Morgunblaðið - 26.05.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 11
ÞÉTTING byggðar og mikilvægi
almenningssamgangna voru meðal
umræðuefna á nýlegri ráðstefnu
um samgöngumál í litlum og miðl-
ungsstórum borgum. Ráðstefnan
var á vegum ACCESS-samtak-
anna sem eru samtök rúmlega 140
borga og sveitarfélaga í Evrópu.
Markmið samtakanna er að sporna
gegn auknu umferðarálagi, loft-
mengun, gróðurhúsaáhrifum og
hávaðamengun en þau standa m.a.
fyrir bíllausa deginum sem haldinn
er í september ár hvert.
Alison Dunatov var meðal mæl-
enda á ráðstefnunni en hún starfar
við skipulagingu á samgöngu-
málum í Cambden í London. Hún
bendir á að Reykjavík sé stækk-
andi borg og því mikilvægt að
huga vel að skipulagi byggðar.
„Þrátt fyrir að það sé mikið pláss í
Reykjavík virðist vera nokkuð góð
skipulagning því byggðin er ekki
eins dreifð og hún gæti verið. Al-
menningssamgöngur virðast þó
helst vera nýttar af fólki sem hef-
ur ekki aðra möguleika. Það er
nauðsynlegt að huga vel að þess-
um málum því ef byggðin heldur
áfram að dreifast og fólk notast
nánast eingöngu við einkabíla mun
það leiða til vandamála vegna
mengunar og umferðarþunga.“
Dunatov segir að í London sé sí-
fellt verið að leggja meiri áherslu
á að fá fólk til að notast við eigin
orku á ferðum sínum um borgina.
„Við reynum að gera fólki ljóst
hversu auðvelt það er að fara ferða
sinna gangandi,“ segir hún og
bætir við að umhverfið þurfi að
vera gönguvænt.
Manneskjan gerð til að ganga
Janina Pakrywa, sem fer fyrir
stefnumótun í samgöngumálum í
Krakow, Póllandi, tekur í sama
streng og Dunatov. „Manneskjan
er gerð til að ganga en í dag eyð-
um við miklum tíma sitjandi á
skrifstofum og ferðumst svo um í
einkabílum.“ Hún segir að í Krak-
aw séu almenningssamgöngur
nýttar mun meira en hér í Reykja-
vík. „Mengun af völdum bíla er
eitt mesta mengunarvandamál
allra stórborga. Það verður því að
huga að öðrum samgönguleiðum.
Við reynum að sameina ólíkar
samgöngur, t.d. að það sé auðvelt
að taka reiðhjól með í strætisvagn
og svo framvegis,“ segir Pakrywa.
Lýðræðislegt ferli
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
fulltrúi í samgöngunefnd Reykja-
víkurborgar, segir mikilvægt að
skipulagning á samgöngum og á
byggð haldist í hendur. „Skipulag
þarf að vera lýðræðislegur ferill
þar sem efnt er til funda og sam-
ræðna við íbúa og hagsmunaaðila
og þá sem eiga að búa í skipulag-
inu og nota skipulagið. Við höfum í
gegnum tíðina alltof oft sagt fólki
hvað við ætlum að gera en ekki út-
skýrt hvers vegna. Þá verður öll
samræðan á átakagrunni.“
Steinunn Valdís bendir á að í að-
alskipulagi borgarinnar sé megin-
áhersla á þéttingu byggðar. „Þá
verður nýting allrar grunngerðar
betri, auðveldara að halda uppi al-
menningssamgöngum, kostnaður
minni og svo framvegis.“ Hún seg-
ir jafnframt að það sé algengt hér
á landi að fólk vilji búa í borg en
samt í sveit. „Það vilja allir þétt-
ingu [byggðar] svo lengi sem það
er ekki í þeirra eigin bakgarði. “
Steinunn segir ráðstefnu sem
þessa mikilvæga til að við getum
lært af öðrum þjóðum sem eru
kannski lengra komnar í þessum
málum. Það opni jafnframt fyrir
möguleika á að læra af mistökum
annarra.
Ráðstefna um samgöngumál í litlum og miðlungsstórum borgum
Þéttari byggð og góðar
almenningssamgöngur
Morgunblaðið/Árni Torfason
Huga þarf vel að ólíkum samgönguleiðum í Reykjavík en mengun af völd-
um einkabíla er mikið vandamál víða um heim.
LÆKNARÁÐ telur að stórfelldur
samdráttur á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi (LSH) til viðbótar þeim
sem þegar er hafinn geti stefnt ör-
yggi sjúklinga í hættu. „Læknaráð
leggur því enn til við stjórnvöld að
fallið verði frá fyrirhuguðum sparn-
aðaraðgerðum á LSH og að bygging-
arframkvæmdum við Landspítala –
háskólasjúkrahús verði hraðað,“
segir í ályktun frá aðalfundi lækna-
ráðs.
Þar segir einnig að hætta sé á að
frekari samdráttur muni stöðva
nauðsynlega framþróun, bæði hvað
varðar lækningar, kennslu og vísindi
með alvarlegum afleiðingum.
Starfsemina á einn stað
Í ályktuninni hvetur læknaráð til
þess að stefnumótun í heilbrigðis-
þjónustu verði hraðað, þannig að
skýrt sé hvaða verkefnum LSH
verði gert að sinna. „Langvarandi
óvissa um rekstur og framtíð LSH er
til þess fallin að brjóta niður starfs-
anda og því er mikilvægt að sjúkra-
húsinu sé skapaður starfsfriður,“
segir í ályktuninni.
Þá telur læknaráð að frekari hag-
ræðingarmöguleikar sjúkrahússins
felist í því að starfsemi þess verði
komið fyrir á einum stað. „Þá fyrst
getur orðið marktæk hagræðing í
rekstri og þjónustu sjúkrahússins.“
Læknaráð ályktar um
niðurskurð á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi
Vill að fall-
ið verði frá
sparnaðar-
aðgerðum
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
R
Í
7
0
5
-0
4
Dagsk rá
Ávarp menntamálaráðherra
Erindi frá háskólasamfélaginu
Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands
og Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor Tækniháskóla Íslands
Skilaboð frá atvinnulífinu
Jóhannes Gíslason, framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs Primex
og Helga Waage, stofnandi og tæknistjóri Hex
Sjónarmið frá vísindanefnd og tækninefnd
Hafliði Pétur Gíslason, formaður vísindanefndar
og Hallgrímur Jónasson, formaður tækninefndar
Fundarstjóri er Hans Kr. Guðmundsson forstöðumaður Rannís
RANNSÓKNAÞ ING2004
SAMSTARF HÁSKÓLA , RANNSÓKNASTOFNANA OG ATV INNUL Í FS
Rann í s boða r t i l Rannsóknaþ i ngs
og morgunve rða rh l aðbo rðs
í s amsta r f i v i ð r áðuneyt i menntamá l a og i ðnaða r
fös tudag i nn 28 . ma í
k l . 9 :00 - 11 :00 á G rand Hóte l .
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2004 verða afhent kl. 11:15
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti til rannis@rannis.is
eða í síma 515 5800