Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ EFTIRVÆNTINGIN var mikil á meðal hjálparstarfsmanna í Afgan- istan þar sem þeir biðu á flugvell- inum í Kabúl tilbúnir með tóma vörubíla til að flytja hjálpargögn frá Íslandi þangað sem þeirra er helst þörf. Fragtflugvél Íslandsflugs, sem utanríkisráðuneytið leigði til far- arinnar, hafði lagt af stað frá Íslandi rúmum sólarhring fyrr, með 45 tonn af hjálpargögnum innbyrðis, birtist allt í einu í skýjunum og lenti heilu og höldnu á flugbrautinni. Hermenn þyrptust að til að bera kassa fulla af lyfjum frá lyfjafyr- irtækinu Actavis, sem gaf eitt tonn af sýkla- og berklalyfjum, að verð- mæti um 10 milljóna króna, og bretti með kössum fullum af hlýjum vetrarfatnaði sem Rauði krossinn safnaði hjá Íslendingum komu út úr flugvélinni á færibandi hvert á fæt- ur öðru. Innar í vélinni voru sjúkra- rúm, dýnur og önnur hjálpargögn sem Hjálparstarf kirkjunnar safn- aði, tæki og tól sem voru eitt sinn í notkun á íslenskum sjúkrahúsum, en hefur nú verið skipt út fyrir nýrri tæki. Magna Torvund hjá hjálparstarfi norsku kirkjunnar, sem dreifir hjálpargögnunum, segir að þörfin sé mikil á sjúkrahúsum og heilsu- gæslustöðvum í Afganistan, einkum hjá stofnunum í eigu ríkisins. Kemur í góðar þarfir „Sumir spítalanna hafa ekki einu sinni rúm, það eru dýnur á gólfinu og engin lækningatæki – fyrir utan kannski hlustunarpípu. Þessi hjálp- argögn koma því í mjög góðar þarf- ir. Sumt af því sem er um borð er mjög fínt og verður farið með það á góð sjúkrahús hér í Kabúl, á meðan rúmin og dýnurnar munu fara út í héruðin þar sem þörfin er mjög mik- il,“ segir Torvund. Jamila Ibrohim, Rauða hálfmán- anum í Afganistan, segir að mjög kalt sé á veturna í Afganistan. „Margir þurfa hlý föt, bæði fólk sem er hér nú þegar og flóttamenn sem eru að koma aftur til landsins. Þess- um fötum verður dreift af afganska Rauða hálfmánanum, sérstaklega til kvenna og barna. Hér eru margar fátækar konur með börn því fjöldi karla hefur látið lífið í styrjöldum undanfarinna ára. Rauði hálfmán- inn er mjög þakklátur Rauða kross Íslands fyrir þennan stuðning því þörfin hér er mjög mikil. Við vitum að þetta eru góð og hlý föt þannig að þau koma að mjög góðum not- um.“ „Sumir spítal- anna hafa ekki einu sinni rúm“ Morgunblaðið/Nína Björk Jónsdóttir Örn Ragnarsson, sem skipulagði fatasöfnun Rauða krossins, heilsar afgönskum hjálparstarfsmönnum á meðan fatakassarnir streyma úr flugvélinni. Vinstra megin við hann er Jamila Ibrohim hjá Rauða hálfmánanum. ELDSNEYTISVERÐ hefur lækkað aftur undanfarna tvo daga eftir hækkun í byrjun júnímánaðar. ESSO reið á vaðið og lækkaði aftur á fimmtudag, og fylgdu hin félögin í kjölfarið í gær. Algengt verð á 95 oktana bensíni er nú 106,9 kr. í sjálfsafgreiðslu hjá stóru félögunum, ESSO, Skeljungi og Olís, og algengt verð á dísilolíu er 47,3 kr. Verðið er nokkuð lægra hjá sjálfsafgreiðslufélögunum Orkunni, ÓB og Ego. Atlantsolía hækkaði verðið ekki um mánaðamótin og hef- ur verð þar haldist óbreytt undan- farna daga, 101 kr fyrir 95 oktana bensín og 43,5 kr fyrir dísilolíu. Ork- an hækkaði heldur ekki, en þar er verð mjög breytilegt milli stöðva. Lækkun á heimsmarkaði Orsök lækkunarinnar nú