Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 24
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Selfoss | „Mér líður mjög vel í
vinnunni og ég nýt þess að fást við
þau verkefni sem koma hér upp á
hverjum degi. Síðan ég var lítil hef ég
haft gaman af öllu punti. Sólveig,
meistarinn minn, er vinkona mömmu
og í gegnum hana kynntist ég þessari
iðngrein. Hún hringdi í mig þegar ég
var í 9. bekk og sagði að sig hefði
dreymt að ég ynni hjá henni. Mér
fannst þetta gaman og byrjaði að
hjálpa til á stofunni. Eftir grunnskól-
ann fór ég í Förðunarskólann og
byrjaði síðan á samningi hjá Sól-
veigu,“ segir Hugrún Harðardóttir,
nýkrýnd Ungfrú Ísland, en hún starf-
ar á Hársnyrtistofunni Mensý á Sel-
fossi og er komin að því að ljúka námi
í hársnyrtiiðn og taka sveinsprófið.
Það kann að verða bið á því og Hug-
rún segir það ráðast af aðstæðum og
því sem á dagana drífur hjá henni
sem Ungfrú Ísland.
Nauðsynlegt að hafa metnað
„Þessi vinna á mjög vel við mig
eins og allt sem viðkemur tísku. Ég
held þetta sé vegna þess að ég hef
gaman af fínheitum og að skapa þau
sjálf. Í þessu starfi er maður alltaf að
skapa eitthvað, hárið er efniviður í
listaverk eins og leirinn hjá leirlista-
manninum,“ segir Hugrún þegar tal-
ið berst að hársnyrtingunni. „Mér
finnst nauðsynlegt að hver og einn
setji sér það markmið að geta byrjað
að vinna á einhverjum tímamótum,
hvort sem fólk fer í bóknám eða verk-
nám, og nauðsynlegt að hafa metnað
í öllu sem maður tekur sér fyrir
hendur. Ég viðurkenni það alveg að
ég er mjög metnaðarfull og ef ég tek
mér eitthvað fyrir hendur vil ég klára
það almennilega. Ég held ég sé
keppnismanneskja og vil ná árangri í
því sem ég er að gera, það er mér
eðlilegt.“
Rækta þarf líkama og sál
Hugrún viðurkennir að auðvitað
verði litið til hennar á ýmsan hátt og
kveðst vilja sinna öllum þeim verk-
efnum sem upp kunna að koma og
lögð verða fyrir hana. „Ég vil leggja
öllum góðum málum lið. Mér finnst
nauðsynlegt að vera vakandi fyrir því
að taka afstöðu til þess sem að hönd-
um ber í lífinu og ég legg áherslu á að
fólk rækti líkama sinn og sálina með
því að hreyfa sig og gera þá hluti sem
hverjum og einum líður vel með. Fólk
á að skapa sér tíma til að hugsa um
sjálft sig. Þannig erum við í betra
jafnvægi til að takast á við erfið verk-
efni í lífinu og betur búin til að vega
og meta þá kosti sem fyrir hendi eru
hverju sinni,“ segir Hugrún.
„Auðvitað ýtti maður undir það að
hún færi í þessa keppni. Það er stór-
kostleg tilfinning að upplifa þennan
sigur hennar,“ segir Sólveig Hall-
grímsdóttir hársnyrtimeistari og
segist full af stolti eins og Selfossbú-
ar og Sunnlendingar eru. „Þetta er
stór titill og mikið hlutverk sem hún
fær og þarf að standa sig í. Ég treysti
henni vel í það hlutverk vegna þess
að það sem hún tekur sér fyrir hend-
ur gerir hún vel, hvort sem það eru
hversdagslegir hlutir eða eitthvað
mjög áríðandi. Hún skilur ekkert eft-
ir hálfklárað. Svo auðvitað gefur
þessi árangur henni góða reynslu og
tækifæri. Mér finnst hún vera að
uppskera eftir að hafa lagt mikið á
sig við að ná árangri og þetta eflir
sjálfstraust og sjáfsöryggi sem er
þýðingarmikið að hafa í lífinu. Hug-
rún hefur alltaf viljað ná langt og nú
fær hún tækifæri til að reyna sig sem
fyrirsæta og það verður gaman að
fylgjast með henni á þeim vettvangi.“
Ungfrú Ísland er hár-
snyrtinemi á Selfossi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hugrún Harðardóttir, ungfrú Ísland, við vinnu sína á Hársnyrtistofunni
Mensý í lok fyrsta vinnudags eftir keppnina. Í stólnum situr Arndís Jóns-
dóttir og Sólveig Hallgrímsdóttir hársnyrtimeistari fylgist með.
Hveragerði | Laugardaginn 29. maí
voru 59 nemendur brautskráðir frá
Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykj-
um í Ölfusi. Af þessum hópi voru 21
skógarbóndi, sem voru að ljúka
þriggja ára námi í Grænni skógum
á Suðurlandi en þetta er fyrsti hóp-
urinn af skógarbændum, sem skól-
inn útskrifar. Dúx skólans var Guð-
rún Brynja Bárðardóttir, sem
útskrifaðist sem blómaskreytir af
blómaskreytingabraut skólans.
