Morgunblaðið - 23.04.2004, Page 33

Morgunblaðið - 23.04.2004, Page 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 33 aði þannig orðræðuna og þroskaði. Ekkert var honum sjálfgefið, það kenndi hann mér beinlínis, og hann var fljótur að greina lögfræðilega annmarka málatilbúnaðar andstæð- inga sinna. Þess naut ég eitt sinn ríkulega í máli fyrir sameiginlega skjólstæðinga. Mig tók hann eitt sinn í gegn opinberlega á aðalfundi lög- mannafélagsins, „drap mig fyrir stíl- inn“ eftir framsögu mína um stjórn- artillögu í umdeildu máli. Ég vék mér að honum með nokkurum þjósti eftir ræðuna og spurði hvað honum gengi til. Svarið sem ég fékk var lýsandi fyrir Harald: „Tókstu þetta nærri þér, það var ekki meiningin.“ Har- aldur hafði rétt fyrir sér í þessu máli. Eitt var það í fari Haraldar sem hon- um var í blóð borið. Hann þoldi aldrei að sparkað væri í liggjandi menn. Það var lýsandi fyrir hjartalag hans þeg- ar hann bað mig fyrir nokkrum vik- um, þá helsjúkur, að hringja í sam- eiginlegan vin, sem lá undir ómaklegu ámæli, og bera honum kveðju sína og stuðning. Víst er að Haraldur var afar hæfileikaríkur lög- maður en önnur hugðarefni komu í veg fyrir að hann ræktaði þá hæfi- leika sem skyldi. Ef til vill fyrst og fremst vegna að hann lifði eftir því að maður er manns gaman og svo voru þjóðmálin honum afar hugleikin. Í samræðum við vini sína sem aðra var hann leiftrandi skemmtilegur, sögu- maður með afbrigðum, hugmynda- ríkur og gefandi sál. Að eiga með honum stund og ræða málin var eins og að setjast að veisluborði, hann veitull gestgjafinn, við hinir oftar en ekki þiggjendur. Einni hugmynd hans vil ég halda til haga. Það mun hafa verið í boði hjá hafnarstjórn Reykjavíkur að Haraldur og vinur hans Guðmundur J. Guðmundsson tóku tal saman og talið barst að Iðnó. Leikfélag Reykjavíkur hafði þá flutt starfsemi sína í Borgarleikhúsið og Iðnó var í gíslingu illleysanlegra að- stæðna. Dagsbrún og fleiri stéttar- félög, sem áttu Iðnó, sáu enga lausn um endurbætur á húsinu og framtíð- arnotkun þess. Haraldur fékk þá brilljant hugmynd, að Reykjavíkur- borg kæmi að málinu. Það varð úr, borgin keypti eignarhlut í húsinu og greiddi kaupverðið með því að standa straum af standsetningu þess, sem ekki var vanþörf á. Hitt er annað mál að þeir félagar rákust síðan heldur illa í skrifræði framkvæmdanefndar- innar. Þessir vinir koma ævinlega í huga minn þegar ég lít þá borgar- prýði sem Iðnó er. Ég get heldur ekki látið hjá líða að minnast á yfirgrips- mikla þekkingu Haraldar á kosninga- lögum. Hann sat margsinnis í kjör- stjórnum, bæði við sveitarstjórnar- og Alþingiskosningar. Hann var sannarlega betri en enginn við und- irbúning kosninga, framkvæmd þeirra, talningu atkvæða, úrskurð vafaatkvæða og annarra vandamála sem upp koma. Um framkvæmd kosninga ræddum við nýlega og hvað betur mætti fara. Í þeim efnum var hann sem fyrr næmur og lýðræðis- sinnaður gagnrýnandi. Síðast unnum við saman í yfirkjörstjórn Reykjavík- ur við Alþingiskosningarnar árið 1999. Öll framkvæmd var þar til sóma og talningu lauk óvenju snemma. Við gengum þá saman út í vornótt í Reykjavík, eins og þær gerast feg- urstar. Þá nótt og langt fram á morg- un sátum við tveir einir saman og spjölluðum um heima og geima og um okkur. Það lá vel á Haraldi, hann var í essinu sínu. Það spillti ekki að Hall- dór bróðir hafði unnið tímamótasigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norður- landi eystra. Haraldur er kært kvaddur og sárt saknað. Börnum hans og fjölskyldu allri votta ég ein- læga samúð. Atli Gíslason. Haraldur Blöndal var lífskúnstner og íhaldsmaður í bestu merkingu þeirra orða. Hann var kátur og óvanalega glaður að upplagi og með fáum var jafn gaman að skemmta sér og hlæja. Hann