Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 15
KVIÐDÓMUR í Kaliforníu
hefur ákært bandaríska popp-
tónlistarmanninn Michael
Jackson fyr-
ir að hafa
beitt dreng
kynferðis-
legu ofbeldi
í febrúar og
mars í fyrra.
Lögmenn
Jacksons
segja að
hann muni
lýsa sig sak-
lausan þegar honum verður
lesin ákæran 30. þessa mánað-
ar. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær réttarhöldin hefjast.
Í yfirlýsingu frá lögmönnum
Jacksons segir: „Michael
hlakkar til að koma fyrir rétt
og vill færa milljónum aðdá-
enda sinna um heim allan
þakkir fyrir að hafa haldið
áfram að styðja hann á þessum
erfiða tíma.“
Jackson, sem er 45 ára, lýsti
sig í janúar saklausan af sjö
ákæruatriðum um ósæmilega
framkomu gagnvart barni und-
ir fjórtán ára aldri og tveimur
ákæruatriðum um að hafa gefið
barni áfengi.
271 féll
í Fallujah
TÖLUR sem birtar hafa verið
um mannfall í borginni Fall-
ujah í Írak fyrr í mánuðinum
eru stórlega ýktar að sögn
Khudayer Abbas, heilbrigðis-
ráðherra landsins. Ráðherrann
skýrði frá því í gær að 271
Íraki hefði týnt lífi í borginni
frá því að hernámslið Banda-
ríkjanna hóf umsátur um Fall-
ujah 5. þessa mánaðar. Þessi
tala ætti við um óbreytta borg-
ara og vopnaða uppreisnar-
menn. Áður hafði því verið
haldið fram að meira en 600
hefðu fallið í Fallujah og hefðu
flestir þeirra verið óbreyttir
borgarar. Ráðherrann fullyrti
að þrýst hefði verið á íraska
lækna um að ýkja mannfallið „í
pólitísku skyni“.
Hann sagði 576 Íraka hafa
fallið í bardögum í landinu það
sem af væri þessum mánuði.
Vilja fresta
vegabréfum
ÞEIR Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og
Tom Ridge, ráðherra heima-
varna, hafa hvatt Bandaríkja-
þing til að lengja frest þann
sem 27 ríkjum, þ.á m. Íslandi,
hefur verið gefinn til að taka
upp nýja gerð vegabréfa sem
ætlað er að auka öryggi.
Þetta kom fram á fundi
þeirra Powells og Ridge með
þingmönnum á miðvikudag.
Sögðu þeir yfirvöld í ríkjunum
27 vinna að því að uppfylla þau
skilyrði um nýja gerð vega-
bréfa sem ferðamenn þurfa að
hafa meðferðis hyggist þeir
komast inn í Bandaríkin.
Vegabréfin verða véltæk og
munu innihalda ýmsar per-
sónugreinandi, líffræðilegar
upplýsingar um handhafann.
Reglur um nýju vegabréfin
eiga að ganga í gildi 26. októ-
ber en þeir Powell og Ridge
lögðu til að fresturinn yrði
lengdur um tvö ár þar eð sýnt
væri að ekkert stærri ríkjanna
sem undir þessi lög yrðu seld
gæti tekið nýju vegabréfin upp
fyrir 26. okt.
STUTT
Jackson
ákærður
Michael Jackson
KRÓATÍA telst að mati fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins uppfylla sett skilyrði fyrir því
að hefja viðræður um fulla aðild að
sambandinu. Ivo Sanader, forsætis-
ráðherra Króatíu, fagnar þessum
áfanga á braut Króatíu til pólitísks
stöðugleika og velmegunar.
Sanader varaði hins vegar við því
að enn væri mikið verk óunnið áður
en leiðarenda yrði náð. En með
þessari niðurstöðu framkvæmda-
stjórnarinnar væri fyrsti mikilvægi
áfanginn í höfn
að því að koma
Króatíu í ESB.
Króatíustjórn
lagði inn umsókn
um inngöngu í
Evrópusamband-
ið í febrúar 2003,
en nokkrar tafir
hafa orðið á af-
greiðslu umsókn-
arinnar vegna kvartana – m.a. frá
Bretum og Hollendingum – um að
króatísk stjórnvöld sýni ekki nægj-
anlegan samstarfsvilja við stríðs-
glæpadómstólinn í Haag, þar sem
réttað er yfir mönnum sem grun-
aðir eru um að hafa gerzt sekir um
stríðsglæpi í stríðunum í gömlu
Júgóslavíu á fyrri hluta tíunda ára-
tugarins.
Hefur framselt
átta manns
Framkvæmdastjórnin telur hins
vegar Króatíustjórn það til tekna
Króatar uppfylla skilyrði fyrir aðild-
arviðræðum við Evrópusambandið
Zagreb, Brussel. AP, AFP.
að nýlega sá hún til þess að átta
Króatar, sem grunaðir eru um slíka
glæpi, yrðu framseldir til Haag.
Í úrskurði framkvæmdastjórnar-
innar segir ennfremur, að í Króatíu
sé við lýði virkt lýðræðiskerfi með
stöðugum stofnunum sem tryggi
réttarríki.
Króatar gera sér vonir um að fá
aðild árið 2007, á sama tíma og
Rúmenar og Búlgarar sem staðið
hafa í aðildarviðræðum síðan árið
2000.
Ivo Sanader