Morgunblaðið - 29.05.2004, Page 20
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
sem verkkaupi, óskar eftir tilboðum í viðbyggingu 4. áfanga
(stjórnunarálma) Verkmenntaskólans á Akureyri.
Viðbyggingin er um 248 m², jarðhæð og kjallari.
Verki skal lokið 1. febrúar 2005.
Útboðsgögn verða seld á Verkfræðistofu Norðurlands, Hofsbót 4,
600 Akureyri, frá 2. júní næstkomandi.
Verð á útboðsgögnum er kr. 10.000.
Tilboð verða opnuð á sama stað 16. júní 2004 kl. 11.00.
Byggingarnefnd VMA.
Fasteignir Akureyrarbæjar • Geislagötu 9 • 4. hæð
• símar 460 1000 – 460 1128
ÚTBOÐ
Héraðsnefnd Eyjafjarðar
Reykjavík | Alls var úthlutað 16
milljónum króna til endurgerðar og
viðgerða á húsnæði eða öðrum
mannvirkjum úr Húsverndarsjóði
Reykjavíkur til 47 húsa. 63 umsókn-
ir bárust, og var umbeðin styrk-
upphæð umsóknanna samtals rúm-
ar 213 milljónir króna.
Mikilvægur þáttur
í endurnýjun
Sjóðurinn, sem starfað hefur sem
styrkjasjóður frá árinu 1997, hefur
áorkað miklu í endurnýjun og varð-
veislu mikilvægra húsa í menning-
ar– og byggingasögu Reykjavíkur,
segir í fréttatilkynningu frá Hús-
verndarsjóði.
Staðsetning húsa eða aldur
þeirra hefur ekki áhrif á styrkveit-
ingar, en umsóknir eru metnar í
samræmi við varðveislugildi við-
komandi mannvirkis. Þar að auki
er haft í huga að styrkja end-
urbyggingu húshluta eða annarra
mannvirkja sem hafa mikið gildi
fyrir umhverfið, til dæmis steyptra
girðinga eða þakkant. Auglýst er
eftir umsóknum um styrki úr Hús-
verndarsjóði í janúar ár hvert.
Morgunblaðið/Ásdís
Hæsta styrk til endurgerðar fengu aðstandendur hússins á Laugavegi 2.
Styrkjum úthlutað
úr Húsverndarsjóði
Samþykkja ársreikning | Í vik-
unni samþykkti hreppsnefnd Bessa-
staðahrepps ársreikning fyrir árið
2003. Segir í fréttatilkynningu að
staða sveitarsjóðs sé sterk, þrátt
fyrir neikvæða rekstrarniðurstöðu
ársins 2003. Heildartekjur aukast
milli ára um 3% sem er heldur minna
en áætlað hafði verið og munar þar
mest um lægri útsvarstekjur.
Rekstrargjöld, önnur en sam-
þykkt rekstrarframlag til dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar
vegna uppgjörs fyrri ára, eru 9 millj-
ónum krónum hærri en reiknað var
með, einkum vegna aukningar í
rekstri Álftanesskóla. Afskriftir og
lífeyrisskuldbindingar 2003 voru í
samræmi við fjárhagsáætlun. Nettó
fjármagnsgjöld voru 8,5 milljónum
krónum undir áætlun. Ný lang-
tímalántaka og afborganir lang-
tímaskulda 2003 voru í samræmi við
áætlun. Fjárfestingar námu 13,4
milljónum krónum lægri fjárhæð en
áætlun gerði ráð fyrir.
Þessi hús hlutu
hæstu styrkina
Þær tíu framkvæmdir sem
hlutu stærstu styrkina í ár eru:
Laugavegur 2, 1.200.000 kr.
Klapparstígur 11, 900.000 kr.
Hljómskálinn, 700.000 kr.
Þingholtsstræti 17, 650.000 kr.
Hafnarstræti 1–3, 600.000 kr.
Templarasund 3, 550.000 kr.
Bankastræti 10, 500.000 kr.
Laufásvegur 5, 500.000 kr.
Bárugata 7, 500.000 kr.
Tjarnargata 28, 500.000 kr.
Að auki fengu 37 hús styrk úr
sjóðnum, allt frá 50.000 til
450.000 króna.
Skauta í sólarhring
IÐKENDUR hjá listhlaupadeild
Skautafélags Akureyrar ætla að
skauta í sólarhring nú um hvíta-
sunnuhelgina. Maraþonið hefst kl.
19 á sunnudagskvöld og stendur
til kl. 19 á mánudagskvöld. Alls er
um að ræða 12 iðkendur, allt
stúlkur á aldrinum 8 til 16 ára
sem taka þátt í því. Stúlkurnar
hafa með aðstoð foreldra sinna
safnað áheitum en tilgangur mara-
þonsins er að standa straum af æf-
ingabúðum sem stúlkurnar verða í
í júnímánuði. Æfingabúðirnar
verða settar upp í Skautahöllinni á
Akureyri, en foreldrar iðkendanna
tóku höllina á leigu í þessu skyni
og útveguðu einnig afbragðsþjálf-
ara frá Slóvakíu til að annast
þjálfun þeirra í búðunum. Þetta
fyrirkomulag þykir hagkvæmara
en að senda stúlkurnar utan til
æfinga. Markmiðið með því að
setja upp slíkar æfingabúðir er að
lengja skautatímabilið og gera
stúlkurnar færari í íþróttinni.
Flestir þátttakendur eru búsettir á
Akureyri, en nokkrir koma þó frá
Reykjavík og fá þá gistingu hjá fé-
lögum sínum nyrðra.
