Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Óljóst er
hvenær for-
setinn fær
lagaskjalið
HVORKI fengust svör í forsætisráðuneytinu né
á skrifstofu forseta Íslands í gær hvenær lög um
eignarhald á fjölmiðlum kæmu til staðfestingar
hjá forsetanum. Lögin komu úr prentsmiðju í
gærmorgun til Alþingis þar sem þeir skrifuðu
undir þau, Guðmundur Árni Stefánsson, fyrsti
varaforseti Alþingis, og Friðrik Ólafsson, skrif-
stofustjóri Alþingis, fyrir hönd Alþingis. Að því
loknu var lagaskjalið sent forsætisráðuneytinu.
Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneyt-
inu í gær lágu engar tímasetningar fyrir um það
hvenær lögin yrðu send úr ráðuneytinu til for-
setaembættisins.
31.752 undirskriftum
skilað til forseta
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, voru
í gærmorgun afhentar 31.752 undirskriftir Ís-
lendinga sem skora á hann að undirrita ekki lög
um eignarhald á fjölmiðlum, sem Alþingi sam-
þykkti á mánudag.
Undirskriftunum var safnað á tólf dögum að
frumkvæði Fjölmiðlasambands Íslands og aðild-
arfélaga þess. Í tilkynningu frá sambandinu seg-
ir að það sé ósk þessara kjósenda að þjóðin fái
notið þess lýðræðislega réttar að kjósa um lögin,
eins og kveðið sé á um í 26. grein stjórnarskrár-
innar.ÁLFABIKAR, sem konur eru með í
leggöngum þegar þær hafa tíðir í 5–7
daga í mánuði, er ekki æskilegur fyrir
þær konur sem hafa latexofnæmi.
Hér á landi hefur álfabikarinn verið
auglýstur sem latexfrír og henti því
konum sem þjáist af latexofnæmi.
Þetta kemur fram í viðtali við Anne
Mette Pedersen, formann fagdeildar
bráðahjúkrunarfræðinga. Hún varar
fólk við tíðri snertingu latex við slím-
húðina og segir að með því geti það
áunnið sér latexofnæmi en latex er í
fjölmörgum hlutum sem við notum
dagsdaglega eins og til dæmis í sum-
um hönskum, blöðrum sem gjarnan
eru notaðar í barnaafmælum, smokk-
um og álfabikar. Vægustu afbrigði af
latexóþoli lýsa sér með roða og kláða
en í alvarlegustu tilfellunum myndast
bjúgur á hálsi og á fleiri stöðum sem
getur lokað fyrir öndunarveg.
Latexofnæmi
vaxandi vandamál
Álfabikar ekki
fyrir konur
með ofnæmi
Latexofnæmi vaxandi/23
„SJÓRINN flæddi yfir palla og upp
á dínamó og síðan fór báturinn að
síga á bakborða,“ sagði Sigurður
Franz Þráinsson, skipstjóri á Svan-
borgu VE 53, sem sökk 3 mílur
austur af Bjarnarey í fyrrinótt.
Sigurður var ásamt föður sínum
um borð á leið til veiða í Víkina
þegar Svanborg sökk en þeim
tókst að bjarga sér í gúmbjörg-
unarbát þar sem þeir höfðust við í
um tæpan hálftíma uns þeim var
bjargað í björgunarbátinn Þór.
„Ég henti gúmmíbátnum í sjó-
inn, blés hann upp og batt hann við
skipshlið. Pabbi fór um borð í
gúmmíbátinn en ég fór upp í brú
til að senda út neyðarkall. Það tók
um 5–7 mínútur og síðan fór ég um
borð í gúmmíbátinn.“ Þeir feðgar
reru gúmbátnum fram undir stefni
Svanborgar til að forða því að
mastrið á sökkvandi fiskibátnum
félli á gúmbátinn og sprengdi
hann. Segir Sigurður að þeir hafi
dvalið 20–30 mínútur í gúmbátn-
um uns þeim var bjargað. Hann
segist ekki hafa hugmynd um
hvers vegna Svanborg sökk, en
gott veður var á þessum slóðum
þegar slysið varð. Hann segir að
mun verr hefði farið ef veðrið
hefði verið verra. „Það hefði verið
hrikalegt ef það hefði verið bræla.
En vistin í gúmmíbátnum var fín
og ég skaut upp tveim neyð-
arblysum og setti neyðarsendinn í
gang. Þegar björgunarbáturinn
Þór kom á staðinn var Svanborg
við það að sökkva og síðan fór hún
niður.“
Svanborg var 12 tonna eik-
arbátur, smíðaður árið 1973.
Fljótir á staðinn
Tilkynningarskyldunni barst
neyðarkallið frá Svanborgu kl.
00.15 í fyrrinótt og var þá Björg-
unarfélag Vestmannaeyja kallað
út tafarlaust. Var björgunarbát-
urinn Þór lagður af stað kl. 00.26
og hafði áhöfn hans bjargað þeim
feðgum kl. 00.40. Að mati Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar vek-
ur gott viðbragð áhafnar Þórs at-
hygli. Kl. 01.08 var Þór kominn til
hafnar með skipbrotsmennina.
