Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti reyndi að kveða niður vaxandi efasemdir um stríðið í Írak í ræðu sem hann flutti í herskóla í Pennsylv- aníu í fyrrinótt. Hann reyndi að sann- færa bandaríska kjósendur um að hann hefði áætlun sem dygði til að binda enda á ofbeldið og glundroðann í Írak og stuðla að lýðræði og hag- sæld í landinu. Bush sagði meðal annars að Bandaríkjaher yrði áfram í Írak þar til lýðræði yrði komið á og kvaðst vera tilbúinn að senda þangað fleiri hermenn ef yfirmenn hersins teldu það nauðsynlegt. Forsetinn útlistaði áætlun í fimm liðum sem hann sagði að myndi stuðla að lýðræði og frelsi í Írak: ný írösk bráðabirgðastjórn ætti að taka við völdunum 30. júní, komið yrði á friði á svæðum þar sem glundroði rík- ir enn, fleiri ríki yrðu fengin til að styðja aðgerðirnar, landið yrði end- urreist og þingkosningar skipulagð- ar. „Það verður ekki auðvelt að ljúka þessum fimm áföngum að ríkisstjórn sem kjörin er af Írökum sjálfum,“ sagði Bush. Um 138.000 bandarískir hermenn eru nú í Írak og forsetinn sagði að liðsaflanum yrði haldið þar eins lengi og nauðsynlegt væri en yf- irmenn hersins væru alltaf að end- urmeta þörfina. „Þurfi þeir fleiri her- menn sendi ég þeim þá.“ Eykur þrýstinginn á Kerry Fréttaskýrendur The Washington Post, Robin Wright og Mike Allen, segja að í ræðunni hafi Bush ekki boðað neinar nýjar aðgerðir til að binda enda á ofbeldið í Írak og koma á lýðræði. Hann hafi ekki svarað ýmsum áleitnum spurningum um stefnu hans í málefnum Íraks. John F. Kerry, forsetaefni demó- krata, tók í sama streng og sagði að í ræðunni væri fátt sem forsetinn hefði ekki sagt áður. Fréttaskýrandi Los Angeles Tim- es, Ronald Brownstein, segir hins vegar að Kerry hafi ekki kynnt neina skýra áætlun um hvað hann hyggist gera í málefnum Íraks verði hann kjörinn næsti forseti Bandaríkjanna. Ræða Bush geti því aukið þrýsting- inn á Kerry að útskýra betur stefnu sína í Íraksmálunum. Peter Fever, stjórnmálafræðingur við Duke-háskóla, sem hefur rann- sakað viðhorf bandarísks almennings í öryggismálum, segir að erfitt verði fyrir Kerry að finna svar við ræðu Bush. „Það verður erfitt að finna eitt- hvað í ræðunni sem er til marks um þvermóðsku og gerir andstæðingum hans kleift að benda á nýjar leiðir.“ Fever og fleiri sérfræðingar í bandarískum stjórnmálum segja að verði ræðan til þess að stuðningurinn við stefnu Bush aukist verði það fljótt að breytast batni ekki ástandið í Írak. The New York Times sagði ólík- legt að ræða Bush dygði til þess að sannfæra almenning í Bandaríkjun- um um að hann væri á réttri braut í Íraksmálunum. Ræðan hefði verið góð fyrir ári þegar stjórn Saddams Husseins var steypt en ekki nú „eftir nær 14 mánaða mistök, sem forsetinn hefur ekki viðurkennt“. Abu Ghraib-fangelsið rifið Í ræðunni sagði Bush ennfremur að Abu Ghraib-fangelsið illræmda í Írak yrði rifið niður og nýtt fangelsi reist í staðinn. Þessi ummæli vöktu ekki mikla hrifningu í Írak. Ahmed Hassan al- Uqaili, varaformaður Mannréttinda- samtaka Íraks, sagði að Írakar ættu sjálfir að ákveða hvað gera ætti við fangelsið. „Þetta er brella til að vinna for- setakosningarnar í Bandaríkjunum,“ sagði al-Uqaili og bætti við að mik- ilvægast væri að binda enda á mis- þyrmingar og niðurlægjandi meðferð á íröskum föngum. Reuters Bandarískur hermaður fylgist með íröskum konum fyrir utan Abu Ghraib-fangelsið, nálægt Bagdad. Konurnar biðu í gær eftir upplýsingum um ættingja sína í fangelsinu og óttast að þeir hafi sætt illri meðferð. Bush Bandaríkjaforseti útlistar áætlun sína um lýðræði í Írak Reynir að kveða niður efasemdir um stefnuna Kveðst tilbúinn að senda fleiri hermenn til Íraks ef þörf krefur Carlisle. AP, Los Angeles Times, Washington Post. STUÐNINGUR bandarísks al- mennings við stefnu George W. Bush forseta í málefnum Íraks hefur aldrei verið jafn lítill og nú, ef marka má nýja skoðanakönnun Washington Post og ABC- sjónvarpsins. Samkvæmt könnuninni hefur stuðningurinn við forsetann minnkað síðustu vikurnar á nánast öllum sviðum Íraksmálanna. Aðeins 47% aðspurðra sögðust ánægð með störf forsetans al- mennt, færri en nokkru sinni fyrr frá því að hann tók við embættinu. 50% aðspurðra sögðust vera óánægð með störf forsetans. Aðeins 40% – færri en nokkru sinni fyrr frá innrásinni í Írak í mars í fyrra – sögðust ánægð með frammistöðu Bush í Íraksmál- unum. Þegar spurt var hvort Banda- ríkjaher ætti að vera áfram í Írak þar til komið yrði á friði og lýð- ræði sögðust 58% vera hlynnt því, átta prósentustigum færri en fyrir mánuði. 