Upplýsingamiðstöð opnuð |
Orkuveita Reykjavíkur hefur opn-
að upplýsingamiðstöð fyrir almenn-
ing um Hellisheiðarvirkjun í Skíða-
skálanum í Hveradölum. Þar má
sjá fræðsluspjöld um umhverf-
ismál, jarðfræði og tæknilega út-
færslu virkjunarinnar, auk þess
sem kynningarmyndir um Orku-
veitu Reykjavíkur eru sýndar.
Að sögn Eiríks Bragasonar, stað-
arverkfræðings Orkuveitu Reykja-
víkur, er ætlunin að gefa almenn-
ingi tækifæri á að kynna sér
framkvæmdina. Miðstöðin verður
opin alla virka daga milli kl. 10 og
17, fyrst um sinn.
Nú er að baki rannsóknaferli
varðandi virkjunina, og hafa marg-
ar rannsóknaholur verið boraðar til
athugunar. „Niðurstaða rannsókna
á hagkvæmni virkjunarinnar var
jákvæð, og þegar umhverfismat
hafði verið samþykkt ásamt orku-
sölusamningi var hægt að hefja
framkvæmdir,“ sagði Eiríkur.
SÝNINGIN Bær í barnsaugum var
opnuð með mikilli viðhöfn og að
viðstöddu fjölmenni við kirkju-
tröppurnar á Akureyri í gær. Um-
ferð var lokað um Kaupvangs-
stræti, Gilið, enda voru þeir sem
fylgdust með ekki háir í loftinu,
börn af leikskólum bæjarins voru í
meirihluta. Tíu leikskólar í bænum
ásamt Skóladeild Akureyrar og
skólaþróunarsviði Háskólans tóku
saman höndum og standa saman að
verkefninu, en börnin og kennarar
þeirra hafa unnið að undirbúningi
þess allt frá áramótum. Börnin
kynntu sér menningu í bænum og
skoðuðu samfélagið Akureyri með
sínum augum. Nú er komið að bæj-
arbúum að njóta afrakstursins og
upplifa túlkun barnanna á bænum
sínum. Hver og einn leikskóli vann
að ákveðnu verkefni; listamenn og
eldri borgarar, skáldið Davíð Stef-
ánsson, álfar, kirkjumyndir, ljós-
myndir af byggingum, hvernig
mjólkin er búin til, gamli tíminn og
fiskar eru dæmi um það sem börnin
voru að fást við og skoða. Sýningin
verður flutt á Glerártorg og þar
verður hún út júnímánuð.
Bærinn í augum barnanna
Morgunblaðið/Kristján
Bær í barnsaugum: Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, klippti
á borða með börnum af leikskólum bæjarins í brekkunni neðan við Ak-
ureyrarkirkju, við upphaf sameiginlegrar listsýningar allra leikskólanna.
Morgunblaðið/Kristján
Bær í barnsaugum: Börn á leikskólanum Kiðagili taka lagið í kirkjutröppunum á Akureyri.
Skrifstofa ÍSÍ á Akureyri
Tímabundinn
samdráttur
FRAMKVÆMDASTJÓRN Íþrótta-
og Ólympíusambands Íslands sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni að
minnka starfshlutfall starfsmanns á
skrifstofu ÍSÍ á Akureyri um helm-
ing, úr 100% í 50%, frá og með næsta
hausti. Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, sagði um tíma-
bundinn samdrátt að ræða og hann
gerir sér vonir um að hægt verði að
auka starfshlutfallið aftur í 100%
sem allra fyrst.
Ástæða fyrir þessum samdrætti
er fjárskortur en Stefán sagði mjög
ánægjulegt að menntamálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
hafi lagt fram fjármagn sem tryggir
hlutastarf á Akureyri. Viðar Sigur-
jónsson hefur starfað á skrifstofu
ÍSÍ á Akureyri frá því að hún var
opnuð haustið 1999. Stefán sagði að
Viðar myndi halda áfram að starfa
fyrir ÍSÍ á Akureyri, það væri lyk-
ilatriði.
Styrktar-
mót í golfi
STYRKTARMÓT í golfi fyrir kylf-
inginn Sigurpál Geir Sveinsson verð-
ur haldið á Jaðarsvelli nk. mánudag,
annan í hvítasunnu. Mótið hefst kl. 10
og verður spilaður tvímenningur, þar
sem betri boltinn gildir. Sigurpáll
Geir, sem er einn fremsti kylfingur
landsins, ætlar sér stóra hluti á kom-
andi keppnistímabili. Hann mun taka
þátt í íslensku mótaröðinni í sumar og
auk þess hyggst hann reyna fyrir sér
á erlendri grundu.
Sigurpáll Geir mun taka þátt í einu
til tveimur mótum á skandinavísku
mótaröðinni og þá tekur hann þátt í
úrtökumótum fyrir evrópsku móta-
röðina. Hann tók þátt í úrtökumót-
unum í fyrra, þar sem um þrjú stig er
að ræða. Hann náði að komast áfram
úr fyrsta mótinu og var mjög nálægt
því að komast í gegnum annað stigið.
„Ég kem vel undan vetri og ætla mér
alla leið í ár,“ sagði Sigurpáll Geir í
samtali við Morgunblaðið.
Það kostar mikla fjármuni að
keppa erlendis og því stendur klúbb-
urinn hans, GA, fyrir þessu styrkt-
armóti á mánudag, auk þess sem fjöl-
margir aðrir koma við sögu. Vífilfell
býður m.a. upp á veitingar meðan á
mótinu stendur, Kristjánsbakarí býð-
ur til veislu að mótinu loknu og verð-
laun gefa Íslensk-Ameríska, Nevada
Bob, Bautinn, Strýta og fleiri. Skrán-
ing í mótið fer fram í golfskálanum að
Jaðri og er þátttökugjald 2.500 kr.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