Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 51

Morgunblaðið - 29.05.2004, Síða 51
Óvenjuleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar HILDUR Lovísa Sigurðardóttir, sjö ára stúlka úr Hafnarfirði, kom fær- andi hendi til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og gaf íþrótta- námskeið hjá ÍR, sem hún hafði unnið til á bingói. Mæðrastyrks- nefnd þakkaði Hildi kærlega fyrir hugulsemina en algengara er að nefndinni berist gjafir frá fyr- irtækjum og eldri einstaklingum. Hildur afhendir hér námskeiðs- skjalið honum James Rice, sem hef- ur sinnt sjálfboðaliðastörfum hjá Mæðrastyrksnefnd að undanförnu. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert aðlaðandi og átt auð- velt með að heilla aðra. Þú tekur nær undantekning- arlaust málstað þeirra sem minna mega sín. Leggðu hart að þér á þessu ári því þú munt uppskera á því næsta. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það verður áfram mikið að gera hjá þér. Þér mun þó gef- ast tími til skemmtilegra sam- ræðna við systkini þín og ná- granna. Þetta er góður tími til að segja þeim hversu miklu máli þau skipta þig. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert í skapi til að eyða pen- ingum í dag. Þig langar fyrst og fremst til að kaupa eitthvað fallegt handa sjálfri/sjálfum þér og þínum nánustu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Sólin og Venus eru í merkinu þínu og því áttu óvenju auð- velt með öll samskipti. Þú ætt- ir að nota tækifærið til að reyna að bæta þau sambönd sem hafa ekki gengið nógu vel að undanförnu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft á aukinni hvíld og einveru að halda. Einvera í notalegu umhverfi mun skipta sköpum fyrir líðan þína. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú nýtur mikilla vinsælda þessa dagana. Þú nýtur þess að vera með öðru fólki og það nýtur návistar þinnar. Reyndu að vera sem mest með öðrum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú nýtur óvenjumikillar at- hygli þessa dagana. Þú ættir því að huga að því hvernig þú kemur öðrum fyrir sjónir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur mikla þörf fyrir að bregða út af vananum. Farðu í ferðalag eða reyndu á ein- hvern annan hátt að brjóta upp hversdaginn. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur haft þörf fyrir að það að undanförnu að kafa undir yfirborð hlutanna. Þú vilt upp- lifa raunverulega hluti og finna fyrir lífinu í æðum þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Eins og stendur hentar þér ekki að gera hlutina upp á eig- in spýtur. Þú hefur þörf fyrir félagsskap annarra og ættir því að reyna að fá annað fólk til liðs við þig. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú leggur mikla áherslu á skipulagningu þessa dagana. Þú vilt hafa allt í röð og reglu í kringum þig og það er ekkert nema gott um það að segja. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Láttu það eftir þér að leika þér svolítið í dag. Þú þarft á fríi að halda. Ástarmálin líta vel út hjá þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú munt sennilega eiga óvenjumikil samskipti við for- eldra þína næstu dagana. Fjölskyldan og heimilið eru í brennidepli hjá þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Konan, sem kyndir ofninn minn Ég finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn með eldhúslampann sinn, og veit, að það er konan, sem kyndir ofninn minn, sem út með ösku fer og eld að spónum ber og yljar upp hjá mér, læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér. Ég veit, að hún á sorgir, en segir aldrei neitt, þó sé hún dauðaþreytt, hendur hennar sótugar og hárið illa greitt. Hún fer að engu óð, er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð. Sumir skrifa í öskuna öll sín beztu ljóð. – – – Davíð Stefánsson LJÓÐABROT 100 ÁRA afmæli. Áhvítasunnudag 30. maí verður 100 ára Sig- urbjörg Lúðvíksdóttir frá Djúpavogi, áður Bólstað- arhlíð 41, nú á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í Oddfellowhúsinu við Vonarstræti kl. 15 á af- mælisdaginn. 