Morgunblaðið - 29.05.2004, Side 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 55
ENSKA dagblaðið The Guardian
greinir frá því að bandaríski kylf-
ingurinn Jack Nicklaus ætli sér að
hætta að keppa á atvinnumanna-
mótum „öldunga“ og hætta sem at-
vinnumaður í íþróttinni, 43 árum
eftir að ferill hans hófst. Nicklaus
verður með á móti sem fram fer í
Bandaríkjunum um helgina en
enska dagblaðið segir að Nicklaus
muni hætta að leika keppnisgolf
eftir það mót. „Ég hef fengið nóg af
golfi og hef áhuga á að gera aðra
hluti,“ segir Nicklaus en hann hef-
ur unnið 18 stórmót á ferli sínum og
er það met. „Hinsvegar elska ég að
keppa, en ég er ekki samkeppnis-
fær eins og staðan er í dag,“ sagði
Nicklaus sem er 64 ára gamall en
hann hefur gefið í skyn að hann
verði með á Opna breska meistara-
mótinu árið 2005, sér til skemmt-
unar.
Nicklaus sigraði á Opna banda-
ríska meistaramótinu árið 1962 og
var það fyrsta stórmótið sem hann
vann, en hann hefur sigrað þrívegis
á Opna bandaríska. Sex sinnum
hefur hann sigrað á Masters-mót-
inu, fimm sinnum á PGA-meistara-
mótinu og þrívegis á Opna breska
meistaramótinu. Fimm sinnum var
hann í Ryderliði Bandaríkjanna og
var fyrirliði liðsins árið 1983 er
Bandaríkjamenn sigruðu úrvalslið
Evrópu. Nicklaus á met sem verður
seint slegið en hann tók þátt í 154
stórmótum í röð en hann hóf feril-
inn 1957 á Opna bandaríska og lét
sig ekki vanta allt til ársins 1998.
Jack Nicklaus ætlar
að draga sig í hlé
„NEI, ég er ekki sáttur með
eitt stig hér í Kaplakrika, alls
ekki,“ sagði Ólafur Jóhann-
esson, þjálfari FH-inga eftir
leikinn. „Við lékum ágætlega,
en mér finnst ennþá vanta eitt-
hvað. Það er einhver hnútur
einhvers staðar þannig að bolt-
inn gengur ekki nógu liðlega á
milli manna, en það er það sem
við erum bestir í, að láta bolt-
ann ganga vel á milli manna,“
sagði Ólafur.
„Við lögðum upp með að
leyfa þeim að spila til baka og
reyna að stoppa þá á miðjunni,
en Keflvíkingar eru með sterkt
lið og ég held okkur hafi tekist
bærilega upp. Þeir fengu ekki
mörg færi gegn okkur og við
fengum heldur fleiri, en það
þarf að nýta færin sem gefast.
Við skutum mikið til að láta
reyna á markvörðinn enda er
hann óreyndur. Hann átti ekki
möguleika í frábært skot Ás-
geirs, hann „svín“-hitti bolt-
ann,“ sagði Ólafur.
Ekki sáttur
við eitt stig
„ÉG er þokkalega ánægður með
leik minna manna og leikinn í
heild, en hefði að sjálfsögðu viljað
fá öll þrjú stigin,“ sagði Milan
Stefán Jankovic, þjálfari Keflvík-
inga, eftir jafnteflið í Kaplakrika í
gær.
„Mér fannst við detta aðeins nið-
ur eftir að við skoruðum, en það er
í sjálfu sér gott að koma hingað í
Hafnarfjörð og ná stigi á móti FH-
ingum því þeir eru með sterkt lið.
Annars er það númer eitt, tvö og
þrjú hjá okkur að láta boltann
ganga vel innan liðsins, sækja og
spila góðan fótbolta. Það er sama
á móti hvaða liði við spilum, við
munum alltaf reyna að spila góðan
fótbolta – jafnvel þó svo við töp-
um,“ sagði þjálfarinn.
Keflvíkingar eru nýliðar í deild-
inni en lið þeirra er mjög sig-
ursælt. „Ég held við höfum tapað
tveimur leikjum í opinberri keppni
síðustu tvö árin þannig að þessir
strákar eru vanir að vinna. Ég segi
samt alltaf við þá að við getum
tapað og held þeir geti tekið því
þótt við vinnum ekki alltaf. Það
kemur að því að við töpum og það
er í lagi svo lengi sem menn gera
sitt besta í 90 mínútur og spila
góðan fótbolta,“ sagði Milan Stef-
án.