bjó þar að auki að ein- stöku sagnaminni og var sérdeilis fróður, ekki síst um stjórnmál liðinn- ar aldar. Þessi fallega blanda gerði Harald að samræðusnillingi sem menn sóttust eftir að kynnast enda gat hann með örfáum tilsvörum snúið skýjuðum degi í gleðistund. Húmor hans var græskulaus og í brjósti hans var hjarta sem jafnan sló með þeim sem ranglæti voru beittir. Þannig sagði hann sjálfur að væri hjartalag góðra íhaldsmanna. Haraldur bjó yfir heilbrigðri for- vitni um menn og málefni, og mér fannst hann sérstaklega leggja sig eftir að kynnast þeim sem voru öðru- vísi og höfðu aðrar skoðanir en hann. Líklega var það þess vegna sem fáir íhaldsmenn áttu jafn marga og góða vini í hópi okkar vinstri manna og ein- mitt Haraldur. Kanski var það líka þessi forvitni sem leiddi til þess að hann settist hjá mér við kaffiborðið í Félagsstofnun stúdenta fyrir röskum aldarfjórðungi. Hann var þá rómaður ræðumaður úr stúdentapólitíkinni og meðal okkar sem vorum í yngri kanti vinstri manna í Háskólanum þekktur af orðspori sem einn beittasti funda- maður Vöku. Hann sagði mér í óspurðum fréttum að miðað við hvað ég væri að góðum íhaldsættum væri best fyrir alla aðila máls, ekki síst mig, að ég kæmi mér sem allra fyrst í aðra pólitíska vist. Kaffispjallið þenn- an dag teygðist inn í kvöldið og nótt- ina og upp frá því urðum við góðir kunningjar og stigum ölduna oftsinn- is saman þegar við hittumst af tilvilj- un eins og skip í nóttinni. Löngu seinna breyttist kunnings- skapur okkar af öldurhúsum í góða vináttu. Leiðir okkar lágu þá saman fyrir tilstilli Hrafns Jökulssonar. Hrafn var þá að stofna skákfélagið Hrókinn og við Haraldur Blöndal nutum þeirra forréttinda að eiga hlutabréf í því mikla ævintýri frá upphafi. Haraldur var raunar prýði- legur skákmaður eins og Halldór bróðir hans, þingforseti og fróðleiks- brunnur um flest úr sögu skáklist- arinnar. Það er óhætt að segja að Haraldur Blöndal hafi verið einn af burðarásum Hróksins fram á síðustu stund. Hann var sjálfkjörinn í stjórn félagsins frá upphafi, og ráð hans, ekki síst lögfræðileg, reyndust gulli betri þegar þurfti að bregðast við snúnum vandamálum sem stundum komu upp í frumbernsku Hróksins. Hann fylgdist með skákinni fram á síðustu dægur og veikan en brosandi hitti ég hann í síðasta skipti þegar við fylgdumst með Karpov og Kasparov ásamt öðrum skákköppum tefla í gamla Sjálfstæðishúsinu við Austur- völl. Haraldur Blöndal var eins og Bergþóra drengur góður og gleymdi ekki vinum sínum. Af banabeði sínum eyddi hann tíma og kröftum til að senda móður minni hlýlegt minning- arbréf við fráfall föður míns sem hann þekkti bæði úr Sjálfstæðisflokki og Frímúrarareglunni. Okkur þótti öllum vænt um það. Við lát hans söknum við gamlir vinir og kunningj- ar drengskaparmanns sem féll langt um aldur fram. Guð blessi minningu hans og styrki börn hans og fjöl- skyldu í sorginni. Össur Skarphéðinsson. Fallinn er frá góður vinur minn og samstarfsmaður í félagsstarfi Sjálf- stæðisflokksins og á vettvangi borg- armálanna til langs tíma. Haraldur dró mjög að sér athygli manna meðan hann lifði. Hann kom víða við í störf- um sínum á lífsleiðinni og var ófeim- inn við að láta skoðanir sínar í ljósi. Haraldur var skarpgreindur og ætíð fljótur að greina kjarnann frá hism- inu. Mér er minnisstætt hversu gott hann átti með að setja sig inn í borg- armálin þegar hann var kjörinn vara- borgarfulltrúi árið 1986 en þá tók hann jafnframt að sér formennsku í umferðarnefnd Reykjavíkur, sem hann gegndi í átta ár. Einnig sat Har- aldur í framtalsnefnd borgarinnar frá 1982 til æviloka. Í þessum störfum sínum var hann bæði nákvæmur og réttsýnn. Hann aflaði sér góðrar þekkingar á borgarmálunum al- mennt og lagði áherslu á að brjóta