80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 29. maí, er áttatíu ára frú Júlía Jónsdóttir, húsfreyja, Klettahlíð 12, Hveragerði. Hún mun taka á móti gest- um hjá dótturdóttur sinni á Víkurströnd 10, Seltjarn- arnesi milli klukkan 16–19 í dag. LESANDINN er beðinn um að setja sig í spor vesturs, sem tekur upp fín spil – 4–5 í hálitunum og 17 punkta: Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠D764 ♥– ♦G103 ♣D109864 Vestur Austur ♠ÁG105 ♠932 ♥Á9432 ♥8765 ♦K2 ♦986 ♣ÁG ♣732 Suður ♠K8 ♥KDG10 ♦ÁD754 ♣K5 Vestur átti á ýmsu von, en varla því að lenda í vörn gegn þremur gröndum. Sú varð þó raunin: Vestur Norður Austur Suður – – – 1 tígull 1 hjarta 2 lauf Pass 3 grönd Pass Pass Pass Regluþrælar er fljótir að benda á að norður eigi of lít- inn styrk fyrir frjálsri sögn, en reynsluboltar hirða lítt um punktareglur þegar skiptingin er mikil. Norður veit sem er að AV eiga minnst 9 hjörtu sín á milli og því gæti þetta hæglega verið eina tækifæri hans til að koma lauflitnum á framfæri. Hann vill setja makker í betri stöðu til að melda ef austur segir 3–4 hjörtu. En hér er það suður sem á öll spilin og hann lýkur sögnum með myndugu stökki í þrjú grönd. Aftur til vesturs. Honum hugnast ekki hjartasókn og byrjar á spaðagosa. Suður tekur þann slag á kónginn og spilar laufkóng. Vestur dúkkar, en fær næsta slag á laufás. Hvað á nú að gera? Jafnvel á opnu borði er ekki einfalt að sjá réttu vörnina – sem er að spila nú spaðaTÍU. Vestur veit sem er að suður á alla þá punkta sem úti eru og hann verður jafnframt að gefast upp fyrir lauflit blinds. Eina vonin er að fríspila spaðann og treysta á fimm slagi: tvo á spaða, hjartaás, tígulkóng og laufás. En það er bráðnauðsyn- legt að spila spaðatíunni – ekki ás og meiri meiri spaða, né heldur litlum spaða. Ef það er gert, getur sagnhafi spilað vestri inn á spaða í lokastöðunni og fengið send- ingu upp í ÁD í tígli. Með spaðatíunni tryggir vestur makker sínum innkomu á níuna, sem hann mun svo nýta vandlega til að spila tígli (eftir að vestur hefur frávísað hjarta kröftuglega). BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 1. júní verður fimmtugur Bjartmann El- ísson, Fjarðarseli 35, Reykjavík. Haldið verður upp á afmælið laugardaginn 29. maí kl. 20, á heimili bróð- ur hans og mágkonu, á Skerðingsstöðum í Dala- sýslu. 1. d4 d5 2. Bg5 h6 3. Bh4 c6 4. Rf3 Db6 5. b3 Bf5 6. e3 Rd7 7. Bd3 Bxd3 8. Dxd3 a5 9. Rbd2 Da6 10. c4 e6 11. O-O Be7 12. Bg3 Rgf6 13. Re5 Rxe5 14. Bxe5 O-O 15. e4 Rd7 16. Bf4 Bf6 17. Bd6 Hfe8 18. f4 c5 19. e5 Be7 20. Bxe7 Hxe7 21. Df3 dxc4 22. Rxc4 cxd4 23. Had1 b5 24. Rd6 Hd8 25. Hxd4 f6 26. Hfd1 fxe5 27. fxe5 Rxe5 28. De4 Rc6 Staðan kom upp á Evrópumeistaramót einstaklinga sem stendur enn yfir í Anatalya í Tyrk- landi. Björn Þor- finnsson (2345) hafði hvítt gegn Doga Goksel (2130). 29. Rf5! Hxd4? 29... Rxd4 hefði tryggt svörtum jafntefli þar SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. sem eftir 30. Rxe7+ Kh8 31. Hxd4 Db6 á hvítur fátt ann- að betra en að þráskáka með 32. Rg6+ Kg8 33. Re7+ þar sem eftir 32. Rc6 kemur 32...Hd5! og svartur stendur betur að vígi. 30. Rxe7+ Kf7 31. Dg6+ Kxe7 32. Dxg7+ Ke8? 32...Kd6 hefði verið betra. 33. Hf1! Re7 34. Hf8+ Kd7 35. Dxd4+ Rd5 36. Dc5 Db6 37. Hf7+ Kd8 38. Dxb6+ og svartur gafst upp.  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 EDEN - HVERAGERÐI Hinni fjölbreyttu sýningu Bjarna Jónssonar listmálara lýkur 31. maí YOGA •YOGA • SUMARYOGA YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103 www.yogaheilsa.is Opið hjá okkur í allt sumar Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla Sértímar fyrir barnshafandi konur ALLIR YOGAUNNENDUR VELKOMNIR ÁRNAÐ HEILLA Get ég fengið yfirdrátt þangað til á laugardaginn þegar ég vinn í Lottó? MEÐ MORGUNKAFFINU FRÉTTIR VINNUEFTIRLITIÐ og Löggild- ingarstofa vilja koma eftirfarandi at- riðum á framfæri til almennings vegna notkunar gasgrilla og annars búnaðar sem brennir gasi. Þegar hugað er að viðhaldi eða kaupum á nýjum gasgrillum, gashit- urum eða öðrum tækjum sem brenna gasi er því mikilvægt að hafa eftirfar- andi í huga: Gasgrill sem seld eru hér á landi eiga að vera CE-merkt til staðfest- ingar því að tækið uppfylli lámarks- kröfur Evrópska efnahagssvæðisins um öryggi. Grillunum og tækjunum skulu fylgja notkunarleiðbeiningar á ís- lensku. Fólki er bent á að lesa þær ná- kvæmlega og fara eftir þeim. Eftir samsetningu gastækja s.s. gasgrilla skal gera lekaprófun með sápuupplausn á öllum gastengingum eins og lýst er í leiðbeiningum. Sömu prófun skal framkvæma þegar skipt er um gaskút. Nauðsynlegt er að endurnýja gass- löngur og þéttingar eins oft og selj- andi eða framleiðandi ráðleggur. Áríðandi er að kynna sér vel reglur um frágang gashylkja og tengingar gastækja s.s. gasísskápa sem ætlaðir eru til notkunar í sumarbústöðum. Leiðbeina um gasgrill

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.