Morgunblaðið - 29.05.2004, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 39
Spíssar ehf.
Hverfisgötu 108
101 Reykjavík
Losum stíflur,
hreinsum holr
æsi,
nýlagnir, rotþ
rær, smúlum
bílaplön o.fl.
Stíflulosun
Bíll og 2 menn
13.500 kr. klst. m. vsk í dagvinnu.
(10 km innif.) 35 kr. umfram km.
Nonni 891 7233
Hjörtur 891 7230
Áratuga reynsla NÝTT
Stíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og
niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki
✝ Einar Árnasonfæddist í Neshjá-
leigu í Loðmundar-
firði 30. nóvember
1924. Hann lést á
fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupsstað
21. maí síðastliðinn.
Einar var sonur
hjónanna Árna Ein-
arssonar og Þórdísar
Sigurbjargar Hann-
esdóttur sem bjuggu
lengst af á Hólalandi í
Borgarfirði eystri.
Árni hóf búskap í
Neshjáleigu árið
1915 og kom Þórdís þangað til hans
árið 1917. Árni og Þórdís bjuggu í
Neshjáleigu til ársins 1938 að þau
fluttu í Hólaland í Borgarfirði þar
sem þau bjuggu til ársins 1959 er
Árni dó. Þórdís bjó áfram á Hóla-
landi hjá sonum sínum til dauða-
dags 1970. Árni og Þórdís eignuð-
ust 13 börn og var Einar 5. í
röðinni, átta þeirra lifa bróður sinn.
Árið 1952 kvæntist Einar eftirlif-
andi eiginkonu sinni Guðrúnu Þor-
leifsdóttur, f. 22. október 1929, hún
er dóttir Þorleifs Jónssonar og
Einar bjó í Neshjáleigu með for-
eldrum sínum til þrettán ára aldurs
er þeir fluttust að Hólalandi. Frá
barnæsku vann hann að búi for-
eldra sinna á Hólalandi til ársins
1950, keypti þá jörðina Hóla-
landshjáleigu í félagi við Sigurð
bróður sinn og bjó þar til ársins
1954. Bjó síðan á Gilsárvöllum í
Borgarfirði í félagi við tengdafor-
eldra sína í tvö ár, bjó í Bakkagerð-
isþorpi þar sem þau Guðrún höfðu
heimili á nokkrum stöðum þar til
þau fluttust að Felli í Breiðdal vorið
1960. Í Felli bjuggu þau hjón til árs-
ins 2001 að þau brugðu búi og sett-
ust að á Breiðdalsvík. Einar sat um
tíma í stjórn Búnaðarfélags Breið-
dæla og var einn helsti hvatamaður
stofnunar hestamannafélags í
Breiðdal og starfaði mikið í því.
Einar stundaði almenna verka-
mannavinnu með búskap sínum alla
tíð. Að Felli bjó hann fyrst með
sauðfé en varð að skera niður fé sitt
vegna riðu árið.1982. Eftir niður-
skurðinn hófu þau hjón nautgripa-
búskap og síðar refabúskap. Síð-
ustu búskaparárin ráku þau
bændagistingu og héldu einnig
nokkuð af hrossum.
Útför Einars fer fram frá Hey-
dalakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Guðbjargar Ásgríms-
dóttur sem bjuggu á
Gilsárvöllum í Borgar-
firði.
Einar og Guðrún
eignuðust sex börn,
fjögur komust til full-
orðinsára: a) Dreng, f.
1952 er lést samdæg-
urs; b) Þorleif, f. 1953,
d.1954; c) Árna, f.
1955, kvæntur Svölu
Guðjónsdóttur, þau
eiga tvö börn: Eygló
og Einar. Dóttir Svölu
og fósturdóttir Árna
er Ísold Grétarsdóttir.
Maki hennar er Skjöldur Sigurjóns-
son. Þau eiga soninn Bjart; d) Guð-
leifu Sigurjónu, f. 1956, gift Ómari
Valþóri Gunnarssyni þau eiga son-
inn Einar Inga; e) Þórdísi Sigríði, f.
