Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 23.04.2004, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Fátt bendir til þess að eðlikarla sé orsök nauðganaheldur virðast menningog vald vera orsök þeirra. Mannfræðileg samanburðarrann- sókn á hefðbundnum samfélögum hefur sýnt að yfirráð karla yfir kon- um eru hvorki algild né alheimsleg heldur menningarmótuð. Jafnræði milli kynja einkennir þau samfélög þar sem nauðganir eru sjaldgæfar en það sem einkennir hin eru sterk yfirráð karla. Þetta er meðal niðurstaðna í M.A.-ritgerð Guðrúnar M. Guð- mundsdóttur mannfræðings sem ber tilitilinn Af hverju nauðga karl- ar? Þar segir einnig að menning karla þar sem áhersla er lögð á árás- argirni, styrk, harðneskju, yfirráð, á mikilvægi þess að sigra, að vera æðri, stjórna o.s.fr.v. séu nauðganir einfaldlega sterkustu birting- armyndir þessara hugmynda. Nauðganir sem kynbundið menningarfyrirbæri Guðrún segist hafa gengið út frá þeirri hugmyndafræði í ritgerðinni að nauðgun sé eitt birtingarform kynjamisréttis. „Ég skoðaði nauðg- anir sem kynbundið menningarfyr- irbæri og það er kynbundið af því að það eru karlmenn sem nauðga og menningarfyrirbæri þar sem segja má að þær séu „félagsleg athöfn“. Það er mjög mismunandi á milli samfélaga hversu algengar nauðg- anir eru. Spurningin sem ég reyndi að svara var hvað það væri í menn- ingunni sem veldur því að sumir karlar við sum tækifæri langar til, ákveða og gera það að veruleika að nauðga konu.“ Guðrún minnir á að við sem fé- lagsverur gerum okkur ekki grein fyr- ir í hvers konar sam- félagi við búum og af hverju við hegðum okkur á ákveðinn hátt vegna þess að við erum samdauna menningu samfélags- ins. „Marx sagði ein- mitt að fiskurinn sem syndir í sjónum sjái ekki sjóinn sem hann syndir í. Því rannsak- aði ég hvað þetta er sem við sjáum ekki og þess vegna ákvað ég að nota valdakenningar því þær snúast um það að skoða á bak við það sem við sjáum ekki. Það er auðvitað ákveðin samsömun á milli þess sem við hugs- um og þess sem er hlutbundið í sam- félaginu, s.s. lög, stofnanir, trúar- brögðin – allt það sem stýrir menningu okkar og við getum lagt hendur á svo að segja.“ Jafnrétti í orði en ekki á borði Í niðurstöðum Guðrúnar kemur fram að frelsisbarátta 19. aldar hafi skilað konum mikilvægum rétt- indum þótt staða þeirra hafi ekki orðið jöfn á við karla. „Af þróun lag- anna í tímans rás,“ segir Guðrún, „má sjá að konan var áður álitin eign karla en öðlaðist síðan aukið einstaklingsfrelsi. Hugmyndin um konuna sem eign virðist hafa um- breyst með tímanum í skilgrein- ingavald á því hvaða kona nýtur refsiverndar og hvaða kona ekki.“ Í ritgerðinni skoðaði Guðrún sér- staklega kar ímyndina og menningu ka ræddi m.a. v lenska karlm greindi hver mynd þeirra frá hugmynd karlmennsku „Menning samofin ofbe fremja flest amsárásir og morð. Þeir b á stríðum og normalisera lega innan íþ hernaðar og viðskipta. Hin karllægu y greipt eru í tilveruna mó ingu karla, sjálfsímynd o þeirra, ýmist út frá því hv hafa aðgang að valdi, fin eigiað hafa það eða þá að reiðir yfir að hafa það ek Guðrún komst að þeirr urstöðu að lykillinn að sv spurningunni af hverju k nauðga sé kynverund (e. karlmanna og svo ofbeld þeirra. „Yfirráð eru greipt í k karla og útskýra af hverj á borð við drottnun og stj þykja aðlaðandi og erótís þeirra. Á sama hátt er un greipt í kynverund kvenn gerving kvenna er einmit þess að yfirráð séu greipt und karla og undirgefni í kvenna.