Það var alveg ljóst frá upphafileiks að fjör yrði í Fiðrinum því
bæði lið léku af krafti, boltinn gekk
hratt og vel manna á
milli og loksins sá
maður lið sem sóttu
að marki mótherj-
anna en biðu ekki eftir því að eitt-
hvað gerðist af sjálfu sér. Sem dæmi
um hversu fjörugur leikurinn var
má nefna að eftir stundarfjórðungs-
leik höfðu liðin fengið þrjár horn-
spyrnur hvort.
Keflvíkingar voru sterkari í fyrri
hálfleiknum og léku á stundum
mjög vel. Boltinn gekk hratt og
menn voru óragir við að sækja.
Miðjumenn liðsins skiptu oft um
stöður og menn voru mjög hreyf-
anlegir. Þrátt fyrir að gestirnir
lékju betur voru það FH-ingar sem
fengu skárri færi þó svo ekki færi
mikið fyrir dauðafærunum. Ástæð-
an var fyrst og fremst sú að Magnús
Þormar, tvítugur markvörður sem
er að stíga sín fyrstu skref í deild-
inni, átti í erfiðleikum með úthlaup-
in hjá sér. Hann var óragur við að
fara út í teig til að taka fyrirgjafir
FH-inga en oftar en ekki missti
hann af boltanum og við það skap-
aðist nokkrum sinnum hætta í vítat-
eignum.
Ármann Smári Björnsson, sem
kom nú inn í lið FH eftir meiðsli, var
ekki fjarri því að koma heimamönn-
um yfir eftir hálftímaleik. En hann
hitti boltann illa og Magnús varði.
Þremur mínútum síðar komust
Keflvíkingar yfir og var það varn-
armaðurinn sterki Sreten Djurovic
sem skoraði markið með skalla eftir
aukaspyrnu frá hægri.
Rétt fyrir leikhlé átti Ramsay tvö
fín skot utan af vinstri kanti. Fyrra
skotið var rétt yfir markið og af
mjög löngu færi en það síðara small
í þverslánni og var það af um 30
metra færi. Fín skot hjá kappanum.
Magnús varði þrumufleyg FH-
ingsins Ármanns Smára af löngu
færi í upphafi síðari hálfleiks, en
Magnús átti í erfiðleikum með að
halda boltanum í gær, og missti
hann. Atli Viðar Björnsson var
snöggur að átta sig, náði frákastinu
en Magnús varði skot hans vel.
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson jafnaði
síðan metin á 61. mínútu með sann-
kölluðu draumamarki, stöngin inn af
rúmlega 25 metra færi. Hann
„smellhitti“ boltann og átti Magnús
ekki möguleika á að verja gríðar-
lega fast skot hans.
Eftir markið tóku FH-ingar vel
við sér og voru betri aðilinn það sem
eftir var leiks. FH-ingar léku
lengstum ágætlega en það er samt
eins og það vanti eitthvað smávegis
ennþá hjá Hafnarfjarðarliðinu.
Heimir Guðmundsson, fyrirliði liðs-
ins, var fjarri góðu gamni í gær.
Hann er lítillega meiddur á ökla og
var ákveðið að hvíla hann í gær en
hann verður til í slaginn eftir
helgina.
Vörnin var sterk nema hvað
Freyr Bjarnason, sem er venjulega
sterkur, náði sér ekki alveg á strik.
Ásgeir var sterkur á miðjunni og
frammi voru Ármann Smári og sér-
staklega Atli Viðar stöðugt ógnandi.
Jón Þorgrímur Stefánsson átti einn-
ig ágætan leik og var duglegur að
koma til baka til að hjálpa til.
Keflvíkingar eru með fínt lið sem
er virkilega gaman að horfa á.
Blanda af eldri og reyndari leik-
mönnum og svo aftur ungum
strákum sem vilja sanna sig og
leggja sig alla fram. Boltinn „flýtur“
virkilega vel innan liðsins og munar
þar miklu um aftasta manninn á
miðjunni, Stefán Gíslason, og
fremsta manninn á miðjunni, Hólm-
ar Rúnarsson, en þeir áttu mjög
góðan leik í gær. Sama má segja um
Djurovic sem steig varla feilspor í
vörninni og frammi er Hörður
Sveinsson ógnandi og á bekknum
eru einnig fínir framherjar, Guð-
mundur Steinarsson, Magnús Þor-
steinsson og Þórarinn Kristjánsson.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
liðinu í sumar og sjá hvort því tekst
að fylgja eftir góðri byrjun.
