Morgunblaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR
52 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
innar þar sem Eng-
land mætir Frökkum.
Það eru varnarmenn-
irni Sol Campbell og
Ashley Cole. „Ef við
verðum ekki Evr-
ópumeistarar óska ég
þess að Englendingar
fari alla leið. Þeir eru
með gott lið og þar
eru margir leikmenn
sem eru á meðal
þeirra bestu í heim-
inum. Það sem heillar
mig mest við enska
liðið er að það þarf
að sanna sig í hverj-
um leik,“ segir
Henry.
THIERRY Henry,
framherji enska meist-
araliðsins Arsenal,
segir að hann óski
þess að Englendingar
verði Evrópumeistarar
í Portúgal, að því
gefnu að Frakkar nái
ekki að fara alla leið á
ný, en liðið varð Evr-
ópumeistari árið 2000
er keppnin fór fram í
Belgíu og Hollandi.
Hinn 26 ára gamli
landsliðsmaður frá
Frakklandi mætir
tveimur félögum sín-
um úr Arsenal í fyrsta
leik Evrópukeppn-
Henry óskar Englend-
ingum góðs gengis
Thierry Henry
FÓLK
NOKKRIR stuðningsmenn KR
völdu heldur óvenjulega leið til að
fara á leik síns liðs og Eyjamanna
á þriðjudagskvöldið. Venjulega
fljúga menn til Eyja til að fylgjast
með leikjum en þessir óku austur á
Landeyjasand og fóru þaðan á
gúmbát til Eyja og sömu leið til
baka að leik loknum. Að sjálfsögðu
var KR-fáninn hafður með í för.
EINAR Karl Hjartarson, há-
stökkvari úr ÍR, verður meðal 27
hástökkvara á bandaríska háskóla-
meistaramótinu í næstu viku.
Hann er í 9.–15. sæti með 2,20
metra í ár. Undankeppnin verður
fimmtudaginn 10. júní og úrslitin
síðan á laugardeginum.
ÞAÐ verða því tveir íslenskir
frjálsíþróttamenn á mótinu því auk
Einars Karls keppir Silja Úlfars-
dóttir úr FH í 400 metra grinda-
hlaupi.
ÁGÚST S. Björgvinsson hefur
verið ráðinn þjálfari kvennaliðs
Hauka í körfuknattleiknum fyrir
næsta vetur og tekur hann við af
Bojovic Predrag, sem þjálfaði liðið
síðustu tvö árin. Ágúst hefur þjálf-
að hjá Val og verið með yngri
landslið undanfarið. Hann mun
jafnframt sjá um þjálfun allra
minniboltaflokka hjá félaginu.
TVEIR íslenskir körfuknatt-
leiksdómarar, Kristinn Óskarsson
og Sigmundur Már Herbertsson,
voru á Kanaríeyjum í vikuni þar
sem þeir sóttu endurmenntunar-
námskeið FIBA. Þar gengust þeir
undir þrekpróf, skriflegt próf auk
þess sem þeir þurftu að taka
enskupróf. Næsta vetur munu allir
leikir á vegum FIBA verða dæmdir
af þremur dómurum í stað tveggja
áður. Þriggja dómara kerfið verð-
ur ekki tekið upp hér á landi í
bráð.
ELENA Dementieva frá Rúss-
landi er komin í úrslit í einliðaleik
kvenna á opna franska meistara-
mótinu í tennis. Hún lagði Paolu
Suarez frá Argentínu í tveimur
settum, 6:0 og 7:5. Dementieva,
sem er í 9. sæti á styrkleikalista
mótsins, mætir löndu sinni, Anast-
asiu Myskina í úrslitaleiknum sem
fram fer á laugardag.
MYSKINA sigraði Jennifer
Capriati í hinum undanúrslita-
leiknum í tveimur settum 6:2 og
6:2. Það verður því rússneskur úr-
slitaleikur í dag og er það í fyrsta
sinn í sögu risamótanna sem það
gerist.
LANDSLIÐ Kenýu hefur verið
útilokað ótímabundið frá keppni á
vegum Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins, FIFA vegna afskipta rík-
isstjórnarinnar af málefnum knatt-
spyrnusambandsins þar í landi.
Óvíst er hvort liðið fær að taka
þátt í undankeppni HM en það á að
leika fyrsta leik sinn í undan-
keppninni gegn Gíneu á laugardag.
Ég held að ég hafi aldrei áður tekiðþátt í eins góðri æfingaferð hjá
íslenska landsliðinu og þessir leikir
eru stórir á mæli-
kvarða vináttulands-
leikja. Og þá sérstak-
lega leikurinn gegn
Englendingum. Að
venju er andinn í hópnum frábær og
það skaðar ekki að geta dreift hug-
anum frá knattspyrnunni með því að
fara í golf eða gera eitthvað allt annað
en að hugsa um knattspyrnu. Þessi
ferð er ólík öllu öðru þar sem engin
ferðalög eru að trufla okkur, og menn
geta aðeins slakað á milli æfinga,“
sagði Hermann og sagðist ekki vera
lúinn þrátt fyrir strembið keppnis-
tímabil með liði sínu Charlton í ensku
úrvalsdeildinni.
Hermann var tregur til þess að
segja frá eigin getu í golfíþróttinni en
sagði að félagi sinn úr Vestmanna-
eyjum, Tryggvi Guðmundsson, væri
sá sterkasti í þeirra hópi. „Það gekk
vel í gær hjá mér er ég náði hring á 86
höggum en það gerist ekki oft,“ sagði
Hermann sem taldi sig vera með um
18 í forgjöf.
