Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 29
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 29
Á Inkaslóðir
Ferðafélagið Garðabakki í samvinnu
við Flugleiðir undirbýr nú þriggja vikna
rólega ferð til Suður-Ameríku. Flogið
verður gegnum Bandaríkin og ferðast
um Perú og Bólivíu. Aðallega er það
menningarheimur hinna fornfrægu
Inka sem skoðaður verður og ferðast
um Inkalöndin hátt til fjalla (2500
m.y.s.) á rútu, járnbraut og bátum.
Viðkomustaðir verða m.a. Lima,
Cuzco, Puno og La Paz. Söguminjar á
borð við virkisborgina frægu, Machu
Picchu, verða skoðaðar sem og sér-
stætt mannlíf og náttúra á stöðum á
borð við Titicaca-vatnið.
Gist verður á í 3-4 nætur á hverjum
stað og búið á góðum hótelum til að
tryggja hollustu. Ferðin verður farin á
hagstæðasta tíma með tilliti til veð-
urfars en búast má við 20 gráðu hita
og lítilli úrkomu.
Aukaferð til Jamaica
Heimsferðir hafa ákveðið að bjóða
upp á aukaferð til Jamaica dagana
2.-9. nóvember en uppselt er í ferði
Heimsferða til Jamaica hinn 11. nóv-
ember.
Nýr bæklingur
Íslenski bæklingurinn „Upp í sveit“ er
nú kominn út hjá Ferðaþjónustu
bænda og er fáanlegur á öllum helstu
upplýsingamiðstöðvum út um allt
land, Essó-bensínstöðvum hringinn í
kringum landið og hjá bændum. Í
bæklingnum er að finna upplýsingar
um fjölbreytta gistingu við allra hæfi á
124 ferðaþjónustubæjum á Íslandi.
Um er að ræða bændagistingu,
sveitahótel, sumarhús og heimagist-
ingu. Ýmiss konar afþreying er orðin
mjög fjölbreytt hjá ferðaþjón-
ustubændum svo sem hestaferðir,
golfvellir við bæi eða í nágrenni þeirra,
merktar gönguleiðir þar sem oft er
hægt að fá leiðsögn, fuglaskoðun,
bátsferðir, sveitaheimsókn barna og
sala á veiðileyfum. Einnig má nefna
ferðir á fjórhjólum og snjósleðaferðir.
Nánar um ferð á Inkaslóðir:
www.simnet.is/gardabakki
donni@simnet.is
Sími: 551 2255
Upplýsingar um aukaferð til
Jamaica fást á skrifstofu
Heimsferða, Skógarhlíð 18
Sími: 595 1000
Upplýsingar um gistingu og af-
þreyingu hjá bændum má nálg-
ast á heimasíðu Ferðaþjónustu
bænda, www.sveit.is.
Veitingahúsið, Caféen i Nikol-aj, í Nikolaj-kirkjunni viðNikolaj plads í hjarta Kaup-
mannahafnar er lítill hádegisverð-
arstaður og sannkölluð vin eftir ráp
um Strikið. Þangað rata fáir ferða-
menn enda staðurinn aðallega
þekktur meðal Dana.
Upprunaleg kirkja varð eldinum
að bráð árið 1795 og stóð kirkju-
turninn einn eftir. Hún var end-
urbyggð af einkaaðila á árunum
1914–1917 en hefur aldrei verið not-
uð sem kirkja og frá 1966 hefur
Kaupmannahafnarborg staðið fyrir
listsýningum í sjálfu kirkjuskipinu.
Veitingastaðurinn rúmar um 80
manns og er þekktur fyrir skemmti-
legan matseðil á sanngjörnu verði.
Boðið er upp á hádegisverðardisk
með mörgum smáréttum eða síld,
fiskisúpu, laxabollur, nautabuff,
kjúklingasalat, osta, ávexti, og tert-
ur svo dæmi sé tekið að ógleymdum
bjór, snafs og kaffi. Þegar vel viðrar
eru stólar og borð dregin út í sól-
skinið.
Á efri hæð er minni salur sem
tekur 25 í sæti og er leigður út fyrir
einkasamkvæmi. Eins má leigja að-
alsalinn og kirkjuskipið sem rúmar
250 manns. Á heimasíðunni eru nán-
ari upplýsingar um veitingastaðinn,
matseðla og verð auk upplýsinga um
jólahlaðborð fyrir jólin 2004.
KAUPMANNAHÖFN | Caféen i Nikolaj
Danskur hádegisverður í kirkju
Morgunblaðið/B. Thors
Kaupmannahöfn: Þegar vel viðrar er borðað úti við Caféen í Nikolaj.
krgu@mbl.is
Caféen i Nikolaj
Nikolaj platz
Kaupmannahöfn
Sími: 00-45-7026-6464
www.nikolajkirken.dk
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Topp-
lausnin
Tryggvabraut 5 • Sími 462 2700Bíldshöfða 14 • Sími 587 6644
Hapro farangurskassi er snjöll lausn til að koma
öllum farangrinum í bílinn. Margar gerðir og stærðir
fyrir alla bíla. Verð frá 27.500 kr.