Morgunblaðið/Golli
Haraldur Guðmundsson, varnarmaður Keflavíkur, háði margar rimmur við Ármann Smára
Björnsson, framherja FH, á Kaplakrikavelli í gærkvöldi, en að lokum skildu þeir jafnir, 1:1.
Skemmtun
FJÓRÐA jafntefli FH og Keflavíkur í röð á Kaplakrikavelli varð stað-
reynd í gærkvöldi þegar liðin gerðu 1:1 jafntefli í bráðskemmti-
legum og fjörugum leik. Tvímælalaust skemmtilegasti og besti leik-
kur það sem af er keppni í deildinni. Keflvíkingar fóru því aftur í
efsta sætið með sjö stig eins og Fylkir en FH-ingar eru í sjötta sæti
deildarinnar með fjögur stig, einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Reynum
alltaf
að spila
GUÐRÚN Jóhannsdóttir, sem er
við æfingar í skylmingum í Kanada,
tók þátt í kanadíska meistaramótinu
í skylmingum með höggsverði um
síðustu helgi. Guðrún komst í undan-
úrslit – tapaði 7:15 og lenti í þriðja
sæti. Næsta mót sem Guðrún tekur
þátt í, er heimsbikarmót í New York
11.–12. júní.
DÓMSTÓLL KSÍ úrskurðaði í gær
að leikur 3. deildarliðs Hamars og
utandeildaliðs UMF Hrunamanna
sem fram fór í fyrstu umferð VISA-
bikars karla, skyldi dæmdur 3:0
Hamri í vil. Hrunamenn unnu leik-
inn 2:1 en Hamar kærði leikinn á
þeim forsendum að Hrunamenn
hefðu teflt fram ólöglegum leik-
manni, Árna Baldvini Ólafssyni,
sem var skráður í Stjörnuna. Dóm-
stóllinn féllst á þau rök og dæmdi
Hamri sigurinn auk þess sem
Hrunamenn voru dæmdir til að
greiða tólf þúsund krónur í sekt.
Hamar leikur því gegn Ægi í 2. um-
ferð keppninnar.
GUÐLAUGUR Arnarsson, fyrir-
liði Fram í handknattleik, hefur
skrifað undir nýjan samning við fé-
lagið sem gildir til tveggja ára.
PGA-meistaramót eldri kylfinga
hófst í gær í Louisville í Bandaríkj-
unum. Tom Watson og Hale Irwin
eru jafnir í efsta sæti eftir fyrsta
keppnisdaginn eða á fjórum undir
pari vallarins, 67 högg. Irwin hrökk í
gang á lokakaflanum er hann fékk
þrjá fugla á síðustu fjórum holunum.
TOTTENHAM keypti í gær ung-
verska ungmennaliðsmarkvörðinn
Marton Fulop, 21 árs. Hann varður
varamarkvörður Paul Robinson,
sem var keyptur frá Leeds á dög-
unum.
SKIPULEGGJENDUR Bislett
leikanna í frjálsíþróttum sem fram
fara árlega í Noregi hafa ákveðið að
bjóða ekki bandaríska parinu Mar-
ion Jones og Tim Montgomery á
mótið sem fram fer í Björgvin að
þessu sinni þar sem verið er að end-
urreisa Bislett-leikvanginn í Ósló.
SVEIN-Arne Hansen, forsvars-
maður leikanna, segir við sænska
dagblaðið Göteborgs-Posten að
hjónin liggi undir grun um að tengj-
ast notkun ólöglegra lyfja og er
lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum að
rannsaka ásakanir í þeirra garð.
Jones, sem er fimmfaldur Ólympíu-
meistari, hefur hótað málsókn verði
henni meinað að taka þátt í mótum
vegna ásakana um lyfjanotkun en
hún hefur aldrei fallið á lyfjaprófi.
DOC Rivers sem nýverið tók við
sem þjálfari NBA-liðsins Boston
Celtics hefur ráðið tvo aðstoðar-
menn sér við hlið en þeir eru Tony
Brown og Dave Wohl. Brown var
aðstoðarþjálfari hjá Toronto og
Detroit en Wohl hefur verið viðloð-
andi NBA-lið síðustu þrjá áratugi.
FÓLK