Morgunblaðið - 23.04.2004, Side 20
LISTIR
20 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í tilefni Viku bókarinnar efna Morgunblaðið og Vaka-Helgafell
til getraunaleiks. Frá þriðjudeginum 20. apríl til og með
mánudeginum 26. apríl birtist ein tilvitnun á dag úr verkum
Halldórs Laxness og spurt er úr hvaða verki viðkomandi til-
vitnun er.
Þátttakendur senda inn svörin sín í lok getraunarinnar.
Frestur til að senda inn lausnir er til 30. apríl.
Dregið verður úr öllum innsendum lausnum og munu 10
þátttakendur, sem svara öllu rétt, hljóta í verðlaun bókina
Perlur í skáldskap Laxness.
Þú getur kynnt þér Nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Lax-
ness og verk hans á mbl.is undir Fólkinu. Þar er að finna
umfjöllun um skáldið, verk hans, umsagnir og margt fleira.
Sendu svörin til okkar. Utanáskriftin er:
Morgunblaðið
Getraunaleikur
- Halldór Laxness -
Kringlan 1,
103 Reykjavík
„Mér var kennt að trúa aldrei orði sem
stendur í blöðum, og aungvu nema því
sem stendur í íslendíngasögum ...“
GETRAUNALEIKUR
- Halldór Laxness
4. tilvitnun:
ÓPERUSTÚDÍÓ Listaháskóla Ís-
lands og Íslensku óperunnar frum-
sýnir gamanóperuna Sígaunabarón-
inn eftir Johann Strauss yngri í
Íslensku óperunni í kvöld kl. 20. Í
stuttu máli greinir óperan frá Sánd-
or Barinkay sem snýr til baka til
Ungverjalands til að endurheimta
eignir látins föður síns. Svínabónd-
inn Zsupán stendur hins vegar í vegi
fyrir því, þar sem hann hefur sjálfur
sölsað undir sig hluta af eignunum.
Barinkay verður ástfanginn af
sígaunastúlkunni Saffi og þau láta
gefa sig saman á sígaunavísu. En
þegar Barinkay kemst að því að Saffi
er tiginborin skráir hann sig í herinn
þar sem hann telur sig ekki vera
henni samboðinn. Við heimkomuna
úr herþjónustu endurheimtir Bar-
inkay að lokum eignir sínar og hlýtur
barónstign vegna frækilegrar fram-
göngu sinnar með hernum á Spáni.
Saffi tekur manni sínum opnum örm-
um þegar hann loks snýr heim.
Aðspurð segir Mist Þorkelsdóttir,
deildarstjóri tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands, uppfærsluna á
Sígaunabaróninum vera afrakstur
samstarfssamnings sem gerður var
milli Listaháskóla Íslands og Ís-
lensku óperunnar síðasta haust.
„Okkur þótti gagnlegt fyrir söng- og
tónlistarnemendur að fá að kynnast
því hvernig það er að vinna í atvinnu-
umhverfi og veita nemendum þannig
áþreifanlega reynslu af óperustarfi,
því það þarf ekki aðeins að æfa verk-
ið heldur þarf að huga að ljósum,
búningum, sviðshreyfingum og svo
ótal mörgu fleiru. Bjarni Daníelsson
óperustjóri tók strax mjög vel í hug-
myndina og ákveðið var að hrinda
þessari tilraunastarfsemi í gang nú á
vormánuðum.“
Mist segir vinnuna við uppsetn-
inguna hafa verið mjög skemmtilega.
„Hún hefur verið krefjandi og afar
lærdómsrík fyrir alla sem hafa tekið
þátt í þessu. Það sem kemur út úr
þessu er mjög heilsteypt og
skemmtileg sýning. Þetta er mjög
fjölskylduvæn sýning, enda er þetta
gamanóperetta og mikill talaður
texti, en óperan er bæði leikin og
sungin á íslensku. Ég er sannfærð
um að sýningin höfði til allra aldurs-
hópa og því er þetta kjörið tækifæri
fyrir foreldra til að fara með börnin
sín í óperuna til að kynna þeim
hvernig er að fara í óperu,“ segir
Mist og ítrekar að ókeypis sé á allar
sýningarnar og allir séu velkomnir
meðan húsrúm leyfi.