skýra forsvarsmenn fyrirtækjana allir með tvennu, lækkun á heimsmarkaðs- verði og samkeppni á smásölumark- aði. Heimsmarkaðsverð hefur lækk- að nokkuð eftir að OPEC- olíuframleiðsluríkin tilkynntu um aukna framleiðslu á olíu, og segja forsvarsmenn félaganna að það auki bjartsýni og hafi áhrif til verðlækk- unar. Forsvarsmenn Atlantsolíu segja þetta hins vegar dæmi um að oft velti lítil þúfa þungu hlassi, og segja hin félögin hafa lækkað verð sitt til að mæta samkeppni frá Atlantsolíu, sem hækkaði ekki verðið á eldsneyti um mánaðamótin eins og önnur fé- lög.                !!      "   #  $ #                                                 ! "  #$ #  %#  Bensínverð lækkar aftur eftir hækkun í vikunni FORSVARSMENN Símans segja ekkert til í því sem komið hefur fram í málflutningi eins sakborn- inganna í Landssímamálinu svo- kallaða, Kristjáns Ra. Kristjáns- sonar, að Síminn hafi veitt fyrirtækjum sem ekki voru beint tengd Símanum lán. Páll Ásgrímsson, framkvæmda- stjóri lögfræðisviðs hjá Símanum, segir að engin dæmi hafi fundist í bókhaldi félagsins um beinar lán- veitingar frá Símanum til óskyldra aðila. Hann segir að eingöngu hafi verið lánað fé til, eða gengist í ábyrgðir fyrir, fyrirtæki sem eru annaðhvort dóttur- eða hlutdeild- arfélög Símans. „Það eru eðlilega dæmi um ein- hverjar lánveitingar til tengdra að- ila, það er að segja dóttur- og hlut- deildarfélaga, en þá er það á grundvelli samþykktar stjórnar og samkvæmt venju í viðskiptum,“ segir Páll. Sem dæmi um fyrirtæki sem Síminn hefur gengið í ábyrgðir fyrir, sem Páll segir jafngilda lán- veitingum, er FARICE hf, sem á og rekur nýlagðan sæstreng til landsins. Síminn ábyrgðist alls 9,4 milljónir evra, um 820 milljarða króna, fyrir FARICE. Í málflutningi lögmanns Krist- jáns Ra. kom einnig fram að Sím- inn hafi keypt víxla og skuldabréf af fyrirtækjum, og staðfestir Páll að það sé gert í því skyni að fá skammtímaávöxtun á lausafé. Hann segir þó að engin dæmi hafi fundist í bókhaldi Símans um að slíkt væri gert nema í gegnum við- urkennd verðbréfafyrirtæki, banka eða fjármálastofnanir, eins og vinnureglur Símans segi til um. „Þess utan lítum við í raun og veru ekki á þau viðskipti sem lán- veitingar vegna þess að félagið var að ávaxta haldbært fé á þessum tíma í þessum tilvikum,“ segir Páll. Tjá sig ekki um viðskiptavini Kristján Ra. fullyrti við aðal- meðferðina að Sparisjóður Kópa- vogs hafi látið Íslenska sjónvarps- félagið fá tugi milljóna króna án formlegra pappíra. Átti það að skýra grandaleysi Kristjáns Ra. vegna þess að hann segist ekki hafa séð neina pappíra vegna fjár- hæða sem komu inn í félagið frá Landssíma Íslands. Carl H. Erlingsson, sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Kópavogs, tjáir sig ekki um þessa fullyrðingu, og segist lögum samkvæmt ekki geta tjáð sig á nokkurn hátt um ein- staka viðskiptavini bankans. Síminn svarar fullyrðingum sakbornings í Landssímamálinu Síminn lánaði aldrei til ótengdra fyrirtækja ÁGREININGUR um áherslur á málþingi um framtíð Reykjavíkur- listans, sem halda átti í dag, á tíu ára afmæli R-listans, varð til þess að þinginu var frestað til haustins. Tímaskortur hafi orðið þess valdandi að ekki tókst að ná lendingu í málinu nógu tímanlega. