Morgunblaðið - 26.05.2004, Side 4

Morgunblaðið - 26.05.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ „FRÁBÆRLEGASPENNANDI SAGA ...BÓKSEMMAÐUR LESÍEINUMRYKK.“BIRTA „FYRSTAFLOKKSAFÞREYING.“ „GÁTUSAGAMEÐGULLINSNIÐI.“ VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON, HÖFUNDUR FLATEYJARGÁTUNNAR MORGUNBLAÐIÐ SKV. METSÖLULISTUM VERÐ:1.590KR. WWW.BJARTUR.IS/DAVINCI MÁ T T U R IN N & D Ý R Ð IN * * SENNILEGA SJÁLFSTÆÐISMENN fögnuðu í gær 75 ára afmæli Sjálfstæðisflokks- ins og sagði Davíð Oddsson forsætis- ráðherra við það tækifæri að frelsið ætti að vera allra en ekki fyrir fáa, stóra og sterka sem notuðu afl sitt og auð til að traðka miskunnarlaust á öðrum. Í ávarpi Davíðs kom hann inn á gagnrýni sem flokkurinn hefur feng- ið á sig í tengslum við fjölmiðla- frumvarpið, um að baráttan fyrir frelsinu væri farin fyrir lítið. „Það er nú akkúrat ekki það sem gert er, vegna þess að Sjálfstæð- isflokkurinn er sjálfum sér sam- kvæmur. Hann barðist fyrir því með oddi og egg, að á öllum sviðum þjóð- lífsins yrði frelsi einstaklingsins aukið vegna þess að hann trúði því og trúir enn að þá myndi fólkinu farnast best þegar svigrúm, kraftur og þor einstaklinganna fengi að njóta sín. Og það hefur reynst svo. Það var þess vegna sem sjálfstæð- ismenn börðust fyrir frjálsu útvarpi og frjálsu sjónvarpi,“ sagði Davíð. Enginn studdi frelsi til útvarps- og sjónvarpsreksturs Hann sagði að í þeim flokkum sem nú eru sameinaðir í Samfylkingunni hafi enginn þingmaður treyst sér til að styðja frelsi til reksturs sjón- varps- og útvarpsstöðva, en nú segð- ust þessir sömu menn sjá vegið að frelsinu í gjörðum Sjálfstæðisflokks- ins. Þessu vísaði Davíð á bug, og sagði Sjálfstæðisflokkinn flokk allra stétta en ekki fárra einstaklinga. „Og keppikeflið er frelsi fyrir alla, ekki frelsi fyrir fáa, stóra og sterka, sem nota afl sitt og auð til að troða miskunnarlaust á öðrum. Það er ekki okkar frelsi. Við trúum á þau grundvallaratriði sem í frjálshyggj- unni búa. Við trúum á þau vegna þess að við vitum að fólkið sjálft á markaðnum, með undraskjótum og einföldum hætti, finnur lausnir á vandamálum sem fjögur þúsund stjórnskipaðar nefndir myndu ekki finna heldur flækja. Við trúum á lausnir markaðarins en þær leysa ekki allan vanda. Leikreglurnar verða að vera skýrar, ljósar og klár- ar og sanngjarnar og það verða allir að lúta þeim. Líka þeir sterku. Sjálf- stæðisflokkurinn vill sjá um það,“ sagði Davíð. Stjórnmálaskóli efldur Afmælis flokksins verður ekki að- eins minnst við athöfnina sem fram fór í gær, heldur ákvað miðstjórn flokksins að hefja ýmis ný verkefni. Stjórnmálaskóli flokksins verður efldur, allir þeir sem öðlast kosn- ingarétt á árinu fá kveðju frá for- manni flokksins sem inniheldur boð um að sækja stjórnmálanámskeið þar sem stefna flokksins er kynnt. Einnig mun stjórnmálaskólinn standa fyrir námskeiðum fyrir trún- aðarmenn flokksins, að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum. Á afmælisdaginn var gefinn út nýr bæklingur um sögu og starf Sjálf- stæðisflokksins, auk þess sem öll starfandi félög flokksins fá sérstaka hátíðarfundarbók til að tryggja góða varðveislu á sögu hans. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæð- isflokksins, á sjötíu og fimm ára afmælishátíð flokksins Frelsi fyrir alla, ekki bara fáa, stóra og sterka Morgunblaðið/ÞÖK Fjöldi manns fagnaði 75 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins á afmælishátíðinni í gær. Davíð Oddsson sagði Sjálfstæð- isflokkinn berjast fyrir sann- gjörnum leikreglum. STEFNT er að því að taka sáttaum- leitan upp í íslenskt réttarkerfi í til- raunaskyni til að refsa sakhæfum ein- staklingum fyrir minniháttar afbrot, sem byggist á hugmyndum um upp- byggilega réttvísi. Þá verður boðið upp á sáttaumleitan í málum ósak- hæfra gerenda, en það hefur gefið mjög góða raun í Miðgarði í Grafar- vogi. Þetta var ákveðið á fundi rík- isstjórnarinnar í gær. Með sáttaumleitan í sakamálum er átt við að leiða saman brotamann og brotaþola með þeim tilgangi að koma þeim sem brotið hefur af sér í skilning um þau rangindi sem hann hefur við- haft, fá hann til að friðmælast við brotaþola og skapa grundvöll fyrir þá að komast að samkomulagi um mála- lok. Ekki slegið af kröfunum Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra segir að ýmsir aðilar hafi skor- að á íslensk stjórnvöld að taka sátta- umleitan inn í íslenskt réttarkerfi og aðferðin hafi gefið góða raun víða um heim. Hann skipaði nefnd síðasta haust sem fylgdist með árangri Hringsins í Miðgarði, sem er tilrauna- verkefni með sáttaumleitan í afbrot- um ósakhæfra barna, sem hefur verið starfrækt frá árinu 2001. Það er á grundvelli tillagna frá nefndinni sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að hrinda tilraunaverkefni með sakhæfa einstaklinga af stokk- unum. „Þetta er aðferð sem hefur verið að ryðja sér til rúms á undan- förnum árum víða um lönd og það má segja að við höfum frekar dregist aft- ur úr hér og ekki fylgt tímans straumi,“ segir Björn. Einnig verður sett á laggirnar sátt- aráð, sem mun fá mál send til sátta- meðferðar af hálfu ákæruvaldsins. Í minnisblaði sem lagt var fram á rík- isstjórnarfundi í gær kemur fram að í upphafi sé gert ráð fyrir því að ein- ungis minniháttar mál komi til kasta sáttaráðs. Skipuð verður þverfagleg nefnd á vegum dómsmálaráðuneytis- ins sem hefur eftirlits- og samræm- ingarhlutverk með verkefninu auk þess sem stefnt er að því að ríkissak- sóknari gefi út almenn fyrirmæli eða leiðbeiningar til lögreglustjóra um sáttaumleitun. Leiðir unga afbrotamenn af braut afbrota „Sumir kunna að segja að við séum að slá eitthvað af. Það eru margir sem hafa þá skoðun að það eigi að beita refsivendinum, en ég tel að þetta úr- ræði eigi að vera í boði hér því við eig- um að stuðla að því að byggja upp sjálfsmynd og sjálfsstyrk þolenda og gerenda í afbrotum. Þetta þýðir ekki að við séum að slá af kröfum gagnvart þeim sem fremja afbrot,“ segir Björn. Í minnisblaðinu kemur fram að nefndin telur marga kosti felast í sáttaumleitan. Úrlausn minniháttar mála sé færð til einstaklinganna sjálfra, sem gefi möguleika á skjót- virkari meðferð mála. Þá sé um leið tekinn ákveðinn þungi af ákæruvald- inu og dómstólum auk þess sem rétt- arstaða brotaþola sé styrkt. Einnig sé aðferðin líkleg til að hafa uppeldisleg áhrif á unga brotamenn og leiða þá af braut afbrota. Brot bætt með samfélagsvinnu Tilraunaverkefnið Hringurinn sem unnið hefur verið í Miðgarði í Graf- arvogi byggist á þessari hugmynda- fræði. Alls hafa 34 börn tekið þátt í verkefninu frá árinu 2001, þegar það hófst, og hefur afbrotum í hverfinu í þeim málaflokkum sem koma við sögu, þ.e. þjófnuðum, eignaspjöllum og minniháttar skemmdarverkum, fækkað nokkuð á þeim tíma, að sögn Ingibjargar Sigurþórsdóttur, fram- kvæmdastjóra Miðgarðs. Þar