Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 45
SPÁNVERJINN
Fernando Morien-
tes, framherji Móna-
kó, mun að öllu
óbreyttu verða
krýndur marka-
kóngur Meist-
aradeildar Evrópu í
knattspyrnu. Fyrir
úrslitaleik Mónakó
og Porto í kvöld er
félagi Morientes í
framlínu Mónakó,
Króatinn Dato Prso,
sá eini sem getur
ógnað Spánverj-
anum. Morientes er
markahæstur í
keppninni með 9
mörk, Prso kemur
næstur með 7 og
þeir Roy McKaay,
Bayern München,
og Walter Pandi-
ani, Deportivo La
Coruna, skoruðu 6
mörk í keppninni.
Markahæsti
leikmaður Porto
er Suður-
Afríkumaðurinn
Benni McCarthy
sem hefur skorað
4 mörk og þeir
Costinha, Bras-
ilíumaðurinn Der-
lei og Maniche eru
allir með 3 mörk.
Spánverjinn Morientes
markakóngur Evrópu
FÓLK
KIM Milton Nielsen sem dæmir
úrslitaleik Mónakó og Porto í Meist-
aradeild Evrópu fær á bilinu 120–
140.000 krónur í laun fyrir leikinn.
Það er sömu laun og dómurum er al-
mennt greitt fyrir að dæma leiki í
Meistaradeildinni, sem sagt, það er
engin uppbót á launin til þess sem
dæmir úrslitaleikinn.
BRASILÍSKI varnarmaðurinn
Lucio er á leið til Bayern München
frá Bayer Leverkusen fyrir um 1,3
milljarða króna.
MICHAEL Owen framherji Liver-
pool segist ekki ætla taka ákvörðum
um hvort hann framlengi samning
sinn við félagið fyrr liggur ljóst fyrir
hver verður næsti knattspyrnustjóri
liðsins.
ALAN Smith framherji Leeds
United mun ganga í raðir Manchest-
er United í vikunni, stuðningsmönn-
um Leeds til mikillar gremju en mik-
ill rígur er á milli félaganna. Talið er
að United greiði 7 milljónir punda
fyrir Smith, sem er 23 ára gamall, og
Leeds fær að auki hinn unga Danny
Pugh frá United.
ROBERTO Carlos, brasilíski bak-
vörðurinn í liði Real Madrid, er á leið
til Chelsea að sögn Jorge Valdano
yfirmanns knattspyrnumála hjá Ma-
dridarliðinu. Chelsea er tilbúið að
reiða fram 20 milljónir punda fyrir
hinn 31 árs gamla Carlos og greiða
honum 120.000 pund í vikulaun sem
eru tvöfalt hærri laun en hann hefur
hjá Real Madrid.
SKOSKI kylfingurinn Colin
Montgomerie þarf að spýta í lófana á
næsta atvinnumannamóti sem hann
tekur þátt í á Wentworth-vellinum.
Skotinn er sem stendur í 56. sæti á
heimslistanum og þarf hann að enda
í einu af fimm efstu sætunum á
Wentworth til þess að tryggja sér
þátttökurétt á Opna bandaríska
meistaramótinu.
Montgomerie endaði í 127. sæti á
síðasta móti sem hann tók þátt í en
það er versti árangur hans frá árinu
1987. Þess ber að geta að Montgom-
erie skildi við eiginkonu sína nýverið
og hefur átt erfitt uppdráttar á golf-
vellinum að undanförnu.
Írinn Paidraig Harrington ætlar
ekki að taka þátt á mótinu á Went-
worth en hann segir að völlurinn
henti einfaldlega ekki hans leikstíl.
SUÐUR-Afríkumaðurinn Ernie
Els segir við BBC að hann sé ekki
sáttur við ákvörðun Harrington og
telur Els að kylfingur á borð við
Harrington geti glímt við hvaða völl
sem er með góðum árangri.
