Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin til Portúgal þann 16. júní á
hreint ótrúlegum kjörum. Njóttu frísins á Algarve, vinsælasta
áfangastaðar Portúgal við frábærar aðstæður um leið og þú nýtur
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í fríinu. Þú bókar núna,
tryggir þér síðustu sætin og 3
dögum fyrir brottför færðu að
vita á hvaða gististað þú býrð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug,
gisting, skattar. Vikuferð, 16. júní.
Stökktutilboð, netverð.
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í stúdíó/íbúð, vikuferð, 16. júní,
netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Portúgal
16. júní
frá kr. 29.995
í fremstu röð í umhverfismálum með
viðleitni sinni. Siv þakkaði fyrirtækj-
unum fyrir framtakið og bætti við að
ENDURVINNSLUSTÖÐ fyrir
bensíngufur frá olíustöðinni í Örfir-
isey var formlega tekin í notkun í
gær. Stöðin, sem er staðsett hjá olíu-
tönkunum, vinnur bensín úr bensín-
gufum og mun draga verulega úr
loftmengun á svæðinu. Hingað til
hefur bensínlykt lagt yfir svæðið í
ákveðnum veðurskilyrðum en inn-
öndun slíkra gufa getur verið hættu-
leg mönnum.
Bygging endurvinnslustöðv-
arinnar er sameiginlegt verkefni eig-
anda olíutankanna, Olíudreifingar
og Skeljungs ehf. Samkvæmt reglu-
gerð frá 1999 er fyrirtækjum sem
reka birgðastöðvar fyrir bensín
skylt að takmarka magn bensíngufa
í lofti í útblæstri frá slíkum stöðvum.
Með tilkomu hins nýja búnaðar fer
loftmengun frá stöðinni langt niður
fyrir það hámark sem reglugerðin
kveður á um.
Framsýnt skref
Siv Friðleifsdóttir umhverf-
isráðherra gangsetti endur-
vinnslustöðina í fyrsta sinn í gær að
viðstöddum forsvarsmönnum fyr-
irtækjanna og öðrum gestum. Við
það tilefni sagði Siv m.a að bygging
stöðvarinnar væri framsýnt skref af
hálfu fyrirtækjanna sem skipuðu sér
sá tími væri nú liðinn að starfsmenn
borgarinnar á sviði umhverfismála
þyrftu að ganga um Örfirisey með
nefið út í loftið til að finna hvaðan
bensínlyktin kæmi.
110 þúsund bensínlítrar
vinnast árlega
Kostnaður við byggingu stöðv-
arinnar er áætlaður um 100 milljónir
króna og framkvæmdir hafa tekið
um þrjú ár. Endurvinnsla bensínguf-
anna minnkar loftmengun á svæðinu
niður í um 10 grömm á rúmmetra en
leyfilegt hámark er 35 grömm. Til-
koma stöðvarinnar hefur þó ekki
eingöngu umhverfislegan ávinning í
för með sér, því stöðin endurvinnur
árlega um 110 þúsund lítra af bensíni
úr bensíngufunum, sem hafa hingað
til sloppið út í andrúmsloftið. Til
samanburðar má nefna að það magn
dugir til að fylla fjóra olíuflutn-
ingabíla af stærstu gerð.
Endurvinnslustöðin tekur bæði
við bensíngufum sem verða til við að
bensíni er dælt úr tönkunum yfir á
olíubíla og einnig bensíngufum sem
verða til þegar olíubílarnir skila af
sér bensíni á bensínstöðvarnar. Olíu-
bílarnir hafa sérstakan búnað sem
tryggir að gufurnar sleppi ekki út í
loftið við afhendingu á bensíni.
Endurvinnslustöðin er hönnuð í
Danmörku og hefur verið seld víðs-
vegar um heim.
Umhverfisráðherra opnaði endurvinnslustöð fyrir bensíngufur í Örfirisey
Morgunblaðið/Árni Torfason
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra gangsetur endurvinnslustöðina í Ör-
firisey. Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar, fylgist með.