“ Guðrún segir að í svöru rannsóknarspurningum h fram að stúlkur/konur se Guðrún M. Guðmundsdóttir Nauðganir sjaldgæfar jafnræði ríkir á milli ky Í dag verða karlar úr karlahópiFemínistafélags Íslands fyrirutan verslanir ÁTVR þar semþeir munu ræða við karla um nauðganir og reyna að virkja krafta þeirra í baráttunni gegn ofbeldi á konum. Þetta er hluti af átakinu Karlmenn segja NEI við nauðgunum en með því vill Karlahópur Femín- istafélags Íslands fá karla til að staldra við og velta fyrir sér hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Hópurinn telur nauðsynlegt að karlar sýni samábyrgð í verki og taki afgerandi afstöðu gegn nauðgunum. Sá sem nauðgar hefur ekki verið í forgrunni Arnar Gíslason úr Karlahópnum segir hugmyndina að átakinu hafa komið í framhaldi af átaki sem hóp- urinn stóð fyrir um síðustu verslun- armannahelgi, Nauðgar vinur þinn? „Það hefur alltaf verið mikil áhersla á manneskjuna sem er nauðgað. Við vildum hins vegar fá fólk til þess að velta fyrir sér manneskjunni sem nauðgar því það má segja að hún sé alltaf meira eða minna úr fókus ef hún er yfirhöfuð tekin með. Þetta átak gekk frekar vel og flestir strák- ar voru mjög jákvæðir þótt sumir hefðu ekki pælt mikið í þessu eða tal- að mikið um það. Eftir þetta átak gerðum við okkur grein fyrir að við gætum ekki bara stoppað þarna. Við ákváðum í þetta sinn að velja bara venjulegan dag fyr- ir átakið því flestar nauðganir verða ekki bara um verslunarmannahelg- ina heldur á ósköp venjulegum dög- um. Þar sem áfengi er oft haft um hönd þegar nauðganir eiga sér stað fannst okkur ekki úr vegi að vera fyr- ir utan áfengisverslanir á þessum degi,“ segir Arnar. Karlar þurfa að sýna sam- ábyrgð gagnvart nauðgunum Hann segir nauðsynlegt að karlar sýni samábyrgð í verki og taki afger- andi afstöðu gegn nauðgunum og það séu margir möguleikar til þess að koma þeim boðskap á framfæri. „Langflestir þeirra karla sem við höf- um rætt við eru sammála því að nauðganir séu samfélagslegt vanda- mál sem þarf að takast á við og að þær séu ekki bara einkamál kvenna. Ef það er hægt að kynda undir þessa umræðu held ég að það gæti skilað heilmiklu.“ Spurður um siðgæðisvitund karl- manna segist Arnar telja að það séu mjög fáir karlmenn sem álíti „rétt eða eðlilegt“ að nauðga. „En við til- teknar aðstæður, t.d. þegar karl- menn eru drukknir og er kynlíf of- arlega í huga eru sumir hugsanlega tilbúnir til að horfa fram visku sinni. Ekkert slík nauðgun en ég held að t áhrifum áfengis eigi me ara með að réttlæta slík um sér, a.m.k. á því augn vegna teljum við mikilvæ séu búnir að taka afstöðu þessi mál áður en til kasta Þar sem langfæstir kar held ég að flestir líti á nau svartan blett á ímynd kar þeir vilja gjarnan hreinsa Við höfum fundið það það eru allir af vilja gerði hjálpa okkur í þessu. Það allir tekið mjög vel í þetta og eru sammála okkur. V við höfum kveikt dálítið átakinu.“ Hefur forvarnar Arnar segist telja að við þetta geti haft töluv argildi, hvort sem það sé eða áhrif sem komi fram miðlar hafi líka sýnt má áhuga „Ég held að ef Karlmenn segja NEI við nauðgunum Mikilvægt að karlar líti á nauðganir sem sitt mál Atli Már Pálsson og Hjál Íslands hengja upp plakö BLINDUR ER BÓKLAUS MAÐUR Hinn 23. apríl ár hvert er helg-aður bókum um heim allan.Samkvæmt alþjóðasamtök- um útgefenda varð þessi tiltekni dag- ur fyrir valinu þar sem hann markaði árið 1616 dánardægur þriggja bók- menntajöfra – þeirra William Shake- speare, Miguel Cervantes og Inca Garcilaso de la Vega. Í augum Íslend- inga hefur hann þó fyrst og fremst þýðingu sem fæðingardagur Nóbels- skáldsins Halldórs Laxness, og er tæpast hægt að hugsa sér skærara leiðarljós þann tíma sem vika bókar- innar varir hér á landi ár hvert. Hér á landi háttar svo til að bók- menntaarfurinn er kjölfesta menn- ingararfsins sem heildar og því órjúf- anlega samþættur sjálfsmynd þjóð- arinnar og sál. Fyrir menningarheild á borð við Ísland, sem lengst af var utan alfaraleiðar, hafa bókmenntirn- ar bæði þjónað sem spegill til að horfa inn á við og sem sjóngler er vísar út í hina víðu veröld. Sú verðskuldaða virðing er Guðbergi Bergssyni, rit- höfundi, var sýnd í fyrri viku er hon- um voru veitt Norrænu bókmennta- verðlaunin í Stokkhólmi, afhjúpar til að mynda ekki einungis afl íslenskrar bókmenntahefðar og persónulegan styrk hans sem rithöfundar, heldur einnig þá einstöku eiginleika er bók- menntirnar búa yfir til að má út hvers kyns mæri í miðlun sinni á mannlegu eðli og ástandi mannsandans. Guð- bergur hefur nefnilega ekki einungis getið sér gott orð fyrir skáldverk sín hér heima og erlendis, heldur einnig unnið að því af