BIRGIR Leifur Hafþórsson, Ís-
landsmeistari í golfi árið 2003, verð-
ur ekki með á fyrsta stigamóti ársins
sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli
um næstu helgi. Birgir Leifur þáði
boð norska golfsambandsins um að
taka þátt á móti sem fram fer í bæn-
um Sarpsborg rétt við landamæri
Svíþjóðar.
TEITUR Þórðarson, þjálfari
norska 2. deildar liðsins Ull/
Kisa, hefur átt góðu gengi að
fagna með liðinu í upphafi leik-
tíðar. Leikið er í fjórum riðlum
í 2. deild í Noregi og er liðið í
efsta sæti í öðrum riðli með 16
stig að loknum sjö umferðum.
Ull/Kisa hefur unnið fimm
leiki, gert eitt jafntefli og tapað
einum leik. Alls eru fjórtán lið í
riðlinum, og er Lörenskog þar
næst á eftir með 15 stig en þess
má geta að norski landsliðs-
maðurinn John Carew hóf feril
sinn hjá Lörenskog og hefur fé-
lagið hagnast ríkulega þar sem
Lörenskog fær hluta af sölu-
verði leikmannsins sem hefur
leikið með Vålerenga, Rosen-
borg, Valencia og Róma.
Teitur á
sigurbraut
LUDOVIC Giuly, fyrirliði Mónakó,
óttast að liðið flosni upp í lok leiktíð-
arinnar. Giuly, sem eins og margir
leikmanna Mónakó hefur vakið
verðskuldaða athygli fyrir fram-
göngu sína í Meistaradeildinni, segir
að margir leikmanna liðsins séu á
förum frá félaginu og hann útilokar
ekki að hann geri það líka. Þá er
framtíð Didiers Deschamps þjálfara
í mikilli óvissu en sögusagnir hafa
verið í gangi að hann sé búinn að
ganga frá samningi við Chelsea eða
Juventus.
Króatíski framherjinn Dado Prso
er þegar búinn að gera samning við
Rangers í Skotlandi og næsta víst er
að helsta stjarna liðsins, Spánverjinn
Fernando Morientes, hverfi á braut
og sömuleiðis þeir Hugo Ibarra og
Edouard Cisse en allir eru þeir á
lánssamningi hjá Mónakó.
„Það er allt óljóst hjá Mónakó fyr-
ir næsta tímabil. Þeir sem eru láns-
menn fara til annarra félaga, Prso
fer til Rangers og framtíðin er óljós
hjá okkur sem eftir erum. Mér þykir
mjög miður að við getum ekki haldið
sama liði eftir þetta frábæra tímabil.
Ég gleðst fyrir hönd Prso að hann sé
búinn að semja við Rangers en það
hefði auðveldlega verið hægt að
halda honum hjá Mónakó. Prso er
ekki þannig maður að hann sé að
elta peninga. Ég vil vera um kyrrt
hjá Mónakó og get ekki hugsað mér
að leika með neinu öðru frönsku liði.
En við leikmennirnir vitum ekki
hvað framtíðin ber í skauti sér. Það
ræðst mikið af því hvað verður um
Deschamps. Ef hann fer frá liðinu þá
er ég viss um að margir leikmenn
gera það sama,“ segir Giuly.
TAKIST portúgalska liðinu Porto
að sigra Mónakó í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu í kvöld verður það í ann-
að skiptið í sögunni sem félagið
verður Evrópumeistari. Liðið lék
sama leik árið 1987 þegar það
vann óvæntan sigur á Bayern
München, 2:1, í úrslitaleik í Vín-
arborg.
Porto nýtti sér þann sigur til
hins ýtrasta og vann báða titlana
sem í boði voru í framhaldi af
honum. Liðið lagði Ajax, 1:0, í
leiknum um Stórbikar Evrópu og
sigraði Penarol frá Uruguay í
leiknum um heimsbikar fé-
lagsliða.