40% aðspurðra sögðust vilja að hersveitirnar yrðu kallaðar heim til að koma í veg fyrir frekara mannfall, sjö prósentustigum fleiri en fyrir mánuði. Kerry að ná forskoti? Þrátt fyrir þetta er enn enginn munur á fylgi Bush og Johns Kerrys, forsetaefnis demókrata, ef marka má könnun Washington Post og ABC. Þegar spurt var hvern þeir myndu kjósa ef kosn- ingarnar færu fram nú nefndu 46% aðspurðra Bush, jafn margir Kerry og 4% Ralph Nader. 49% sögðust myndu kjósa Kerry og 47% Bush ef valið stæði aðeins milli þeirra. Ný könnun CBS-sjónvarpsins bendir hins vegar til þess að Kerry hafi náð verulegu forskoti. 49% skráðra kjósenda sögðust myndu styðja Kerry í kosning- unum og aðeins 41% sögðust ætla að kjósa Bush. Könnun CBS bendir ennfremur til þess að tveir af hverjum þrem- ur Bandaríkjamönnum telji að landið sé á rangri braut og hafa aldrei jafn margir verið þessarar skoðunar frá því að CBS byrjaði að spyrja þessarar spurningar í könnunum sínum fyrir 20 árum. Stuðningurinn við Bush hefur aldrei verið minni Washington Post, AFP. HELGISKRÍN, sem sagt er varð- veita fingurbein úr Búdda, var í gær flutt um borð í flugvél í borg- inni Xian í Shaanxi-héraði í Kína. Skrínið var ásamt um 20 öðrum dýrgripum sent til Hong Kong þar sem munirnir verða sýndir við há- tíðarhöld í tilefni afmælis Búdda sem er í dag, 26. maí. AP Fingurbein Búdda DRENGUR sem fæddist í Man- chester fyrir tveimur árum var getinn með 21 árs gömlu sæði sem faðir hans lét frysta áður en hann hóf meðferð við krabbameini í eistum, skv. frétt á vef breska rík- isútvarpsins BBC. Læknar við St. Mary’s-sjúkra- húsið í Manchester, þar sem drengurinn fæddist, segja þetta heimsmet í sögu tæknifrjóvgunar því egg hafi aldrei áður verið frjóvgað með svo gömlu sæði. Þetta bendi til þess að sæði við- haldi gæðum sínum og frjósemi þó það sé fryst til svo langs tíma. Elizabeth Pease, einn læknanna við spítalann, segir þetta afar mik- ilvæga uppgötvun. Ungir krabba- meinssjúklingar séu undir miklu andlegu álagi og setji eigin frjó- semi ekki framarlega í forgangs- röðina á slíku álagstímabili í lífi sínu. Þetta sé því afar mikilvægt fyrir fólk sem greinist ungt með krabbamein en vill eignast börn að meðferð lokinni því það gefi þeim von um bjartari framtíð. Faðir drengsins var aðeins 17 ára gamall þegar hann greindist með krabbamein í eistum. Hann lét frysta sæði sitt fyrir krabba- meinsmeðferðina sem myndi gera hann ófrjóan. Árið 1995 ákvað hann ásamt eiginkonu sinni að gera tilraun til tæknifrjóvgunar með sæðinu en hún misheppnað- ist. Þremur tilraunum síðar tókst loks að frjóvga egg úr konunni og barnið kom í heiminn árið 2002. Tvítugt sæði frjóvgar egg LÖGREGLAN í Malmö í Svíþjóð hefur handtekið 16 ára dreng, sem grunaður er um að hafa lagt á ráðin um fjöldamorð í Slottsstadens-skól- anum í borginni. Sænska ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær en í frétt Svenska Dagbladet sagði að drengurinn hefði verið handtekinn fyrir þremur vik- um. Drengurinn og tveir yngri félagar hans eru grunaðir um að hafa haft í hyggju að myrða kennara og nem- endur, sprengja upp skólann og fremja svo sjálfsmorð. Áætlunin þykir minna á frásagnir af fjölda- morðum í bandarískum skólum. Yngri drengirnir hafa viðurkennt hlutdeild sína í málinu og hefur þeim verið sleppt. Búist er við að dreng- urinn sem sagður er höfuðpaurinn verði ákærður á næstu dögum. Á heimili drengsins fundust skot- vopn og mikið magn efna sem hægt er að nota við sprengjugerð. Drengurinn neitar sök, en dagbók hans þykir gefa sterkar vísbending- ar um að hann hafi lagt á ráðin um fjöldamorð. Drengurinn hefur áður komið við sögu lögreglu í tengslum við að hafa loftbyssu í fórum sínum. Fjöldamorði afstýrt í Svíþjóð? ♦♦♦ HARRI Holkeri, æðsti embættis- maður Sameinuðu þjóðanna í Kos- ovo, skýrði frá því í gær að hann hefði sagt af sér. Holkeri, sem er fyrrverandi for- sætisráðherra Finnlands, hafði sætt gagnrýni fyrir að gera lítið úr átök- um milli albanskra og serbneskra íbúa Kosovo sem kostuðu nítján manns lífið í mars. Holkeri tók við embættinu fyrir níu mánuðum. Hann vísaði á bug ásökunum um að hann hefði getað gert meira til að sætta Serba og Alb- ana í Kosovo, sem hefur verið undir stjórn SÞ frá júní 1999. Holkeri læt- ur af embætti Helsinki. AFP. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.