Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 146 . TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hógværari en
Leifur heppni
Steinunn Þórarinsdóttir sýnir í
og við Hallgrímskirkju | Listir
Lesbók |Inter-Rail Sindra Freyssonar 3. hvíta-
sunnumorgunn Péturs Gauts Börn | Það geta allir
sungið Hefurðu pælt í trúarbrögðum?
BAKKAVÖR Group hf. hefur keypt
10,27% hlutafjár í einu helsta mat-
vælaframleiðslufyrirtæki Bretlands,
Geest. Kaupverðið er á bilinu 5 til 6
milljarðar króna og er Bakkavör
Group nú langstærsti hluthafinn.
Ágúst Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Bakkavarar Group, segir
kaupin í samræmi við yfirlýsta stefnu
Bakkavarar um að fjárfesta enn frek-
ar í mörkuðum fyrir tilbúin fersk mat-
væli. „Þetta er fyrirtæki sem er leið-
andi á þeim markaði sem við störfum
á í Bretlandi og stærsta fyrirtæki í
heimi á sínu sviði. Þeir framleiða alls
kyns tilbúin fersk matvæli, eru t.d.
mjög stórir í pítsum og samlokum,
eftirréttum og tilbúnum réttum.“
Ekki yfirtaka – að sinni
Bakkavör Group lýsti því yfir við
kaupin að félagið hefði ekki í hyggju
að yfirtaka Geest að sinni en sam-
kvæmt reglum breska hlutabréfa-
markaðarins þarf að upplýsa þegar
keyptur er þetta stór hlutur, um
hvort yfirtaka vofi yfir á næstu sex
mánuðum. Ágúst segir að það verði að
koma í ljós hvað gerist að sex mán-
uðum liðnum. „Tíu prósenta hlutur-
inn gerir það að verkum að það getur
enginn annar tekið fyrirtækið yfir
nema með okkar samþykki. Við get-
um þannig komið í veg fyrir yfirtöku
ef einhver annar ætlar að reyna slíkt.
Svo kemur í ljós hvað við gerum í
framhaldinu,“ segir hann og í tilkynn-
ingu um kaupin segir að hluturinn
geti minnkað eða aukist í framtíðinni.
Ágúst leggur þó áherslu á að stjórn
Bakkavarar líti á þessi kaup sem
langtímafjárfestingu. „Geest ætlar
sér að vaxa enn frekar bæði í Bret-
landi og í Evrópu. Með styrkri stjórn
hefur félagið vaxið stöðugt á undan-
förnum árum sem sannfærir okkur
um gildi þessarar fjárfestingar,“ segir
Ágúst. Um hvort Bakkavör muni
koma að stjórnun Geest segir hann að
það verði að koma í ljós.
Á fréttavef Reuters voru í gær uppi
getgátur um að Baugur Group tengd-
ist kaupum á Geest áður en ljóst varð
hver var þar að verki. Ágúst aftekur
með öllu að Baugur eigi nokkurn hlut
að þessu máli.
Geest sérhæfir sig í framleiðslu
ferskrar tilbúinnar matvöru og fram-
leiðir yfir 2.000 vörur sem eru seldar
undir merkjum viðskiptavinanna. All-
ir helstu stórmarkaðir Bretlands eru
viðskiptavinir félagsins. Meginhluti
starfsemi fyrirtækisins er í Bretlandi
en það starfrækir einnig verksmiðjur
í Evrópu og Suður-Afríku. Um 10.000
manns starfa hjá fyrirtækinu og árs-
veltan nemur um 114 milljörðum
króna í samanburði við 17 milljarða
veltu Bakkavarar og var hagnaður
þess fyrir skatta 5,4 milljarðar.
Bakkavör kaupir í Geest
„Enginn annar getur tekið fyrirtækið yfir nema með okkar samþykki“
ALÞINGI lauk störfum í gærkvöldi
og hefur verið gert hlé á þinghaldi til
septemberloka. Síðasta frumvarpið
sem þingið samþykkti var svonefnt
smábátafrumvarp, en skattalækkun-
artillögur sem sjálfstæðismenn
höfðu bundið vonir við að yrðu lagðar
fram fyrir þinglok litu ekki dagsins
ljós.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að það hefði verið skynsamlegt
að kynna skattalækkunartillögurnar
fyrir þinglok eins og boðað hafi verið,
en það hafi ekki náðst í öllum þeim
önnum sem hafi verið síðustu daga
og verði að bíða síns tíma. „Það
breytir því ekki að ákvörðun um
skattalækkun liggur fyrir í stjórnar-
sáttmála og það verður ekkert gefið
eftir,“ segir forsætisráðherra.