Námsárangur nemenda var mjög
góður og fengu fjölmargir við-
urkenningar og bókagjafir.
Þetta var seinasta útskrift Garð-
yrkjuskólans í 65 ára sögu hans, því
skólinn verður sameinaður Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvann-
eyri frá og með næstu áramótum.
Lög um það voru samþykkt á síð-
asta starfsdegi Alþingis. Það verða
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
(RALA), Garðyrkjuskólinn og
Landbúnaðarháskólinn á Hvann-
eyri, sem sameinast í þennan nýja
háskóla. Eftir útskriftina var öllum
gestum boðið að þiggja veitingar í
húsakynnum skólans, sem um 350
manns þáðu.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Útskriftarhópur Garðyrkjuskólans vorið 2004 ásamt nokkrum af starfs-
mönnum skólans, en þetta er síðasta formlega útskrift skólans.
59 nemar
brautskráð-
ir úr Garð-
yrkjuskól-
anum
Ingólfsfjall | Bæjarráð Árborgar
fjallaði á fundi sínum 3. júní um að-
alskipulag Ölfuss varðandi Ingólfs-
fjall og malartekju sem þar fer fram.
Svarbréf frá Ölfusi við athugasemd-
um Árborgar var lagt fram á fund-
inum. Bæjarráð Árborgar áréttaði
fyrri röksemdir sínar fyrir mikilvægi
þess að vernda vatnsból og hafnar
því að sú breyting sem bæjarstjórn
Ölfuss hefur samþykkt á vatnsvernd-
arsvæði í Ingólfsfjalli vegna Þóru-
staðanámu sé „lítilsháttar breyting“.
Íþróttir | Bæjarráð samþykkti 100
þúsund króna viðbótarfjárveitingu til
sumaropnunar íþróttahúss Valla-
skóla en handbolta- og körfubolta-
fólk hefur óskað eftir nýtingu á hús-
inu yfir sumartímann. Á fundinum
hafnaði bæjarráð því að breyta gervi-
grasvellinum við Vallaskóla í „batta-
völl“.
Kokkakeppni ungmenna | Bæj-
arstjóra Árborgar hefur verið falið
að ræða við skólameistara FSu um
möguleika skólans á að taka þátt í
kokkakeppni ungmenna í vinabæn-
um Kalmar í Svíþjóð en erindi þar
um hefur borist bæjarstjórn.
Útrás | Unglingakór Selfosskirkju
er á förum til Danmerkur í söng-
ferðalag. Kórinn mun koma fram á
þrennum tónleikum í bæjunum Stor-
vorde, Svenstrup og Silkeborg.
Einnig ráðgerir kórinn að syngja í
Legolandi.
Bæjarmál í Árborg
SUÐURNES
Keflavík | Sýning á liðlega fjörutíu
líkönum af Suðurnesjabátum var í
gær opnuð í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar í Duushúsum í
Keflavík. Sýningin verður aðeins op-
in um helgina.
Áhugamannafélag um Bátasafn
Gríms Karlssonar stendur fyrir sýn-
ingunni. Þar eru líkön af mörgum
þekktustu bátum Suðurnesjamanna,
meirihlutinn smíðaður af Grími
Karlssyni, en þau eru í eigu ýmissa
aðila. Sum verða eftir í bátasafninu í
Duushúsum og í gær voru fjögur
þeirra afhent til safnsins. Það eru tvö
líkön af Von, eitt af Hilmi og eitt af
Árna Geir. Þau verða hluti af Báta-
safni Gríms Karlssonar að sýning-
unni lokinni. Fram kom að til stend-
ur að gefa fleiri líkön til safnsins á
næstu dögum.
Fjöldi gamalla skipstjóra og
áhugamanna um safnið var viðstadd-
ur opnuna í gær auk hóps barna úr
Frístundaskóla Holtaskóla. Skoðuðu
þau líkönin af miklum áhuga og sum
gátu sýnt bekkjarsystkinum sínum
frá skipum sem afar þeirra höfðu átt
eða verið sjómenn á.
Tveir félagar úr Áhugamanna-
félaginu, Árni Johnsen og Ólafur
Björnsson, ávörpuðu gesti auk Val-
gerðar Guðmundsdóttur menningar-
fulltrúa. Árni sagði að Grímur Karls-
son hefði smíðað á þriðja hundra
líkana af íslenskum bátum. Safnið
sem ber nafn hans væri einstakt í
heiminum. Ólafur sagði frá þróun
sjávarútvegs í Keflavíkurþorpi fram
yfir síðari heimsstyrjöldina.
Sýningin er haldin í tilefni sjó-
mannadagsins og er opin í dag og á
morgun, frá klukkan 13 til 17.30.
Ekki er innheimtur aðgangseyrir.
Sýning á líkönum
Suðurnesjabáta
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ungur nemur, gamall temur: Rafn Sigurðsson skoðar líkan af Guðrúnu Gísladóttur KE sem sökk við Noreg fyrir
fáeinum árum með krökkum úr Frístundaskóla Holtaskóla sem settu skemmtilegan svip á opnunarathöfnina.