Miðlum sögu í tali og tónum
Meðal einsöngvara í óperunni eru
Þórunn Elín Pétursdóttir og Jóhann-
es Haukur Jóhannesson, en þau eru
bæði nemendur við Listaháskóla Ís-
lands, Þórunn Elín við tónlistardeild-
ina og Jóhannes við leiklistardeild-
ina. Þórunn Elín fer með hlutverk
sígaunastúlkunnar Saffi og lýsir
henni sem frjálslegri stúlku með
mikinn húmor. „Hún er í raun and-
stæða borgarstúlkunnar og lítur á
sig sem sígaunastúlku þó síðar komi í
ljós að hún er af aðalsfólki komin.“
Aðspurð segir Þórunn þetta vera í
fyrsta sinn sem hún tekur þátt í
óperu. „Ég hef tekið þátt í leiksýn-
ingum, en þetta er fyrsta óperan sem
ég tek þátt í. Vissulega er margt líkt
í leikhúsvinnunni þar sem grundvall-
arhugsunin er sú sama, en samt er
líka margt sem er öðruvísi. Í óper-
unni þarf auðvitað allt að stjórnast af
tónlistinni og það heftir frelsið að
sumu leyti leiklega séð, en svo er aft-
ur á móti sumt sem er auðveldara
tjáð með söng.“
Spurð hvaða gildi það hafi að
kynnast óperustarfinu í þessu sam-
starfi við Íslensku óperuna segir
Þórunn það hafa verið ómetanlegt.
„Það er frábært að fá að vera í alvöru
óperuhúsi og njóta þeirrar leiðsagn-
ar sem við höfum hér fengið. Allt
starfsfólk hússins hefur verið boðið
og búið að aðstoða okkur og sem
dæmi má nefna að Kári Halldór
Þórsson, leiklistarráðunautur Óper-
unnar hefur t.d. verið óþreytandi við
að koma á æfingar og hjálpa með
ýmis leiktæknileg atriði,“ segir Þór-
unn Elín.
Jóhannes Haukur fer með hlut-
verk Peters Homonay greifa og er
þetta önnur óperan sem hann tekur
þátt í því hann söng í kórnum þegar
Sumaróperan setti upp Dídó og
Eneas fyrir tveimur árum. Jóhannes
kemur úr leiklistardeild Listaháskól-
ans er því eini einsöngvarinn í óperu-
uppfærslunni sem ekki er lengra
kominn í söng. „Að mínu mati er
óperan mjög áhugaverður vett-
vangur fyrir leiklist, því þetta er jú
allt sama batteríið.“ Inntur eftir því
hver sé helsti munurinn á því að taka
þátt í leiksýningu annars vegar og
óperu hins vegar segir Jóhannes
Haukur muninn eðlilega fyrst og
fremst felast í söngnum. „Því þetta
er afar tæknilegur söngur. Samt
snýst þetta auðvitað hvoru tveggja
um að miðla ákveðinni sögu, hvort
sem er í tali eða tónum. Maður verð-
ur auðvitað líka alltaf að passa sig á
því að gleyma sér ekki í því að hugsa
bara um sönginn, því það verður allt-
af að gæta ákveðins jafnvægis milli
leiksins og söngsins.“
Aðspurður segir Jóhannes þetta
framtak Listaháskólans og Íslensku
óperunnar afar lofsvert. „Það er
náttúrlega frábært að fá tækifæri til
að spreyta sig á hlutum sem maður
fengi öllu jöfnu ekki að takast á við.
