Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 49 Rætt um vímuefni og forvarnir VIÐ kvöldmessu sem haldin verður í Laugarneskirkju annan í hvíta- sunnu (31.5.) kl. 20 verður rætt um vímuefni og forvarnir. Sr. Karl V. Matthíasson, prestur alkóhólista, mun prédika og þjóna fyrir altari ásamt sóknarprestinum, Bjarna Karlssyni. Við vekjum athygli á því að messur júnímánaðar verða svo alla sunnudga kl. 20, en kl. 19 sömu daga býður sr. Bjarni upp á Bibl- íuspjall í safnaðarheimilinu, þar sem farið verður ofan í saumana á guðspjalli dagsins og prédikunar- efni kvöldsins viðrað. Þá er gengið inn um litlar dyr á austurgafli húss- ins. Samhliða kvöldmessum er barnasamvera í umsjá Hildar Eirar Bolladóttur, sunnudagaskólastjóra safnaðarins. Messum lýkur á slag- inu 21 með kvöldkaffi í safn- aðarheimlinu, svo að ungir sem aldnir komist í háttinn á réttum tíma. Verið velkomin í Laugarnes- kirkju. Sumarguðsþjónusta í Grensáskirkju ELLIMÁLARÁÐ Reykjavík- urprófastsdæma og Grensáskirkja efna til sumarguðsþjónustu í Grens- áskirkju miðvikudaginn 2. júní kl. 14. Sr. Ólafur Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari. Litli kór Nes- kirkju syngur og leiðir almennan söng undir stjórn Ingu J. Backman sem einnig syngur einsöng. Org- anisti: Árni Arinbjarnarson. Kaffiveitingar í boði Grens- ássóknar. Allir eru velkomir. Hvítasunnan í Hallgrímskirkju HVÍTASUNNAN verður hringd inn í Hallgrímskirkju í dag með klukknaspili kl. 18, á aðfangadegi hvítasunnu. Nokkru áður eða kl. 17 verður opnuð sumarsýning List- vinafélagsins, en að þessu sinni er það Steinunn Þórarinsdóttir, sem sýnir skúlptúra í forkirkjunni og á Hallgrímstorgi. Sýningin stendur til 25. ágúst. Á hvítasunnudag verður hátíð- armessa kl. 11. Sr. Sigurður Páls- son prédikar. Hörður Áskelsson verður organisti og stjórnar söng Mótettukórsins. Á annan dag hvítasunnu verður hátíðarmessa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar. Hörður Ás- kelsson verður organisti og stjórnar söng félaga úr Schola cantorum sem syngja í messunni. Kl. 17 verða vortónleikar Mót- ettukórsins, en kórinn fer 18. júní í tónleikaferð til Frakklands, þar sem hann mun syngja m.a. í Notre Dame í París. Kórinn syngur verk eftir Jo- hann Sebastian Bach, Oliver Messia- en, Maurice Duruflé, Frank Martin, Trond Kverno, Knut Nystedt og ís- lensku tónskáldin Báru Grímsdóttur og Hjálmar H. Ragnarsson. Stjórn- andi kórsins er Hörður Áskelsson kantor. Neskirkja – hvítasunna KRISTNIHALD í Neskirkju verður fjölbreytilegt um hvítasunnuhelg- ina. Í hátíðarmessu hvítasunnudags kl. 11 prédikar sr. Örn Bárður Jóns- son og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Einleik- arar eru Pamela de Sensi, flautu- leikari, og Katia Catarci, hörpuleik- ari. Á annan í hvítasunnu mun Sigurður Árni prédika og þjóna fyr- ir altari ásamt Erni Bárði. Organisti og stjórnandi kirkjukórs Neskirkju er Steingrímur Þórhallsson. Kirkju- kaffi verður báða dagana eftir messu í safnaðarheimilinu. Á heimasíðu kirkjunnar, neskirkja.is, er nánar greint frá dagskrá og þar eru birtar prédikanir prestanna. Frá föstudegi til sunnudags mun Hjálpræðisherinn á Íslandi halda ársþing í Neskirkju. Neskirkja er við Hagatorg og þangað eru allir velkomnir til helgi- halds og í messukaffi. Gleðilega há- tíð. 100 radda kvennakór KVÖLDMESSA verður í Dómkirkj- unni á annan hvítasunnudag kl. 20 Domus vox – 100 radda kvennakór – sér um sönginn undir stjórn Mar- grétar Pálmadóttur. Organisti og píanisti er Ástríður Haraldsdóttir. Sr. Hjálmar Jónsson flytur hug- leiðingu og sr. Jakob Á. Hjálm- arsson þjónar fyrir altari Verið vel- komin að njóta ljúfrar stundar í lok hvítasunnuhelgarinnar. Hátíðarguðsþjónusta í Bústaðakirkju á hvítasunnudag FIÐLARINN á bornum, Hjörleifur Valsson, leikur á sína frægu fiðlu í hátíðarguðsþjónustu í Bústaða- kirkju á hvítasunnudag kl. 11. Virtu fyrir þér göng í fjalli. Inni í þeim eru verur