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var deilt um fjölmörg atriði, eins og yfirskrift málþingsins, hverj- ir ættu að flytja ræður, hverjir ættu að sitja í pallborði og fleira. Var ekki talið að sjónarmið stjórnmálaflokk- anna sjálfra sem standa að kosninga- bandalaginu, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Framsóknar- flokksins og Samfylkingarinnar, kæmu nógu vel fram, eins og upp- leggið var hjá Degi B. Eggertssyni, formanni vinnuhópsins. Hugmyndin hafi verið of mikið mótuð af þeim sem vinni innan R-listans og ekki hafi gefist tími til að vinna þær frek- ar. Ingibjörg Sólrún átti að tala Vísaði vinnuhópurinn málinu til forystumanna borgarstjórnarflokks- ins sem frestuðu málinu til hausts- ins. Var þeim ábendingum komið á framfæri að R-listinn gæti sjálfur séð um skipulagninguna í stað þess að virkja flokksfélögin í Reykjavík til þess en vilji er til þess að fjölbreytt sjónarmið stjórnmálaflokkanna sjálfra fái að heyrast. Dansleikur verður á Hótel Borg í kvöld klukkan 22 þar sem borgar- stjóri og borgarfulltrúar R-listans taka á móti gestum. Átti dagurinn því að vera tvískiptur; fyrst málþing um fortíð, nútíð og framtíð Reykja- víkurlistans og síðan dansleikur um kvöldið. Átti Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, fyrrverandi borgarstjóri, að tala um fortíðina og Þórólfur Árna- son, núverandi borgarstjóri, framtíð- ina. Ekki var full sátt um þá upp- röðun. Önnur hugmynd var að formenn stjórnmálaflokkanna ræddu sína sýn á samstarfið, borg- arfulltrúar sætu í pallborði og svör- uðu gagnrýnum spurningum og börn jafngömul R-listanum flyttu stutt er- indi. Um þetta var gerður ágreining- ur. Dagur B. Eggertsson borgar- fulltrúi segir að undirbúningstími hafi verið of knappur. Einnig hafi Framsóknarflokkurinn verið með miðstjórnarfund í gær og óvissa hefði verið um hvort hann drægist fram á daginn í dag. Það hafi ekki ráðið neinum úrslitum um frestun málþingsins að ekki náðist sam- komulag um dagskrá. Tíu ára afmæli R-listans Málþingi frestað vegna ágreinings STJÓRNARMAÐUR og fyrrv. for- maður Tilveru, samtaka gegn ófrjó- semi, segir að það sé út af fyrir sig fagnaðarefni að heimild heilbrigðis- ráðherra hafi fengist fyrir einka- rekstri tæknifrjóvgunardeildar. Að- alatriðið sé að starfsemin haldi áfram og óvissu hafi þar með verið eytt. Hólmfríður Gestsdóttir, stjórnar- maður í Tilveru, segir að undanfarin misseri hafi starfsemi tæknifrjóvg- unardeildar Landspítalans verið í það mikilli óvissu að erfitt hafi verið fyrir starfsmennina að sinna sinni vinnu. Í sparnaðaraðgerðum spítal- ans hafi deildin ávallt verið neðst á forgangslista og lítill sparnaður t.d. fengist með lokun deildarinnar á sumrin. Hólmfríður segir besta kostinn hafa verið þann að starfsemin fengi að halda áfram óáreitt innan spítal- ans. Ákveðin hætta sé á meiri kostn- aði sjúklinga af einkarekstri, þó að ekkert handbært sé til um það á þessu stigi. Hún segir stjórn Tilveru koma fljótlega saman til fundar og þar verði ákvörðun heilbrigðisráð- herra án efa rædd. Aðalatriðið að starf- semin haldi áfram Samtökin Tilvera um tæknifrjóvgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.