Morgunblaðið - 23.04.2004, Side 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 13
Kynning á vor- og sumarfatnaði
vikuna 24.-30. apríl
Stærðir 40-52
Nýtt!
Heimilisilmur frá Marina Rinaldi
Gjöf til viðskiptavina
HVERFISGÖTU 6
101 REYKJAVÍK - SÍMI 562 2862
● BANDARÍKIN og Kína hafa náð
samkomulagi um nokkur af deilu-
málum sínum vegna milliríkja-
viðskipta. Í samkomulagi, sem und-
irritað var í Washington á miðvikudag,
heita kínversk stjórnvöld því að grípa
til harðari aðgerða til að hindra þar-
lend fyrirtæki í að brjóta höfundarrétt
með ólöglegri afritun og eftirlíkingum
af bandarískum vörum, til dæmis
kvikmyndum og tölvuforritum. Þá
heita Kínverjar því að opna í auknum
mæli flókið vörudreifingarkerfi lands-
ins fyrir erlendum fyrirtækjum.
Samkomulag náðist um að ryðja úr
vegi ýmsum hindrunum í vegi við-
skipta með iðnaðarvörur, en minni ár-
angur náðist á sviði landbúnaðarvara
og Kínverjar neituðu t.d. að aflétta
banni á innflutning fuglakjöts frá
Bandaríkjunum, sem sett var á eftir
að fuglaflensa kom upp vestra í febr-
úar. Þá verður aðeins slakað lítillega
á banni við innflutningi nautakjöts,
sem sett var á eftir að tilfelli kúariðu
greindist í Washington-ríki fyrir ára-
mót.
Anne Veneman landbún-
aðarráðherra Bandaríkjanna lagði á
blaðamannafundi áherzlu á að eftir
að Kína gekk í Heimsviðskiptastofn-
unina (WTO) hefði náðst mikill árang-
ur í að auka útflutning landbún-
aðarvara til Kína; hann hefði
þrefaldazt á tveimur árum.
Meiri halli er á viðskiptum Banda-
ríkjanna við Kína en nokkurt annað
ríki; 124 milljarðar dollara eða um
níu þúsund milljarðar króna.
Árangur í viðskipta-
viðræðum Banda-
ríkjanna og Kína
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
Sony í viðræðum
um kaup á MGM
● SONY Corp. á nú í viðræðum um
kaup á kvikmyndafyrirtækinu
Metro-Goldwyn-Mayer, að því er
The Wall Street Journal greindi frá á
miðvikudag. Bréf Sony lækkuðu í
kauphöllinni í New York við þessar
fregnir en bréfin í MGM hækkuðu.
Talið er að kaupverðið, verði af við-
skiptunum, geti orðið um fimm millj-
arðar dollara, eða um 370 milljarðar
króna. Heimildir WSJ hermdu að fjár-
festingarfélögin Texas Pacific Group
og Providence Equity Partners, sem
m.a. sýndi áhuga á að fjárfesta í
Símanum á sínum tíma, myndu taka
þátt í kaupunum með Sony.
Líklegt er talið að MGM yrði sam-
einað kvikmyndasviði Sony, Sony
Pictures Entertainment. MGM hefur í
tvö ár stefnt að því að stækka með
kaupum eða sameiningu við annað
fyrirtæki. Fyrirtækið, sem er að
þremur fjórðu í eigu auðmannsins
Kirk Kerkorian, reyndi í fyrra að
kaupa Universal Studios en án ár-
angurs.
Verði af sameiningunni, mun
MGM aftur fá aðgang að kvikmynda-
verum, sem það seldi Sony á sínum
tíma, en þar voru sögufrægar myndir
á borð við Á hverfanda hveli teknar.
● Í VIÐSKIPTABLAÐI Morgunblaðs-
ins á fimmtudag kom fram að félag í
eigu Einars Arnar Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Saxhóls ehf., ætti
meirihluta í Hótel Búðum á Snæ-
fellsnesi á móti félagi í eigu Hann-
esar Smárasonar, aðstoðarforstjóra
Íslenzkrar erfðagreiningar.
Hið rétta er að það er Saxhóll,
sem á hlutinn á móti félagi Hann-
esar. Fimm hluthafar eru í Saxhóli,
sem allir eiga jafnan hlut.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
ónákvæmninni.
Saxhóll á hlutinn
í Búðum
● MICROSOFT hyggst áfrýja ákvörð-
un framkvæmdastjórnar ESB í sam-
keppnismáli gegn fyrirtækinu, sem
tekin var í síðasta mánuði. Í Fin-
ancial Times er vitnað í minnisblað,
sem Microsoft hefur birt og lýsir
þeim röksemdum, sem fyrirtækið
hyggst nota í dómsmálinu. M.a.
halda lögfræðingar Microsoft því
fram að ákvörðun ESB eigi sér engin
lagaleg fordæmi, hún gangi á skjön
við raunveruleikann í viðskiptalífinu
og sé heldur ekki í samræmi við það
samkomulag, sem fyrirtækið náði
við samkeppnisyfirvöld í Bandaríkj-
unum. M.a. sakar fyrirtækið fram-
kvæmdastjórnina um að reyna að
búa til nýja löggjöf, sem dragi úr
hvata til rannsókna og þróunar, sem
sé nauðsynlegur fyrir hagvöxt í heim-
inum.
Microsoft
hyggst áfrýja