af ýmsum stærðum og gerðum frá öllum útkimum ver- aldar og tala ólík tungumál. Inn í göngin gengur kjólfataklædd vera, stígur á bor mikinn, og hefur að leika ýmis kunn og ókunn þjóðlög á fiðlu sína við mikinn fögnuð við- staddra. Þessi orð kunna að minna á ein- hverja þjóðsöguna úr safni Jóns Árnasonar, eða kafla úr Hringa- dróttinssögu, en fiðluleikarinn sem hér um ræðir er einn af „góðkunn- ingjum Bústaðakirkju“, Hjörleifur Valsson. Um daginn brá hann sér bæjarleið austur á Kárahnjúka, ásamt fríðu föruneyti fjármögn- unarfyrirtækisins Lýsingar og verk- takans kunna Impregilo. Tilefnið var að Lýsing hefur bæði fjár- magnað eftirlíkingu af Stradivarius- fiðlu fyrir Hjörleif og þrjá risabora fyrir Impregilo vegna fram- kvæmdanna eystra. Sl. sunnudag birtist á baksíðu Morgunblaðsins frétt þessa efnis með stórri mynd, allt að því súrreal- ískri. Er myndin af Hjörleifi með fiðlu sína uppi á einum risabornum. Svo segir í frétt blaðsins: „Fiðlurnar gefa risaborunum lítið eftir í verði, sé verðið skoðað út frá þyngd. Fiðl- an hans Hjörleifs vegur um 470 grömm, en borarnir vega hver um sig 600 tonn. Samkvæmt lauslegum útreikningum Lýsingar má því áætla að hvert gramm borsins kosti um 50 krónur, en hvert gramm fiðl- unnar um 6.382 krónur.“ Á þessa fínu fiðlu mun Hjörleifur Valsson leika í messunni ásamt fé- lögum úr Kór Bústaðakirkju og Guðmundi Sigurðssyni organista. Dagskrá Göngugarpa ÍT ferða í maí og júní 2004: 30. maí: Esjuganga. Mæting við Vetnisstöðina (Shell/ Skalla) við Vesturlandsveg kl. 10. 6. júní: Leggjabrjótur. Gengin gömul þjóðleið frá Svartagili í Þingvallasveit að Botni í Hvalfirði. Þægileg 5 til 6 tíma ganga sem flestir ráða við. Farið verður með rútu að Svartagili og rútan mun síðan ná í hópinn inn í Botnsdal í Hvalfirði. 13. júní: Hengill. 20. júní: Skálafell á Hellisheiði. 27. júní: Síldarmanna- götur áhugaverð leið úr Hvalfirði yfir í Skorradal. Mæting í júní kl. 10 við Vetnisstöðina (Skeljung/Skalla) við Vesturlandsveg nema í Leggjabrjóts- gönguna. Frekari upplýsingar á heimasíðu ÍT ferða www.itferdir.is Andlegt líf og stjórnmál. Indverski jóginn og munkurinn, Dada Ambareshvarananda, heldur fyr- irlestur um tengsl andlegs lífs og stjórnmála á Bleiku Dúfunni, lauga- vegi 21, klukkan 20:00 þriðjudags- kvöldið 1. júní. Aðgangur er ókeypis. Dada Ambareshvarananda er fæddur og uppalinn á Indlandi og hefur und- anfarin 25 ár kennt jóga og haldið fyr- irlestra um andlegt líf og þjóðfélags- mál víða um heim. Í lok fyrirlestrarins mun Dada Amb- areshvarananda svara fyrirspurnum. Fyrirlesturinn er opinn öllum og að- gangur er ókeypis. Meistaraprófsfyrirlestur við tölv- unarfræðiskor. Þriðjudaginn 1. júní kl. 16:15 heldur Kristján Guðbjörns- son fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í tölvunarfræði. Verk- efnið ber heitið: Virkni gæðastaðals til gæðamælinga í hugbúnaði. Fyrirlest- urinn verður haldinn í stofu 157 í VR- II, húsakynnum verkfræðideildar Há- skóla Íslands. Verkefnið fjallar um sannreyningu á gæðastaðlinum ISO 9126. Í vekefninu er beiting líkansins til gæðamælinga skoðuð í rannsókn með þátttöku nem- enda við Háskóla Íslands. Meist- araprófsnefndina skipa dr. Ebba Þóra Hvannberg, dósent, dr. Helgi Þor- bergsson, dósent og dr. Oddur Bene- diktsson, prófessor. Meistaraprófsfyrirlestur við tölv- unarfræðiskor. Þriðjudaginn 1. júní kl. 14 heldur Geir Sigurður Jónsson fyrirlestur um verkefni sitt til meist- araprófs í tölvunarfræði. Verkefni ber heitið Case Study into the Effects of Software Process Improvement on Product Quality Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 157 í VR-II, húsakynnum verk- fræðideildar Háskóla Íslands. Meistaraprófsnefndina skipa dr. Odd- ur Benediktsson, prófessor, Gunn- laugur Þór Briem, verkfræðingur, og dr. Helgi Þorbergsson, dósent. Á NÆSTUNNI Í dag kl. 17.00 Fjölskyldu- samkoma í Fíladelfíu, Hátúni 2. Kl. 21.00 Gospeltónleikar í Fíladelfíu. Gospel Factor frá Danmörku og Gospelkór Reykj- avíkur syngja. 