Hermann taldi að ekkert yrði gefið
eftir í leiknum gegn Englendingum
þrátt fyrir að þeir væru á leið í stór-
keppni skömmu eftir leikinn. „Við
munum að sjálfsögðu ekkert gefa eft-
ir í tæklingunum, en kannski munum
við sleppa þeim tæklingum þar sem
við eigum aðeins 20% möguleika á að
ná boltanum. Ég myndi að sjálfsögðu
fara í slíkar tæklingar í venjulegum
leik en í þessum leik verða slíkar
tæklingar ekki margar,“ sagði Her-
mann brosandi og átti greinilega við
félaga sína í íslenska liðinu sem lentu
í hörðum rimmum í leiknum gegn
Japan.
„Það á ekkert að koma okkur á
óvart í leik enska landsliðsins og við
höfum farið yfir hlutina á okkar æf-
ingum. En við erum ekkert að liggja
yfir myndbandsupptökum af þeirra
leikjum þessa dagana. Við sáum leik-
inn gegn Japan á þriðjudag, og síðan
vitum hvað leikmenn þeirra geta
gert,“ sagði Hermann.
Hermann sagði að oft áður hefði ís-
lenska landsliðið leikið vináttulands-
leiki á sumrin sem væru lítt spenn-
andi og oft væri erfitt að ná upp rétta
hugarfarinu fyrir slíka leiki eftir að
deildarkeppninni væri lokið á Eng-
landi. „En það er annað upp á ten-
ingnum núna. Þetta er eins og að vera
í sumarbúðum í Vatnaskógi, það er
góð stemning í hópnum og allir hafa
eitthvað fyrir stafni. Það er alltaf eitt-
hvað um að vera hjá okkur,“ sagði
Hermann Hreiðarsson.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hermann Hreiðarsson hefur oft staðið í ströngu í vörn íslenska landsliðsins. Hann verður í eldlín-
unni í dag gegn Englendingum í Manchester en allir eiga mótherjarnir að vera honum að góðu
kunnir úr ensku deildinni þar sem Hermann hefur leikið undanfarin sjö ár.
Við munum ekk-
ert gefa eftir
ÞAÐ var létt yfir íslenska landsliðinu á æfingu þess í Salford
enda frábært knattspyrnuveður, skýjað, hlýtt og skúrir af og til.
Leikmenn liðsins voru ekki með legghlífar að þessu sinni, engar
ljótar tæklingar leyfilegar, en samt sem áður var baráttan til
staðar í öllu því sem leikmenn liðsins tóku sér fyrir hendur. Her-
mann Hreiðarsson var að venju fyrirferðarmikill í vörninni er
ungir léku gegn „gömlum“ undir lok æfingarinnar, og að sjálf-
sögðu brá hann sér í sóknina þegar færi gafst, en tókst samt
sem áður ekki að skora. Hermann sagði við Morgunblaðið í gær
að æfingaferð liðsins til Manchester væri með allt öðru yf-
irbragði en áður og menn væru á tánum þrátt fyrir langa fjar-
veru frá sínum nánustu.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Manchester
HELGI Sigurðsson verður í byrj-
unarliði Íslands gegn Englend-
ingum í stað Brynjars Björns Gunn-
arssonar sem er í leikbanni. Eiður
Smári Guðjohnsen mun leika fyrir
aftan framherjapar íslenska liðsins
og verður fremsti maður í fimm
manna miðju. Byrjunarlið Íslands:
Árni Gautur Arason - Ívar Ingi-
marsson, Pétur Hafliði Marteins-
son, Hermann Hreiðarsson - Þórður
Guðjónsson, Jóhannes Karl Guð-
jónsson, Arnar Grétarsson, Indriði
Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohn-
sen - Heiðar Helguson og Helgi Sig-
urðsson.
Helgi inn
fyrir Brynjar
Björn
Eiður þakkaði
Ranieri fyrir
EIÐUR Smári Guðjohnsen,
fyrirliði íslenska landsliðsins,
segir að þrátt fyrir andlega
þreytu í lok keppnistímabils-
ins verði auðvelt að leggja það
til hliðar þegar flautað verður
til leiks í dag gegn stórliði
Englands á City of Manchest-
er Stadium. „Ég var ekki al-
veg nógu vel stemmdur í
leiknum gegn Japan en það
verður allt til staðar í dag. Ég
mun líklega ekki tækla félaga
minn Frank Lampard í leikn-
um en það verður ekkert gef-
ið eftir,“ sagði Eiður.
Spurður um atburði síðustu
daga sem snúa að Chelsea
sagði Eiður að vissulega hefði
verið mikið áreiti vegna komu
portúgalska knattspyrnu-
stjórans Jose Mourinho. „Ég
hringdi sjálfur í Claudio Ran-
ieri í fyrradag og átti við hann
gott spjall, þakkaði honum
fyrir fjögur góð ár hjá
Chelsea og það var gott að
tala við hann sem fyrr.“
Eiður Smári átti von á því
að enska liðið vildi kveðja með
stæl á City of
Manchester Stadium í dag
og þyrfti íslenska liðið að fara
varlega í allar sínar aðgerðir.
„Við þurfum að vanda betur
sendingar okkar á milli og
missa ekki boltann frá okkur
á hættulegum stöðum. Það
eru allir leikmenn enska liðs-
ins hættulegir og með 48.000
áhorfendur á leiknum verður
þetta án efa eftirminnilegur
leikur. Vissulega eru menn
búnir að fá nóg af fótbolta í
bili en maður gerir allt til þess
að fá að leika gegn
Englendingum og sjá virki-
lega hvar við stöndum sem lið
gegn bestu þjóðum Evrópu,“
sagði fyrirliðinn.