1958, gift Jóni Elfari Þórðarsyni
þau eiga börnin Katrínu Heiðu og
Birki Þór. Maki Katrínar Heiðu er
Bergþór Ólafsson. Dóttir Bergþórs
er Andrea ; f) Þorleif Inga, f. 1961,
kvæntur Huldu Lindu Stefánsdótt-
ur þau eiga börnin Örnu Rut og
Heiðar Orra. Einnig á Einar soninn
Stefán Scheving, f. 1960.
Elsku Einar.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er þér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hvíl í friði, elsku Einar minn,
og Guð geymi þig.
Þín tengdadóttir,
Hulda Linda.
Elsku afi. Þegar fram líða stundir
munu fallegar minningar koma í stað
sársaukans. Þessa setningu lásum við
í korti nú fyrir skömmu og við reyn-
um að telja okkur trú um að í henni
leynist sannleikskorn því tilhugsunin
um að fá ekki að sjá þig aftur er vissu-
lega sár. Við getum huggað okkur við
það að minningarnar um þig eru ynd-
islegar og standa þá uppúr allar
stundirnar sem við áttum saman í
Felli, og nú síðustu fjögur ár í Eski-
felli, með þér og ömmu. Þessar stund-
ir eru okkur ómetanlegar nú sem
aldrei fyrr. Nú, síðustu dagana þegar
við höfum verið í Eskifelli hjá ömmu,
hefur okkur fundist þú vera þar líka,
sitjandi í stólnum þínum, vitandi af
allri fjölskyldunni í kringum þig.
Þannig leið þér vel. Elsku afi, við get-
um aðeins verið þakklát fyrir allar
þær stundir sem við fengum að eiga
með þér. Við vitum að þér líður vel
þar sem þú ert núna og ekki hafa
áhyggjur af ömmu því við pössum
hana fyrir þig eins vel og við getum og
styðjum hana í gegnum hennar mikla
missi, því þið voruð jú sem eitt.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Elsku afi, við söknum þín.
Katrín Heiða og Birkir Þór.
EINAR ÁRNASON
Þökkum öllum þeim, sem veittu okkur ómet-
anlega aðstoð og hluttekningu vegna andláts
og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, sonar, bróður, tengdasonar og mágs,
JÓNS ÞORVALDAR INGJALDSSONAR
dr. psychol,
Bergen, Noregi,
áður Jörundarholti 174,
Akranesi.
Guðríður Björnsdóttir,
Ingjaldur Bogi Jónsson, Ásmundur Logi Jónsson,
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, Ingjaldur Bogason,
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Guðmundur Ragnar Guðmundsson,
Sólborg Þóra Ingjaldsdóttir, Einar Geir Hreinsson,
Sigríður Hjartardóttir,
Björn Sigurbjörnsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR,
Hvanneyrarbraut 28b,
Siglufirði,
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Heilbrigðis-
stofnun Siglufjarðar.
Ingvi Svavarsson, Hulda Gunnþórsdóttir,
Sigurður Jónsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Sveinbjörn Jónsson, Björg Hjartardóttir,
Skúli Jónsson, Þórunn Kristinsdóttir,
Sævar Jónsson, Álfheiður Sigurjónsdóttir,
Oddfríður Jónsdóttir, Sigfús Tómasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug, vináttu og samúð vegna andláts
og útfarar elskulegrar móður minnar, tengda-
móður og ömmu,
INGIBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR,
Droplaugarstöðum,
áður til heimilis
á Dalbraut 20.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir einstaka
umönnun og hlýhug.
Ólafur Guðmundsson, Vanessa Chernick,
Sabína og Ethan Erik.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
GEIRS GISSURARSONAR
frá Byggðarhorni,
Grænumörk 5,
Selfossi.
Sérstakar þakkir fá heimilisfólk og starfsfólk í Grænumörk 5 svo og starfs-
fólk á Sjúkrahúsi Suðurlands fyrir einstaka umönnun og elskulegt viðmót.
Guð blessi ykkur öll.
Ásdís L. Sveinbjörnsdóttir,
Úlfhildur Geirsdóttir, Sigvaldi Haraldsson,
Hjördís J. Geirsdóttir, Þórhallur Geirsson,
Gísli Geirsson, Ingibjörg K. Ingadóttir,
Brynhildur Geirsdóttir, Kristján Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fleiri minningargreinar um
Einar Árnason bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.