öll mál til mergjar. Til hans var gott að leita og aðstoð hans við þá sem minna máttu sín í samfélaginu og áttu við erfiðleika að stríða af ýmsum ástæð- um sat í fyrirrúmi. Á þeim tíma sem við Haraldur störfuðum saman í borgarstjórnar- flokki sjálfstæðismanna mynduðust á milli okkar mikil og sterk tengsl sem rofnuðu aldrei. Hann var góður vinur vina sinna, hreinn og beinn og lét aldrei hrekja sig af leið í þeim efnum. Oft þegar við tókumst á við flókin og erfið viðfangsefni var hann ótrúlega fljótur að greina möguleikana í stöð- unni, koma með tillögu og rökstuðja hana vel og ítarlega. Málflutningur hans var aldrei þurr og leiðinlegur. Hann var ávallt kryddaður léttum húmor og skemmtilegum frásögnum af mönnum og málefnum. Haraldur var mjög sérstakur mað- ur sem tekið var eftir. Hann fór ekki troðnar slóðir og var óhræddur við að setja fram skoðanir sínar sem oft fóru þvert gegn viðhorfi fjöldans hverju sinni. Haraldur setti sterkan svip á sína samtíð. Minningin um þennan góða dreng mun lifa og ég er þakk- látur fyrir að hafa átt hann að vini og góðum samstarfsmanni. Persónulega og fyrir hönd borgar- stjórnarflokks sjálfstæðismanna þakka ég honum fyrir hans góðu og mikilvægu störf. Við sendum börnum hans og hans nánustu aðstandendum innilegustu samúðarkveðjur okkar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Það er mikill sjónarsviptir að Har- aldi Blöndal. Mikið mátti það vera ef við Har- aldur tækjum ekki tal saman þegar við hittumst á förnum vegi eða hvar sem fund okkar bar að. Áhugamálin voru á marga vegu og þá oft það sem efst var á baugi. Tekið var til við þjóð- málin og raunar mannlífið vítt og breitt eftir því sem blés hverju sinni. Haraldur var skarpskyggn og frjór í hugsun. Hann var mikill flokksmaður og staðfastur í skoðunum og ættræk- inn sem efni stóðu til. Hann var kjarnyrtur, einbeittur og rökfastur en hafði jafnframt auga fyrir hinu skoplega og lét andstæð sjónarmið njóta sannmælis. Ekki er að undra að jafnan var það betra en ekki að hitta Harald að máli. Það var ánægjulegt að eiga þess kost fyrir nokkrum árum að starfa með Haraldi í stjórnskipaðri nefnd sem vann að endurskoðun laga um þjóðfánann. Hann var hress og kátur á nefndarfundum eins og hann átti vanda til. En eftirminnilegast er mér yfirsýn Haralds og tök á því verkefni sem við var að fást. Af því mátti marka þá eðliskosti sem varða svo miklu við lögfræðileg úrlausnarefni og málfærslustörf sem Haraldur helgaði líf sitt. Daginn sem síðasta blaðagrein Haralds birtist í Morgunblaðinu átt- um við samtal í síma. Hann var þá sjúkur maður og bárust í tal veikind- in. Hann var æðrulaus og sagði: Guð ræður hvenær ég dey. Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Stormsveipnum góða fylgir mikil hreyfing, en þó er vissara að vera við öllu búinn. Haraldur Blöndal var stormsveipur, sífrjór í hugsun og batt bagga sína ekki alltaf hefðbundnum hnútum. Það var alltaf skemmtilegt að hitta Halla Blöndal vegna þess að hann var fullur af lífsorku og hafði alltaf á hraðbergi athugasemdir, álit eða spurningar, en best fór honum þó málafærslan. Haraldur Blöndal var glæsimenni og bar svip ættar sinnar allrar, drengur góður, sérstakur og hafði mikinn metnað fyrir stílfegurð í þjóð- lífi Íslendinga. Oft undirstrikuðu spurningar hans og svör að allt orkar tvímælis, því slíka teygju hefur lífið sjálft. Halli var skemmtilega snöggur til svara. Einu sinni körpuðum við Halli á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins um stefnu í íþróttamálum. Ég sagði í glannaskap að hann ætti ekki að fjalla um íþróttir, því til íþrótta hefði hann aldrei verið vel fallinn. „Þú ættir þá ekki fremur að stunda söng,“ svaraði Halli að bragði og þar með vorum við kvittir. Halla var oft