Morgunblaðið - 29.05.2004, Side 48

Morgunblaðið - 29.05.2004, Side 48
48 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Leonardó © LE LOMBARD Grettir Smáfólk Smáfólk LENDIRÐU EINHVERN TÍMAN Í ÞVÍ AÐ VERÐA ÞREYTTUR SEINT UM EFTIRMIÐDAGINN? ÞAÐ GERI ÉG OG ÞESSI EFTIRMIÐDAGUR HEFUR ENST Í 25 ÁR YFIRHUNDURINN ER HORFINN!! HVAR ER HANN? HANN ER HORFINN!! ÉG ÞORI AÐ VEÐJ AÐ ÁLAGIÐ VAR OF MIKIÐ... EN HVERT HEFUR HANN FARIÐ? HALLÓ? OG ÉG ER RÆNINGI! UPP MEÐ HENDUR! EKKI SETJAÖRYGGISKERFIÐ Í GANG AUMINGINN ÞINN! NÚ SKIL ÉG. ÖRYGGISKERFIÐ FER Í GANG OG LÖGREGLAN KEMUR STRAX HVAÐAN KEMUR ÞESSI GAMLI AUMINGI? ÉG SKAL SÝNA ÞÉR HVAÐAN ÉG KEM! ÉG Á LÍKA BYSSU! VAR ÞETTA EKKI SÁRT? HANANÚ! ? SEINNA... ÞAÐ ER ALLT ÞÉR AÐ ÞAKKA AÐ VIÐ GÓMUÐUM GLÆPAMANNINN. HVERNIG GET ÉG LAUNAÐ ÞÉR ÞETTA? ÉG FÉKK STÖÐUMÆLASEKT SEM VÆRI GOTT AÐ LOSNA VIÐ SEINNA HEIMA... SEGÐU MÉR LÍSA, GÆTIR ÞÚ HUGSAÐ ÞÉR AÐ FARA Í INNKAUPAFERÐ TVISVAR Á ÁRI OG BORGA MIKLU MINNA FYRIR KJÓLANA ÞÍN ÞAÐ VÆRI HREINT FRÁBÆRT! ÉG SKAL ÞÁ DRÍFA MIG AÐ FINNA UPP SYKURLOPAN OG FARA AÐ FINNA UPP ÚTSÖLURNAR! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞETTA fjallar um þrjár greinar, sem birtust nýlega í hinu blaðinu, þessu sem flestir fletta. Ég kýs held- ur að biðja skjóls í blaðinu, sem flest- ir lesa, enda meira lesefni og fjöl- breyttara. Annars getur stundum verið gaman að rekast á fréttir eins og þessa í hinu blaðinu: „Maður rak hnefann í andlitið á lögregluþjóni gegn um opna rúðu!!? Jæja, herra rektor. Ósköp er nú að vita hvað rektorstitillinn hefur stigið þér til höfuðs, að nú vilt þú einn fá að útskrifa nemendur á háskólastigi. Þú vitnar í lög frá 1997. Árið 1997 hafði Söngskólinn í Reykjavík kennt nem- endum á háskólastigi um langt skeið. Það verður ekki af þeim tekið. Listaháskólinn kennir margar grein- ar lista, en við eingöngu söng. Söng- kennsla er allt öðruvísi en kennsla á venjuleg hljóðfæri. Ég er ekki viss um að þú skiljir þetta. Þér og öðrum til fróðleiks skal ég benda ykkur á það þýðingarmesta. Það er eitt að hafa hljóðfærið fyrir framan sig, á gólfinu eða í höndunum, en líkaminn er hljóðfæri söngvarans. Það yrði of langt mál að útskýra það flókna mál, og ég viss um að þú myndir ekki skilja það, nema ég tæki þig í tíma. Þegar Ásrún Davíðsdóttir fékk birta grein í Fréttablaðinu hér á dögunum, skrifar hún mjög hógvær- lega um þekkingarskort kynning- arstjóra skóla þíns, þar sem hann segir „að nú séu í fyrsta sinn nem- endur að útskrifast með háskóla- gráðu í tónlist á Íslandi“! Ég tek undir með Ásrúnu, þegar hún bendir á að þetta gæti orðið sögufölsun, ef enginn mótmælir. Söngskólinn hefur um áratuga skeið fengið prófdómara frá merkri stofnun í Bretlandi. Tón- listarskólar í fleiri löndum fá sömu þjónustu, svo það eru fleiri en við sem treystum á réttláta einkunna- gjöf. Jæja, Hjálmar minn, þú ættir að geta sofið rólegur í framtíðinni. Söngskólinn hefur ekki í hyggju að sækja um háskólastöðu. En mikill munur er á ykkur Ásrúnu. Hún var hógvær – en þú