Morgunblaðið - 29.05.2004, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 29.05.2004, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2004 61 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 1.30, 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B.i. 12 ára ÁLFABAKKI kl. 2, 3.45. Ísl tal. ÁLFABAKKI Kl. 2 og 4. ísl tal ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2 og 6.  Tvíhöfði  DV  Roger Ebert Chicago Sun Tribune FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“  Tvíhöfði  DV  Roger Ebert Chicago Sun Tribune FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ Útlit myndarinnar er frábært. Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks. Van Helsing er alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur fyllilega undir væntingum. Þ.Þ. Fréttablaðið. Með íslen sku tali Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA ÓDAUÐLEGAR HETJUR GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA AÐ EILÍFU! L Í L J I LIF ILÍF ! B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA ÓDAUÐLEGAR HETJUR GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA AÐ EILÍFU! L Í L J I LIF ILÍF ! Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA ÓDAUÐLEGAR HETJUR GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA AÐ EILÍFU! L Í L J I LIF ILÍF ! B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Bana Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. i l l i Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen. B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i POWERSÝNING kl. 10 I l.  SV MBL  SV MBL AKUREYRI Sýnd kl. 5, 8 og 10 . B.i. 14 ára KEFLAVÍK Sýnd kl. 5.30 og 8.15. B.i. 14 ára KRINGLAN Sýnd kl. 3.30, 5.30, 8, og 10.30. B.i. 12 ára AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 12 ára KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára KRINGLAN kl. 3.45. Ísl tal. Útlit myndarinnar er frábært. Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks. Van Helsing er alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur fyllilega undir væntingum. Þ.Þ. Fréttablaðið. FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ AUÐUNN Blöndal og Pétur Jóhann Sigfússon, umsjónarmenn þáttarins 70 mínútur á sjónvarpsstöðinni PoppTíví, hafa ákveðið að taka sér þriggja vikna frí frá þættinum. Sverrir Þór Sverrisson, sem séð hef- ur um þáttinn ásamt þeim félögum, er einnig fjarverandi um þessar mundir. Auddi og Pétur eru að vinna að Svínasúpunni og Sveppi tekur þátt í uppfærslu á söng- leiknum Fame. „Við mætum allir aftur í byrjun júlí en þeir Simmi og Jói munu stýra þættinum þangað til. Þetta eru snill- ingarnir sem byrjuðu með þennan þátt þannig að hann ætti að vera í góðum höndum og það er ekki hægt að finna betri menn en þá tvo,“ segir Auðunn Blöndal. Auðunn segir að þátturinn 70 mínútur hafi ekki sung- ið sitt síðasta og að þeir félagar hafi mjög gaman af því að vinna við þátt- inn. „Við erum alls ekki orðnir leiðir á 70 mínútum, við vorum að byrja með nýjan dagskrárlið sem heitir stjórnun og fleiri og það hefur verið virkilega gaman.“ Oftar en ekki hafa þeir félagar fækkað fötum í þáttunum og fyrir skömmu tók Pétur sig til og fór úr hverri spjör. Að sögn Auðuns mun það þó ekki verða fastur dag- skrárliður í framtíðinni. „Við ætlum að fara að minnka þetta – ég er kom- inn með nóg að því að vera sífellt hangandi á brókinni,“ segir hann og hlær. „Það eru allir búnir að sjá þetta alveg nógu oft og við þurfum eflaust að finna okkur annan starfs- vettvang í þeim efnum. Það er þó ekki víst að við fengjum borgað fyrir það.