Þór er einn af hraðskreiðustu
björgunarbátum Landsbjargar og
gengur 27 mílur á klst.
Sigurður Franz vildi koma á
framfæri sérstökum þökkum til
Björgunarfélags Vestmannaeyja
fyrir björgunina.
Feðgum bjargað eftir skipskaða við Vestmannaeyjar
Hefði getað farið verr í brælu
Ljósmynd/Tryggvi Sigurðsson
Svanborg VE 53 var 12 tonna eik-
arbátur, smíðaár 1973.
Flutti inn 940 stera-
töflur með póstinum
MAÐUR um fertugt hefur við yfirheyrslur lög-
reglu játað að hafa flutt inn 940 steratöflur, en
hann fékk efnið sent með pósti frá Danmörku.
Tollgæslan í Reykjavík fann efnið í póst-
sendingu fyrir um tveimur vikum, 11. maí, og
rannsakaði lögreglan í Hafnarfirði málið. Að
sögn lögreglu beindist grunur fljótlega að
ákveðnum einstaklingi, þótt enginn hafi reynt
að sækja pakkann. Lögregla gefur ekki upp
hvort maðurinn sendi sjálfum sér sterana frá
Danmörku eða hvort einhver sendi honum þá
þaðan.
Maðurinn játaði við yfirheyrslur innflutning
á sterunum og telst málið að fullu upplýst.
Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu
áður vegna fíkniefnamála.
KAPLAKRIKI var troðfullur af Pixies-aðdáendum á öllum aldri í gærkvöldi þegar hljómsveitin hélt
fyrri tónleika sína hér á landi. Pixies spilaði hátt í þrjátíu lög og sungu áhorfendur með hverju einasta
lagi og klöppuðu sveitina tvisvar upp. Síðari tónleikar sveitarinnar fara fram í kvöld.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Góð stemning á Pixies-tónleikum
ÞAÐ sem af er ári hefur Fjármálaeft-
irlitið, FME, sektað tíu fruminnherja
í tilkynningaskyldum fyrirtækjum í
nokkrum málum sem varða brot á til-
kynningaskyldu þeirra. Sektirnar
voru á bilinu 50 til 750 þúsund krónur.
Þetta kom fram í máli Páls Gunnars
Pálssonar, forstjóra FME, á ráð-
stefnu um markaðsmisnotkun og inn-
herjaviðskipti í Háskólanum í
Reykjavík í gær. Hann gaf ekki upp
um hvaða aðila væri að ræða.
Páll Gunnar sagði ennfremur að
FME kallaði eftir umræðum um að
eftirlitið fengi auknar heimildir til að
greina frá niðurstöðum í einstökum
málum, sem það hefur ekki núna.
Sagði hann meira gagnsæi ríkja hjá
verðbréfaeftirlitum flestra nágranna-
landanna.
Tíu verið
sektaðir
af FME
FME hefur/14
♦♦♦
FRUMVARP sjávarútvegsráðherra
um sóknardagabáta, smábátafrum-
varpið svokallaða, var afgreitt með
breytingartillögum úr sjávarútvegs-
nefnd seint í gærkvöldi með atkvæð-
um stjórnarliða. Fundi nefndarinnar
hafði verið ítrekað frestað í gærdag
en hófst loks kl. hálftíu í gærkvöldi.
Samkvæmt tillögum nefndarinnar
verður sóknardagakerfinu lokað og
skulu sóknardagabátar stunda veið-
ar með krókaaflamarki frá upphafi
næsta fiskveiðiárs, þ.e. frá 1. sept-
ember. Krókaaflahlutdeild þeirra
skal fundin með tilliti til aflareynslu
fiskveiðiáranna 2001/2002 eða 2002/
2003. Hlutdeild reiknast út frá við-
miðunaraflareynslu í þorski og ufsa
þannig að til reiknigrunnsins teljast
90% af upp að 50 lesta viðmiðunar-
aflareynslu miðað við óslægðan fisk
og 40% af því sem er umfram. Fyrir
aðrar tegundir verður aflamark jafnt
aflareynslu. Í upphaflega frumvarp-
innu var miðað við 80% af upp að 50
lesta viðmiðunaraflareynslu og 60%
af því sem umfram væri.
Þá er í breytingartillögu tekið tillit
til áætlaðrar aflaaukningar, með allt
að 20 lestum á hvern bát, vegna
aukningar afkastagetu vegna endur-
nýjunar þeirra á fiskveiðiárinu 2002/
2003 eða 2003/2004 að því gefnu að
sóknargetan hafi ekki nýst þeim til
aflareynslu. Þá er bátum sem voru
endurnýjaðir á fiskveiðiárinu 2002/
2003 gefinn kostur á að vera áfram í
sóknardagakerfi 2004/2005 og 2005/
2006 með 18 sóknardögum á hvoru
fiskveiðiári. Að því loknu fá þeir út-
hlutað aflamarki út frá fyrrnefndum
reiknireglum.
Smábátafrum-
varp afgreitt
úr þingnefnd