varst hávær, og ekki laus við dulítinn fýlupokatón. Að lokum: Við höldum okkar striki – Listaháskólinn sínu, vonandi í friði. P.S. Bara svona til gamans: Ég hef engin háskólapróf, er orðinn 84 ára og kenni lítillega ennþá. Ég veit ekki hverjir kenna söng hjá þér, en er viss um að ég gæti kennt þeim sitthvað, því ég hef verið að læra frá því 1941 er ég hóf nám hjá Pétri A. Jónssyni. Vertu blessaður, Hjálmar minn, og taktu gleði þína aftur. GUÐMUNDUR JÓNSSON söngvari. Kæri Hjálmar rektor Frá Guðmundi Jónssyni: Á AUSTURLANDI er ekki úr fjöl- breyttum störfum að velja þegar konur á miðjum aldri fara að huga að einhverju við sitt hæfi. Er svo víða á landsbyggðinni og eru því þau störf sem hægt er að sinna með fjar- skiptum í gegnum tölvur kærkomin tækifæri. Eitt af þeim sem er hægt að vinna í gegnum þessi nýjustu fjarskiptamál er sölumennska með ýmsum hætti þar sem ekki skiptir máli þótt viðskiptavinurinn sé í öðr- um landshlutum eða jafnvel í öðrum löndum. Síðustu árin hefur undirrituð stundað hin ýmsu störf þar sem þessi nýjasta tækni hefur komið að góðum notum, s.s. vinnu við ferða- vefi, blaðamennsku og síðast sölu- mennsku á fasteignum. Fyrir þrem árum bauðst sérlega hagkvæmt tækifæri til tekjuöflunar sem var vinna við sölu fasteigna hjá fast- eignasölunni Hóli í Reykjavík. Lagði Hóll til sölukerfið og alla faglega að- stoð. Löggiltur fasteignasali kemur ætíð og gerir alla kaupsamninga og sér um alla skjalagerð, einnig er alltaf hægt að leita ráðgjafar á að- alskrifstofunni hjá löggiltum fast- eignasölum og reyndum sölumönn- um. Útibúið er beintengt við aðalskrif- stofuna svo í raun er öll skjala- og tilboðsgerð alltaf yfirfarin á aðal- skrifstofunni af löggiltum fasteigna- sala eins og um starfsmann þar væri að ræða. Síðustu mánuði hefur þessi vinna við fasteignasöluna vaxið og dafnað, færnin einnig aukist með sífellt auk- inni reynslu og viðskiptavelvildin stöðugt aukist. Kom sér þar einnig vel fyrri reynsla í t.d. sölumennsku og starf á sýsluskrifstofum hér á svæðinu. Var svo komið að í framtíðinni sá undirrituð fram á að þetta gæti orð- ið aðalstarf og var búin að fjárfesta í skrifstofu og tæknibúnaði með það í huga. Nú er séð fram á lok þessa góða atvinnutækifæris með þeirri ákvörð- un Alþingis að skerða rekstur úti- búa á vegum fasteignasala. Má þetta furðu sæta því að eins og allir vita er tæknin orðin slík að jafnvel er séð fram á að sjúkir geti leitað læknismeðferðar með aðstoð tækn- innar. Eru þetta ótrúleg afturför á öld tækninnar sem er óskiljanleg hjá þeirri miklu tækniþjóð sem Íslend- ingar eru. Bið ég ykkur, kæru alþingismenn, að skoða betur þetta frumvarp og kanna sjálfir hvernig þessari starf- semi er háttað, t.d. á útibúum Hóls fasteignasölu. ÓLAFÍA HERBORG JÓHANNSDÓTTIR, sölufulltrúi á söluskrifstofu Hóls,Tjarnarbraut 19, 700 Egilsstöðum. Athugasemd vegna frumvarps til nýrra laga um fasteigna-, fyr- irtækja- og skipasölu Frá Ólafíu Herborgu Jóhannsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.