Bensínlyktin heyrir sögunni til
KJARASAMNINGUR Starfs-
greinasambands Íslands við ríkið,
sem undirritaður var 7. apríl, hefur
verið samþykktur í öllum aðildar-
félögum sambandsins sem málið
varðar nema hjá Verkalýðsfélagi
Akraness og hjá Verkalýðsfélaginu
Vöku, Siglufirði. Á kjörskrá voru
2.134 en 33% greiddu atkvæði um
samninginn í öllum félögunum og
var niðurstaðan sú að 81,3% sam-
þykktu hann en 18% greiddu at-
kvæði gegn samningnum. Á Akra-
nesi höfnuðu 87,5% af þeim sem
greiddu atkvæði samningnum og á
Siglufirði 94%. Hjá stærstu fé-
lögum Starfsgreinasambandsins var
samningurinn hins vegar sam-
þykktur með miklum mun: 92,4%
hjá Eflingu-stéttarfélagi í Reykja-
vík, 96% hjá Einingu Iðju á Ak-
ureyri, 72% í Keflavík og í Grinda-
vík, 93% samþykktu samninginn á
Selfossi og 68,6% hjá Afli, Austur-
landi.
Kosið um samning
Starfsgreina-
sambandsins við ríkið
Samþykkt-
ur nema á
Akranesi og
á Siglufirði
413 METRA djúp borhola opnaðist í
síðustu viku úr aðrennslisgöngum
Kárahnjúkavirkjunar lóðrétt niður
að væntanlegri stöðvarhússhvelf-
ingu í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal.
Frá þessu greinir á vef Kárahnjúka-
virkjunar.
Holan verður notuð til að bora svo-
kölluð fallgöng fyrir vatn sem
streymir úr Hálslóni að hverflum
virkjunarinnar. Fallgöngin verða
lengstu beinu fallgöng í heimi. Bor-
holan, sem kalla má stýriholu (pilot
hole), gegnir lykilhlutverki í verkinu
sem fram undan er við að bora fall-
göngin.Vírar verða dregnir í gegnum
holuna, borkróna fest í þá niðri og
krónan síðan dregin upp. Fallgöngin
verða yfir 400 metra löng og 4 metr-
ar í þvermál. Tvenn slík verða boruð
í fjallinu. Fallgöngin verða fóðruð
stáli og koma til með að verða þau
lengstu sinnar tegundar í heiminum.
Þegar borinn komst á leiðarenda
fór vatn að fossa niður úr holunni
eins og búist hafði verið við. Vaxandi
spenna var hins vegar á svæðinu
meðan mælt var hve miklu kynni að
skeika að borholan væri 100% lóðrétt
og höfðu starfsmenn stofnað veð-
banka af því tilefni. Skekkjan verður
að vera innan við 1% og reyndist
langt innan þeirra marka eða 19,2
cm, s.s. 0,046%. Þeir hafa því smið-
saugað í fínu lagi, bormennirnir
eystra. Sá sem vann pottinn í veð-
bankanum giskaði á að skekkjan yrði
19 cm og í öðru sæti var sá sem gisk-
aði á 19,5 cm.
Sniðið sýnir aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar liggja lóðrétt niður að væntanlegri stöðvarhússhvelfingu og
tengd göng út úr Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal. Mjög vel tókst til við borun ganganna.
Mátti engu skeika í borun
stærsta landið í Sambandslýðveldinu
Þýskalandi. Orkumál eru ofarlega á
baugi hjá Teufel en í gær heimsótti
hann einnig fyrirtækið Nýorku sem
tekur þátt í vetnisverkefninu svo-
kallaða ásamt þýsk-ameríska fyr-
irtækinu DaimlerChrysler.
Í dag mun Teufel hitta Davíð
Oddsson forsætisráðherra ásamt því
að funda með Þýsk-íslenska versl-
unarráðinu.
ERWIN Teufel, forsætisráðherra
Baden-Württemberg, átti fund með
forseta Íslands, Ólafi Ragnari
Grímssyni, á Bessastöðum í gær-
morgun.
Á fundinum var m.a. rætt um
samskipti Íslands og Þýskalands á
sviði viðskipta, menningar, ferða-
mála og orkumála svo eitthvað sé
nefnt.
Baden-Württemberg er þriðja
Ræddu
samskipti Íslands
og Þýskalands
Morgunblaðið/Þorkell