mikilli elju að færa þjóðinni heimsbókmenntirnar og er þýðing hans á Don Kíkóta, fyrrnefnds Cervantesar, gott dæmi um það. Í ævistarfi Guðbergs má því með sönnu finna höfuðeinkenni þess undursam- lega samruna sem heimsbókmennt- irnar stuðla að hvað varðar rannsókn- ina á ástandi mannsandans – þar renna saman ólíkir tímar og hugar- heimar, margskonar menning og skilningur á umhverfinu. Í sögu sem Guðbergur flutti við verðlaunaafhendinguna í Stokkhólmi fjallar hann um „Hið sýnilega í því ósýnilega“, en sagan birtist í Lesbók Morgunblaðsins sl. laugardag. Hann vísar þar í upphafi til skilnings okkar á veröldinni í skugga hryðjuverka. Færir síðan sjónarhornið heim og veltir fyrir sér tengslunum við bók- menntaarfinn, þar sem gamall maður skilgreinir breyttan tíðaranda sem „eitthvað ósýnilegt í því sýnilega“ – Eyrbyggja er horfin úr huga fólksins þó landslagið sé á sínum stað. Guð- bergur lýkur sögu sinni við púlt rit- höfundarins, sem situr við skriftir og „hreyfir hugsanir sínar“. Hann gerir nokkrar atrennur að því að skilgreina bókmenntirnar og sköpunarferlið, en kemst loks að þeirri niðurstöðu að hinn skapandi hugur verði að beita mótstöðu, vera sjálfum sér sam- kvæmur og lúta ekki vilja annarra. Rithöfundurinn hefur reynt að sýna það „ósýnilega í því sýnilega“. Enda er þar „leyndarmál listarinnar, á milli þessa tveggja. Það eina sem skiptir raunverulegu máli í listinni er að vita þetta. Að vita ekki nákvæmlega hvað maður gerir en frjóvgast af þversögn- um sem leiða til opnunar“. Þessi orð Guðbergs eru mikilvæg áminning í viku bókarinnar, um þrautseigju og þor þeirra sem stað- fastlega þreifa sig áfram í óræðum víddum frumsköpunar til að opna um- heimi sínum nýja sýn. Umheimurinn á þeim allt upp að unna því verk þeirra eru þegar allt kemur til alls oft á tíðum það eina sem stenst tímans tönn í framvindu sögunnar. BLAÐAMANNAVERÐLAUN Það er gott framtak hjá Blaða-mannafélagi Íslands að efna til verðlaunaveitinga fyrir blaðamenn. Slík verðlaun tíðkast víða erlendis en þekktust þeirra eru vafalaust Pulitz- erverðlaunin í Bandaríkjunum. Viðurkenning sem þessi er líkleg til að hafa hvetjandi áhrif á blaðamenn og fréttamenn og stuðla þar með að því að auka gæði þess efnis, sem fjöl- miðlar bjóða lesendum, hlustendum og áhorfendum upp á. Í því sambandi skiptir máli að gera miklar kröfur. Ef viðurkenningar eru veittar fyrir miðl- ungsefni verða þær fljótt lítils virði. Þess vegna getur verið betra að veita enga viðurkenningu sum ár, ef þannig stendur á. Pulitzerverðlaunin í Bandaríkjun- um hafa haft hvetjandi áhrif á blaða- menn vestan hafs en því miður hefur eftirsókn eftir þeim stundum leitt blaðamenn út á villigötur. Nokkur bandarísk blöð hafa efnt til rannsókna á efni, sem leitt hefur til Pulitzerverð- launa hjá þeim sjálfum og í nokkrum tilvikum hefur komið í ljós, að það efni stóðst ekki nánari skoðun. Það er Morgunblaðinu að sjálfsögðu mikið ánægjuefni, að einn af blaða- mönnum blaðsins, Agnes Bragadóttir, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2003 í fyrrakvöld fyrir greinaflokk, sem birtist hér í blaðinu snemma á síð- asta ári og fjallaði um baráttuna um Íslandsbanka, og fyrir hennar hlut í umfjöllun Morgunblaðsins um skatta- mál Jóns Ólafssonar. Agnes Bragadóttir hefur vakið at- hygli fyrir skrif sín síðustu rúma tvo áratugi um margvíslega þætti ís- lenzks þjóðlífs. Lengst hefur hún sennilega náð með tveimur greina- flokkum, annars vegar um baráttuna um Íslandsbanka og fyrir allmörgum árum um endalok Sambands ísl. sam- vinnufélaga en þær greinar leiddu til málaferla, sem enduðu í Hæstarétti með fullum sigri blaðamannsins. Ný kynslóð blaðamanna og frétta- manna er í mörgum tilvikum há- menntuð og býr yfir mikilli þekkingu. Það eru því forsendur til staðar til þess að bæta mjög efni íslenzkra fjöl- miðla. Annað mál er hvernig þeim tekst að vinna úr þeim efnivið, sem þeir hafa undir höndum og hvernig þeim tekst að nýta það hæfa og vel menntaða fólk, sem vinnur á þeirra vegum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.