“ Ekki hægt að gera öllum til geðs í gríni Um þessar mundir stendur yfir undirbúningur vegna nýrrar þátta- raðar af Svínasúpunni en þættirnir verða átta talsins og hefja göngu sína í lok ágúst. Hann segir að það sé ákveðin afslöppun sem felist í því að Umsjónarmenn 70 mínútna taka sér frí Þeir Pétur, Sveppi og Auddi eru allir í fríi frá 70 mínútum um þessar mundir. Hafa fengið nóg af því að vera á brókinni Morgunblaðið/Eggert vinna að Svínasúpunni, þó að það sé ekkert frí. „Þegar við erum í 70 mín- útum gerum við allt sjálfir. Við röð- um upp settinu, myndum sjálfir og þurfum að finna hugmyndir á hverj- um degi. Það felst því ákveðin af- slöppun í því að vinna að Svínasúp- unni. Þar eru lengri vinnudagar en við þurfum ekki að halda á mynda- vélunum og finna upp á öllu.“ Að sögn Auðuns verður Svínasúp- an með sama sniði og áður en þó ekki eins gróf. „Það voru auðvitað einhverjir sem kvörtuðu undan þátt- unum síðast, en það er þannig í gríni eins og öðru að það er ekki hægt að gera öllum til geðs.“ Það vinnur sama fólk að þáttunum og áður fyrir utan Jón Gnarr, sem kemur nýr inn. „Hann er reyndar ekki í jafn mörgum atriðum og aðrir leikarar en mun koma fram í öllum þáttunum. Það var mjög gaman að fá hann með í þetta og þetta er einn mesti snillingur sem maður hefur hitt.“ FYRSTU útskriftarnemarnir úr tónlistardeild Listaháskólans hafa verið að halda tónleika að und- anförnu. Gyða Valtýsdóttir, fyrr- verandi múm-liði, verður með út- skriftartónleikana sína í Íslensku óperunni klukkan 18 í kvöld og er aðgangur ókeypis og allir vel- komnir. Gyða byrjaði að læra á selló þegar hún var sjö ára gömul og var meðlimur múm frá 1999 til 2002. „Það er ætlast til að við spilum verk frá ólíkum tímabilum í tón- listarsögunni. En svo þegar ég fór að velja uppáhaldsverkin mín þá átti ég erfitt með að fylla upp í sum tímabil. Þá fannst mér skipta meira máli að ég væri að spila verk sem væru ólík í flutningi frekar en að þau væru frá mis- munandi tímabilum. Eins og Arvo Pärt-verkið er skrifað á tuttugustu öldinni en er í miðaldastíl. Gyð- ingalögin eru líka frá 20. öldinni en þau eru allt öðruvísi,“ segir Gyða en alls eru sex verk á efnis- skránni, m.a. eftir Bach og Shostakovich en einnig eftir hana sjálfa. Í fyrstu tveimur verkunum spilar Anna Guðný Guðmundsdótt- ir píanóleikari með henni, annars spilar hún ýmist ein eða með öðr- um. „Kærastinn minn, Daníel Bjarnason, útsetti gyðingalögin fyrir klarínett, fiðlu, selló og kontrabassa.“ Verkið Áróra og Úrverk er eftir Gyðu sjálfa. „Í því er strengja- kvartett og svo er selesta, bjöllur og trommur.“ Fallegt hús og stemning Margir útskriftartónleikanna hafa verið í Salnum í Kópavogi en Gyðu langaði að spila í Óperunni. „Mér finnst þetta svo fallegt hús og mikil stemning í því,“ segir hún. „Það tekur langan tíma að und- irbúa svona tónleika. Maður er alltaf að æfa sig marga tíma á dag en eins og núna síðustu daga eru búnar að vera margar æfingar og samspil.“ Hún er ekki búin að ákveða hvað hún ætlar að taka sér næst fyrir hendur en sér ekki eftir að hafa hætt í múm og einbeitt sér að náminu. „Nei, alls ekki. Ég lærði heilmikið á því að vera í múm og ég bý alltaf að því. En mig langaði að læra þetta almennilega og núna þegar ég er búin með það ætla ég að byrja að púsla einhverju saman úr reynslu minni.“ Gyða Valtýsdóttir, sellóleikari og fyrrver- Flytur eigið verk Gyða Valtýsdóttir er sellóleikari og verður með útskriftartónleika frá LHÍ í kvöld í Óperunni. Útskriftartónleikar Gyðu Valtýs- dóttur verða í Íslensku óperunni klukkan 18 í kvöld. Ókeypis inn. ingarun@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason andi múm-liði, með útskriftartónleika
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.