún ekki fjar-
lægari en margt annað, sem
menn velta fyrir sér,“ segir
Björn.
Hann segir hins vegar að til að
taka afstöðu til málsins, þurfi
hann að vita meira en hann geri á
þessari stundu eftir eitt viðtal í
Morgunblaðinu.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
Ekki nauðsynlegt
að ríkið eigi öll
tæki sem það notar
SKIPVERJAR á varðskipinu Ægi
náðu að bjarga þessari branduglu
þar sem þeir voru í vondu veðri um
50 sjómílur út af Hornafirði. Uglan
hafði sest á skipið og var mjög
dregið af henni en þegar skipverj-
arnir reyndu að ná henni flaug hún
aftur af stað.
Mikið hvassviðri var á þessum
slóðum og sáu skipverjar að lítið
miðaði hjá uglunni. Brugðu þeir þá
á það ráð að sigla skipinu undir
fuglinn svo hann gæti lent aftur. Þá
náðist að fanga hana og gefa henni
kjötmeti sem hún kunni vel að
meta. Óskar Sigurðsson vitavörður
í Stórhöfða merkti fuglinn sem síð-
ar var sleppt frá skipi og tók gott
útsýnisflug yfir Heimaey áður en
hún hvarf aftur á haf út.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Skipverji á Ægi með ugluna góðu.
Branduglu
bjargað
Vestmannaeyjar. Morgunblaðið.
OPINBER nefnd um mótun stefnu
við nýtingu auðlinda hafsins í
Bandaríkjunum hefur lagt til leiðir
við veiðistjórnun sem byggjast á
þeim aðferðum sem beitt hefur ver-
ið hérlendis um árabil. Það er út-
hlutun varanlegra fiskveiðiheimilda
og áherzla á vísindalegt mat á veiði-
þoli fiskistofna og líta fremur á vist-
kerfið í sjónum í heild, heldur en
einstaka fiskistofna og að nýtingin
verði sjálfbær. Nú þegar er ein-
staka veiðum stjórnað með fram-
seljanlegri aflahlutdeild til fiski-
skipa.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir þessar tillögur að
miklu leyti sambærilegar við ís-
lenzku leiðina og ljóst að lagt sé til
að úthlutað verði varanlegum veiði-
heimildum eins og hér við land með
áherzlu á það að um rétt til veiða sé
að ræða en ekki eignarrétt á fiski-
stofnunum í hafinu.
Vandi á ferðum í höfunum
við Bandaríkin
Árni kom á sínum tíma á fund
nefndarinnar, sem er undir forystu
James D. Watkins aðmíráls, en í
nefndinni á einnig sæti Andrew
Rosenberg, sem meðal annars hefur
unnið með íslenzka sjávarútvegs-
ráðuneytinu og Hafrannsóknastofn-
un á undanförnum misserum.
Watkins segir að það sé vandi á
ferðum í höfunum við Bandaríkin og
við strendur þess, en nú gefist þjóð-
inni tækifæri til að koma fram með
jákvæðar breytingar áður en það
verði um seinan.
Helztu niðurstöður nefndarinnar
eru á þá leið að stofna þurfi sérstakt
þjóðarráð um höfin undir forseta-
embættinu og að styrkja þurfi þá
þætti stjórnkerfisins sem snúi að
því að stjórna nýtingu auðlinda
hafsins.
Svæðisbundin stjórnun
Það þurfi að byggja upp svæð-
isbundna fiskveiðistjórnun, það
þurfi að tvöfalda framlög til haf-
rannsókna, það þurfi að bæta og
byggja upp eftirlitskerfið og það
þurfi að setja markmið um að draga
úr mengun.
Þá segir að endurskoða þurfi fisk-
veiðistjórnunina með því að skilja
að mat vísindamanna á veiðiþoli og
úthlutun veiðiheimilda, endurbæta
svæðisbundna fiskveiðistjórnun og
nýta betur þá leið sem felist í útgáfu
varanlegra veiðiheimilda.
Bandarísk nefnd leggur til
úthlutun varanlegra heimilda
Eru að fara sambærilega leið og við
segir sjávarútvegsráðherra
ÚTHAFSKARFAVERTÍÐIN á
Reykjaneshrygg fer illa af stað og er
engin veiði hjá íslensku skipunum
sem eru á miðunum.
„Við höfum ekki fundið neinn
karfa. Þetta er bara eitt stórt núll
með gati,“ sagði Guðmundur Jóns-
son, skipstjóri á Vilhelm Þorsteins-
syni EA, fjölveiðiskipi Samherja, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Sömu sögu var að segja af
hinum skipum. „Við erum búnir að
vera hérna í fimm daga og það hefur
ekkert veiðst,“ segir Guðmundur.
Sjö íslensk skip voru í gær á mið-
unum á Hryggnum og að sögn Guð-
mundar eru um 40 erlend skip að
veiðum rétt fyrir utan 200 mílna
landhelgislínuna og hafa þau haldið
sig fyrir utan, að sögn hans.
Mokveiði á sama tíma fyrir ári
„Þetta er dapurt eins og er en
maður verður bara að vona að það
rætist eitthvað úr þessu. Við byrj-
uðum betur í fyrra en þá var mok-
veiði á þessum tíma. Við munum
reyna að leita áfram,“ sagði Guð-
mundur.
Úthafskarfakvótinn á Reykjanes-
hrygg er á þessu ári um 120 þúsund
tonn.
Engin karfaveiði á
Reykjaneshrygg
Bara eitt
stórt núll
HRÆ af hnísu, sem rekið hafði upp í
fjöruna í Viðey varð á vegi Ragnars
Sigurjónssonar, ráðsmanns í Viðey, í
gær þegar hann var á eftirlitsferð að
skoða hvernig göngustígarnir kæmu
undan vetri. „Hræið liggur undir
Norðurklöppunum, langt uppi í fjör-
unni, ekki langt frá göngustígunum.
Það sést þó ekki frá stígunum, held-
ur verður að fara fram á brúnina og
vita hvert á að horfa,“ segir Ragnar.
„Það hefur legið þarna nokkuð
lengi og er farið að lykta allnokkuð,
en fuglinn hefur talsvert sótt í það,“
sagði Ragnar. Hnísan er rétt rúmir
tveir metrar að lengd og segist
Ragnar ekki áforma að biðja um að
hræið verði fjarlægt. „Það væri mik-
ið mál að ná í hræið, það er vond að-
koma af sjó og erfitt að fjarlægja
það,“ segir Ragnar.
Hnísan í fjörugrjótinu í Viðey.
Hnísu rekur
í Viðey
ÖKUMAÐUR bifhjóls var
fluttur með sjúkrabíl á slysa-
deild eftir árekstur við jeppa á
Tunguvegi við Bústaðakirkju
um klukkan hálf fimm í gær-
dag.
Bifhjólamaðurinn, sem er á
þrítugsaldri, klemmdist undir
bílnum við áreksturinn. Sam-
kvæmt upplýsingum læknis var
maðurinn meðvitundarlaus
þegar komið var með hann á
slysadeild en engir alvarlegir
áverkar fundust. Var hann síð-
an fluttur á gjörgæsludeild til
frekari rannsóknar og eftirlits.
Bifhjóla-
maður á
slysadeild