Morgunblaðið - 29.05.2004, Side 26
BÖRN OG UNGLINGAR
26 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARIN ár hafa félög víðs veg-
ar um landið boðið upp á mörg opin
knattspyrnumót. Í ár eru mótin alls 23,
sem eru:
Þorramót Aftureldingar Mosfells-
bær. Mót fyrir 6. flokk stúlkna.
Goðamót Þórs á Akureyri. Mót fyrir
3.–5. flokk kvenna og 5. flokk stráka.
Kentucky-mót Víkingur í Reykjavík.
7. flokkur stráka.
Húsasmiðjumót Víkingur í Reykja-
vík. 6. flokkur kvenna.
Vinamót Breiðabliks í Kópavogi 5.
júní. 7. flokkur stráka.
Vöruvalsmótið ÍBV í Vestmannaeyj-
um 11.–13. júní. Yngri flokkar stúlkna.
Smábæjarleikar Hvöt á Blönduósi
12.–13. júní. Stelpur og strákar 14 ára
og yngri.
Shellmótið ÍBV í Vestmannaeyjum
23.–27. júní. 6. flokkur stráka.
KB banka-mótið Skallagrímur í
Borgarnesi 25.–27. júní. 4.–7. fl. stráka
og 3. fl. stúlkna.
Húsasmiðjumótið Höttur á Egilsstöð-
um 27. júní. 7. flokkur karla.
Esso-mót KA á Akureyri 30. júní–4.
júlí. 5. flokkur karla.
Lotto-Búnaðarbankamót ÍA á Akra-
nesi 9.–11. júlí. 7. flokkur karla.
Gullmótið Breiðablik í Kópavogi 15.–
18. júlí. Yngri flokkar kvenna.
Nikulásarmót Leifturs á Ólafsfirði
17.–18. júlí. 5.–7. flokkur karla og
kvenna.
VISA Rey Cup Þróttar í Reykjavík
21.–25. júlí. Yngri flokkar karla og
kvenna.
B. Jensen mót Þórs á Akureyri 23.–
25. júlí. 2. flokkur kvenna.
Skeljungsmót UMFB í Bolungarvík
24. júlí 3.–7. flokkar stúlkna.
Pæjumót KS á Siglufirði 6.–8. ágúst
3.–6. flokkur kvenna.
Haustmót Leiknis R. í Reykjavík 13.–
15. ágúst. 5. flokkur stráka.
Króksmót Tindastóls á Sauðárkróki
14.–15. ágúst. 5.–7. flokkur stráka.
Nóatúnsmót Aftureldingar í Mos-
fellsbæ 21.–22. ágúst. 5. og 6. flokkur
stúlkna.
Alla Geira mót Völsungs á Húsavík
28. ágúst. 6. og 7. flokkur stráka.
Landsbankamót Þórs á Akureyri
3.–5. september. 4. flokkur stráka.
Opin barna-
og ung-
lingamót
2004
SMÁBÆJARLEIKARNIR í knatt-
spyrnu fara fram á Blönduósi 12. og 13.
júní. Í fréttatilkynningu frá forsvars-
mönnum mótsins segir: „Með Smábæj-
arleikunum er stefnt að því að bjóða upp
á skemmtilegan valkost fyrir knatt-
spyrnulið úr fámennari bæjarfélögum í
landinu, sem telja 1500 manns eða færri,
en stærri knattspyrnulið hafa einnig
þátttökurétt með því að senda c, d og e
lið á leikana. Leikarnir eru fyrir stráka
og stelpur, 14 ára og yngri. Það verður
mikið um dýrðir á Blönduósi þá daga
sem mótið stendur. Leikin verður knatt-
spyrna frá morgni til kvölds á átta völl-
um og einnig verður þátttakendum á
mótinu boðið í bíó, í grillveislu, skot-
hörkukeppni, knattþrautir og þeir síðan
leystir út með verðlaunum og gjöfum við
mótsslit. Ýmis skemmtan verður í boði
fyrir aðstandur keppenda þannig að á
meðan krakkarnir etja kappi á fótbolta-
vellinum geta foreldrar tekið hring á
golfvellinum, farið í reiðtúr, rennt fyrir
silung, skellt sér í sund eða gætt sér á
Smábæjarleikatilboðum á veitingahúsum
bæjarins.“
Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 844 5624/896 2603. Skráningar-
frestur á Smábæjarleikana er til 1. júní
2004 og fer skráningin fram á netfang-
inu hvot@simnet.is. Vefsvæði leikanna
er www.huni.is/smabaejarleikar.