Auk þess er mikilvægt að fá að kynn-
ast og vinna með krökkum úr bæði
öðrum skólum svo og öðrum deildum
í eigin skóla. Þessi blöndun sem á hér
stað í þessu verkefni er að mínum
dómi afar jákvæð því við lærum mjög
mikið hvert af öðru,“ segir Jóhannes
Haukur.
Með önnur einsöngshlutverk í
óperunni fara Árni Gunnarsson, Er-
lendur Elvarsson, Bragi Bergþórs-
son, Ólafía Línberg Jensdóttir, Sól-
veig Samúelsdóttir, Unnar Geir
Unnarsson, Steinunn Soffía Skjen-
stad, Bjarni Snæbjörnsson, Atli Þór
Albertsson, Orri Huginn Ágústsson,
Kjartan Sveinsson og Þórunn Arna
Kristjánsdóttir, en þau eru nem-
endur við ýmist Listaháskóla Ís-
lands, Tónlistarskólann í Reykjavík,
Nýja tónlistarskólann og Tónlistar-
skóla Kópavogs. Að auki tekur þátt
kammerkór óperustúdíósins sem
skipaður er þrettán söngnemum.
Hljómsveitin er skipuð tólf tónlist-
arnemum og er Gunnsteinn Ólafsson
hljómsveitarstjóri, en hann útsetti
tónlistina í samvinnu við Roar Kvam.
Elísabet Erlingsdóttir sá um stytta
gerð óperunnar, en leikstjóri upp-
færslunnar er Pétur Einarsson.
Næstu sýningar eru í Íslensku óper-
unni annað kvöld og sunnudagskvöld
kl. 20 bæði kvöld.
Krefjandi og
lærdómsríkt
fyrir alla
Gamanóperan Sígaunabaróninn eftir
Johann Strauss yngri verður frumsýnd í
Íslensku óperunni í kvöld, en uppsetningin
er afrakstur samstarfssamnings milli
Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunn-
ar. Silja Björk Huldudóttir ræddi við að-
standendur sýningarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Czipru spákona (Steinunn Soffía Skjenstad), sígaunabaróninn sjálfur (Er-
lendur Elvarsson) og sígaunastúlkan Saffi (Þórunn Elín Pétursdóttir).
silja@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
flytur Draum á Jónsmessunótt eftir
Felix Mendelssohn í kvöld kl. 19.30.
Einnig er á dagskrá Verklärte
nacht eftir Arnold Schönberg.
Hljómsveitarstjóri er Bernharður
Wilkinson. Fjöldi gesta leggur
hljómsveitinni lið á tónleikunum.
Valur Freyr Einarsson leikari,
verður sögumaður en söngvarar
eru þær Þóra Einarsdóttir og
Hulda Björk Garðarsdóttir, báðar
sópran, sem sjá má á æfingu hér að
ofan. Auk þess mun stúlknakórinn
Graduale Nobili koma fram undir
stjórn Jóns Stefánssonar.
Tónlistina samdi Mendelssohn
árið 1843 í tilefni af uppfærslu Kon-
unglega leikhússins í Berlín á þess-
um vinsæla gamanleik eftir Shake-
speare. Verkið er í 13 þáttum, best
þekktur þeirra er sá níundi, Brúð-
armarsinn svokallaði, sem gjarnan
er leikinn undir við útgöngu ný-
giftra hjóna. Valur Freyr mun lesa
úr þýðingum Helga Hálfdanar-
sonar og eru söngtextar sungnir á
þýsku.
Ef ekki bregzt mér ásýnd þín og klæði,
þá ertu hrekkjalómur sá hinn skæði
sem nefnist Hrói Heillakarl; þú lætur
hvergi í friði ungar bóndadætur.
(Úr Draumi á Jónsmessunótt eft-
ir William Shakespeare, í þýðingu
Helga Hálfdanarsonar.)
Sinfónían fagnar sumri