30. maí Móskarðshnúkar — Trana. Fararstj. Gunnar Hólm Hjálmarsson. Brottför kl. 10:30 frá BSÍ. Verð 1.800/2.100 kr. 2. júní Lambafell. Útivistar- ræktin. Mæting við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 18:30. Ekkert þátttökugjald. www.utivist.is Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjarnar- braut 2, Borgarnesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Borgarvík 19, Borgarnesi, þingl. eig. Theodóra Þorsteinsdóttir og Olgeir Helgi Ragnarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtu- daginn 3. júní 2004 kl. 10:00. Sumarbústaður að Selási 1, Borgarbyggð, þingl. eig. Vélaverkstæði Sverre Stengr ehf., gerðarbeiðandi Olíuverslun Íslands hf., fimmtu- daginn 3. júní 2004 kl. 10:00. Þórunnargata 9, Borgarnesi, þingl. eig. Sigurður Einar Stefánsson og Ágústa Hrönn Óskarsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn í Borgarnesi, fimmtudaginn 3. júní 2004 kl.10:00. Sýslumaðurinn í Borgarnesi, 27. maí 2004. Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður. UPPBOÐ RAÐAUGLÝSINGAR SÆVAR Karl opnaði klæðskera- verkstæði í húsinu nr. 22 við Hafn- arstræti í maí 1974 og á fyrirtækið því 30 ára afmæli um þessar mundir. Fyrirtækið hefur síðan verið á nokkrum stöðum í miðbæ Reykja- víkur. Fyrst í Hafnarstræti, flutti síðan á Vesturgötu og tók þá við rekstri og sameinaðist fyrirtækinu „Vigfús Guðbrandsson & Co, Klæð- skerar hinna vandlátu stofnað 1922“. Flutti síðan að Laugavegi 51 árið 1978 þaðan í Bankastræti 11 árið 1983. Sævar Karl ásamt konu sinni, Erlu Þórarinsdóttur, opnaði glæsi- verslun í Bankastræti 7 í desember 1997. „Ég hef mjög einfaldan smekk, ég vel aðeins það besta“, hefur verið slagorð fyrirtækisins. Sævar Karl hefur staðið fyrir alls konar menn- ingarviðburðum, útgáfustarfsemi, hljómleikum og rekstri Gallerís Sævars Karls síðan 1989. Í dag verða útitónleikar í Bankastrætinu í tilefni afmælisins. Útihátíðin byrjar klukk- an 14.30 Fyrirtæki Sævars Karls 30 ára Röng mynd með grein Í Morgunblaðinu í gær var grein eftir Sigmund Jó- hannsson og Frið- rik Ásmundsson í Vestmannaeyjum, sem áður var skólastjóri Stýri- mannaskólans þar. Með grein- inni birtist af vangá mynd af Friðriki Ás- mundssyni Brekkan, sem kom ekki nálægt greininni og er beð- inn velvirðingar á því, svo og lesend- ur. Bjarnheiður Hallsdóttir Rangt var farið með föðurnafn Bjarnheiðar Hallsdóttur hjá ferða- skrifstofunni Katla Travel í Morgun- blaðinu sl. þriðjudag. Er beðist vel- virðingar á því. Nafn misritaðist Nafn Jóns Hilmars Jónssonar hjá Orðabók Háskólans, sem kemur fram í grein Péturs Péturssonar í „Bréfi til blaðsins“ í gær, misritaðist á einum stað. Beðizt er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Friðrik Ásmundsson HIN árlegi Hjálmadagur Kiwanis og Eykyndils var haldinn laugardaginn 15 maí sl. en á þessum degi afhenda Kiwanismenn öllum sjö ára börn- um reiðhjólahjálma. Síðan sjá Eykyndilskonur um að vera með reiðhjólaþrautir fyrir börnin og einnig er lögreglan á staðnum og skoðar allan öryggisbúnað reiðhjóla barnanna. Að lokum er slegið upp grillveislu þar sem allir fá grillaðar pylsur og gos. Þetta er í fyrsta skipti sem hjálmadagurinn er gerður að landsverkefni Kiwanishreyfingarinnar og er hreyfingin komin með styrktaraðila að verkefninu og er það Eim- skip og Flytjandi. Alls eru afhentir um 4.500 hjálmar á landinu. Í Eyjum voru afhentir 82 hjálmar. Hjálmadagur Kiwanis og Slysavarnafélagsins Eykyndils Kirkjustarf Algerlega endurnýjað 5 herb. 155 fm. einbýli á frábærum stað. Nýjar pípulagnir, gluggar og gler, klæðn- ing og einangrun. Bílskúr, sólpallur og stór garður. Verð 26,5 millj. Vilborg og Sverrir taka vel á móti þér í dag milli kl 14:00 og 16:00. Hóll- tákn um traust í fasteignaviðskiptum. www.holl.is Opið hús Efstasund 20 ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.