Morgunblaðið - 23.04.2004, Page 25

Morgunblaðið - 23.04.2004, Page 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 25 Mazda3er vel búinn og kraftmikill bíll sem flú ver›ur a› sko›a. Opi› frá kl. 12-16 laugardaga Aukahlutir á mynd: álfelgur og vindskei› á afturhlera B ÍL L ÁR SIN S Í EVRÓPU 200 4 H im in n o g h a f Mazda3 T 1,6 l kostar a›eins1.795.000 kr. Bíll ársins í Danmörku, Finnlandi og Tékklandi. Anna› sæti› í vali á bíl ársins í Evrópu ásamt V W Golf. Máta›u ver›launasæti›! SAMKEPPNISHÆFNI sveitarfé- laganna um skilyrði til búsetu og at- vinnureksturs ræðst af því að veitt sé góð þjónusta. Aukin umsvif og skyldur í fé- lags- og skólamálum, umhverfis- og skipu- lagsmálum krefjast aukinna útgjalda. Mörg sveitarfélaga berjast í bökkum og safna skuld- um. Verkefni og tekju- stofnar sveitarfélaga eru ákveðnir með lög- um frá Alþingi og reglugerðum ráðuneyt- anna, auk óbeinna stjórnvaldsaðgerða sem oft er þrengt inn bakdyramegin. Sveitarstjórnarmenn heyra glam- uryrði ríkisstjórnarinnar um góðan hag ríkissjóðs og hástemmd loforð um skattalækkanir. Samtímis sker ríkið niður hlutdeild sína í rekstri sam- félagsþjónustunnar. Spyr þá margur: Er rétt gefið? Tortryggni í garð ríkisins vex Vaxandi tortryggni gætir hjá sveit- arfélögunum í garð ríkisvaldsins hvað varðar fjármálaleg samskipti. Álykt- un Samtaka sveitarfélaga á Vest- urlandi frá 10. okt. sl. er ein af mörg- um sem þingmönnum og ráðherrum berast þessa dagana: „Full ástæða er til að hafa áhyggjur af tekjuþróun sveitarfélaga und- anfarin ár. Þau hafa á síðustu árum verið að takast á við sífellt umfangs- meiri og fjárfrekari lögbundin verk- efni svo sem einsetningu grunnskól- ans, yfirtöku félagsþjónustu og auknar kröfur í umhverfismálum. Þessi verkefni kalla á aukin útgjöld sveitarfélaganna sem mörg hver eiga erfitt um vik. Aðalfundurinn bendir á neikvæð áhrif af skattkerf- isbreytingum sem lúta að yfirfærslu einkareksturs í einkahlutafélög. Gríðarleg fjölgun einkahlutafélaga undanfarin ár hefur skert útsvarstekjur margra sveitarfélaga mjög mikið. Við slíkt geta sveit- arfélögin ekki búið án þess að til komi aðrir tekju- stofnar sem bæta það tekjutap sem orðið er“. Gjöldum smeygt inn bakdyramegin Sveitarfélögin benda t.d á húsa- leigubæturnar þar sem ríkið leggur ákveðna upphæð inn í það púkk en sveitarfélögin sitja ein uppi með skyldurnar og aukningu útgjalda sem hefur reynst mun meiri en ráð var fyrir gert. Kostnaðarhluti sveitarfélaganna við eyðingu refa og minka eykst stöð- ugt en þáttur ríkisins dregst saman án þess að um það sé samið. Ný reglugerð um búfjáreftirlit leggur stórauknar kvaðir og útgöld á sveitarfélögin, einkum á landsbyggð- inni. Einn sveitarstjóri greindi frá því að Brunamálastofnun hefði áður komið reglulega og tekið út slökkvibúnaðinn endurgjaldslaust. Nú væri því hætt, en sveitarfélaginu gert skylt að gera þjónustusamning við fjarlægan aðila um eftirlitið með tilheyrandi kostnaði. Einkavæðing ríkisins á æ fleiri þáttum almannaþjónustunnar reynist sveitarfélögunum lúmskur kostnaðar- auki. Þá er regluverk Evrópusambands- ins gleypt á færibandi gagnrýnislaust og útgjöld sveitarfélaganna stór- aukin. Átak til eflingar sveitar- stjórnarstigsins? Nú stendur yfir sérstakt átak af hálfu ríkisins um eflingu sveitarstjórn- arstigsins. Ríða fasmiklar nefndir um héruð og predika sameiningar, stækkun sveitarfélaga og yfirfærslu á nýjum verkefnum til þeirra. Ein þess- ara nefnda er sk. tekjustofnanefnd. Ágreiningur er um hlutverk hennar. Í erindisbréfi frá 16. des. sl. er henni einungis ætlað að gera tillögur um að- lögun tekjustofna sveitarfélaga að nýrri sveitarfélagaskipan og breyttri verkaskiptingu, þegar og ef hún kem- ur til framkvæmda. Samband ís- lenskra sveitarfélaga hefur skrifað formanni Átaksins bréf og þess óskað, að staðið verði við sameiginlega yf- irlýsingu Sambandsins og Félags- málaráðuneytisins frá 19. ágúst um að verkefni nefndarinnar sé einnig: „at- hugun á núverandi tekjustofnum og könnun á hvort þeir séu í samræmi við lögskyld og venjubundin verkefni sveitarfélaga“. Er ekki rétt að meta stöðuna í dag áður en lengra er hald- ið í flutningi nýrra verkefna? Verið að blekkja sveitarfélögin? Í umræðum á Alþingi 15. apríl sl. lét fjármálaráðherra að því liggja að tekjustofnar sveitarfélaganna væru nú nægir og þau hefðu grætt á flutn- ingi grunnskólans. Ályktanir frá fjöl- mörgum sveitarfélögum segja allt aðra sögu. Í Morgunblaðinu 15. apríl sl. er vitnað í formann Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem hann telur að sveitarfélögin tapi um milljarði króna árlega í útsvarstekjum vegna gríð- arlegrar fjölgunar einkahlutafélaga sem borga sjálfum sér arð og fjár- magnstekjuskatt til ríkisins. En skatthlutfallið þar er mun lægra en útsvarið sem sveitafélagið fékk áður: „Það er ekki hægt að una því að skattalegar breytingar sem ég tel að eigi rétt á sér leiki fjárhag sveitarfé- laganna grátt. Burtséð frá því hvort ný verkefni verði flutt til sveitarfé- laganna er það algjörlega ljóst í mín- um huga að það verður að styrkja tekjustofna sveitarfélaga. Það væri hreint ábyrgðarleysi af hálfu löggjaf- arvaldsins ef það yrði ekki gert með einum eða öðrum hætti.“ Áætlun um stækkun sveitarfélaga og flutning nýrra verkefna til þeirra verður hreinn blekkingaleikur, ef ekki verður fyrst tekið á stöðunni eins og hún er í dag og þeim gert kleift að ráða við verkefnin sem þau nú bera. Jafnframt verður það að vera ófrávíkjanleg regla að ný lög, reglugerðir og stjórnvaldsákvarðanir séu kostnaðarmetnar gagnvart sveit- arfélögunum og þeim tryggðar tekjur á móti áður en krafan um framkvæmd þeirra verður virk. Um fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga Jón Bjarnason skrifar um verkefni og tekjustofna sveitarfélaga ’Er ekki rétt að metastöðuna í dag áður en lengra er haldið í flutn- ingi nýrra verkefna?‘ Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 551 2040 Silkitré og silkiblóm Ný lína í gjafavörum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.