mikið niðri fyrir, því það var svo margt sem brann á hon- um í orðaleik lögfræðinnar, en það var aldrei hik í svörum hans, aldrei hik í afstöðu og það var einmitt sterk- asta hlið Halla hvað hann var hreinn og beinn. Hann átti til oftar en ekki að koma með ótrúlegustu fleti á málum, þvert á allt hefðbundið, en þó svo opinskár og rökheldur. Haraldur Blöndal kveður langt fyrir aldur fram. Góður Guð verndi vini og vandamenn. Haraldar er sárt saknað, en víst verður fjörlegra hin- um megin undir verndarhendi Drott- ins. Þá fer um hlöð eilífðarinnar og vaggar að minnsta kosti blómum í varpa stormsveipurinn góði. Árni Johnsen. Við komum úr ýmsum áttum, þessi hópur sem hóf nám við Menntaskól- ann á Akureyri haustið 1962. Sum úr héraðsskólum, önnur úr litlum þorp- um úti á landi. Halli kom að sunnan og var einhvern veginn veraldarvan- ari en við flest. Hann kunni skil á ýmsu varðandi MA af því að Halldór bróðir hafði verið þar áður og hann vildi líka strax fara að ritstýra blaði og gerði það. Það var Gambri og við fengum sum að taka þátt í því verk- efni. En hann kunni skil á miklu fleiri hlutum og varð strax áberandi í hópnum, hristi upp í okkur og átti þannig ómeðvitaðan þátt í uppeldi okkar. Hann hafði áhuga á þjóðmál- um, bókmenntum, vísnagerð, skák, hafði lesið margt og mundi það sem hann hafði lesið. Hann stóð fyrir kappræðum á þriðjabekkjargangin- um í Vistinni og var allra manna mælskastur. Hann mátti yfirleitt ekkert vera að því að brjóta saman fötin sín og leggja þau snyrtilega frá sér þegar hann fór að sofa á kvöldin – mátti kannski ekkert vera að því að fara að sofa. Halli lá aldrei á skoðunum sínum og hafði gaman af því að rökræða við menn og viðra andstæðar skoðanir. En hann meiddi aldrei neinn og lík- lega hefur öllum þótt vænt um hann sem þekktu hann. Það var allt svo græskulaust hjá honum. Hann hafði sérstakt lag á því að taka sjálfan sig ekki alltof hátíðlega en segja samt sína skoðun þannig að eftir væri tek- ið. Útskriftarárgangurinn frá MA 1966 er óhugsandi án Halla og hann var hrókur alls fagnaðar þegar hóp- urinn kom saman. Við hittum hann ekki mjög oft á síðari árum en það var alltaf stutt í brosið og það varð bara breiðara með aldrinum, svona eftir því sem andlitið breikkaði. Svo kom einhver skemmtileg saga eða hnyttin athugasemd um menn og málefni og hláturinn sauð niðri í honum. Samt fann maður alltaf fyrir hlýjunni á bakvið. Það var mikils virði og við þökkum fyrir það um leið og við þökkum fyrir alla skemmtunina og kryddið í tilveruna. Höskuldur Þráinsson, Sigríður Magnúsdóttir. Augum voru skær. Hugurinn mik- ill. Hjartað stærst. Allir í bekknum vissu hver hann var daginn eftir að hann kom norður. Persónutöfrar hans, hugmyndaríki og orðfar drógu að sér fólk, athygli, vináttu og elsku. Hann fór ekki alltaf alfaraleið í skoð- unum sínum, en varði þær af ómældri kunnáttu og innsæi. Hann var fylginn sér í deilum, en heiðarlegur baráttu- maður. Væri maður svo heppinn að hafa hann með sér, fannst manni slagurinn unninn fyrirfram. Enda hefur hann ávallt reynst vinum sínum trölltrúr, einlægur og einstakur. Honum varð fótaskortur á ýmsum þröskuldum lífsins og hann lenti í vegleysum. En hjarta hans sló réttlætinu taktinn og hann brást ekki þeim, sem minna máttu sín og leituðu til hans. Það var heillandi hve Halli var vel læs á litbrigði þjóðlífsins, og svikabrögð á þeim vettvangi urðu honum ekki hulin, þó menn legðu sig fram um það. Enda las hann mörgum pistilinn í blöðum og á opinberum vettvangi, beinskeyttur, grínagtugur og rökviss. Ávallt trúr hjartalagi sínu og því réttlæti, sem hann barðist svo einarðlega fyrir. Við dáðum kjark hans öll og atorku og fundum til, þegar hann lá særður, eftir að hafa lamið á sjálfum sér. Þau sár er