hefur eingöngu börnum sem eru ósakhæf vegna aldurs, það er 15 ára eða yngri, verið boðin þátttaka í verkefninu, þar sem íslenskt réttarkerfi býður í dag ekki upp á þennan möguleika. Ingibjörg segir að mikil ánægja sé hjá þeim sem tekið hafi þátt í verkefn- inu. „Við leggjum mikla áherslu á að bjóða krökkum sem lenda í afbrotum í þessum málaflokkum og foreldrum þeirra upp á þessa þjónustu. Í Hringnum koma saman gerandi, for- eldrar hans, þolandi og Hringsstarfs- maður sem er í raun sáttamaður í þessari vinnu. Auk þess höfum við kallað til aðra úr hverfinu. Það hafa jafnvel verið aðilar sem krakkarnir hafa kosið að vinna hjá í stuttan tíma á eftir, í raun og veru til að bæta fyrir þessi mistök sín,“ segir Ingibjörg. Hún segir að vinnan sem krakkarn- ir taki sér á hendur í kjölfar þess að ræða málin við þolanda afbrotsins, foreldra sína og aðra, tengist ekki alltaf afbrotinu. Þannig að barn vinni t.d. ekki í þeirri búð sem það hafi stol- ið frá. „Þau hafa farið á ýmsa staði í hverfinu, eins og sambýli, sundlaug- ina, leikskóla, vélamiðstöð og bif- reiðaverkstæði.“ Ingibjörg segir að þar sem börnin séu ekki sakhæf sé það algjörlega val þeirra sjálfra og foreldranna hvort þau taki þátt í þessu starfi eða ekki. Ákveðið hafi verið að taka ekki á allra minnstu brotunum, en ef þjófnaður fari upp yf- ir 2.000 krónur sé barninu og aðstand- endum þess boðin þátttaka í Hringn- um. Sáttaumleitan verði tekin upp í réttarkerfinu ÍSLENSK stjórnvöld voru ákveðin í að sækja um aukaaðild að Evrópu- sambandinu (ESB), sem þá hét Evr- ópubandalagið, árið 1961, en ekkert varð úr því þar sem de Gaulle Frakk- landsforseti lýsti því yfir að hann væri andsnúinn stækkun bandalags- ins. Þetta kemur fram í nýrri bók, Ís- land og Evrópusamruninn, ritstýrðri af Baldri Þórhallssyni, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands. Í bókinni er afstaða íslenskra stjórnvalda til Evrópusamrunans könnuð, og er bókin afrakstur þriggja ára rannsóknarvinnu. Þar kemur m.a. fram að nefnd sem hafði það hlutverk að kanna fríversl- unarmál var stofnuð árið 1961, og komst hún að þeirri niðurstöðu að Ís- land ætti að sækja um aðild að Frí- verslunarsamtökum Evrópu (EFTA), þrátt fyrir að nefndin teldi að EFTA myndi ekki endast lengi. Taldi nefndin að EFTA væri hugsað til að bæta stöðu ríkjanna sem aðild áttu að samtökunum fyrir hugsan- lega umsókn þeirra að ESB, og því myndu samtökin fljótlega verða til- gangslaus þegar þessi ríki gengju í sambandið. Mikill þrýstingur var á ríkis- stjórnina að sækja um aðild að ESB á þessum tíma, og kannaði Viðreisn- arstjórn sú er þá var við völd málið bæði innanlands og utan, og ákvað að lokum að rétt væri fyrir Ísland að sækja um aukaaðild að ESB. Til þess kom þó aldrei, og í bók Baldurs er sú skýring nefnd að de Gaulle, forseti Frakklands, lýsti andstöðu sinni við að stækka sambandið. Haldið verður málþing um efni bókarinnar á föstudagsmorgun kl. 8:30 í sal Öskju, náttúrufræðihúss HÍ. Þar verður Halldóri Ásgríms- syni utanríkisráðherra afhent fyrsta eintak bókarinnar og rætt um efni hennar. Erindi verða haldin um af- stöðu íslenskra stjórnvalda til Evr- ópusamrunans, tengsl þingmanna við sjávarútveg og áhrif þess á Evr- ópuumræðuna, og þjóðernishyggju í samhengi við Evrópumálin. Ný bók um Ísland og Evrópusamrunann Stjórnvöld vildu sækja um aðild að ESB 1961

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.