Að auki hefur Porto einu sinni
unnið UEFA-bikarinn en það var
einmitt á síðasta tímabili þegar
liðið vann Glasgow Celtic, 3:2, í
úrslitaleik í Sevilla.
Portúgalar hafa tvívegis áður
orðið Evrópumeistarar. Benfica
var þar á ferð í bæði skiptin, árin
1961 og 1962.
Mónakó hefur aldrei áður náð
svona langt í Evrópukeppni.
Franskt lið hefur aðeins einu
sinni orðið Evrópumeistari. Mar-
seille vann Meistaradeild Evrópu
1993, fyrsta árið sem keppnin var
háð í núverandi mynd, en félagið
var reyndar svipt titlinum vegna
fjármálahneykslis.
Verður afrekið frá 1987 endurtekið?
Mourinho tók við þjálfun Porto íjanúar 2002 og síðan þá hefur
liðið verið á samfelldri sigurgöngu. Á
síðustu leiktíð vann liðið tvöfalt heima
fyrir í Portúgal og lauk tímabilinu
með sigri á Glasgow Celtic í úrslita-
leik UEFA-keppninnar. Nú ári síðar
hefur Porto unnið deildarkeppnina
með yfirburðum og er komið í úrslita-
leikinn í Meistaradeildinni, keppni
sem af mörgum er talin ein sú sterk-
asta sem um getur.
Nafn Mourinhos fór eins og eldur í
sinu um gjörvalla heimsbyggðina
þegar lærisveinar hans gerðu sér lítið
fyrir og slógu út stórlið Manchester
United í 16-liða úrslitum Meistara-
deildarinnar og í kjölfarið sparkaði
Porto liðum Lyon og Deportivo La
Coruna út úr keppninni á leið sinni í
úrslitaleikinn
„Þegar við unnum í Manchester þá
gerðum við okkur ljóst að við gætum
farið lengra í keppninni og jafnvel
alla leið í úrslitaleikinn,“ sagði hinn 41
árs gamli Mourinho. „Við erum
komnir í úrslitin og gætum jafnvel
staðið uppi sem sigurvegarar en þeg-
ar við hófum þátttöku í keppninni í
haust þá settum við okkur það mark-
mið að komast í 16-liða úrslitin. Það
er engin sérstök leyniformúla sem
býr að baki árangri okkar. Við erum
einfaldlega með gott lið og marga
góða leikmenn sem hafa lagt hart að
sér undanfarin ár.“
Mourinho þykir búa yfir miklum
persónutöfrum. Sjálfur var hann
aldrei góður knattspyrnumaður en
lærimeistari hans varð Sir Bobby
Robson, núverandi knattspyrnustjóri
Newcastle. Mourinho vann með Rob-
son hjá Sporting, Porto og Barcelona
og þjálfaraferill hans hófst síðan hjá
Benfica. Þaðan lá leiðin til Leiria og
þar uppgötvuðu forráðamenn Porto
hæfileika Mourinhos og réðu hann til
starfa og sjá líklega ekki eftir því.
Reuters
Jose Mourinho, þjálfari Porto, er ekki að falla á tíma – hann bíður spenntur eftir næsta leik.
José Mourinho, þjálfari Porto, og fyrrverandi túlkur Sir
Bobby Robsons, er tilbúinn með fylkingu sína gegn Mónakó
Engin sérstök
leyniformúla
JOSÉ Mourinho, þjálfari Porto, sem mætir Mónakó í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu í kvöld í Þýskalandi, var lítt eða ekkert
þekktur utan Íberíuskagans fyrir einu og hálfi ári, en núna er fyrr-
verandi túlkur sir Bobby Robsons, fyrrum þjálfara Sporting Lissa-
bon, orðinn einn eftirsóttasti knattspyrnuþjálfari í veröldinni.
Óttast að
lið Mónakó
flosni upp
Morientes fagnar marki.