Smábæjar-
leikar á
Blönduósi
KNATTSPYRNUVEISLUR fyrir yngri kyn-
slóðina standa nánast sleitulaust yfir í allt sum-
ar og verður í nógu að snúast fyrir
knattspyrnuglaða krakka. Reyndar hefur líka
nokkuð verið um mót í vetur, sem þakka má til-
komu knattspyrnuhalla. Fjöldi barna og ung-
linga á einu móti fer jafnvel yfir 1.200 svo að
umfangið er mikið, en fjörið er oftast algerlega
í umsjá þeirra sem sparka boltanum enda
margt til gamans gert. Eitt af þessum mótum
er Visa ReyCup, sem Þróttur heldur í Laug-
ardalnum þriðja árið í röð í samvinnu við ÍT-
ferðir og fleiri. Í fyrstu var mótið haldið með
stuttum fyrirvara en það hefur vaxið svo að er-
lend lið hafa látið slag standa, í ár reikna
Þróttarar með allt að 10 erlendum liðum. Það
eru svo sem ekki bara spilaðir 300 leikir – í
boði er meðal annars grillhátíð, stórdans-
leikur, diskó, sundlaugarferðir, en hátíðin
hefst með veglegri skrúðgöngu.
„Svæðið er nánast að springa. Við erum með
fimm velli í gangi og svo er úrslitaleikur á
Laugardalsvellinum, þar sem byggst hefur upp
ótrúleg alvöru stemning,“ sagði Guðmundur
Vignir Óskarsson mótsstjóri. „Þetta er þriðja
árið sem við höldum þetta mót. Í því fyrsta sem
við héldum, með stuttum fyrirvara, voru fjögur
hundruð þátttakendur, en tvöfalt fleiri ári síð-
ar, sem var vonum framar og nú má segja að
við séum sáttir við svipaðan fjölda, því það eru
mörg lið í þessum aldurshópi að fara erlendis.
Síðan eigum við von á verulegri fjölgun í fram-
tíðinni jafnt og þétt því erlendu liðin eru að
skila sér eftir markaðssetningu mótsins. Ann-
ars vegar eru stórir klúbbar eins og Aston
Villa og Glasgow Rangers, en svo kemur þetta
sterka kvennalið frá Bandaríkjunum með ein-
um virtasta þjálfara í þessum flokkum.
Við heyrum að menn eru að vakna til vit-
undar um að það er valkostur á Íslandi, sem
gæti verið þess virði að eyða peningum í því
óneitanlega er hann dýrari fyrir erlend félög
sem frekar gætu farið nær heimaslóðum. Þetta
hefur meðal annars breyst út af fluginu. Við
vorum með tvö lið fyrsta árið, síðan urðu þau
sex með færeysku liðunum tveimur og nú ger-
um við ráð fyrir átta til tíu liðum. Síðan gerum
við ráð fyrir að í fyrsta sinn skili sér inn á
knattspyrnuhátíðina lið frá Afríku, bætir Guð-
mundur Vignir við og segir kynningu erlendis
skila sér. „Meðal annars hafa ÍT-ferðir kynnt
mótið í gegnum sitt kerfi sem ferðaskrifstofa
og við höfum verið í tengslum við ágæta um-
boðsmenn, sem hafa kynnt mótið að fyrra
bragði og hafa mikinn áhuga á því. Svo höfum
við verið aðeins inni á vefsíðum í Bandaríkj-
unum og ferðaskrifstofur í Evrópu, Þýska-
landi, Frakklandi og Englandi eru að kynna
mótið. Við skynjum að menn horfa til okkar
með þeim hætti að þarna sé eitthvað að skoða,“
sagði Guðmundur Vignir.
Knattspyrnuveisla hjá ungmennum og fjölskyldum úti um allt land í sumar
Morgunblaðið/Jim Smart
Kátir strákar úr Austur-Húnavatnssýslu stofnuðu fótboltalið, UMFB Geislar, eingöngu til að geta
tekið þátt í fyrsta VISA ReyCup. Strákarnir fengu verðlaun fyrir að vera skemmtilegasta liðið.
Átta til tíu erlend lið
mæta á mót í Laugardal
Morgunblaðið/Kristinn
Þessi mynd var tekin af setningarhátíð VISA ReyCup sl. sumar og má sjá nöfn Ipswich frá Englandi og HK úr Kópavogi á spjöldum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Víkingur og enska liðið Bolton áttust við í úrslitaleiknum á fyrsta VISA ReyCup-mótinu og fór leik-
urinn fram á Laugardalsvellinum. Leiknum lauk með sigri Englendinganna, 3:1.