leiddu hann til dauða voru annars eðlis. Hann mætti örlögum sínum jafn hreinskiptinn, æðrulaus og hjarta- hlýr sem fyrr. Við munum sakna hans mikið, en brosið hans hreina og glettnin hnitmiðuð, geymist meðan við lifum hér. Við treystum á endur- fundi og frekari rökræður lífs og dauða. Góður Guð blessi ykkur öll, börnin hans og ástvini og sefi þunga sorg og söknuð. Birgir Ásgeirsson. Kveðja frá Skáksambandi Íslands Mætur félagi er fallinn, vinur og velgjörðarmaður skáklistarinnar á Íslandi. Haraldur Blöndal hæstarétt- arlögmaður tók sæti í stjórn Skák- sambands Íslands að loknum aðal- fundi á Akureyri 2001. Það fór ekki framhjá neinum að þar fór skarp- greindur og ráðagóður maður, sem mikill fengur var að fá í forystu ís- lenskrar skákhreyfingar. Haraldur hafði setið í stjórn SÍ á árum áður, hafði tekið þátt í starfi Mjölnis frá stofnun þess merka félags og var einn af stofnfélögum Skákfélagsins Hróksins. Sem stjórnarmaður SÍ var Harald- ur tilbúinn að vinna að hvers kyns verkefnum, hvort heldur það snerist um skákstjórn, skipulagningu eða ýmsa snúninga sem félagsmálamenn hreyfingarinnar þekkja vel. Þá setti hann sterkan svip á skákmót með nærveru sinni einni saman. Oft var leitað til Haraldar með úrlausnarefni lagalegs eðlis, og borin undir hann margvísleg álitamál þar sem þörf var á góðum sáttasemjara og víðsýnni málsmeðferð. Það var sama hversu erfið mál virtust, alltaf gat Haraldur komið með hnyttið tilsvar sem létti brún. Hann var vel að sér í sagnfræði skáklistarinnar og gat sagt óborgan- legar sögur af mönnum og málefnum. Heimsókn Alexanders Aljekín til Ís- lands í byrjun fjórða áratugarins var Haraldi t.a.m. hugleikin og sagði hann ýmsar sögur af ferðalagi heims- meistarans sem þá stóð á hátindi getu sinnar, en fáar heimildir eru til um það ferðalag. Undir það síðasta, þegar þróttur Haraldar var orðinn nær enginn og erfiðara um vik að segja skemmtisögur, þá var skákin þó ekki frá honum tekin. Sposkur á svip hvíslaði hann „e4“ við gestinn við rúmstokkinn, og gaf hugarorkunni og frásagnargleðinni lausan tauminn í sinni síðustu blindskák. Stjórnarfundir Skáksambandsins verða sannarlega tómlegir án Har- aldar, og hans verður sárt saknað. Haraldur fellur frá í miðri skák, en staðan sem hann skilur eftir á borð- inu er veglegt veganesti fyrir okkur hin sem höldum áfram. Stjórnar- menn í Skáksambandi Íslands minn- ast glaðsinna félaga og senda fjöl- skyldu hans og ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Ætt valdsins sér á bak einum sín- um bezta syni. Ættlægur myndugleiki einkenndi ytri framgöngu Haraldar Blöndal alla tíð. Hann var flottur. Vald er eins og bergmál, sem hljóðnar jafnharðan. Valdamenn gleymast fyrstir allra – og rakna aldrei aftur. En hið þögla vald bergmálar ekki í klettaveggjum samfélagsins – það endurómar í vitund þeirra, sem fá að kynnast því: vald á tungunni, vald á og í mannlegum samskiptum. Þrjá erfingja á hver maður: Menn- ina, moldina og sálarinnar meðtak- ara. Blessað sé líf og minning Haraldar Blöndal. Bragi Kristjónsson.  Fleiri minningargreinar um Harald Blöndal bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Haustið 1962 fórum við Haraldur Blöndal saman til náms við Mennta- skólann á Akureyri og vorum þann fyrsta vetur saman á herbergi á heimavistinni. Það var engin tilviljun að svo atvikaðist, því við höfðum ver- ið skólafélagar og nánir vinir um árabil. Ég var tíður gestur á menn- ingarlegu heimili þeirra Lárusar og Margrétar á Rauðalæk og kynni mín af Halla og fjölskyldu hans hafa orð- ið mér mikilsvert veganesti í lífinu. Fyrir það vil ég þakka um leið og við Stína sendum börnum hans og fjölskyldu samúðarkveðju. Stefán Pétur Eggertsson. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.