„Málið er á könnu formanna
stjórnarflokkanna og það liggur fyr-
ir að í stjórnarsáttmálanum er
ákvæði um að fara í þetta og ég lít
svo á að þeir séu í sameiningu að
finna útfærslu á því með hvaða
hætti,“ segir Hjálmar Árnason, for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins, spurður hvers vegna til-
lögur um skattalækkanir hafi ekki
náð fram að ganga fyrir þinglok.
Gífurleg vonbrigði
Gunnar Birgisson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, segir það gífurleg
vonbrigði að ekki skuli hafa náðst að
leggja fram skattalækkunartillögur
fyrir þinglok.
„Það er ljóst að það er Framsókn-
arflokkurinn sem stoppar þetta mál.
Hann lagðist gegn skattalækkunum
af ótrúlega mikilli hörku. Annaðhvort
eru þeir búnir að gleyma því hvað
þeir sögðu fyrir síðustu kosningar –
þetta stendur klárt og kvitt í ríkis-
stjórnarsáttmálanum – eða þá hitt,
að þeir eru að niðurlægja Sjálfstæð-
isflokkinn, og veit ekki á gott með
samstarf flokkanna í áframhaldinu.“
Haft var eftir Halldóri Ásgríms-
syni, formanni Framsóknarflokksins,
í fréttum RÚV að Framsókn legðist
ekki gegn einu eða neinu. Stjórnar-
sáttmáli og langtímaáætlun ríkis-
stjórnarinnar stæðu en ekki væri
hægt að leggja fram endanlega út-
færslu skattalækkunarhugmynda nú.
Þingstörfum lauk þremur vikum
síðar en áætlað var og voru þing-
dagar alls 107 á þessum vetri. 123
frumvörp urðu að lögum á þinginu og
29 þingsályktanir voru samþykktar.
Tillögur um skattalækk-
anir ekki lagðar fram
Alþingi hefur lokið störfum á þessu vori og verið frestað fram í september
Morgunblaðið/Þorkell
Það var létt yfir þingmönnum þegar þingi hafði verið frestað í gærkvöldi og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingkona Samfylkingar, kvöddust með virktum.
Alþingi frestað/10
ÍRASKA framkvæmdaráðið í Bagd-
ad samþykkti í gær að sjía-músl-
íminn Iyad Allawi yrði forsætisráð-
herra íraskrar bráðabirgðastjórnar
sem á að taka við völdum 30. júní.
Allawi, sem var í útlegð í rúma þrjá
áratugi í tíð Saddams Husseins,
hlaut einróma stuðning ráðsins.
Lakhdar Brahimi, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna, og Paul Brem-
er, æðsti embættismaður Bandaríkj-
anna í Írak, sátu fundinn. Fulltrúi
Brahimis sagði hann „virða“ ákvörð-
unina og vera tilbúinn að starfa með
Allawi.
Hafði samstarf við CIA
Brahimi hefur fengið það verkefni
að mynda bráðabirgðastjórnina og
velja forseta og tvo varaforseta í
samráði við Íraka. Hernámsstjórnin
neitaði í gær að staðfesta tilnefningu
Allawis og sagði að tilkynnt yrði á
næstu dögum hver ætti að gegna
embættinu. Þrátt fyrir þetta hik er
talið nær víst að Allawi taki við emb-
ættinu þar sem framkvæmdaráðið er
eini aðilinn sem getur með einhverj-
um rétti sagst tala fyrir hönd Íraka.
Allawi er 58 ára gamall og tauga-
læknir að mennt. Hann starfaði í
írösku leyniþjónustunni og var í
Baath-flokki Saddams Husseins áð-
ur en hann fór í útlegð árið 1971 til
Líbanons og Bretlands. Hefur hann
haft náið samstarf við bandarísku
leyniþjónustuna, CIA.
Allawi
fari fyrir
stjórninni
Bagdad. AFP, AP.
Allawi var í útlegð í tíð Saddams.
RITIÐ Business
Week í Banda-
ríkjunum hefur
birt lista yfir 25
menn sem það
segir vera snjöll-
ustu leiðtoga í
Evrópu núna, að
sögn vefsíðu Aft-
enposten. Meðal
þeirra er Jón
Stephensson von
Tetzchner, forstjóri tölvufyrirtæk-
isins Opera Software í Noregi.
Hann er íslenskur í móðurætt og
bjó hér til tvítugs.
Jón stofnaði Opera Software
ásamt öðrum manni 1995 en það
annast vafraþjónustu og hefur vax-
ið hratt undanfarin ár. Aðrir á list-
anum eru m.a. Nicolas Sarkozy,
fjármálaráðherra Frakklands, og
Helmut Panke, yfirmaður bílafyr-
irtækisins BMW í Þýskalandi.
Meðal snjöll-
ustu leiðtoga
Jón Stephensson
von Tetzchner
Lesbók og Börn í dag
♦♦♦